Þjóðviljinn - 16.11.1989, Side 1
Fimmtudagur 16. nóvember 1989 195. tölublað 54. órgangur
Síld
Ekkert svar frá Moskvu
Enn beðið staðfestingar sovéskra stjórnvalda á samkomulagi um kaup á 150þús. tunnum af saltsíld. íslendingar kaupa olíuvörur
frá Sovétríkjunum á nœsta árifyrir3,5 -3,8 miljarða kr. Sovéski sjávarútvegsráðherrann gaf sendiherra íslands engin svör í gœr
Enn er beðið staðfestingar sové-
skra stjónvalda á því
samkomulagi sem samninga-
nefndarmenn Síldarútvegsnefnd-
ar náðu við innkaupafyrirtækið
Sovrybflot í Moskvu 4. nóvember
um sölu á 150 þúsund tunnum af
saltsfld.
í gær gekk Tómas Á. Tómasson
sendihérra íslands í Sovétríkjun-
um á fund sovéska sjávarútvegs-
ráðherrans og bar honum þau
skilaboð að ríkisstjórn íslands
legði áherslu á að íslensk
stjórnvöld hefðu lagt sitt af mörk-
um til að greiða fyrir viðskiptum
landanna, ma. með því að undir-
rita í fyrradag samning um kaup á
olíu og bensíni frá Sovétríkjunum
og að íslensk stjórnvöld væntu
þess að sovésk stjórnvöld stuðl-
uðu fyrir sitt leyti að eðlilegri
framkvæmd viðskiptasamnings-
ins frá 1985. Þessi skilaboð verða
jafnframt afhent sovéska utan-
ríkisviðskiptaráðuneytinu í dag.
Seinni partinn í gær komu svo
þær fréttir frá fundi sendiherrans
og sovéska sjávarútvegsráðherr-
ans að sá síðarnefndi hefði ekki
gefið neitt svar við skilaboðum
íslensku ríkisstjórnarinnar.
Olíusamningur sá sem gengið
var frá í fyrradag á milli landanna
samkvæmt viðskiptasamningi
þeirra gerir ráð fyrir að íslending-
ar kaupi um 60 þúsund tonn af
blýlausu bensíni, 180 þúsund
tonn af gasolíu og 80-120 þúsund
tonn af svartolíu. Samningsfjár-
hæðin er 55 - 60 miljónir dollara
miðað við núverandi verðlag eftir
því mikið verður keypt af svartol-
íu eða sem jafngildir 3,5 - 3,8
miljörðum króna. Þetta er í 36.
skipti sem slíkur samningur er
gerður við Sojuznefteexport en
fyrsti samningurinn var gerður
árið 1953.
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra sagði í gær að hann vonað-
ist til að oiíusamningurinn mundi
liðka fyrir staðfestingu Sovét-
manna á samkomulagi Síldarút-
vegsnefndar og Sovrybflot en
sagði jafnframt að Sovétmenn
ættu við að glíma viðskiptahal'.a
og skort á gjaldeyri. -grh
Bylgjcm
Konurí
tnínaðarstörf
Háhyrningar
Fangar
eða vinir?
Mikil leynd hvíliryfir sölunni á háhyrningunum og
skiptar skoðanir um meðferð dýranna. Magnús
Skarphéðinsson: Þrœlar sýningarþjóðfélagsins.
Helgi Jónasson: Aldrei séð betri meðferð á dýrum
áhyrningprnir sem veiddir
voru við Islandsstrendur fyrir
skömmu eru enn í lauginni í Sæ-
dýrasafninu en eins og komið hef-
ur fram í fréttum hefur verið
gengið frá sölusamningi á dýrun-
um við erlenda aðila. Mjög fáar
þjóðir leyfa enn innflutning á slík-
um hvölum en líklegt er talið að
þessir fjórir kálfar fari fyrst til
Japans og verði þaðan seld til
annarra landa.
„Ég get ekki greint frá því
hvert háhyrningarnir fara né
hvert kaupverðið er. Það eru skýr
fyrirmæli um það í samningnum
en verðið er miklu lægra en hald-
ið hefur verið fram í fjölmiðlum.
Dýrin eru ekki á förum héðan
næstu vikur því við þurfum að ná
úr þeim öllum sníkjudýrum og
venja þau við manninn áður en
þau verða flutt úr landi,“ sagði
Helgi Jónasson forráðamaður
Sædýrasafnsins í Hafnarfirði um
söluna. Það er sjálfseignarstofn-
un sem stendur á bak við söluna á
háhyrningunum og er ætlunin að
endurreisa gamla Sædýrasafnið.
Hvalavinir hafa mótmælt þess-
ari meðferð á háhyrningunum og
sagði Magnús Skarphéðinsson
talsmaður Hvalavinafélagsins
dýrin vera þræla sýningarþjóðfé-
lagsins. „Meðalaldur háhyrninga
í dýragörðum er 5-7 ár en þeir lifa
í 60-80 ár í sjónum sem er sönnun
þess að þeim líður illa í þessum
fangelsum. Þá er mjög sjaldgæft
að kálfar sem fæðast í dýragörð-
um nái að lifa og þess eru dæmi að
háhyrningar í dýragörðum fremji
sjálfsmorð,“ sagði Magnús.
