Þjóðviljinn - 04.11.1989, Qupperneq 4
þJÓÐVILJINN Málgagn
sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
Tíu litlir
negrastrákar
Þegar liösmenn í pólitískum flokki þurfa að gera upp hug
sinn um þaö, hverja þeir vilji helst senda á landsfund - hvaö
er þá eðlilegt að mestu ráöi um þeirra val? Aö sjálfsögöu
getur enginn maöur útilokað aö persónuleg andúö eöa sam-
úð ráöi nokkru í þeim efnum, enginn sleppur undan þeirri
erfðasynd. En ef allt er meö felldu ættu slíkir hlutir ekki aö
gera nema minniháttar strik í okkar reikning. Eðlilegast er aö
sjálfsögöu, að liðsmenn sendi á landsfund flokks þá sem eru
helst í fyrirsvari fyrir hann á ýmsum vettvangi - í ráöum og
nefndum og bæjarstjórnum og á þingi, einnig þá menn sem
láta aö sér kveöa og með ábyrgö fara í almannasamtökum
eins og samtökum launafólks. I þriðja lagi er það vitanlega
æskilegt, að menn hafi viö sitt val í huga, hverjir þaö eru sem
helst hafa nokkuð markvert til mála aö leggja í pólitískri
umræöu dagsins.
Nú er á svo sjálfsagða hluti minnst, aö nokkur fjölmiöla-
þytur hefur risiö út af kosningu fulltrúa Alþýöubandalagsfé-
lags Reykjavíkur á fundi sem haldinn var fyrr í vikunni.
Vegna þess aö þar hafa þessi sjónarmið vikið fyrir afleiöing-
um af innanfélagsátökum ýmislegum. Er þá sérstaklega til
þess tekið, sem vonlegt er, aö einn af fulltrúum Alþýðu-
bandalagsins í borgarstjórn lendir nú á varamannabekk.
Þaö hefur heyrst í þessu sambandi, aö þetta sé að sönnu
ekki nógu gott, en kannski eðlilegt framhald af því sem
gerðist fyrir næstsíöasta landsfund, þegar menn áttu von á
því aö barist yrði hart um þaö hver yröi næsti formaður
Alþýðubandalagsins. En þá gerðist það reyndar líka - meö
öörum formerkjum eins og sagt er - að ýmsir ágætir félagar
voru felldir frá setu á landsfundi eöa settir á varamanna-
bekkinn, hvaö sem leið þeirra störfum í pólitík og aö öörum
félagsmálum.
Við ætlum okkur ekki þá heimsku að fara að rekja aftur í
tímann ásakanir og gagnásakanir sem risið hafa í Alþýðu-
bandalaginu út af slíkum málum. Þaö nægir í þessu sam-
hengi að slá því föstu, að þeir eru alltof margir sem sekir
veröa fundnir um þessa höfuösynd hér: Að gera sér
stjórnmál og flokksmál aö einskonarsamsæri „hinna“ gegn
„okkur“. Aö hugsa fyrst um það, í hvaða félagsskap einhver
er, hverja hann helst umgengst í hreyfingunni - en síður um
það hvað sá hinn sami hefur í raun og veru fram að færa.
Menn vita aö eitthvað svipað gerist í öllum flokkum og öllum
hreyfingum, en það dregur ekki úr þeim raunverulega vanda;
sem Alþýðubandalaginu hefur í nokkrum hrinum misvond-
um stafað af þröngsýni og persónukífi af því tagi sem nú var
nefnt.
í sjónvarpsfrétt af fyrrnefndri kosningu hjá Alþýðubanda-
lagsfélagi Reykjavíkur fór fram undarleg talning. Þarsagði á
þá leið að svo og svo margir tugir fullrúa væru í þessum armi
flokksins og einhver tiltekinn slatti í hinum. En tíu fulltrúar
voru taldir þess sinnis, að þeir „tækju afstöðu eftir málefnum
en ekki mönnum".
Ekki vitum við hvernig þessi tala er fengin - en leiðinlegt
er það ef satt væri, að ekki væru það nema tíu af um 70
fulltrúum ABR á landsfundi, sem vildu fyrst og fremst gefa
því gaum, hvað menn hafa fram að færa, en ekki því hver
Italar í það og það skiptið. Þessir „tíu litlu negrastrákar"
sýnast óneitanlega varnarlausir í hörðum heimi. Þeim gæti
fækkað við minnsta óhapp - eins og gerðist í barnakvæðinu
sem við erum að vitna til. Meðan það er mjög brýn þörf á því
fyrir styrk og möguleika þess samnefnara til vinstri sem
Alþýðubandalagið vill vera, að þeim fjölgi sem allra mest.
HUSLYNDI
þJÓÐVILJINN
Síðumúla 6-108 Reykjavík
Sími:681333
Kvöldsími: 681348
Símfax:681935
Utgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Framkvœmdastjóri: Hallur Páll Jónsson.
Rit8tjórar: Arni Bergmann, ólafur H. Torfason.
Fróttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófsson.
Aðrir blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Elías Mar (pr.), Guðmundur
Rúnar Heiðarsson, HeimirMár Pótursson, Hildur Finnsdóttir(pr.),Jim
Smart (Ijósm.), LiljaGunnarsdóttir, ólafurGíslason.Þorfinnurómars-
son (íþr.), ÞrösturHaraldsson.
Skrifstofuatjóri: Sigrún Gunnarsdóttir.
Skrtfstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pótursdóttir.
Aug!ý8inga8tjóri: Olga Clausen.
Auglysingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Svanheiður Ingi-
mundardóttir, UnnurÁgústsdóttir.
Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, ÞorgerðurSigurðardóttir.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Útbreiðsiu- og afgreiðslustjóri: Guðrún Gísladóttir.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir, Hrefna
Magnúsdóttir.
Innheimtumaöur: Katrin Bárðardóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, símar: 68 13 33 & 68 16 63.
Símfax:68 19 35
Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrotog setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Ðlaðaprent hf.
Verð i lausasölu: 90 kr. Nýtt Helgarblað: 140 kr.
Askrittarverðémánuði: 1000kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN' Laugardagur 4. nóvember 1989