Þjóðviljinn - 07.11.1989, Page 2
FRETTIR
Þjóðviljinn
Selma Ósk Kristiansen með miða í byggingarhappdrætti Þjóðviljans en í dag verður dregið í happdrættinu.
Mynd Jim Smart. _______ ;
Gestaboð
Þorsteinn Pálsson í Israel
Félagið Ísland-Palestína skorar á hann að heimsœkja flóttamanna-
búðir og pólitíska fanga í ísrael.
Þorsteinn Pálsson formaðjir
Sjálfstæðisflokksins er nú í Is-
rael í boði þarlendra stjórnvalda.
Átti hann í gær viðræður við leið-
toga ísraelsstjórnar, þá Yitzhak
Shamir forsætisráðherra og
Simon Peres aðstoðarforsætis-
ráðherra. Þá lagði hann einnig
blómsveig á minnisvarða gyðinga
sem létust í útrýmingarbúðum
nasista.
Þorsteinn Pálsson verður í ís-
rael í boði þarlendra stjórnvalda
fram á laugardag.
f tilefni heimsóknar Þorsteins
hefur Félagið Ísland-Palestína
sent frá sér yfirlýsingu, þar sem
bent er á að stjórnvöld í ísrael
hafi í 41 ár virt að vettugi grund-
vallarmannréttindi palestínsku
þjóðarinnar og að þau hafi staðið
að mannránum og hryðjuverkum
á erlendri grund. Pau hafi virt að
vettugi Genfarsáttmálann,
mannréttindayfirlýsingu samein-
uðu þjóðanna og áskoranir Ör-
yggisráðsins og vinveittra ríkja.
Þá er í yfirlýsingunni bent á að
Þorsteinn Pálsson hafi hingað til
neitað að ræða við fulltrúa palest-
ínsku þjóðarinnar og reynt að
koma í veg fyrir að Islendingar
eigi eðlileg samskipti við hana.
Að lokum segir í yfirlýsing-
unni: „Félagið lsland Palestína
skorar á Þorstein Pálsson að
heimsækja flóttamannabúðir
Palestínumanna, pólitísku fang-
ana í ísraelskum fangelsum og
rústir palestínskra byggða, sem
ísraelsstjórn hefur látið jafna við
jörðu. Við teljum að Þorsteinn
ætti að ræða við Palestínumenn á
herteknu svæðunum og athuga
hvernig ísland gæti veitt þeim
stuðning. Hann ætti einnig að
leggja blómsveig á grafir pa-
lestínskra barna, sem gestgjafar
hans hafa látið skjóta til bana.“
-ólg
Dregið í dag
í happdrættinu
Hallur Páll Jónsson: Með þátttöku íhapp-
drœttinu styrkja menn málsvara vinstri stefn-
unnar. Selma Osk Kristiansen: Undirtektir
hafa verið nokkuð góðar
Eg geri mér vonir um að áskrif-
endur og stuðningsmenn
blaðsins okkar fagni heimsendum
happdrættismiðum og kaupi þá
með ánægju, vegna þess að með
þátttöku í happdrættinu er hver
og einn að styrkja þennan eina
málsvara vinstri stefnu meðal
fjölmiðlanna hér á landi sem
Þjóðviljinn er, sagði Hallur Páll
Jónsson framkvæmdastjóri Þjóð-
viljans, en í dag verður dregið í
byggingarhappdrætti Þjóðvilj-
ans.
Að sögn Selmu Óskar Kristi-
ansen umsjónarmanns bygging-
arhappdrættisins hafa undirtektir
verið nokkuð góðar en enn vant-
ar þó töluvert á að skil hafi borist
einsog best hefur orðið áður.
„Ég hvet alla að nota síðasta
söludaginn til að greiða
heimsenda gíróseðla eða að snúa
sér til umboðsmanna eða skrif-
stofu Þjóðviljans,“ sagði Selma
Ósk.
Dunray
Fiskiþing mótmælir
Dunray getur haft hin skelfilegustu áhrif
Fertugasta og áttunda Fiski-
þing mótmælir harðlega áfor-
mum breskra stjórnvalda um
uppsetningu endurvinnslustöðv-
ar á kjarnorkuúrgangi í Dunray í
Skotlandi.