Erfitt er að gera sér nákvæma
grein fyrir kaupverði dýranna en
að sögn Magnúsar er verð há-
hyrninga erlendis allt að 600 þús-
und pund fyrir hvert dýr, eða um
60 miljónir króna. Breska blaðið
Daily Express greindi frá þessari
sölu fyrir skömmu og sagði hval-
ina fara til Japans fyrir þessa
sömu upphæð. Fréttinni var
slegið upp undir fyrirsögninni
„War of the whales" og var blað-
amanni mikið niðri fyrir um illa
meðferð á dýrunum. Sagði hann
m.a. kálfana vera of unga til að
yfirgefa mæður sínar og 20
klukkustunda ferð frá norð-
austurhorni landsins hafa verið
grimmilega.
„Þessi dýr lifa allt í kringum
landið en voru veidd við Suð-
austurland þar sem þess var sér-
staklega gætt að þau hlytu ekki
minnsta skaða af. Við höfum á
okkar snærum dýraatferlissér-
fræðing sem segir aðbúnaðinn
hjá dýrunum vera með því besta
sem þekkist í heiminum. Hann
hefur náð ótrúlegum framförum
með dýrin á aðeins hálfum mán-
uði og þeim virðist líða vel undir
hans stjórn. Mér finnst gagnrýnin
á þetta með öllu fráleit og eiga
fremur við veiðar sem voru
stundaðar fyrir 20 árum. Sjálfur
ólst ég upp í sveit og hef aldrei séð
jafn vel farið með dýr og þessi. Þá
verður mun betur farið með þau í
flutningum en t.d. tíðkast um
hross,“ sagði Helgi Jónasson um
þessa gagnrýni.
-þóm
Bandaríkjamaðurinn Jetf Foster hefur séð um að ala dýrin i Sædýrasafninu.
Hér gæða þau sér á síld og notar Foster tvenns konar flautur til að kenna þeim
viðeigandi hegðun. Mynd: Jim Smart
Skipstjóra- og stýrimannafé-
lagið Bylgjan á ísafírði hefur í
fyrsta skipti í sögu félagsins kosið
þrjár konur til trúnaðarstarfa.
Verkefni þeirra er að gera könn-
un á högum sjómannskonunnar
þar vestra.
Að sögn einnar þeirra Ragn-
heiðar Hákonardóttur er stefnt
að því að ljúka þessari könnun
fyrir jólin en meðal þess sem hún
tekur til eru trygginga- og líf-
eyrismál, vinna kvennanna og
barna þeirra. Þá verður einnig
könnuð sú breyting sem orðið
hefur á heimilsháttum sjómanns-
kvenna síðustu árin með tilkomu
kvótans en áhrifa hans gætir í
tekjumöguleikum heimilisins og
fjarvistum sjómannsins að
heiman sem getur verið frá
' nokkrum dögum og allt uppí
nokkrar vikur eftir því hvernig
skipi hann er á, ss. línubát, ísfisk-
togara eða frystitogara. -grh
Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs
Gunnlaðar saga
og
Daguraf degi
Bækurnar Gunnlaðar saga
eftir Svövu Jakobsdóttur og Dag-
ur af degi eftir Matthías Johann-
essen hafa verið tilnefndar fyrir
íslands hönd til bókmenntaverð-
launa Norðurlandaráðs 1990.
Dómnefndina skipuðu þeir
Sveinn Einarsson og Jóhann
Hjálmarsson.
Verðlaunin eru 150 þúsund
krónur danskar og verða úrslit til-
kynnt í Helsinki þann 23. janúar
næstkomandi. Afhending verð-
launanna fer síðan fram á þingi
Norðurlandaáðs í Reykjavík í fe-
brúar 1990. LG
A Iþýðubandalagið
9.
Landsfundur settur í dag
Um 300fulltrúar áfundinum. Búist við átakafundi. Efnahags- og atvinnumál í brennidepli
landsfundur Alþýðubanda-
lagsins verður settur síðdeg-
is í dag í Borgartúni 6. Setningar-
athöfnin hefst kl. 17.30 með tón-
listarflutningi en síðan mun
Ólafur Ragnar Grímsson for-
maður flokksins setja fundinn
með ræðu.
Jasssveit undir forystu Tómas-
ar R. Einarssonar mun bjóða
gesti velkomna. Þá leika þeir
Kolbeinn Bjarnason og Páll
Eyjólfsson verk fyrir flautu og
gítar. Síðan syngur Jóhanna Þór-
hallsdóttir.
Að lokinni setningarræðu
Ólafs Ragnars Grtmssonar verð-
ur gert kvöldverðarhlé, en um
kvöldið verða framsöguræður um
helstu málaflokka sem til um-
ræðu verða á fundinum undir
yfirskriftinni „Nýr grundvöllur
fyrir nýja tíma“. Þar flytja þau
Svanfríður Jónasdóttir, Svavar
Gestsson, Steingrímur J. Sigfús-
son, Arthúr Mortens, Margrét
Frímannsdóttir og Björn Grétar
Sveinsson framsöguerindi. Að
þeim loknum verða almennar
stjórnmálaumræður.
Fulltrúar á landsfundi eru um
300 talsins frá um 50 grunneining-
um Alþýðubandalagsins. Rétt er
að taka fram að landsfundurinn
er opinn fyrir aðra en kjörna full-
trúa. Má búast við töluverðum
átökum á fundinum einsog fram
kemur í stuttum viðtölum við
fulltrúa á fundinum í Þjóðviljan-
um í dag. Einkum munu atvinnu-
og efnahagsmál verða í brenni-
depli.
Landsfundinum lýkur síðdegis
á sunnudag. _sýf
Sjá síðu 3