Þjóðviljinn - 04.11.1989, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 04.11.1989, Blaðsíða 4
þJÓÐVILJINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Tíu litlir negrastrákar Þegar liösmenn í pólitískum flokki þurfa að gera upp hug sinn um þaö, hverja þeir vilji helst senda á landsfund - hvaö er þá eðlilegt að mestu ráöi um þeirra val? Aö sjálfsögöu getur enginn maöur útilokað aö persónuleg andúö eöa sam- úð ráöi nokkru í þeim efnum, enginn sleppur undan þeirri erfðasynd. En ef allt er meö felldu ættu slíkir hlutir ekki aö gera nema minniháttar strik í okkar reikning. Eðlilegast er aö sjálfsögöu, að liðsmenn sendi á landsfund flokks þá sem eru helst í fyrirsvari fyrir hann á ýmsum vettvangi - í ráöum og nefndum og bæjarstjórnum og á þingi, einnig þá menn sem láta aö sér kveöa og með ábyrgö fara í almannasamtökum eins og samtökum launafólks. I þriðja lagi er það vitanlega æskilegt, að menn hafi viö sitt val í huga, hverjir þaö eru sem helst hafa nokkuð markvert til mála aö leggja í pólitískri umræöu dagsins. Nú er á svo sjálfsagða hluti minnst, aö nokkur fjölmiöla- þytur hefur risiö út af kosningu fulltrúa Alþýöubandalagsfé- lags Reykjavíkur á fundi sem haldinn var fyrr í vikunni. Vegna þess aö þar hafa þessi sjónarmið vikið fyrir afleiöing- um af innanfélagsátökum ýmislegum. Er þá sérstaklega til þess tekið, sem vonlegt er, aö einn af fulltrúum Alþýðu- bandalagsins í borgarstjórn lendir nú á varamannabekk. Þaö hefur heyrst í þessu sambandi, aö þetta sé að sönnu ekki nógu gott, en kannski eðlilegt framhald af því sem gerðist fyrir næstsíöasta landsfund, þegar menn áttu von á því aö barist yrði hart um þaö hver yröi næsti formaður Alþýðubandalagsins. En þá gerðist það reyndar líka - meö öörum formerkjum eins og sagt er - að ýmsir ágætir félagar voru felldir frá setu á landsfundi eöa settir á varamanna- bekkinn, hvaö sem leið þeirra störfum í pólitík og aö öörum félagsmálum. Við ætlum okkur ekki þá heimsku að fara að rekja aftur í tímann ásakanir og gagnásakanir sem risið hafa í Alþýðu- bandalaginu út af slíkum málum. Þaö nægir í þessu sam- hengi að slá því föstu, að þeir eru alltof margir sem sekir veröa fundnir um þessa höfuösynd hér: Að gera sér stjórnmál og flokksmál aö einskonarsamsæri „hinna“ gegn „okkur“. Aö hugsa fyrst um það, í hvaða félagsskap einhver er, hverja hann helst umgengst í hreyfingunni - en síður um það hvað sá hinn sami hefur í raun og veru fram að færa. Menn vita aö eitthvað svipað gerist í öllum flokkum og öllum hreyfingum, en það dregur ekki úr þeim raunverulega vanda; sem Alþýðubandalaginu hefur í nokkrum hrinum misvond- um stafað af þröngsýni og persónukífi af því tagi sem nú var nefnt. í sjónvarpsfrétt af fyrrnefndri kosningu hjá Alþýðubanda- lagsfélagi Reykjavíkur fór fram undarleg talning. Þarsagði á þá leið að svo og svo margir tugir fullrúa væru í þessum armi flokksins og einhver tiltekinn slatti í hinum. En tíu fulltrúar voru taldir þess sinnis, að þeir „tækju afstöðu eftir málefnum en ekki mönnum". Ekki vitum við hvernig þessi tala er fengin - en leiðinlegt er það ef satt væri, að ekki væru það nema tíu af um 70 fulltrúum ABR á landsfundi, sem vildu fyrst og fremst gefa því gaum, hvað menn hafa fram að færa, en ekki því hver Italar í það og það skiptið. Þessir „tíu litlu negrastrákar" sýnast óneitanlega varnarlausir í hörðum heimi. Þeim gæti fækkað við minnsta óhapp - eins og gerðist í barnakvæðinu sem við erum að vitna til. Meðan það er mjög brýn þörf á því fyrir styrk og möguleika þess samnefnara til vinstri sem Alþýðubandalagið vill vera, að þeim fjölgi sem allra mest. HUSLYNDI þJÓÐVILJINN Síðumúla 6-108 Reykjavík Sími:681333 Kvöldsími: 681348 Símfax:681935 Utgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans. Framkvœmdastjóri: Hallur Páll Jónsson. Rit8tjórar: Arni Bergmann, ólafur H. Torfason. Fróttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófsson. Aðrir blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Elías Mar (pr.), Guðmundur Rúnar Heiðarsson, HeimirMár Pótursson, Hildur Finnsdóttir(pr.),Jim Smart (Ijósm.), LiljaGunnarsdóttir, ólafurGíslason.Þorfinnurómars- son (íþr.), ÞrösturHaraldsson. Skrifstofuatjóri: Sigrún Gunnarsdóttir. Skrtfstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pótursdóttir. Aug!ý8inga8tjóri: Olga Clausen. Auglysingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Svanheiður Ingi- mundardóttir, UnnurÁgústsdóttir. Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, ÞorgerðurSigurðardóttir. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Útbreiðsiu- og afgreiðslustjóri: Guðrún Gísladóttir. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir. Innheimtumaöur: Katrin Bárðardóttir. Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, símar: 68 13 33 & 68 16 63. Símfax:68 19 35 Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310. Umbrotog setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Ðlaðaprent hf. Verð i lausasölu: 90 kr. Nýtt Helgarblað: 140 kr. Askrittarverðémánuði: 1000kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN' Laugardagur 4. nóvember 1989

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.