Það er skoðun Fiskiþings að
minnstu mistök í slíkri stöð gætu
haft skelfilegustu áhrif á allt líf-
ríki í Norður-Atlantshafi og því
styður þingið heilshugar mótmæli
íslenskra stjórnvalda. Áhættan af
slysum af völdum kjarnorkuskipa
og af vinnslu kjarnorkuúrgangs
verði fyrirbyggð með alþjóð-
legum samningum sem íslending-
ar beiti sér fyrir.
-grh
Vinningarnir í ár eru óvenju
glæsilegir. Aðalvinningurinn er
bifreið, Lada Samara sem kostar
454.000 krónur. Auk bifreiðar-
innar eru margir aðrir glæsilegir
vinningar, samtals að upphæð um
eina og hálfa miljón króna. Má
þar nefna vídeóupptökuvél sem
kostar 120 þúsund, þrjár Island
PC tölvur, tveir ferðavinningar
að upphæð 80 þúsund krónur
hver, vídeótæki, örbylgju- og
grillofnar og vöruúttektir hjá
Byggingavörudeild Sambandsins
og Miklagarði. Þá eru veglegir
bókavinningar í boði, Ritsafn
Jónasar Hallgrímssonar, íslend-
ingasögurnar, Sturlunga og
bókaúttektir hjá Máli og menn-
ingu.
„Það er mikilvægara en margur
kynni að halda, að leggja fram
litla upphæð í þessu skyni, vegna
þess að margt smátt gerir eitt
stórt,“ sagði Hallur Páll í gær og
benti á að oft á tíðum hefði af-
koma happdrættisins skorið úr
um það hvort blaðið væri rekið
með miklu tapi eða óverulegu og
jafnvel engu.
„Svo knappur hefur rekstur
blaðsins okkar jafnan verið og
það vita flestir okkar áskrifenda,
enda höfum við ekki einungis
leitað til þeirra árlega með
happdrættið, heldur einnig leitað
eftir fjárframlögum af og til.
Okkar styrkur er einsog jafnan
fyrr fólginn í samstöðu jjeirrar
fylkingar sem skipað hefur sér
undir merki jafnréttis, þjóðfrelsis
og skýrrar vinstri stefnu á öllum
sviðum samfélagsins,“ sagði
Hallur Páll.
-Sáf
Vigdísi Finnbogadóttur forseta íslands afhent fyrsta eintakið af bókinni
um listakonuna í Fjörunni.
Listakonan í Fjörunni
Akureyrardeild Félags kvenna í fræðslustörfum hefur gefíð út bók um
listakonuna í Fjörunni, Elísabetu Geirmundsdóttur, en í ár eru 30 ár
liðin frá þvfað hún dó. Elísabet var hógvær og hljóðlát listakona sem
með óvenjulegum og fjölþættum hæfíleikum varpaði birtu á leiðir
samferðamanna sinna. Hún naut lítiliar tilsagnar á listabrautinni, en
eðlislægir hæfileikar og þrá til listsköpunar voru henni leiðarljós.
Nokkrar konur úr Akureyrardeildinni og tvö af börnum Elísabetar
fóru á fund Vigdísar Finnbogadóttur forseta fslands sl. föstudag og
afhentu henni fyrsta eintakið af bókinni, en Vigdís er heiðursfélagi
samtakanna á fslandi.
Banaslys á
Patreksfirði
Ungur maður lést í bílslysi og
tveir slösuðust aðfaranótt laugar-
dagsins þegar bifreið valt við bæ-
inn Raknadal nokkra kílómetra
frá Patreksfirði. Annar farþeginn
gekk handleggsbrotinn til Pat-
reksfjarðar til að ná í hjálp. Lög-
reglan kom á staðinn og var þá
ökumaðurinn látinn en hinn far-
þeginn hafði nefbrotnað og mar-
ist. Farþegarnir eru báðir á
sjúkrahúsinu á Patreksfirði, en
að sögn lögreglunnar á Patreks-
firði í gær var ekki enn búið að ná
í alla aðstandendur ökumannsins
og því ekki hægt að gefa upp nafn
hans.
