Þjóðviljinn - 10.11.1989, Síða 25
KVIKMYNDI
ÞORFINNUR
ÓMARSSON
Minniháttar skandall
Hneyksli (Scandal), sýnd í Laugarás-
bíói. Leikstjóri: Michael Caton-
Jones. Handrit: Michael Thomas. Að-
alhlutverk: John Hurt, Joanne
Whalley-Kilmer, Bridget Fonda, Ian
McKellen, Jeroen Krabbe.
Allir þekkja hneykslið sem
gjarna er kennt við John Prof-
umo, þingmann íhaldsflokksins í
Bretlandi og ráðherra í stjórn
Macmillans í upphafi sjötta ára-
tugarins. Hermálaráðherrann
Profumo átti sér hjákonu og svo
óheppilega vildi til að hún háttaði
einnig hjá sovéskum sendimanni
í Bretlandi. Upplýsingar hafa svo
sem lekið við minna tilefni og
þurfti Profumo vitanlega að segja
af sér og stjórnin féll skömmu síð-
ar við illan orðstír.
í stórum dráttum er þetta saga
og afleiðingar ástarsambands
Johns Prufumos við Christine
Keeler. í sjálfu sér er þetta mjög
áhugavert mál fyrir fréttaskýr-
endur og stjórnmálaspekúlanta.
Það þykja auðvitað ávallt tíðindi
þegar ráðherra þarf að segja af
sér og jafnvel ríkisstjórn í heild
sinni og ekki minnkar forvitni
manna í máli sem þessu. Sérhvert
er nú hneykslið og þeim höfum
við fengið að kynnast hér á landi
að undanförnu, þótt frekar hafi
þau verið í fljótandi formi en
holdlegu.
Af þessum sökum hefur kvik-
myndarinnar Scandal verið beðið
með sérstakri eftirvæntingu en
hún byggir aðallega á frásögnum
ungfrúar Keelers af þessum at-
burðum. Þeir sem muna réttilega
gang mála gætu þó orðið fyrir
vonbrigðum með efnistök Mikj-
álanna Caton-Jones og Thomas.
Myndin segir sögu Christine Ke-
eler og einblínir aðallega á sérk-
ennilegt samband hennar við
Stephen Ward lækni. Profumo
verður nokkuð útundan og áhrif-
um hneykslisins á stjórnmálasög-
una eru varla gerð nokkur skil
fyrr en í eftirmála myndarinnar.
Látið er í veðri vaka að Ward
læknir hafi komið öllu saman af
stað, og mín vegna má það vera
rétt skýring, en afdrif hans geta
þó varla verið höfuð afleiðing
skandalsins.
Ekki er gott að greina ástæðu
slíkra efnistaka. Myndin átti
auðvitað að seljast vel og því
nauðsynlegt að gera ekki lítið úr
vafasömum kynórum úrkynjaðs
aðalsins. Skilja má að Keeler vilji
sjálf gera sem minnst úr bóiförum
sínum með mönnum sem máttu
stöðu sinnar vegna ekki hafa nein
samskipti sín á milli og taka þann-
ig á sig hluta ábyrgðarinnar. En
hún er ekki höfundur myndarinn-
ar og má líta á það sem metnaðar-
leysi Caton-Jones að líta nánast
framhjá aðalatriðum málsins.
Keeler átti á sama tíma í sam-
bandi við vafasaman undir-
heimalýð en hvor skandallinn er
stærri: afsögn hermálaráðherra
Breta eða brjáluð afbrýðisemi
tveggja ónefndra elskuhuga
Kristínar með tilheyrandi vopn-
atilburðum? Caton-Jones hefur
Amerísk ástarsaga
Náin kynni (When I Fall in Love), sýnd f
Bíóborginni. Leikstjóri: Taylor Hackford.
Aðalhlutverk: Jessica Lange, Dennis Qua-
id, Timothy Hutton, John Goodman.
Pað kemur ekki á óvart að nýjasta
mynd Taylor Hackfords skuli vera
hreinræktuð saga úr amerískum veru-
leika. Hann hefur verið fremur
þröngsýnn í verkefnavali og gert
myndir sem eru amerískari en and-
skotinn og nægir að nefna klisjur á
borð við An Officier and a Gentlem-
an og White Nights því til stuðnings.
