Þjóðviljinn - 03.11.1989, Qupperneq 20
SKÁK
HELGI
ÓLAFSSON
Sveit TR til Budapest
Dómnefnd Informator velur bestu skákina
Víðlesnasta og virtasta skákrit
heims er enn í dag júgóslavneska
ritið Informator, sem kemur út
tvisvar á ári u.þ.b. 500 blaðsíður
að stærð. Gildi þess felst fyrst og
fremst í athugasemdum bestu
skákmanna heims, misgóðum að
sjálfsögðu en það er einkum
heimsmeistarinn Garrí Kasparov
sem gleður lesendur með
leiftrandi skýringum. Kasparov
er einn fárra sem virðast ekki
halda eftir mikilvægum upplýs-
ingum. Hann ræðst ótrauður á
skákirnar og brýtur þær til mergj-
ar. Svo eru aðrir sem láta sér
nægja að gera stuttlega grein fyrir
sínum skákum, það læðist jafnvel
að manni sá grunur að þeir geri
svona til að koma í veg fyrir að
aðrir séu að „hnýsast" í sín hugar-
verk, í sumum tilvikum eru
athugasemdirnar þannig að ekki
verður hjá því komist að álykta
að viðkomandi sé að slá ryki í
augu verðandi andstæðinga.
Einn skemmtilegasti kaflinn
varðar val á annars vegar bestu
skák ritsins á undan og hinsvegar
á mikilvægasta fræðilega
innlegginu. Sérstök dómnefnd,
sem um langt skeið hefur verið
skipuð meisturum á borð við Bo-
tvinnik, Smyslov, Gligoric, fjall-
ar um þær skákir sem til álita
koma. Þeir gefa einkunnir frá
einum upp í tíu og sá sem flest stig
hlýtur vinnur. Sigursælastir und-
anfarin ár hafa verið þeir Kaspar-
ov og Karpov, skákheimurinn
einblínir á mót þar sem þeir eru
meðal keppenda og valið er því
skiljanlegt.
í tiltölulega nýútkomnu hefti
af Informator fékk góðvinur ís-
lendinga Mikhael Gurevic 1.
verðlaun fyrir mikilvægustu
fræðilegu endurbótina. í við-
kvæmu afbrigði drottningar-
bragðs tók hann uppá því að
hrókera langt, en ekki stutt eins
og gert hafði verið frá „upphafi
vega“. Þetta uppátæki hans nýtt-
ist Jonathan Speelman harla vel
síðar er hann mætti Nigel Short í
áskorendakeppninni. Sagan segir
að vinkona Jon Tisdall, aðstoðar-
manns Speelman, hafi fundið
skák Gurevic frá sovéska meist-
aramótinu í norsku blaði og sýnt
þeim félögum úrklippuna með
fyrrgreindum afleiðingum. Gure-
vic hlaut 70 stig af 90 mögulegum,
jafnmörg og Kasparov fyrir skák
sína við Ivantsjúk á sama móti,
en í samræmi við sérstakar reglur
fær Gurevic 1. verðlaun frá
SWIFT-félaginu belgíska.
Bestu skák seinna helmings
1899 tefldi hinsvegar Anatoly
Karpov gegn Artur Jusupov á so-
véska meistaramótinu í fyrra.
Það sést best á því hversu þýð-
ingarmikið þetta mót er talið, að í
næstu tveim sætum komu einnig
skákir þaðan. Karpov hlaut 63
stig af 90 mögulegum en aðeins
argentíski stórmeistarinn Oscar
Panno gaf honum hæstu einkunn,
Ivantsjúk fékk hæstu einkunn hjá
þremur dómnefndarmönnum
fyrir furðulega skák við Malanj-
úk og Kasparov hjá tveimur fyrir
glæsilega sóknarskák sína við
Smirin.
En lítum á bestu skák Inform-
ators nr. 47:
Sovéska meistaramótið 1988:
Anatoly Karpov - Artur Jusupov
Drottningarbragð
1. c4-e6
2. Rc3-d5
3. d4-Be7
4. RÍ3-RÍ6
5. cxd5-exd5
6. Bg5-c6
7. Dc2-g6
(Á heimsbikarmótinu í Rotter-
dam á þessu ári lék Jusupov 7.