Leiðrétting
f grein um fjórða bindi Iðnsögu
íslendinga Frá eldsmíði til eleks-
írs sem birtist í Þjóðviljanum á
föstudag var Smári Geirsson höf-
undur bókarinnar sagður skóla-
stjóri Verkmenntaskólans í Nes-
kaupstað. Það er ekki rétt því
Smári lét af störfum sem skóla-
stjóri árið 1987, en þá tók Albert
Einarsson við stöðunni. Eru við-
komandi beðnir velvirðingar á
þessum mistökum.
Börn og ábyrgð
á umhverfinu
Þorvaldur Örn Árnason nám-
stjóri í náttúrufræði heldur fyrir-
lestur á vegum Rannsóknastofn-
unar uppeldis- og menntamála í
dag kl. 16.30. Fyrirlesturinn
nefnist Hvernig kennum við
börnum að taka ábyrgð á um-
hverfínu, og mun Þorvaldur Örn
víkja að áhyggjum manna af um-
hverfísmálum, auknum áhuga á
umhverfisvernd og hlutverki
skóla og félagasamtaka á þessu
sviði. Fyrirlesturinn er haldinn í
Kennaraskólahúsinu við Lauf-
ásveg. Öllum er heimill að-
gangur.
Plútón
Samtök íslenskra eðlisfræðinga
gegn kjarnorkuvá halda al-
mennan fræðslufund á morgun
miðvikudaginn 8. nóvember í til-
efni af alþjóðlegri friðarviku vís-
indamanna. Á fundinum mun
Ingvar Árnason efnafræðingur
fjalla um plútón, efnafræðilega
eiginleika og skaðleg áhrif þess.
Verulegir plútónflutningar verða
bæði á sjó og landi ef Bretar
byggja nýja endurvinnslustöð
fyrir kjarnorkueldsneyti í Dounr-
ay en plútón er mjög geislavirkt
og einnig hættulegt eitur. Fund-
urinn verður í Skólabæ, Suður-
götu 26 og hefst kl. 20.30.
Gítarleikari á
Háskólatónleikum
Gítarleikarinn Uwe G. Eschner
mun leika á öðrum Háskólatón-
leikunum í vetur á morgun mið-
vikudaginn 8. nóvember. Esch-
ner er fæddur í Hamborg árið
1963 og stundaði nám við Hamb-
urger Konservatorium og tónlist-
arháskólann í Freiburg og lauk
þaðan prófí í febrúar f ár. Hann
er nú búsettur á íslandi og stund-
ar kennslu. Á efnisskrá eru verk
eftir F. Sor, Fioreno-Torroba og
M.Giuliani. Tónleikarnir eru í
Norræna húsinu og hefjast kl.
12.30.
Engan skatt
á bækur
Framkvæmdastjórn Bandalags
háskólamanna skorar á
stjórnvöld að undanskilja bækur
virðisaukaskatti við gildistöku
hans um næstu áramót. í ályktun
stjórnarinnar segir að íslensk
bókmenning skipi stærstan sess í
menningararfi þjóðarinnar og að
nú á fjölmiðlaöld sé nauðsynlegt
að hún dafni, en til þess þarf verð
bóka að lækka.
Suðurland og
San Francisco
Kynningarnefnd Verkfræðing-
afélags Islands heldur almennan
kynningarfund um jarðskjálfta
þar sem fjallað verður um það
hvernig öryggi okkar sé háttað,
en talið er að áhrif Suðurlandss-
kjálftans geti orðið svipuð í
Reykjavík og áhrif skjáltans urðu
f San Francisco fyrir nokkrum
vikum. Björn Ingi Sveinsson
jarðskjálftaverkfræðingur sem
starfað hefur í San Francisco sl.
10 ár, Ragnar Sigurbjörnsson
forstöðumaður Verkfræðistofn-
unar Háskólans og Páll Halldórs-
son jarðskjálftafræðingur á Veð-
urstofu íslands verða frummæ-
lendur á fundinum. Fundurinn er
í Norræna húsinu og hefst kl.
20.00.
Styrkingar í
jarðgöngum
Jarðgangafélag íslands og
Mannvirkjafræðafélag íslands
munu í samvinnu við sænska
sendiráðið gangast fyrir kynning-
arfundi í fundarsal Órkustofnun-
ar, Grensásvegi 9, þriðju hæð, í
dag kl. 17 um styrkingar í jarð-
göngum. Kynningin verður á
ensku.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 7. nóvember 1989