Nú segir Hackford okkur ástarsögu
þarsem atburðarásin og söguhetjurn-
ar eru heltekin af þjóðaríþrótt Kan-
ans, ameríska fótboltanum. Dennis
Quaid leikur þann besta og Jessica
Lange kvinnu hans, sem umfram allt
er bara kvinna hans. Hutton er síðan
þriðja hjólið undir vagni til að
fullkomna þríhyrninginn og ófrum-
leika myndarinnar. Pað verður ekki
af þeim tekið að öll fara þau vel með
þessi amerísku hlutverk sem þeim er
úthlutað, sérstaklega er Lange hríf-
andi sem dæmigerð Suðurríkjakona.
Myndin nær einnig nokkuð trúverð-
ugri lýsingu á hetjudýrkun Kanans.
Hackford segir okkur sögu þremenn-
inganna í aldarfjórðung og sýnir okk-
ur að hetja í dag er ekki endilega
hetja á morgun. Þannig breytist Qua-
id úr frískum og fjörlegum íþrótta-
manni í þybbinn rum sem agnúast út í
allt og alla. Hutton er hinsvegar gáfu-
mennið, en hann var hálf hallæris-
legur með hýjunginn öðru hvoru.
Umfram allt, vönduð amerísk ástar-
saga og aðeins of löng.
Regnboginn
Indiana Jones III *★★ (Síðasta
krossferðin)
Indiana hefur aftur náð sér á strik eftir
misheppnaða mynd númer tvö. Þessi er
ferskari fantasía en áður og ekki versnar
myndin á því að hafa Connery sem Dr.
Jones er. En sórtu að leita að rólegri stund
með möguleika á heimspekilegum vanga-
veltum skaltu náttúrlega fara eitthvað ann-
að.
Pelle erobreren ★★★★
(Pelle sigurvegari)
Þá er hún loks komin til (slands og þvíiík
kvikmynd! Sannarlega meistarverk ársins
og það albesta sem komið hefur frá Dönum
og jafnframt Norðurlöndum í mörg ár. Bille
August hefur tekist að gæða fjórðung
skáldsögu Nexös einstöku lífi með yndis-
legri epískri frásögn. Samleikur Hvenega-
ard og Von Sydows er með ólíkindum og
kvikmyndatakan gullfalleg. Upplifun sem
enginn má láta fara framhjá sér. Húrra fyrir
Dönum.
The Bear ★★★
(Björninn)
Annaud kemur vissulega nokkuð á óvart
með þessum óði slnum til náttúrunnar en
það verður ekki frá honum tekið að myndin
er listavel gerð. Falleg og rómantísk mynd
og góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna,
sérstaklega þá sem unna óspilltu náttúru-
lífi. Aðalleikararnir fara á kostum!
The Last Starfighter ★
(Síðasti vígamaðurinn)
Margt gamalt en fátt gott I þessari b-
mynd. Við skulum vona að Síðasti víga-
maðurinn sé á meðal síðustu vígamanna
kvikmyndanna.
Babette's gæstebud ★★★★
(Gestaboð Babettu)
Babetta býður enn til veislu sem enn
stendur fvrir sínu þótt hún hafi staðið yfir 1
tæpt ár. Akaflega Ijóðræn og falleg mynd
um allt sem viðkemur lifi og dauða, bók-
stafstrú og óllkum menningarheimum.
Laugarásbfó
Scandal ★★
(Hneyksli)
Þegar einblínt er á minniháttar skandala
verður stóri skandallinn útundan og mynd-
in drukknar í smáatriðum. Samt er hún oft
skemmtileg lýsing á tíðaranda síns tíma og
stundum nær úrkynjuð hástéttin að
hneyksla áhorfandann með kynórum sín-
um. En miklar kröfur heimta betri sögu-
skoðun en þessa.
Criminal Law ★★★
(Refsiréttur)
Öllu vitrænni tryllir en gengur og gerist
þótt vissulega bregði fyrir gamalkunnum
senum. Sagan gengur að mestu upp en
slíkt vill gleymast I myndum af þessari teg-
und nú á dögum. Oldman sýnir á sér nýja
og áður óþekkta uppahlið með ágætum
árangri og Bacon er sannfærandi sýkópati.
Kvikmyndatakan er virkilega frumleg og
smart.
Halloween IV 0
Ekki heldur fyrir gallhörðustu Hallo-
ween-aðdáendur.
Bfóhöllin
Cannonball Fever 0
(Á fleyglferð)
Ég hélt að minnst áratugur væri liðinn frá
því menn fengu leið á þessum húmor.
Metnaðarleysi I sinni verstu mynd.
