Þjóðviljinn - 08.11.1989, Side 9
MINNING
Það var komið kvöld, brátt lið-
inn einn af þessum dögum sem
svo margir hafa verið líkir hver
öðrum á þessu sumri, nema rign-
ingin var með meira móti þennan
dag, óvenju fíngerð og þétt. Þeir
gleymast flestir þessir dagar þeg-
ar frá líður nema eitthvað verði til
að minna á þá. Og það er einmitt
stundum að sumir dagar verða í
minningunni öðruvísi en aðrir
dagar og sum kvöld verða minnis-
stæð.
Síminn hringdi og það leyndi
sér ekki að eitthvað hafði gerst.
Óskar í Álftarhóli er allur. Þar
sem hann var að sækja kýrnar
sínar til að setja þær inn kom
stundin sem við eigum öll vísa.
Ég sé hann fyrir mér ganga eftir
túninu, skrefin dálítið stór þegar
hugur er í honum, og hann
hreyfist svolítið upp og niður um
leið og honum miðar áfram.
Hann er ákveðið með hugann við
það sem hann er að fást við,
leggur metnað sinn í að kýrnar
séu fallegar og skili góðum afurð-
um, og hefur gaman af að ganga
hér um þessi tún sem hann lagði
mikla vinnu í að gera vel slétt.
Þegar hann var að vinna þau og
ekki var hægt að slétta betur með
dráttarvélinni og því sem aftan í
henni var, eða því sem var aftan í
hestunum, þá fór hann heim og
sótti skóflu til að gera betur. Það
launar sig að ganga vel frá áður
en lokað er. Enginn efast um að
hann gerði allt vel. Og hann gat
gengið hér um með góða sam-
visku, með orðin fleygu í huga:
„Bóndi er bústólpi og bú land-
stólpi". Þetta var hans kvöld sem
verður í minningu okkar, sem
eftir erum, tileinkað honum.
Óskar fæddist 19. 6. 1911 í
Miðmörk undir Vestur-
Eyjafjöllum. Sonur hjónanna
Sigurbjargar Árnadóttur frá
Miðmörk, og Ólafs Halldórs-
sonar frá Rauðafelli, Austur-
Eyjafjöllum, elstur tólf systkina.
Árið 1912 flytur hann með for-
eldrum sínum að Álftarhóli í
Austur-Landeyjum, þar sem
hann átti heimili alla tíð síðan.
Það þarf engum getum að því að
leiða að enginn auður hefur verið
í búi ungu hjónanna í Álftarhóli á
þeim árum, og börnin hafa ekki
gert stórar kröfur um lífsins lysti-
semdir. Mér skildist að Óskari
hafi ekki þótt neitt tiltökumál þó
hann færi með leggina sína til að
renna sér á ísnum þegar hann
byrjaði í barnaskóla. Samt leyndi
sér ekki að vænt þótti honum um
þegar Loftur á Bakka, alkunnur
hagleiksmaður, sendi honum
nýja skauta.
Sjálfsagt hefur Óskar snemma
fundið til ábyrgðartilfinningar
gagnvart búinu heima, enda elst-
ur sinna systkina, og hann var
ungur þegar hann fór að heiman í
vinnumennsku og til vers sem
hann gerði svo um árabil til að ná
í nokkrar krónur svo og heimilið
gæti betur staðið í skilum með
það sem þurfti að kaupa. Hann
tileinkaði sér baráttu verka-
mannsins fyrir betri kjörum. Þar
eins og annarsstaðar myndaði
hann sér skoðanir eftir því sem
hann mat málefnin. Hann hlust-
aði vel eftir fréttum og var vel
heima í umræðunni um þjóðmál-
in, og ekki bara málefni sinnar
þjóðar heldur líka annarra þjóða
og þjóðarbrota svo árum skipti
aftur í tímann. Hann sjálfur var
strangheiðarlegur í öllum við-
skiptum og vildi að allir gerðu
slíkt hið sama. vann alla tíð erfið-
isvinnu og mikið hjá öðrum. Ég
hugsa að á öllum bæjum í
sveitinni hafi hann komið að
húsasmíði meira og minna. Og þá
var eins og hans hagsmunir væru
verkið hverju sinni. Ekki bara
var hann góður smiður heldur var
hann hálf hlaupandi við það sem
hann var að gera. Það var því rök-
rétt við hans framkomu að vona á
Oskar Olafsson
Fœddur 19.
og tala fyrir jafnari skiptingu
þjóðarteknanna.
