Þjóðviljinn - 21.10.1989, Side 15

Þjóðviljinn - 21.10.1989, Side 15
f VIKULOK í DAG Konur gegna lykilhlutverki Pheobe Muga Asiyo fulltrúi UNIFEM: Vilji menn aðstoðaþriðja heiminn hlýturþað að beinast einkum að konumþvíþœr halda þjóðfélaginu gangandi Hér á landi er nú stödd Pheobe Muga Asiyo, sérstakur fulltrúi Hjálparsjóðs Sameinuðu þjóð- anna fyrir konur - UNIFEM. Er hún hér til að kynna starfsemi sjóðsins sem leggur mikla áherslu á betri lífsgrundvöll kvenna í þriðja heiminum. Asiyo kemur frá Kenýa og hef- ur um áratuga skeið barist fyrir mannréttindum í heimalandi sín- um sem og um gjörvallan heim. Hún hefur gegnt fjölda áhrifast- aða fyrir Kenýa og verið einn af frumkvöðlum í mannréttindabaráttu þjóðarinn- ar. Hún hefur nýlega látið af þingmennsku í Kenýa og tekið við sem sérstakur kynningarfullt- rúi UNIFEM. - Sjóðurinn var stofnaður upp- úr 1975 með höfuðáherslu á mannréttindi kvenna í þriðja heiminum. Okkar starf beinist aðallega að þeim svæðum sem verst eru stödd hvað þetta varð- ar, td. í þorpum ýmissa landa í Afríku þarsem konur vinna nær öll störf fyrir þjóðarbúið. Um 80% bænda í Afríku eru konur og sömuleiðis um 60% bænda í Asíu og 40% bænda í rómönsku Am- eríku. Vilji menn aðstoða þriðja heiminn eru þeir fyrst og fremst að segjast vilja aðstoða konur, sagði Pheobe Asiyo á blaða- mannafundi í gær. - Mannréttindi kvenna eru undirstaða betri heims, bæði hvað varðar félags- og efnahags- lega þróun. Hinsvegar virðast fjölmiðlar ávallt beina spjótum sínum að fjármálahöllunum í Wall Street. Þannig geta þeir ekki fundið lausn á efnahags- vanda heimsins því þriðji heimur- inn er svo stór og gegnir þar lykil- hlutverki. Upplýsa konur 3. heims Á hvaða hátt getið þið aðstoð- að konur í þessum heimshluta? - Við verðum að fræða þær og gefa þeim kost á sömu menntun og karlarnir. Konurnar byrja svo oft að hugsa um heimilið að þær glata tækifæri til menntunar. Bet- ur upplýstar konur eignast oft færri börn og betri heimili og geta upplýst börn sín betur þannig þau gangi einnig menntaveginn. Við þurfum einnig að geta gert fólki kleyft að lifa í sínu þjóðfélagi án þess að það skemmi út frá sér. Á hverju ári breytum við 110 þús- und ferkílómetrum í eyðimörk og er það mikið til vegna þess að fólkið í þessum löndum veit ekki að það er að gera skaða. Við þurfum að kenna konum í þess- um löndum - sem vinna helstu landbúnaðarstörf - að nýta nátt- úruauðlindir á annan hátt. Hvernig geta þjóðir einsog ís- land komið þar að gagni? - Norðurlönd eru mjög fram- arlega á sviði jafnréttismála og skilja frekar þennan vanda. Danska stjórnin gaf td. nýverið fé til UNIFEM og hefur okkur orð- ið talsvert ágengt í löndum einsog Zimbabwe vegna slíkrar aðstoð- ar. Þetta er líka hægt í öðrum löndum og vinnum við nú á svip- aðan hátt með stjórn Tansaníu. Þið hafið konu í forsetastóli og konur eru hvarvetna í áhrifastöð- um í ykkar þjóðfélagi og því væntum við stuðnings frá íslandi. Stjórmálamenn tala mikið um breytingar en nú er tfmi athafna kominn. Við þurfum að aðstoða konur til að standa á eigin fótum því annars gengur þróunin miklu Pheobe Asiyo: íslendingar hafa skilning á jafnréttismálum og geta því hægar. komið okkur til aðstoðar. Mynd: Jim Smart. -þóm Stefna Kvikmyndahátíðar Nú þegar Kvikmyndahátíð er nýlokið er ekki úr vegi að skoða hana í víðara samhengi en faglegar umsagnir kvikmyndaskríbenta hafa náð að gera meðan á hátíðinni stóð. Þetta var níunda hátíðin í röðinni og eru auðvitað skiptar skoðanir um hvernig tókst til að þessu sinni. Eitt verður þó ekki af þessari hátíð tekið, en það er aðsóknin sem var betri en oftast áður. Lengri dagskrá en til tveggja daga í senn hefði samt ekki dregið úr henni! Ef grannt er skoðað er varla hægt að segj a annað en mjög vel hafi tekist með val á myndum á hátíð- ina. Þarna voru flestar helstu kvikmyndir sem gert hafa það gott á öðrum hátíðum síðustu tvö árin eða svo, en var einhverra hluta vegna hafnað af eigend- um kvikmyndahúsa. Myndir sem fengu ýmis meiri- háttar verðlaun, ss. gull- og silfurbjörninn í Berlín 1988, gullpálmann í Cannes 1988 og