Chlld's Play ★
(Leikfangið)
Enn eitt hryllingsruglið frá Tom Holland
og virðist sem honum séu engin takmörk
sett. Þetta er mynd sem þú gleymir strax að
sýningu lokinni sem ekki þykja góð með-
mæli með hrollvekju. Sagan (ef einhver er)
er ófrumleg og spennan byggist á því að
segja Baaah! við áhorfendur.
Road House ★
(Útkastarinn)
Afskaplega þunnt og óaðlaðandi. Þetta
er kannski eina rótta rullan fyrir Swayze en
skydi einhver yfir 16 ára nenna að horfa á
þetta?
Batman ★★
Vinsældirnar eru greinilega djörfu
auglýsingasukki Warner-bræðra að þakka
fremur en kvikmyndinni sjálfri. Myndin á
sinar fyndnu hliöar þegar Jókerinn spriklar
og sprellar en annars nær Batman ekki
uppí nefið á sór fyrir útjaskaðri klisju. Ba-
singer er ekki einu sinni sexi og þá er nú
mikið sagt.
Licence to Kill ★★★
(Leyfið afturkallað)
Ein besta Bond-myndin 1 langan tíma.
Dalton er 007 holdi klæddur og spannar allt
frá hörkutóli til sjentilmanns. Broccoli hefur
hrist, en ekki hrært, upp í Bond-ímyndinni
með góðum árangri.
Bfóborgin
When I Fall In Love ★★
(Náln kynni)
Hackford heldur sig enn við hetjur amer-
íska draumsins, að þessu sinni án vemmi-
legra stóráfalla nema ef vera skyldi of mikil
nostalgía. Jessica Lange stendur uppúr
ágætum leikarahóp og hrífur áhorfandann
með sér. En þessi mynd er vitanlega ætluð
engum öðrum en Kananum sjálfum.
Dead Calm ★★
(Á síðasta snúning)
Þokkalegasti tryllir frá Ástralanum Philip
Noyce og beitir hann öllu skemmtilegri
vinnubrögðum en flestir kollega hans í Am-
eríkunni I svona myndum. Samt nær hann
ekki að toga myndina nógu langt uppúr
meðalmennskunni og ýmsar athafnir aðal
kvenpersónunnar eru með öllu óskiljan-
legar.
Clean and Sober *★
(Hreinn og edrú)
Keaton virðist ætla að kæfa Leðurblöku-
hlutverk sitt í fæðinau með hreint ágætum
leik edrú eða fullur. T raun fátt nýtt en margt
athyglisvert þó sett fram hvað viðkemur
þessu mesta meini aldarinnar.
The Fly II ★
(Flugan 2)
Hér vantar I raun flest það sem gerði fyrri
myndina vinsæla. Hór vantar altént Cron-
enberg.
Batman ★★
Vinsældimar eru greinilega djörfu
auglýsingasukki Warner-bræðra að þakka
fremur en kvikmyndinni sjálfri. Myndin á
sínar fyndnu hliðar þegar Jókerinn spriklar
og sprellar en annars nær Batman ekki
uppl nefið á sér fyrir útjaskaðri klisju. Ba-
singer er ekki einu sinni sexí og þá er nú
mikið sagt.
Lethal Weapon II ★★
(Tveir á toppnum 2)
Gibson og Glover eru gott gengi og
Pesci skemmtilega óþolandi en því miður
er myndin yfirkeyrð af ófrumlegum byssu-
bardögum og hvimleiðum hrottaskap. Ekk-
erf er þó verra en steingeldur söguþráður-
inn sem allir hafa séð áður.
Háskólabfó
The Vidiot ★
(Stöð sex 2)
Nokkrir stórgóðir brandarar koma frá
háðfuglinum Yankovic en þeir fara heldur
halloka fyrir endemis vitleysu.
Stjömubfó
The Karate Kid III ★
(Karatestrákurinn 3)
Þetta ku víst vera hetjur ungra sveina í
dag og veit það varla á gott nema þeir
hlusti á spekina á bak við sportið. En mér
leiðast framhaldsmyndir, sérstaklega þær
sem gerðar eru eftir leiðinlegum myndum.
Magnús ★★★
Lang besta kvikmynd Þráins til þessa og
jafnframt í hópi betri kvikmynda sem gerð-
ar hafa verið hér á landi. Þráinn hefur náð
auknum þroska sem listamaður og byggir
mynd sína vel upp til að byrja með en ým-
issa brotalama fer að gæta þegar leysa á
úr vandamálum höfuðpersóna. Oft yndis-
legur gálgahúmor og Magnús er
sannkölluð skemmtimynd fyrir alla ald-
urshópa.