Það eru liðin fjörutíu og fimm
ár síðan sá sem þessar línur ritar
flutti í sveitina og á þeim tíma
hafa vitanlega orðið mikil um-
skipti, það fólk sem þá stóð fyrir
búi hefúr smám saman verið ým-
ist að draga sig í hlé fyrir aldurs
sakir eða hverfa yfir móðuna
miklu. Hægum, taktföstum
skrefum gerist það, tímans niður
er stöðugur og óaflátanlegur.
Stundum flytja allir burtu og ein-
hver nýr og óþekktur kemur í
staðinn að yrkja jörðina. Á öðr-
um bæjum taka afkomendur þess
sem var við búi og halda áfram
elju einyrkjans. í þessi fjörutíu
og fimm ár og lengur en það, að
ég held, hefur Óskar staðið fyrir
búi í Álftarhóli. Árið 1951 fékk
hann til liðs við sig unga stúlku
sem átti eftir að breyta öllu um
hans lífsgang, Ölmu Ernu Ólafs-.
son, fædd Wolf frá Þýskalandi.
Eiginkonu, sem hefur verið
traustur og góður lífsförunautur,
og saman skila þau framtíðinni
níu myndarlegum og vel gerðum
börnum, sem eru þegar búin að
skila fimmtán barnabörnum.
Óskar bjó öðruvísi en við hinir,
að því leyti að hann fjárfesti hæg-
ar. Og hann tók ekki
skammtímalán til að kaupa fyrir
áður en hækkaði, þó von væri á
gengisfellingu. Hann bókstaflega
vildi ekki nota verðbólguna til að
græða á henni þó öll lán væru
óverðtryggð. Það var andstætt
hans hugsun, hans réttlætis-
kennd, að borga ekki eðlilega og
réttlátlega þau lán sem fengin
voru. En þau hjón komust undar-
lega vel af á lítilli jörð sem stóran
barnahóp. Og nú er ekki ver upp-
byggt í Álftarhóli en annarsstað-
ar og snyrtimennskan til fyrir-
myndar. Énginn má heldur skilja
orð mín svo að Óskar hafi ekki
fylgt kröfu tímans um framfarir,
enda eins og áður sagði lagði
hann metnað sinn í að gera allt
vel, að kýrnar mjólkuðu vel og
mjólkin væri í háum gæðaflokki,
að rækta kindurnar sínar. Og að
túnin hefðu góða rót. Þegar byrj-
að var að þurrka með vélgröfnum
skurðum, sem breytt hefur
sveitinni úr því að vera varla
byggileg í eina af þeim bestu
þessa lands, þá var fyrsti skurður-
inn grafinn í Álftarhóli, sem vit-
anlega sýndi að hann vissi hvers
landið þurfti helst með.
Núna hafa orðið breytingar á
búsforráðum í Álftarhóíi, og þar
með á öllum bæjum í sveitinni á
áðurnefndu tímabili. Mér finnst
að ein af styrkum stoðum þessar-
ar sveitar sé fallin. Það varð eng-
inn héraðsbrestur, Óskar var
ekki að trana sér upp í ræðustól
og sóttist ekki eftir metorðum
eða miklum völdum. Og ekki efa
ég að áfram verður góður bú-
skapur á Álftarhóli. En samfélag
okkar sem höfðum samskipti við
hann verður snauðara eftir.
Sterkur persónuleiki setur alltaf
svip á sitt umhverfi. Núna síðustu
ár hittumst við oftar en áður, við
unnum saman að ákveðnu verk-
efni og af því sköpuðust fleiri
fundir. Við spjölluðum líka
margt, við vorum alls ekki alltaf á
sömu skoðun en skoðanamunur
okkar olli engum erfiðleikum í
umræðum um allt milli himins og
jarðar. Enda fannst mér eftir því
sem ég kynntist Óskari að hann
viðurkenndi meira skoðanir ann-
arra en margur annar. Hann var
þó vissulega aldrei með neina
hræsni, en sagði það sem honum
fannst og stundum voru orðin
ansi hnitmiðuð. Hann beitti því
þegar hann sendi til dæmis pistla í
blöð eða annað. Honum var
bóndi Álftarhóli
6. 1911 - Dáinn 28. 9. 1989
eiginlegt að stílfæra vel það sem
hann gerði af slíku tagi.
Eitt til marks um opna hugsun
hans var hvað hann naut þess síð-
ustu árin þegar þau hjón fóru í
skemmtiferðir til útlanda, en það
létu þau ekki eftir sér meðan
börnin voru ung og allt var lagt í
uppeldi þeirra.
Óskar var vel á sig kominn,
meira en í meðallagi stór og
styrkur, handtakið þétt og fast og
maður gerði sér alltaf grein fyrir
að hugur fylgdi augnatilliti og
handtaki.