.. Ra6 gegn Karpov og fékk
ágæta stöðu.)
8. e4-Rxe4?!
(Sennilega er þetta ónákvæmur
leikur en 8. ... de4 hafði verið-
leikið áður og svartur átt í vand-
ræðum með að jafna taflið.)
9. Bxe7-Kxe7
(Allsekki9... Dxe7 10. Rxd5! og
hvítur vinnur.)
10. Rxe4-dxe4
11. Dxe4+-Be6
12. Bc4-Da5+
13. KO-Df5
14. De3-Rd7
15. Hel-Hae8
a b c d e f g h
(Hvítur virðist eiga ágætt tafl en
hvernig er best að þróa stöðuna?
Lausn Karpovs er afar einföld en
stórglæsilega útfærð.)
16. d5!-cxd5
17. Bb5!-a6
18. Da3+-Kd8
19. Da5+-Ke7
(Sem svar við 19. .. Kc8 gefur
Zajcev, aðstoðarmaður Karp-
ovs, upp eftirfarandi afbrigði: 20.
Hcl+-Kb8 21. Dc7+-Ka8 22.
Rd4-Df6 23. Bxa6-Hb8 24. Da5-
Dxd4 25. Bxb7+-Kxb7 26. Hc7
mát.)
20. Db4+-Kf6
21. Dd4+-Ke7
22. Bd3-Dh5
23. h4!
(Hvíta staðan hefur breyst furðu-
lítið en nóg til þess að riðla öllu
jafnvægi hjá svörtum. Hvítur
tryggir nú riddaranum varanlega
bólfestu á g5 og setur svörtu
drottningunni harða kosti.)
23. .. Kd8
24. Rg5-Hhf8
25. Be2-Dh6
26. Bf3
(Hvítur bætir stöðu sína án þess
að svartur fái á nokkurn hátt
aukið olnbogarými sitt.)
26. .. He7
27. Db4-Rf6
(Hvítur hótaði 28. Bxd5 o.s.frv.)
28. Dd6+-Hd7
29. Df4-Rg8
30. Bg4!
(Nú hrynur svarta staðan því 30.
.. Bxg4 strandar á 31. Db8 mát.)
30. .. Kc8
31. Bxe6-fxe6
32. Hcl+-Kd8
33. Rxe6+
(Eftir að hvítur vinnur skiptamun
er eftirleikurinn auðveldur.
Sennilega hefur tímahrak komið í
veg fyrir að Jusupov gæfist upp.)
33. .. Ke7
34. Dxf8+-Dxf8
35. Rxf8 Kxf8
36. Hh3-Re7
37. h5-Kg7
38. h6+-Kf6
39. Hf3+-Ke6
40. Hel+-Kd6
41. Hf6+-Kc7
42. g4-Rc6
43. He8
- og Jusupov gafst upp. Kannski
hefur það verið vegna þessarar
skákar að menn töldu möguleika
hans enga í einvíginu við Karpov
á dögunum. Bestu eiginleikar
Karpovs komu þarna fram, til-
finning fyrir minnstu breytingu á
stöðu ásamt mikilli nákvæmni.
Sveit TR til
Ungverjalands
Næst komandi mánudag held-
ur sveit Taflfélags Reykjavíkur til
Budapest í Ungverjalandi. Þar
fer fram keppni TR-inga og MTK
Budapest í 8-liða úrslitum
Evrópukeppni taflfélaga. Sveit
TR hefur slegið út belgíska liðið
Anderlecht og v-þýsku meistar-
ana Bayern Múnchen. Sveitina
skipa Jóhann Hjartarson sem
teflir á 1. borði, Jón L. Árnason á
2. borði, Margeir Pétursson á 3.
borði, Helgi Olafsson á 4. borði,
Hannes Hlífar Stefánsson á 5.
borði, Karl Þorsteins á 6. borði
og varamaður er Þröstur Þór-
hallsson. Fararstjóri er Jón G.
Briem formaður TR.
MTK Budapest hefur innan
sinna vébanda marga valinkunna
meistara, Lajos Portisch skal þar
frægastan nefna, þá Polgar-
systur, argentíska stórmeistarar.n
Barbero og heimamennina For-
intos og Rajna. Keppnin fer fram
dagana 8. og 9. nóvember.
