Þjóðviljinn - 04.11.1989, Page 9
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Spilakvöld
Spilakvöld veröur í Þinghól Hamraborg 11 mánudaginn 6. nóv-
ember klukkan 20.30.
Allir velkomnir. Stjórnin
Geir Ólafur Magnús Jón
Alþýðubandalagið Reykjanesi
Aðalfundur kjördæmisráðs
Aöalfundur kjördæmisráös Alþýðubandalagsins í Reykjanesi
verður haldinn laugardaginn 11. nóvember klukkan 13 í Gaflinum
Hafnarfirði.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Ný stjórn kjörin.
3. Fulltrúar á landsfund kjörnir.
4. Magnús Jón Árnason bæjarfulltrúi í Hafnarfirði ræðir um
sveitarstjórnarmál og samstarfið við Alþýðuflokkinn í bæjarstjórn-
inni.
Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra og formaður Al-
þýðubandalagsins ásamt Geir Gunnarssyni alþingismanni
mæta á fundinn og gefst fundarmönnum tækifæri til að ræða
stjórnmálaviðhorfið á komandi vetri. Stefnt er að því að fundi verði
lokið klukkan 18.
Kvöldvaka: Um klukkan 20 er kvöldverður og kvöldvaka. Mið-
averð krónur 2.300. Fólagar sýna á sér hina hliðina. Steinar
Guðmundsson leikur undir borðhaldi og Heimir Pálsson syng-
ur. Leynilögreglan kemur á staðinn.
Skyndihappdrætti Alþýðubandalagsins í Reykjaneskjördæmi.
Dregin verður út utanlandsferð frá Samvinnuferðum Landsýn að
eigin vali fyrir 50 þúsund krónur auk margra annarra góðra vinn-
inga.
Allir félagar í Alþýðubandalaginu og gestir þeirra eru velkomnir
á meðan húsrúm leyfir. Stiórnin
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Fundur um bæjarmál
Fundur verður í Þinghól, Hamraborg 11,
laugardaginn 4. nóvember kl. 10.f.h.
Á fundinn mæta Valþór Hlöðversson
bæjarfulltrúi og fulltrúi ABK í umhverfisráði
og fulltrúar ABK í skipulagsnefnd,
umferðarnefnd og byggingarnefnd og
gera grein fyrir störfum nefndanna það
'sem af er kjörtímabilinu.
Fundurinn er öllum opinn. Stjórn og bæjarmálaráð ABK
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Málþing um borgarmálefni
Hvaða mál verða í brennidepli kosningabaráttunnar fyrir borgar-
stjórnarkosningar 1990?
Hverjar eru helstu áherslur Alþýðubandalagsins í borgarmálefn-
um.
Þetta verður m.a. á dagskrá málþings ABR fimmtudaginn 9. nóv-
ember 1989 að Hverfisgötu 105.
Dagskrá:
Kl. 17.00 Kynnt undirbúningsstarf fjögurra umræðuhópa.
Almennar umræður.
Kl. 19.00 Kvölverðarhló.
Starf málefnahópa.
Kl. 21.00 Almennar umræður um starfið framundan og málefni
fyrir starfshópa vetrarins.
Félagar fjölmennum og tökum þátt í stefnumótuninni.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Akureyri
Bæjarmálaráð
Fundur verður haldinn í bæjarmálaráði mánudaginn 6. nóvember
kl. 20.30 í Lárusarhúsi.
Auk undirbúnings fyrir bæjarstjórnarfund 7. nóvember verður
sérstaklega rætt um atvinnumál og æskulýðsmál.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Garðabæ og Bessastaðahreppi
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Garðabæ og Bessastaða-
hreppi verður haldinn í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli mánudaginn
6. nóvember kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa í kjördæmisráð.
3. Kosning fulltrúa á landsfund Alþýðubandalagsins.
4. Önnur mál.
Stjórnin
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Öldrunar-, félags- og heilbrigðismál
Fundur verður í umræðuhópi borgarmálaráðs að Hverfisgötu
105, þriðjudaginn 7. nóvember kl. 17.00. Undirbúningurfyrir mál-
þing um borgarmálefni.
Stjórnin
Framhaldaf bls. 7
staðli, merkja slík efni aðeins á
tvo vegu, nefna þau „ofnæmis-
valdandi“ eða aðeins „ertandi“,
eftir því hvort ofnæmi hlýst við
innöndun eða snertingu. (Hyg-
gjum að kröfu 7 hér ofar.) Kemur
þetta Neytendasamtökunum
við?
Neytendasamtök
og neytendavernd
Myndin er hin sama, hvar sem
hugað er að umhyggju EB fyrir
hagsmunum neytenda. Ýmist er
sniðið að minnstu hugsanlegu
lágmarkskröfum eða vísvitandi
fyrirskipað að leyna neytendur
eiginleikum þeirrar vöru, sem
sett er á markað. Heiðarlegra
framleiðenda geta jafnvel beðið
viðurlög, merki þeir vöru sína af
samviskusemi.
í þessu samhengi virðast þær
verða næsta léttvægar, 4. og 5.
krafan hér að ofan, krafan um
bótarétt, reynist vöru ábótavant,
og opinberan íhlutunarrétt, sé á
rétt neytenda gengið. Og hvar
eru þau lög í EB nú sem neytend-
ur geta í raun sótt nokkra vernd
til í ljósi dæma sem þessara?