Undirritaður hefur satt að
segja verið að hugsa meðan hann
var að færa betta á blað hve and -
stætt Óskari væri svona mikil um-
fjöllun um hann. Því hann var
enginn „ég-maður“ gortaði ekki
afsínum verkum. Ogeinmitt þess
vegna langaði undirritaðan að
segja þeim sem lesa þessar línur
ofurlítið frá þessum hreinskiptna
samtímamanni sem gerði kröfur
til sjálfs sín, en síður til samfé-
lagsins.
Konu hans og fjölskyldu sendi
ég innilegar samúðarkveðjur.
Grétar Haraldsson
Óskar var fæddur í Mið-Mörk
undir Eyjafjöllum 19. júní 1911,
dáinn 28. sept. 1989. Foreldrar:
Sigurbjörg Árnadóttir (1885-
1975) og Ólafur Halldórsson
(1874-1963) frá Rauðafelli. For-
eldrar Sigurbjargar voru Margrét
Engilbertsdóttir bónda í Syðstu-
Mörk og Árni Árnason bónda á
Seljalandi. Foreldrar Ólafs voru
Halldór Jón bóndi á Rauðafelli
Stefánsson, bónda og stúdents í
Selkoti Ólafssonar gullsmiðs í
Selkoti og k-.h. Guðlaugar Stef-
ánsdóttur prests í Laufási og
Anna Jónsdóttir, prest í Mið-
Mörk, Tómas bóndi í Rauðafelli
ytra og Gísli kaupmaður í Hlfðar-
húsi í Eyjum. Stefán var þrík-
væntur.
Gísli Stefánsson rak verslun í
Eyjum frá 1885 til 1903, „Sigldi
og keypti vörur“. Verslun hans
var ekki stór, en Gísli var fyrsti
íslenskur kaupmaður í
Vestmannaeyjum. Spor var það í
frelsisátt.
Selkotsætt rekja fræðimenn til
Jóns ísleifssonar lögréttumanns
sem bjó í Selkoti á 18. öld. Hann
var afkomandi Eyjólfs lögmanns
í Stóra Dal og Helgu dóttur Jóns
Arasonar biskups. Þeir bræður
Tómas og Halldór Jóns voru orð-
lagðir hreystimenn. í Eyfellskum
sögum segir frá því, er Þórður
Tómasson lenti í útilegunni miklu
1869. Þórður hélt skipti sínu við
Bjarnareyjarhornið og „margir
hásetar gáfu sig, en einn sýndi
minnisverðan dugnað við það
tækifæri. Það var Tómas Stefáns-
son í Selkoti. Stóð hann í austri
alla nótinna, og var það mikið
talið honum að þakka að ekki fór
verr fyrir þeim en raun gaf vitni“.
- í einni landferð Þórðar stóð
skip hans á eyri sem Markarfljót
hafði borið fram. Gekk þá sjór
yfir skipið, svo laust góss flaut út
úr því, og bar það inn af eyrinni.
Nokkru síðar fóru tveir menn út
og annar þeirra komst upp með
kollubandið. „Það var Halldór
Jón, bóndi á Rauðafelli, dugnað-
arvargur hinn mesti. Og samfara
einbeitturm orðum og skipunum
formanns var Halldór talinn eiga
einna drýgstan þáttinn í því, að
ekkert skyldi verða þarna að
slysi“.
Halldór Jón drukknaði á upps-
tigningardag 1901 þegar Fjalla-
skipið Björgólfur fórst skammt
frá Ystakletti. - Geirlaug Einars-
dóttir, ekkjan, bjó á Rauðafelli
til 1910.
Einn sona Halldórs, Ólafur,
fékk til ábúðar Álftarhól á
Austur-Landeyjum árið 1912,
litla jörð eins og þær voru flestar í
þeirri sveit í byrjun aldar, bú -
skaparhættir frumstæðir og lífs -
baráttan hörð.
Þá var Óskar Ólafsson og
Alma konan hans, þýstrar ættar,
tóku við búi í Álftarhól 1953 voru
breyttir tímar með nýrri tækni,
land þurrkað og ræktaður hver
blettur að kalla, kotbýli breytt í
kostajörð.
