Þjóðviljinn - 08.11.1989, Blaðsíða 12
/
"SPURNINGIN™
Finnst þér að forseti ís-
lands ætti að vera jafn
valdamikill og forseti
Frakklands?
Georg Halldórsson
húsasmiður:
Nei, það tel ég ekki vera. Þetta er
ágætt eins og það er.
Guðrún Þorláksdóttir
nemi:
Ég veit það ekki. Forsetinn á alla
vega að vera nógu valdamikill til
að stjórna íslandi þannig að allt
fari vel.
Sæmundur Einar
Valgarðsson
leigubílstjóri BSR:
Þetta er stór spurning. Ég held að
þetta sé nokkuð gott eins og
þetta er.
Ævar Sveinsson
nemi:
' Mér líkar vel við forsetavaldið
eins og það er. •
Reynir Hauksson
sölumaður Eskifelli:
Mér þætti allt í lagi að forsetinn
heföi meiri völd. En hann stendur
sig vel í að kynna landið sem er
nokkuð sem við ættum að meta
líka.
þlÓÐVILIINN
Miðvikudaour 8. nóvember 1989 189. tölublað 54. órgangur
SÍMI 681333
Á KVÖLDIN
681348
SÍMFAX
681935
Heimsókn Frakklandsforseta
Kíkt í kaff i
og spjall
Francois Mitterrand Frakklandsforseti stopp-
aði hér á landi í 4 klukkutíma ígœr og rœddi
við ráðherra og forseta Islands
Nú tíðkast þau stuttu stoppin,
mætti kannski segja í kjölfar
Qögurra tíma heimsóknar Fra-
ncios Mitterrands forseta Frakk-
lands til íslands. En fyrir
skömmu kom Hussein Jórdaníu-
konungur hingað í örstutta heim-
sókn. Flugvél forsetans lenti á
Reykjavíkurflugvelli klukkan
rúmlega 12 og hélt forsetinn rak-
leiðis í Ráðherrabústaðinn til
fundar við Steingrím Hermanns-
son, forsætisráðherra, og Jón
Baldvin Hannibalsson, utanríkis-
ráðherra. Leiðtogarnir funduðu í
um þrjá klukkutíma og að lokn-
um fundi héldu þeir blaðamann-
afund á Hótel Sögu.
Heimsókn Mitterrands er fyrst
og fremst könnunar og kurteisis-
heimsókn þar sem hann gegnir nú
forystuhlutverki innan EB. fs-
lensku ráðherrarnir upplýstu
hann um gang mála í undirbún-
ingsviðræðum EFTA fyrir samn-
ingaviðræður við EB. Forsetinn
lýsti yfir almennum skilningi á
sérstöðu íslendinga og hefur boð-
að að hann muni senda ríkis-
stjórninni bréf þar sem hann
staðfesti þann skilning. í lok
fundar með blaðamönnum sagði
Mitterrand, að það hefði verið
ánægjulegt hlutverk fyrir hann að
bera íslendingum kveðjur Evr-
ópubandalagsins og ef hann
mætti bæta við, Frakklands.
Rétt fyrir klukkan hálf fjögur
hélt Mitterrand á fund Vigdísaar
Finnbogadóttur, forseta Islands,
og ræddi við hana f hálfa klukku-
stund. Að þeim fundi loknum
yfirgaf Mitterrand Reykjavík og
hélt áleiðis heim til Parísar.hmp
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, tekur á móti Francois
Mitterrand, forseta Frakklands á Reykjavíkurflugvelli í gær. Mynd:
Kristinn.
Vigdís Finnbogadóttir
Menningin býr í tungunni
Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands: Rödd smáþjóðanna á að heyrast í heiminum
eins og röddstórþjóðanna. Mitterrandskilur sérstöðu íslands
Francois Mitterrand hitti forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur, áður
en hann hélt til Parísar um fjögurleytið í gærdag. Mynd: Kristinn.
Eftir blaðamannafund á Hótel
Sögu fór Mitterrand forseti
Frakklands á fund forseta Is-
lands, Vigdísar Finnbogadóttur, i
embættisbústað forsetans að
Laufásvegi 72. Ræddust forset-
arnir við í röskan hálftíma. Vig-
dís sagði Þjóðviljanum að lokn-
um fundi forsetanna, að þau
hefðu rætt vítt pg breitt um vin-
áttu Frakka og íslendinga og það
sem þjóðirnar ættu sameiginlegt í
sögulegri fortíð og sameiginlega
áhuga þjóðanna á þjóðtungu
sinni. Frakkar væru býsna líkir
okkur að þessu lcyti. Báðar þjóð-
irnar hefðu orðað það upphátt
við sjálfar sig að ef þær glötuðu
tungunni glötuðu þær minning-
unum um fortíðina.
Vigdís sagði hana og Mitter-
rand hafa frétt af skoðunum
hvors annars um óttann við áhrif
erlendra menningarstrauma á
þeirra eigin þjóðmenningu. „En
auðvitað ræddum við Evrópu og
stöðu hennar á þessari stundu.
Við ræddum eilítið styrkleika
þjóða í Evrópu og hann sýndi það
greinilega að hann er vinveittur
Islandi og skilur aðstöðu ís-
lands,“ sagði Vigdís. Mitterrand
skildi sérstöðu okkar sem þjóðar
langt í norðri og það að við vær-
um fámenn þjóð og að fámenn
þjóð þurfi að mörgu að gæta í
viðsjárverðum heimi.
„Mitterrand er fjaska hlýr
maður og elskulegur þegar mað-
ur kynnist honum. Hann hefur
miklar mætur á bókmenntum og
ljóðum. Hann er ljóðelskandi
maður,“ sagði Vigdís. Hún sagði
franska forsetann hafa sýnt
áhuga á því að koma aftur til ís-
lands og hann hefði kvatt hana
með þessum orðum: „Au revoir.
A bientot“ (Verið þér sælar,
sjáumst fljótt aftur).
Þegar forseti íslands hefur hitt
erlenda þjóðhöfðingja hefur hún
gjarnan nefnt við þá friðarmál.
Vigdís sagði að þau Mitterrand
hefðu verið sammála um að ekki
hefði verið eins friðvænlegt á
milli risaveldanna um langa hríð
og nú. Vigdís sagðist ekki þora að
segja hvort fámenn þjóð eins og
íslendingar gæti miðlað ein-
hverju af sínum arfi til stórrar
þjóðar eins og Frakklands, þegar
hún var spurð út í það. En hún
sagði að það skaðaði alla vega
ekki að segja það upphátt við for-
ráðamenn stórþjóðanna að rödd
smáþjóðanna ætti líka að heyrast
í heiminum og alltaf samsinntu
þeir því þegar það væri sagt.
___________________________-hmp