fjögurra ann- arra sem hlutu sérstök verðlaun á sömu hátíð, fyrstu verðlaun í Rúðuborg 1989 og nýjasta dæmið var mynd sem fékk listrænu verðlaunin í Cannes 1989. Þrjár þessara mynda hlutu reyndar einnig óskar, Evrópuóskar og gullhlébarða í Locarno og margar myndanna voru tilnefndar í ýmsum keppnum. Þá voru sýndar ýmsar mjög athyglisverðar myndirfrá öllum heimshornum þótt ekki teljist þær í hópi þeirra bestu. Á heildina litið virðist Kvikmyndahá- tíð hafa tekist ætlunarverk sitt: að pikka út þær myndir sem hlutu hvað mestan sukkseks á nýliðnum árum þannig að ekki myndaðist gat í kvikmynda- sögu Islendinga. En með því er ekki öll sagan sögð. Erfitt er að vera fullkomlega ánægður þegar talsverðum hluta myndanna hefði jafnvel mátt sleppa. Sem dæmi hefur einhverra hluta vegna ekki tekist að ná því besta úr franskri kvikmyndagerð. Fjórar myndir komu þaðan og var engin þeirra nógu góð til að teljast til stórverka Frakka í dag. Þá hefði auðvitað mátt reyna við ennnýrri myndirtd. Sex, liesand videotape, Jesus de Montreal og Trop belle pour toi sem hlotið hafa verðlaun á þessu ári. Afsökun undirbúningsnefndar - að enn sé von um að fá þess- ar myndir á almennar sýningar - verður þó að teljast góð og gild þótt ég leyfi mér að efast um amk. þær tvær síðartöldu. Kvikmyndahátíð mun því áfram verða á eftir tím- anum hverju sinni og þurfa að hreinsa upp eftir íslensk bíó. Kannski gæti ástandið batnað ef hátíðin yrði haldin árlega. Svo deila menn endalaust um hvort eigi að sýna gamlar myndir í bland við nýmetið og hvort sýna eigi röð mynda í sama flokki einsog nú var gert með István Szabó. Undirbúningsnefndin er því að mörgu leyti ekki öfundsverð af hlutskipti sínu og á erfitt með að leggja nákvæma stefnumörkun hátíðarinnar. Enda hefur það komið á daginn að Kvikmyndahátíð hefur nánast ekkert þróast þennan rúma áratug sem hún hefur verið við lýði. Þetta gæti auðvitað breyst ef ekki glampaði svo illilega á doll- arana í augum íslenskra kvikmyndahúseigenda og þeirgæfu einhverju öðru gaum en bandrískusukki. En þá verða menningarvitarnir líka að mæta í myrkrið þótt ekki sé það kallað Kvikmyndahátíð með stóru K-i. Að síðustu hefur þessi hátíð þá ein- kennilegu sérstöðu að sýna enga innlenda mynd og er það vondur siður sem tilheyrir vonandi fortíðinni. -þóm þJÓDVILJINN FYRIR 50 ÁRUM fyrir 50 árum Kínverski herinn hefurgert harð- ar árásir á lið Japana norðan járnbrautarllnunnar Nachang- Tsiuking. Aðaltakmark árásanna eru borgirnarWuning.Tsinang og Fengshien. 21. október laugardagur. 294. dagur ársins. Fyrsti vetrardagur. Fyrstavika vetrar hefst. Gormánuður byrjar. Kolnismeyjamessa. Sólarupprás í Reykjavíkkl. 8.36-sólarlag 17.48. Viðburðir Bókabruninn mikli í Kaupmanna- höfn 1728. Þjóðhátíðardagur Sómalíu. Sigurjón Ólafsson myndhöggvari fæddur 1908. Ný- sköpunarstjórnin mynduð 1944. APÓTEK Reykjavík. Helgar- og kvöldvarsla lyfj- abúöa vlkuna 20.-26. okt. er í Lyfjabergi og Ingólfs Apóteki. Fyrrnefnda apótekiö eropiö um helgar og annast næturvörslu alla daga 22-9 (tll f 0 frídaga). Siðarnef nda apótekið er opið á kvöldin 18-22 virka daga og á laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr- nefnda. LÖGGAN Reykjavík sími 1 11 66 Kópavogur..............sími 4 12 00 Seltj.nes..............sími 1 84 55 Hafnarfj...............sími 5 11 66 Garðabær...............sfmi 5 11 66 Slökkvilið og sjúkrabílar: Reykjavík..............sími 1 11 00 Kópavogur..............sími 1 11 00 Seltj.nes..............sími 1 11 00 Hafnarfj...............sími 5 11 00 Garðabær...............simi 5 11 00 LÆKNAR Læknavakt fyrir Reykjavík, Sel- tjarnarnes og Kópavog er í Heilsu- verndarstöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi- dögum allan sólarhringinn. Vitj- anabeiðnir, símaráðleggingar og tíma- pantanir í síma 21230. Upplýsingar um lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar í sím- svara 18888. Borgarspítalinn: Vakt virka daga kl. 8- 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis- lækni eða ná ekki til hans. Landspít- alinn: Göngudeildin er opin 20-21. Slysadeild Borgarspítalans: opin allan sólahringinn sími 696600. Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan sími 53722. Næturvakt lækna sími 51100. Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt s. 656066, upplýsingar um vaktlækna s. 51100. Akureyri: Dagvakt 8-17 á Læknamið- stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s. 22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445. Farsími vaktlæknis 985-23221. Kef lavik: Dagvakt. Upplýsingar s. 3360. Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s. 1966. SJÚKRAHÚS Heimsóknartímar: Landspitalinn: alla daga 15-16,19-20. Borgarspítallnn: virka daga 18.30-19.30, helgar 15-18, og eftir samkomulagi. Fæðingardeild Landspítalans: 15-16. Feðratími 19.30- 20.30. Öldrunarlækningadeild Land- spítalans Hátúni 10 B. Alla daga 14-20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild Borgarspítala: virka daga 16-19, helgar 14-19.30. Heilsuverndarstöðin við Barónsstíg opin alla dagá 15-16 og 18.30-19.30. Landakotsspítali: alla daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild: heimsóknir annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. St. Jósefsspftali Hafnarfirði: alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps- t spitalinn: alla daga 15-16 og 18.30-19. DAGBOK Vestmannaeyjum: alla virka daga 15- 16og 19-19.30. SjúkrahúsAkraness: alla daga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra- húsið Húsavík: alladaga 15-16 og 19.30-20. ÝMISLEGT Hjáiparstöð RKÍ. Neyðarathvarf fyrirung- linga Tjarnargötu 35. Sími: 622266, opið allansólarhringinn. Sálfræðistöðin. Ráögjöf í sálfræöilegum efnum. Sími 687075. MS-félagið Álandi 13. Opið virka daga frá kl.8-17. Slminner 688620. Kvennaráðgjöf in Hlaðvarpanum Vestur- götu 3. Opið þriðjudaga kl.20-22, fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22, sími 21500, símsvari. Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa fyrir sifjaspellum, s. 21500, simsvari. Upplýsingar um eyðni. Simi 622280. beint samband við lækni/hjúkrunarfræðing á miðvikudögum kl. 18-19, annars sím- svari. Samtök um kvennaathvarf, simi 21205. Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun. Samtökin '78. Svarað er í upplýsinga- og ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21- 23. Símsvari á öðrum tímum. Siminn er 91-28539. Bllanavakt rafmagns- og hitaveitu: s. j 27311. Raf magnsveita bilanavakt s. 686230. Vinnuhópur um sifjaspellamál. Sími 21260 alla virka daga kl. 1 -5. Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga- nema, er veitt i síma 11012 milli kl. 19.30 og 22.00 á fimmtudagskvöldum. „Opið hus“ krabbameinssjúklinga Skógarhlið 8 er „Opið hús" fyrir alla krabb- ameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á . fimmtudögumkl. 17.00-19.00. Samtök áhugaf ólks um ainæmisvand- ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra. Hringið í sima 91 - 22400 alla virka daga. GENGIÐ Sala Bandaríkjadollar.......... 61,31000 Sterlingspund............. 98,56500 Kanadadollar............ 51,94200 Dönskkróna................. 8,34720 Norskkróna................. 8,81900 Sænskkróna................. 9,48920 Finnsktmark............... 14,22180 Franskurfranki............ 9,59620 Belgískur franki.......... 1,54810 Svissn.íranki............. 37,44120 Holl. gyiiini............. 28,76310 V.-þýsktmark.............. 32.47350 Itölsklíra................ 0,04485 Austurr.sch............... 4,61500 Portúg. escudo............ 0,38490 Spánskurpeseti............ 0,51410 Japanskt yen.............. 0,43505 Irsktpund................. 86,53000 KROSSGÁTA X Lárétf: 1 ágeng4sak- laus 6 viðkvæm 7 klöpp 9kvenmannsnafn 12 umhyggjusöm 14 hrædd15amboð16 fuglar19eðja20glens 21 bölvi Lóðrétt:2blaut3 hreinsa 4 fyrirlíti 5 hreysi 7 meiðast 8 ver- urlOkarlmannsnfan 11 illgresiö 13 auö 7 vitlausa18beita Lausn á síðustu krossgátu Lárétt: 1 háls4köst6 pól7masi9óska12 klökk 14 góa 15 rám 16 klafi 19akki20eðja21 hrella Lóðrétt:2ása3spil4 klók 5 sök 7 möglar 8 skakka10skriða11 aumkar 13 öra 17 lin 18 fer Laugardagur 21. október 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.