Ákvæði 3, sem varðar frjálst
vöruval, rýrnar að gildi, eftir því
sem lágmarksstöðlun er hvar-
vetna komið á í EB og þeir oftar
en ekki gerðir að hámarksstöðl-
um jafnframt. Nokkurt umhugs-
unarefni kann það einnig að vera
íslenskum iðnrekendum, að ger-
ist ísland aðili að EB, verður tæp-
ast óátalið lengur að setja upp
skilti með orðum á við „Veljum
íslenskt“, „Styrkjum íslenskan
iðnað“, „Styrkjum íslenskan
landbúnað“. (Saknaðarlaust yrði
Neytendasamtökunum okkar að
líkindum um hið síðasttaida; þau
standa í þeirri trú, að matvæli séu
svo dæmalaust ódýr í EB, og
gleyma þá að taka með í bókhald-
ið þá staðreynd, að % hlutar allra
fjárlaga í EB hafa til þessa gengið
til landbúnaðar, niðurgreiðslu,
eftirlits og þess kostnaðar sem
það bakar bandalaginu að eyði-
leggja tæp fimm tonn af landbún-
aðarvörum á mínútu. Svo að EB-
borgarar geta þá leitt getum að
því, hvert allir þeir fjármunir séu
sóttir, meðan þeir naga „ódýru“
kjúklingana sína.) En allt um
það; værum við fuligildur aðili að
EB, yrði vitaskuld tómt mál að
tala um „heimamarkað" og lítil
tök á að vinna neytendur til at-
fylgis við uppbyggingu atvinnu-
veganna hér. Forbrugerrádet
danska hefur verið óspart á for-
dæmingar á framkomu EB við
neytendur. En um viðhorf ís-
lenskra neytendasamtaka virðist
enn gegna öðru máli. Að vísu
kostar það samtökin sjálfsagt t
íma og þrek að rækja þá megin-
hugsjón sína í neytendavernd að
útrýma landbúnaði á íslandi.
Tími kynni þó að vinnast þeim til
að huga að því, hvernig merking-
arskyldu neysluvöru er háttað í
EB, og hvernig íslenskar reglu-
gerðir reynast í samanburði við
boð og bönn Evrópubandalags-
ins. Ég spyr: Telja þau slík mál
koma sér við eða ekki? Hafa þau
talið ómaksins vert að kynna sér
þau? Og þá e.t.v. að kynna þau
öðrum? Hér væri gott að fá
greinargóð svör.
Mánuður til stefnu
Um þessar mundir fara fram
umfangsmiklar viðræður um
samstarf EFTA og EB. Um ein-
stök atriði þeirra viðræðna hafa
fulltrúar íslands því sem næst
engar upplýsingar veitt almenn-
ingi hérlendis; Alþingi er einnig
ófrótt um það sem í vændum
kann að vera. Upplýsinar um
raunveruleg umræðuefni samn-
inganefndanna hefur til þessa
þurft að sækja til erlendra aðila.
Vita menn til dæmis, að samning-
anefndir EFTA-ríkja hafa sam-
þykkt sem grundvöll viðræðna
það, sem á rammri stofnana-
frönsku er kallað „acquis com-
munautaire“, sem merkir, að að
öðru jöfnu skuli miðað við þær
reglur, sem EB hefur þegar sett?
ÞJÓÐVIUINN - SlÐA 9
ÞJÓDMÁL
EB gaf tóninn strax fyrir upphaf
viðræðnanna, Jacques Delors,
formaður Framkvæmdastjórnar
EB áréttaði, að í engu yrði hvik-
að frá þegar settum reglum
bandalagsins. Það verður því
EFTA-ríkjanna að víkja. Svo
ójafn er leikurinn. Hitt er ljóst,
að þessi mál á að afgreiða á
hlaupum. Alþingi fær naumast
mánuð til að fjalla um niðurstöð-
ur samningaviðræðnanna, þegar
þær birtast nú í mánaðarlok. Illt
að Alþingi skuli þurfa að una slík-
um kostum, vera til þess neytt að
fjalla um jafnþungvæg og um-
fangsmikil mál án þess að ráðrúm
gefist til viðhlítandi meðferðar.
Og ekki síður illt, að almenning-
ur í landinu skuli svikinn um þær
upplýsingar frá fulltrúum sínum,
sem hann á heimtingu á og eru
forsenda þess, að hann geti
myndað sér skoðanir á málinu að
einhverju marki.
Ekki veit ég, að hve miklu leyti
mál í ætt við þau ofantöldu hefur
borið á góma í yfirstandandi við-
ræðum EFTA og EB. Neytend-
asamtökin ættu að sjá sóma sinn í
því að fræða okkur um það hið
bráðasta. Og mál á borð við þau,
sem ég hef rakið varða vitaskuld
miklu fleiri aðila hérlendis, allar
þær stofnanir, sem sinna
neytendavernd í einhverri mynd.
Stofnanir, sem sinna heilbrigðis-
eftirliti, lyfjainnflutningi, eftirliti
með fóðurvöru, vinnustaðavernd
o.fl. o.fl. Og ekki varða þau síst
okkur hin, neytendurna.
„Nú getum við selt í Evrópu
draslið, sem við þurftum að
senda til Afríku áður,“ ku hafa
heyrst í Brussel. Sönn saga, ef til
vill.
Aldur 13 — 16 ára!
YKKAR STAÐIJR
... í kvöld ! vá,
VIÐ ÁLFABAKKA!!!
(ÁÐUR BRODWAY)
SKEMMTISTM)UR
13 - 16 ára!
?????? . . . hvað hann heítir
— það er spuming kvöldsins!
OpN l/NnR
hátíðF?
DUNDUR
*^>blSKÓTEK
VERÐ MIÐA KR. 500.-
Léttar - ódýrar - veítingar!
í kvöld kl. 20.00-00.30.
ÍÞRÓTTA-OG
TÓMSTUNDARÁÐ