Þjóðviljinn - 10.11.1989, Side 15

Þjóðviljinn - 10.11.1989, Side 15
Skútur á Viðeyjarsundi fyrir aldamótin. Ljósm. Árni Thorsteinsson tónskáld. Frummyndin er í rauðbrúnum tónum sem ekki nást í eftir- prentun, en mynd þessi telst til listrænnar Ijósmyndunar í háum gæðaflokki. Þjóðminjasafnið minnist þess nú að um þessar mundir eru 150 ár liðin frá því að að- ferð franska Ijósmyndarans Louis Daguerre við að taka myndir á koparplötur var gerð opinber. Inga Lára Baldvins- dóttir hefur af þessu tilefni sett upp sýningu í Bogasalnum, sem rekur sögu íslenskrar Ijósmyndunar frá upphafi fram til þess tíma þegar Ijós- myndavélin var orðin almenn- ingseign og fréttaljósmyndin orðin ríkur þáttur í íslenskri fjölmiðlun. Merkasti hluti sýn- ingarinnar er þó sá hluti henn- ar, sem rekur sögu íslenskrar Ijósmyndunar á síðustu öld og fram að aldamótum. Er jafnvel álitamál, hvort ekki hefði verið ástæða til þess að takmarka sýninguna ein- göngu við þetta tímabil og gera því þeim mun betri skil. Ekki síst þar sem sýning af þessari stærð getur ekki gert síðara tímabilinu viðhlítandi skil. Það gefur sýningunni í Þjóð- minjasafni stóraukið gildi, að í nær öllum tilfellum er um frum- myndir að ræða, en ekki eftir- tökur. Fyrstu Ijós- myndararnir íslendingar komust fyrst í kynni við ljósmyndalistina á fimmta áratug síðustu aldar. Helgi Sigurðsson (1815-1866), síðar prestur á Skeggjastöðum á Langanesströnd, lærði að gera daguerrótýpur í Kaupmannahöfn 1845, fyrstur íslendinga. Engin „sólmynd“, eins og daguerrótyp- ur voru kallaðar á fslensku, hefur varðveist eftir hann, en elstu fs- lensku Ijósmyndirnar, sem varð- veittar eru, voru gerðar á votar glerplötur. Jón Chr. Stephánsson (1809-1910) lærði ljósmyndun á glerplötur á Borgundarhólmi 1858 fyrstur fslendinga að talið er. Talið er jafnframt að hann sé höfundur einnar af elstu íslensku ljósmyndunum, sem varðveittar eru, en það er portrettmynd af Rannveigu Hallgrímsdóttur frá Steinsstöðum (1802-74), en hún var systir Jónasar skálds. Athygl- isvert er að mynd þessi, einkum augnsvipurinn, staðfestir mjög svipeinkenni þau sem koma fram Einn fremsti Ijósmyndarinn hér á landi um aldamótin síðustu var Pétur Brynjólfsson (1882-1930), en hann varð fyrstur íslenskra Ijósmyndara konunglegur hirð- Ijósmyndari árið 1907. Hér sjáum við mynd af Edvald Möller og starfsfólki í sápugerð hans í Reykjavík einhvern tímann um eða uppúr síðustu aldamótum. Myndin hefur ómetanlegt gildi, bæði listrænt og heimildarlegt. Eins og mynd Gunnhildar Thorsteinsson er undantekning á þessum tíma hvað varðar efnis- val, þá eru fjölskyldumyndir Friðriks Gíslasonar af bændafjöl- skyldum undir Eyjafjöllum frá 1890 það einnig. Myndin af Ólafi Ólafssyni í Dalseli er bæði svið- sett í óvenjulegu umhverfi, og sjálf uppstillingin er líka óhefð- bundin: ef borið er saman við mynd eftir Önnu Schiöth af Jo- han Christensen verslunarstjóra á Akureyri og konu hans, Maríu Nikolínu, þá sést að þar er stöðu- munur kynjanna undirstrikaður með öðrum og skýrari hætti í uppstillingunni. Efni sýningarinnar í Þjóðminj- asafninu verður með engu móti gerð skil í stuttri blaðagrein, en ástæða er til að hvetja til þess að sú vinna sem hér hefur verið unn- in verði nýtt í það að gera sér- staka bók um íslenska ljósmynd- un á 19. öldinni. Slík bók gæti brugðið nýju og óvæntu ljósi á þetta tímabil í sögu okkar. Sýningin í Þjóðminjasafninu er opin þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga kl. 11- 16 til nóvemberloka. -ólg. Akureyrskarmillistéttarkonurumaldamótin: Efstfráv.: LáraÓlafsdótt- ir Ijósmyndari, Helga Schiöth, Þóra Matthíasdóttir. Miðröðf.v.: Oddný Vigfúsdóttir, Engel Jensen Ijósmyndari. Neðstf.v.: Matthea Matthías- dóttir og Anna María Schiöth. Ljósmynd: Anna Schiöth (1846-1927), sem rak Ijósmyndastofu á Akureyri 1878-1899. Fjölskyldumynd af Ólafi Ólafssyni bónda í Dalseli undir Eyjafjöllum, Sigríði Ólafsdóttur konu hans og börnum þeirra, Kristjáni