Þjóðviljinn - 25.11.1989, Síða 1

Þjóðviljinn - 25.11.1989, Síða 1
Laugardagur 25. nóvember 1989 202. tölublað 54. órgangur .steypa, steinsteypa, grátt ætlar allt grænt að gleypa. Mynd Jim Smart. Virðisaukaskattur Launafólk vill tvö þrep * Forystumenn BSRB, ASIy Stéttasambands bœnda og Neytendasamtaka vilja tvöþrep í virðisauka og upptöku hans verðifrestað. Fjármálaráðherra gagnrýndur á Alþingi fyrirframkvœmd virðisaukans en segist vera að standa við samkomulag innan ríkisstjórnar um leið lánskjaravísitölu, þannig að öll lán hækkuðu. Ólafur Ragnar Grímsson sagði vissulega koma til greina að hafa tvö þrep á virðisaukaskatti. Hann hefði kynnt þetta mál í ágúst og september sl. og þá hefði verið tími til þeirrar ákvörðunar hvort þannig ætti að haga málum um næstu áramót eða ekki. Ef menn vildu tvö þrep kæmi það ekki til framkvæmda fyrr en síðar. „Það er hins vegar ljóst að það hafa verið mismunandi skoðanir um það í landinu hvernig þetta ætti að vera“, sagði Ólafur. Gildandi lög hefðu verið samþykkt af Sjálfstæðisflokki, Alþýðuflokki og Framsóknarflokki með einu þrepi. Það væri fyrst nú á síðustu vikum að fram kæmi vaxandi stuðningur við tvö þrep. Stjórn- arflokkarnir hefðu hins vegar gert samkomulag í þessum mál- um og hann teldi það sitt verkefni að standa við það, þó stefna Al- þýðubandalagsins í þessum mál- um væri önnur. Ráðherrann sagðist þeirrar skoðunar að virðisaukaskattur ætti að taka gildi um áramót. Þá myndi eiga sér stað verðlækkun á ýmsum mikilvægum matvælum þannig að í fyrstu viku í janúar muni mjólk, dilkakjöt, ferskt grænmeti og fiskur lækka í verði, ýmist um 10% eða 6%. Trúnaðarráðsfundur Dags- brúnar hefur lýst yfir stuðningi við yfirlýsingu ASI í dagblöðum sem mótmælir 26% vsk. á ma- tvæli. -hmp Tékkóslóvakía Fomstan segir Fprystumenn Alþýðusambands Islands, Bandalags starfs- manna ríkis og bæja, Stéttasam- bands bænda og Neytendasamt- akanna héldu sameigilegan blaðamannafund í gær þar sem þeir lýstu þeim skoðunum sínum að þeir vildu „matarskattinn“ burt eða að við upptöku virðis- aukaskatts um næstu áramót yrðu höfð tvö þrep á vsk. þannig að öll matvæli yrðu í lægra þrepi. Sögðust forystumenn samtak- anna ekki skilja hvers vegna sá háttur ætti að vera óframkvæm- anlegur hér á landi þegar hann væri víða hafður á í nágranna- löndum okkar. I utandagskrár- umræðu á Alþingi í gær var fjár- málaráðherra gagnrýndur fyrir _að leyfa þingheimi ekki að fylgj- ast með framkvæmd kerfis- breytingarinnar. En Ólafur Ragnar sagði að þingflokkar ættu að vera vel inni í málum þar sem þeir hefðu haft í fórum sínum all- ar upplýsingar í einn og hálfan mánuð. Á blaðamannafundi samtaka launafólks minnti Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ á, að samningar opinberra starfs- manna væru lausir um næstu mánaðamót og að samningar ASÍ-félaga væru lausir um næstu áramót. Samtök launafólks væru fyrst og fremst að hugsa um kaupmáttinn en ekki krónur í launaumslögum og því augljóst að tvö þrep á virðisaukaskatti væri góð leið til að auka kaupmáttinn. Enda væri það svo að skattur á matvælum kæmi verst niður á þeim sem hefðu lægstu launin, það fólk greiddi hlutfallslega mest af sínum tekj- um í mat. Haukur Halldórsson formaður Stéttasambands bænda sagði þá leið sem nú ætti að fara, að greiða niður einstaka vöruflokka á framleiðslustigi, hefði reynst ákaflega illa. Þetta myndi leiða til þess að því lengra sem vara færi í framleiðsluferli myndu áhrif þessara niðurgreiðslna minnka. Ásmundur sagði eitt af því sem væri flókið í framkvæmd virðis- aukans, væri hvernig ætti að haga endurgreiðslum varðandi íbúðar- byggingar. Það virtist fullkom- lega óljóst hvernig farið yrði með byggingarvísitölu um áramót. Verktakar yrðu að gera bókhald eftir fjórum leiðum eftir því fyrir hvern væri byggt. Síðan væri ætl- unin að endurgreiða þeim sem væru að byggja íbúðir en sér væri ekki kunnugt um hvernig ætti að framkvæma þetta. Það væri spurning hvort þetta leiddi til hækkunar byggingarvísitölu og 011 forustu tékkóslóvakíska kommúnistaflokksins, þar á meðal Milos Jakes, aðalritari flokksins, sagði af sér á neyðar- fundi sem stóð yfir í Prag lengst af gærdagsins. Segir í frétt frá CTK, hinni opinberu fréttastofu Tékkó- slóvakíu, að öll forsætisnefnd flokksins og stjórnardeild aðalrit- ara hefðu beðist lausnar til að gefa miðnefnd flokksins frjálsar hendur til að kjósa nýja forustu. Ljóst virðist að flokksforustan hafi ekki séð sér annað fært en að láta undan kröfum fólks á fjölda- fundum, sem staðið hafa yfir í rúma viku samfleytt einkum í Prag, en einnig í fleiri borgum. Á fundunum hefur fyrst og fremst verið krafist lýðræðis og afsagnar forustu ríkisflokksins. Fréttastof- an hefur eftir Jakesi að hann vilji af sér umbætur í lýðræðisátt. Gert er ráð fyrir að miðnefndin muni kjósa nýja forustu með leynilegri atkvæðagreiðslu. í nefndinni eiga sæti 150 fulltrúar. Jakes hefur verið aðalritari flokksins frá því í des. 1987 er hann tók við af Gustav Husak, er gegnt hafði þeirri stöðu frá því að Alexander Dubcek var vikið úr henni eftir Pragvorið. Reuter/-dþ.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.