Joanne Whalley-Kilmer og Bridget Fonda túlka persónur sínar vel
einsog flestir leikarar í Skandalnum.
vafalaust ætlað sér að sýna hversu
fáránlegt samband Kristínar við
aðalinn var með því að gera
einkalífi hennar skil á þennan
hátt. Því miður hefur hann druk-
knað í smáatriðum en gleymt að
gera aðalatriðum nógu góð skil.
En Scandal er alls ekki alvond
mynd og skal ég ekki ætla
mönnum að sleppa henni. Caton-
Jones nær á athyglisverðan hátt
að endurlífga tíðaranda þessara
ára og fer ágætlega með hið úr-
kynjaða, Ijúfa líf þeirra sem það
stunduðu. Þá eru sumar persón-
urnar vel skapaðar og flýtur per-
sóna Wards læknis mjög langt á
túlkun Johns Hui ts sem bregst
ekki frekar en endranær.Stöllur-
nar Christine Keeler og Mandy
Rice-Davis fá ágæta meðhöndlun
hjá Whalley-Kilmer og Fonda en
mikið óskaplega leikur Roland
Gift illa. Ég held að hann ætti að
halda sig við sönginn með Fínu
ungu mannætunum.
Þess ber sérstaklega að geta að
Scandal er alls enginn skandall í
kvikmyndaheiminum þótt margt
hafi farið miður. Hún heldur
áhorfandanum nægilega vel vak-
andi yfir þeirri sögu sem sögð er,
en spurningin er fremur hvort
rétt stefna hafi verið farin í upp-
hafi. Eða einsog háðfuglinn
sagði: Mér leiddist ekkert á með-
an, bara soldið á undan og ennþá
meira á eftir!
EDI framtíðin:
Pappírslaus viðskipti í Evrópu
Ráðstefna þriðjudaginn 14. nóvember
kl. 9.30-16.30 á Hótel Loftleiðum,
í salnum Höfða.
Ertendir gestir ráðstefnunnar:
Háns B. Thomsen frá Útflutningsráði Noregs
og Maurice Walker frá tollaráðuneyti
Evrópubandategsins.
Aðrír, sem flytja erindi:
VithjálmurEgilsson, framkvæmda&tj. Verslunarráös lalands,
Karl F. Garðarsson, Ríkistollstjóra,
Jón K Magnússon, VinnuVeitendasambandi íslands,
GunÞbildur Manfnéðsdóttir, tfókásafnsfræðirigur,.
Amþór Þórðarson, Fólagi ísl. iðnrekenda,
^ Sigmar Þormar. Versltmerráðt ísfönds, "
Þér Svendsen Björnssofi, Reiknistofu bankarina.
Pappírsl'aus viðskipti eru framtíðin. Tstensk fyrirtæki
verða aðríileinka sér þær nýjungar, sem nú ryðja sér
til rúms hvarvetna í helstu viðskiptalöndum okkar. Með
notkurt EDI, staðlaðra skjalaskipta milli tölva, munu þau-
njóta verulegs hagræðis.
Það er mikilvægt að stjórnendur kynni sér þessi mál,
því upptaka pappírslausra viðskipta er 80°/o stjórnunar-
mál en 20% tæknilegt viðfangsefni. Opinberir aðilar,
t.d. tollurinn, hafa sýnt þessum nýjungum mikinn áhuga
og Ijóst er,. að í framtíðinni munu upplýsingar vegna
inn- og útflutnings berast tii to.llsins fyrst og fremst í
tölvutæku formi.
Á ráðstefnu EDI félagsins þann 14. nóVember munu
tveir erlendir gestir skýra frá vinnu innan Evrópúbanda-
lagsins varðandi notkun EDI við toIlafgr,eiðslu og laga-
tegum atriðum, sem tengjast pappírslausum viðskiptum.
Ennfremur veröur fjallað um þá frumvinnu, sem farin
er af stað hér á landi og. framtíðarmarkmrð.
Ég vil þvt eindregið hvetja þig til að mæta.
Vilhjálmur Egllsson,
framkvœmdastjóri Verslunarráös íslands
og formaður EDI félagsins.
Vinsamlegast tilkynnið þáttöku
í síma 83088.
Ráðstefnan eröllum opin. Þátttökugjald kr. 6.000.
Föstudagur 10. nóvember 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 25