og Guðríði Þóroddsdóttur, dóttur Sigríðar af fyrra hjónabandi. Myndin er tekin 1890 af Friðrik Gíslasyni. Johan Christensen verslunarstjóri á Akureyri og Maria Nikolina, f. Jensen, kona hans. Myndin er tekin af Önnu Schiöth, sem rak Ijós- myndastofu á Akureyri 1878-1899. Athyglisvert er að bera saman myndina af bændafjölskyldunni undan Eyjafjöllum og kaupmanns- hjónunum frá Akureyri, en þær eru frá sama tíma. Áhöfn á ókunnu fiskiskipi um aldamótin. Takið eftir að skipstjórinn hefur klætt sig í hvíta skyrtu og sett upp hálstau. Ljósm. Pétur Brynjólfsson. GunnhildurThorsteinsson:Konurviðfiskþvott.Myndinertekináóþekktumstaðum aldamótin síðustu og er meðal elstu heimildarmynda um íslenskt atvinnulíf. á teikningu Helga Sigurðssonar af skáldinu á líkbörunum. Ljósmyndin og dráttlistin Á meðan ljósmyndalistin í Evrópu tók spón úr aski margra myndlistarmanna á síðari hluta 19. aldar, og heillaði aðra svo að þeir lögðu frá sér pensilinn og lærðu á myrkurhús í staðinn, þá varð ljósmyndin undanfari þess að menn færu að leggja stund á myndlist hér á landi í þvf skyni að draga upp mynd af náunganum eða umhverfi sínu. íslensk Ijós- myndun gat því ekki byggt á inn- lendri hefð eins og annars staðar í Evrópu, og ljóst er af heimildum að margir íslendingar höfðu þessa nýju listgrein í flimtingum og töldu hégóma. Þannig segir Benedikt Gröndal frá því í Dægradvöl, að Konráð Gíslason hafi lagt „eplaskurn yfir annað augað á sér“ þegar Helgi Sigurðs- son var að „daguerrotypera" hann og fleiri íslendinga í Kaup- íslensk Ijósmyndun á síðustu öld mannahöfn. Varð það síðan ráð- gáta hjá Helga hvernig þessi ó- skapnaður komst á plötuna. Seg- ir Inga Lára Baldvinsdóttir í rit- gerð sinni „Daguerrotypur á ís- landi og fyrstu ljósmyndararnir" að af munnmælum að dæma, þá hafi Helgi Sigurðsson „haft það eitt upp úr ljósmyndun sinni, að hlegið var að honum“. Sjálfsímynd milli- stéttarinnar Þeir íslendingar sem lærðu ljósmyndaiðn fyrir aldamótin voru sigldir menn og konur, oft af vel stæðum ættum, og má segja að listgreinin tengist þéttbýlis- myndun og uppvaxandi borgar- astétt hér á landi. Þetta sést ekki bara í ættartölum ljósr. Rannveig Hallgrímsdóttir frá Steinsstöðum (1802-1874), systir Jón- asar Hallgrímssonar skálds. Ef borið er saman við teikningu Helga Sigurðssonar af skáldinu látnu kemur í Ijós að sterkur svipur hefur verið með þeim systkinum. Líklegur höfundur myndarinnar er talinn Jón Chr. Stephánsson (1829-1910), sem lærði fyrstur (slendinga að taka myndir á glerplötu 1858. Merkileg ljósmynda- sýning í Þjóðminja- safni anna, heldur líka í viðfangsefnum þeirra, sem oft bera slík stéttar- einkenni. Dæmi um þetta er myndin á forsíðu blaðsins eftir Hallgrím Einarsson frá Akur- eyri, sem gefur okkur góða mynd af sjálfsímynd íslenskra verslun- armanna um aldamótin síðustu (Hallgrímur rak ljósmyndastofu á Vestdalseyri 1895-1901 og síðan á Akureyri til 1948). Það er Olg- eir bakari sem hefur reiðhjól með sér á myndinni sem stöðutákn, en fremst situr Jón Sigurðsson versl- unarmaður. Konan með kaffi- könnuna er Jóhanna matráðs- kona, barnsmóðir Tryggva Gunnarssonar bankastjóra, en sonur þeirra, Ólafur, er lengst til hægri. Fyrstu heimilda- myndirnar Það er einnig athyglisvert hversu margar konur lögðu stund á ljósmyndun hér á landi fyrir aldamót, á meðan þessi iðja var bæði dýr og tæknilega vandmeð- farin. Fyrsti kvenljósmyndarinn var Nicoline Weywadt, faktors- dóttir frá Djúpavogi (1848-1921). Hér á síðunni er hins vegar birt áhrifamikil mynd eftir Gunnhildi Thorsteinsson ljósmyndara, sem sýnir konur við fiskþvott (hugs- anlega á Bíldudal?), einhvern tímann fyrir eða um aldamótin. Þessi ljósmynd hefur ómetanlegt heimildargildi um vinnuaðbúnað og klæðnað íslenskra verka- kvenna á þessum tíma. 14 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 10. nóvember 1989 Föstudagur 10. nóvember 1989 NÝJT HELGARBLAÐ - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.