Málefnalegt ársþing
Ársþing Bridgesambandsins
sl. laugardag var nokkuð árang-
ursríkt fyrir iþróttina í landinu.
Tillögur um breytingu á keppnis-
formi fyrir fslandsmótin í sveita-
keppni og tvímenning, frá Hauki
Ingasyni og Ólafi Lárussyni, voru
afgreiddar með miklum meiri-
hluta atkvæða. Breytingarnar
ganga út frá því að sveitakeppnin
færist aftur í sama form og var
áður, 32 sveitir sem skipt er í 4
riðla og 2 efstu komast í úrslit.
Spilamennska í B-úrslitum fellur
niður. Sveitum er raðað eftir stig-
um í flokka, sem dregið er úr til
röðunar í riðla. Breytingin í tví-
menningskeppni íslandsmótsins
eröllu byltingarkenndari. Pörum
verður fjölgað í úrslitakeppni í 32
pör (í stað 24 áður) og veljast
þessi pör þannig: íslandsmeistar-
ar fyrra árs (1), 23 pör úr opinni
undankeppni (sama og verið hef-
ur) og síðan 8 pör til viðbótar, eitt
af hverju svæði innan BSÍ,
svæðameistarar hvers svæðis.
Rétturinn gengur niður á hverju
svæði, þannig að tryggt er að
sterkasta par svæðisins kemst
beint í úrslit. Þetta þýðir að fram-
kvæmd svæðamóta verður
þregnd í framtíðinni, þannig að
spilarar koma til með að spila á
aðeins einu svæðamóti í framtíð-
inni. Að auki tryggir þetta fyrir-
komulag að hvert svæði mun eiga
fulltrúa í úrslitum landsmóts.
Á þinginu var kjörin ný stjórn
Bridgesambandsins. Helgi Jó-
hannsson, forstjóri Samvinnu-
ferða /Landsýn í Reykjavík, var
kjörinn forseti til 1 árs, án
mótframboðs. í stjórn til 2 ára
voru kjörnir: Magnús Ólafsson
(26 atkv.), Guðmundur Sv.
Hermannsson (26 atkv.) og
Kristján Hauksson (21 atkv.).
Aðrir hlutu færri atkvæði, en alls
voru boðnir fram 6 menn. Fyrir í
stjórn til 1 árs eru: Frímann Frí-
mannsson, Jakob Kristinsson og
Sigríður Möller.
I varastjórn, án mótframboðs,
voru kjörnir: Brynjólfur Gests-
son, Jóhann Jóhannsson og
Kristján Kristjánsson.
Umræður á þinginu voru mál-
efnalegar og upplýsandi fyrir þá
rúmlega 40 fulltrúa sem sóttu
þingið. Sem fyrr var mikili meiri-
hluti fulltrúa af suð-vestur-
horninu, sem er miður fyrir um-
ræðuna um málefni sambandsins.
Fram kom á þinginu að fjárhags-
staða sambandsins er veik um
þessar mundir, en ástæða sé til að
ætla að það standi til bóta þetta
tímabilið. Verkefni vegna er-
lendra samskipta eru í lágmarki
þetta árið, Norðurlandamótið í
Færeyjum og Evrópumót yngri
spilara í Þýskalandi.
Á þinginu voru 4 heiðursmenn
heiðraðir fyrir störf í þágu
hreyfingarinnar. Þeir eru: Eggert
Benónýsson fv. forseti BSÍ, Júlí-
us Guðmundsson fv. forseti BSÍ
og Ólafur Þorsteinsson fv. forseti
BSÍ, og Gunnar Guðmundsson
fv. landsliðsspilari með meiru.
Þarft framtak hjá fráfarandi
stjórn sambandsins.
Nokkrar umræður spunnust
um framkvæmd móta á vegum
BSÍ, svo og undirstöðuatriða,
eins og kennslu- og útbreiðslu-
mál.
í heild má segja að Ársþingi
1989 hafi tekist nokkuð vel.