Við Óskar vorum í hópi tíu
fyrstu „spurningabarna" séra
Jóns Skagans vorið 1925. Við
kynntumst raunar ekki mikið,
flest hlédræg, enda með hæstu
einkunn í hegðun! Næst hittumst
við í Eyjum á vertíð 1930. Óskar
varð fljótt hin liðtækasti til allra
sjávaravrka. Vandvirkni hans var
óbrigðul, til að mynda var það
vani hans við fisksöltun að ganga
meðfram stakknum eftir hvert
lag til að vera viss um að jafnt
væri staltað, annars féll fiskurinn
í verði. Annars var sama að
hvaða verki Óskar gekk, hand ,-
bragðið var svo að ekki þyrfti um
að bæta. Hann var smiður góður,
sjálflærður ef ég man rétt.
Við vorum nágrannar kreppu-
árin 1930-40. „Það voru erfiðir
tímar, það var atvinnuþref". Við
vorum verkamenn, sóttum vinnu
til Eyja, litum á verkamenn þar
sem stéttarbræður og stóðum
með þeim.
Við Óskar, Engilbert bróðir
hans og undirritaður hittumst oft
og ræddum margt. Engilbert varð
síðan búfræðingur. Hann var
listhneigður, fór á skóla í Svíþjóð
og gerðist skurðlistarmaður. Bjó
síðan lengi í Bandaríkjunum og
stundaði list sína. - Til að hressa
upp á andann fórum við félagar
að læra esperanto, og Óskar tók
próf með ágætum. Laxness og
Þórbergur voru „okkar menn“.
Þegar Sjálfstætt fólk kom út þótti
það firna vond bók í okkar sveit.
Við lögðum saman í bókakaupin,
svona var kreppan. Einhverju
sinni datt okkur í hug að stofna
leshring um róttækar bók-
menntir, en ekki komst það nú
lengra.
Óskar var áhugamaður um ís-
lenskt mál og hafði oft samband
við Orðabókarmenn. Annars var
orðafar í Landeyjum nokkuð svo
skrúðugt.
Haft er eftir kennara sem var í
Landeyjum fyrir nokkrum árum,
að fólk þar í sveit byggi yfir
óvenju mikilli orðgnótt. Kannski
er svo enn. Hitt veit ég að þeir
brúkuðu dálítið dönsk orð án
þess aðvita að það var danska.
Óskar fylgdist vel með tímans
straumi á innlendum vettvangi og
erlendum. Hann hafði ákveðnar
skoðanir á málum, en hafði sig
ekki í frammi til að hafa áhrif á
gang þeirra. Saga íslands að for-
nu og nýju var hugðarefni hans
löngum. Ég gæti trúað að mynt-
safn hans og frímerkjasafn hafi
jafnvel tengst söguáhuga hans.
Söfn þessi eru sérlega vönduð og
hefur greinilega ekki verið horft í
kostnað við að fylla í skörðin.
Óskar var í útgáfunefnd nýrrar
Landeyjabókar (sú eldri er í
Landsbókasafni, handrit) sem
Valgeir Sigurðsson fræðimaður á
Þingskálum er að semja. Ég var
að vona að honum entust dagar
til að líta þá bók og lesa en það fór
á annan veg.
Við Ilie sendum Ölmu og fjöl-
skyldu samúðarkveðjur.
Haraidur Guðnason
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Undirbúningur vegna landsfundar
Landsfundarfulltrúar ABR eru hvattir til að koma á fund, miðviku-
daginn 8. nóv. kl. 20.30 á Hverfisgötu 105. Þar verða kynnt drög
að dagskrá landsfundar og þeir málaflokkar sem á að ræða.
Stjórnin.
Alþýðubandalagið Akranesi
Bæjarmálar áð
Bæjarmálaráðsfundur í Rein mánudaginn 13. nóvember kl
20.30.
Dasgskrá:
1. Undirbúningur fjárhagsáætlunar 1990.
2. Dagskrá bæjarstjórnarfundar.
3. Önnur mál.
Mætum öll
Stjórnin
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Málþing um borgarmálefni
Hvaða mál verða í brennidepli kosningabaráttunnar fyrir borgar-
stjórnarkosningar 1990?
Hverjar eru helstu áherslur Alþýðubandalagsins í borgarmálefn-
um?
Þetta verður m.a. á dagskrá málþings ABR fimmtudaginn 9. nóv-
ember 1989 að Hverfisgötu 105.
Dagskrá:
Kl. 17.00 Kynnt undirbúningsstarf fjögurra umræðuhópa.
Almennar umræður.
Kl. 19.00 Kvöldverðarhlé. Hægt er að kaupa létta máltíð á
staðnum.
Starf málefnahópa.
Kl. 21.00 Almennar umræður um starfið framundan og málefni
fyrir starfshópa vetrarins.
Félagar fjölmennum og tökum þátt í stefnumótuninni.
Stjórnin
Miðvikudagur 8. nóvember 1989 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9