Þjóðviljinn - 21.10.1989, Síða 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 21. október 1989
Ragnheiður Davíðsdóttir ritstjóri Við sem fljúgum gleymdi að festa beltið í risastólnum.
Risaormur í viðbragðsstöðu.
Myndir Sáf
í strumpabaöi.
Alveg strumpaður rússíbani.
Það er bölvað strump að strumpa sig eftir línunni.
Strumpur býður gesti velkomna
með strumpakveðju við inn-
ganginn.
Strumpar strampa
strampana strampaða
Utúrstrumpaðir ferðalangar
sem hafa strumpað um
strumpaðar hraðbrautir V-
Evrópu, með kolstrumpuð börn í
aftursætinu, ættu að heimsækja
Strumpagarðinn sem er í Frakk-
landi, skammt frá landamærum
Belgíu, Luxemborgar og V-
Þýskalands, og leyfa börnunum
að strumpa út í félagsskap
strumpa, forynja og annarra
þekktra persóna úr heimi ævin-
týra og teiknimyndasagna.
Það var í apríl sl. vor að þessi
skemmtigarður var opnaður al-
menningi en framkvæmdir við
hann tóku rúm fjögur ár. Þetta er
einskonar evrópst Disneyland,
byggt í kringum persónugallerí
evrópskra þjóðsagna og teikni-
myndasagna. Garðurinn er gríð-
arlega stór og mikið af frum-
legum leiktækjum. Mest áber-
andi er þó hrikalegur rússíbani,
gerður úr viði, sá eini sinnar teg-
undar í Evrópu. Þá er hægt að
þjóta með allslags geimflaugum
og kvikindum um loft, láð og lög.
Þeir sem hafa áhuga á að upp-
lifa jarðskjálfta aðsvipaðri stærð-
argráðu og Kaliforníubúar urðu
að þola í vikunni geta heimsótt
skjálftahúsið, sem svipar til
grísks musteris. Þareru þeirólað-
ir ofan í stóla og svo skelfur allt og
i titrar og musterið hrynur yfir þá.
| Framtíðarfríkin fá einnig
eitthvað við sitt hæfi því gríðar-
stór geimferðamiðstöð er í garð-
inum. Þá eru tvö leikhús í garðin-
um, eitt útileikhús og eitt barna-
leikhús, bíósalir þar sem m.a. er
hægt að sjá kvikmyndina „Kall
utan úr geimnum" eftir enska
leikstjóran Richard Fleischer í
þrívídd og er sem áhorfandinn
verði sjálfur þátttakandi í
leiknum.
Strumpagarðurinn, „Smurf
Big Bang“ er staðsettur í Lorra-
ine, um 40 km. frá Lúxemborg og
15 km. frá frönsku borginni
Metz. Aðgöngumiðinn er nokk-
uð dýr, um 780 krónur fyrir full-
orðna og 450 krónur fyrir börnin,
en á móti kemur að eftir að inn er
komið er ókeypis í öll tæki.
Veitingar á 11 veitingastöðum í
garðinum eru hinsvegar ekki
innifaldar í verðinu. Þá er fjöldi
verslana í garðinum þar sem hægt
er að kaupa minjagripi, fatnað og
ýmislegt annað.
-Sáf