Andinn á þinginu var jákvæður í
garð kjörinnar stjórnar og þá sér-
staklega vegna kjörs Helga
Jóhannssonar. Er ástæða til að
vera bjartsýnn á komandi starfs-
ári þessarar stjórnar, sem að
mínu mati er skipuð vel hæfu
fólki til að takast á við þau verk-
efni sem bíða úrlausnar. Þar má
nefna fjárhagsmál sambandsins,
ólestur í samræmingu meistara-
stiga, ólestur í keppnisstjóra-
málum og kennslumálum, vand-
ræði Bridgeblaðs á íslandi og al-
menn útbreiðslumál (fjölmiðlar
o.fl.).
Opna sveitamótið á Húsavík,
sem til stóð að spila um þessa
helgi, fellur niður vegna þátt-
tökuleysis. aðeins voru um 12-13
sveitir skráðar til þátttöku, en
lágmarksþátttaka var 16 sveitir
hið minnsta.
Minnt er á skráninguna í Opna
tvímenningsmótið í Sandgerði.
Skráð er á skrifstofu BSÍ og hjá
Karli Einarssyni og Sigurjóni
Jónssyni í Sandgerði.
Guðmundarmótið á Hvamms-
tanga verður spilað á morgun.
Það er tvímenningskeppni í boðs-
formi, þ.e. pörum frá félögum
nyrðra er boðið sérstaklega til
þátttöku.
Á þriðjudaginn hefst hjá Skag-
firðingum í Reykjavík 2-3 kvölda
Butler tvímenningskeppni.
Öllum heimil þátttaka og nóg að
mæta til spilamennsku, án skrán-
ingar. Spilað er í Drangey v/
Síðumúla 35 2. hæð og hefst spila-
mennska kl. 19.30. Keppnisstjóri
er Ólafur Lárusson (s: 16538).
Nú mun ákveðið að úrslita-
leikurinn í Bikarkeppni Bridge-
sambandsins verður spilaður um
næstu helgi. 48 spil verða spiluð á
Hótel Loftleiðum næsta föstudag
og hefst spilamennska kl. 18. Þau
16 spil sem þá verða eftir, verða
síðan spiluð á vegum Stöðvar 2 og
hluti af þeim sýndur í beinni út-
sendingu á laugardeginum, milli
kl. 12.50 og 14.30. Til úrslita spila
(ef einhverjir hafa gleymt því)
sveitir Modern Iceland og
Tryggingarmiðstöðvarinnar
(Bragi Hauksson). Spilamennsk-
an á föstudeginum verður sýnd á
sýningartöflu og boðið upp á
góða aðstöðu fyrir áhorfendur.
Nokkuð skondið spil kom fyrir
hjá Skagfirðingum sl. þriðjudag,
er síðasta spilakvöldið var í
haustbarometer:
S: ÁK
H: G432
T: ÁD1097
L' K9
S: G109 S: D864
H: K1087 H: ÁD
T: K8 T: 65432
L: D532 L: 107
S: 7532
H: 965
T: G
L: ÁG864
Eftir sterka grandopnun
Norðurs (16-18), hálitaspurningu
Suðurs og síðan áskorun, enduðu
N/S í 3 gröndum. Formið er tví-
menningur. Austur „hitti” á
spaðaútspilið, sem sagnhafi tók
heima á kóng. Hverju á hann að
spila í 2. slag? Jú, hann hitti einn-
ig á það, laufaníu og svínaði
gosa... Vestur tók á drottningu,
og skilaði meiri spaða um hæl.
Tekið á ás, út með laufakóng, yf-
irtekið á ás í blindum, teknir 3
slagir á lauf til viðbótar, og síðan
tígulgosi, lítið, drottning og síðan
tígulás og kóngurinn kom sigl-
andi. 5 slagir þar til viðbótar, eða
samtals 11 slagir og hreinn topp-
ur.
Skondið spil, bridge. Eða
hvað?
Eftirmáli: Að vísu gekk spilið
EKKI alveg svona fyrir sig, en
möguleikinn var fyrir hendi, ekki
satt?
Engin nöfn nefnd.
BRIDGE
20 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ
• .•fflfib.A f-1
Ólafur Lárusson
Föstudagur 3. nóvember 1989
it? s&á mmi
-ini-i rjjgijjt£i t/d o / ao' irþco
'íír*rri'V>r. \\p ti v
,i,(. •i.'i, í c i':p*í -vV-»