Þjóðviljinn - 30.11.1989, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 30.11.1989, Qupperneq 1
Fimmtudagur 30. nóvember 1989 205. tölublað 54. örgangur Vantraust á ríkisstjómina Stjórnarandstaðan segir ríkisstjórnina ófœra um stjórn landsins vegna sundurlyndis varðandi virðisauka og stefnuleysis í EB ogEFTA málum. Forsœtisráðherrafagnarvantrauststillögunni og fjármálaráðherra segir tímasetninguna skrýtna Stjórnarandstaðan bar í gær upp vantrauststillögu á ruds- stjórn Steingríms Hermanns- sonar og fer fram á að þing verði rofíð og efnt til kosninga svo fljótt sem auðið er. Atkvæðagreiðsla fer fram um vantraustið á Alþingi í kvöld og er það í samræmi við óskir forsætisráðherra, Stein- gríms Hermannssonar, sem sagð- ist fagna tillögunni og vilja at- kvæðagreiðslu um hana sem Fáskrúðsfjörður Dyntótt og stygg Demantssíld í firðinum Ingvi Rafn og áhöfn hans á Guðmundi Kristni frá Fáskrúðs- firði kláruðu sfldarkvótann í fyrradag þegar þeir fengu 140 tonn af svokallaðri demantssfld í fírðinum og hafa þeir þá veitt 2.220 tonn af sfld á þessari vertíð. Að sögn Ingva Rafns hefur lítið verið af svona stórri og búst- inni sfld á miðunum til þessa. Hann sagði ógerlegt að segja nokkuð til um það hvort hún væri núna loksins farin að gefa sig inni á fjörðunum fyrir austan. „Hún er illveiðanleg, dyntótt og stygg og þessvegna ánægjulegt að enda vertíðina með því að hitta á hana svona í lokin,“ sagði Ingvi Rafn. -grh Virðisaukaskattur Málamiðlun í loftinu Þetta mál er enn til meðferðar hjá ríkisstjórninni, við höfum ekki haft tíma til að setjast sam- eiginlega yfír málinu en ætlum að ijúka þessu á föstudaginn, sagði Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra þegar hann var spurður hvort niðurstaða hefði náðst í deilum innan stjórnarinn- ar um upptöku virðisaukaskatts. Ráðherramir ræddust við sím- leiðis á þriðjudagskvöld, að sögn Steingríms. Hann vildi ekkert fullyrða um hvort virðisauka- lögin tækju gildi um áramótin, það væri einn kostur og ekki sá versti. En ef lögin tækju gildi án þeirra breytingatillagna sem nú lægju fyrir þinginu, yrði ríkis- sjóður fyrir verulegu tekjutapi. Samkvæmt heimildum Þjóð- viljans er málamiðlun þegar fundin og aðeins eftir að setjast niður og finna rétta orðalagið. Málamiðlunin mun felast í því, að virðisaukaskatturinn taki gildi eins og uppmnalegt samkomulag stjómarflokkanna gerði ráð fyrir, en tveggja þrepa virðisauka- skattur verði settur í vandlega at- hugun. -hmp fyrst. Þorsteinn Pálsson formað- ur, Sjálfstæðisflokksins og fyrsti flutningsmaður vantraustsins, benti á að margir stjórnarþing- menn hefðu lýst yfír óánægju með stjórnarstefnuna og nú væri tæki- færi fyrir þá til að standa við orð sín. Þorsteinn sagði í samtali við Þjóðviljann, að sumir stjómar- þingmenn hefðu sett fram kröfu um nýja efnhagsstefnu, aðrir sett stóra fyrirvara varðandi forsend- ur fjárlagaframvarps og lýst and- stöðu við grandvallarskatta- stefnu ríkisstjómarinnar. Nú reyndi á hvort þessir þingmenn væra aðeins með hræsnisfullan tvískinnung gagnvart kjósend- um, eða meintu eitthvað með því sem þeir segðu. Vantraustið væri borið upp nú vegna þess að mál væru komin í mikið óefni og önnur eins staða hefði varla kom- ið upp gagnvart nokkurri ríkis- stjórn. Hún hefði misst tök á öllum málum, gæti ekki komið virðisaukaskatti til framkvæmda sem samþykktur hefði verið á Al- þingi og komið hefði í ljós að henni væri ekki treystandi til að gæta mikilvægustu hagsmuna ís- lendinga í stærstu alþjóðlegum samningum sem ísland hefði tekið þátt í. Efnahagsstefna ríkis- stjórnarinnar hefði einnig leitt til kaupmáttarhruns langt umfram rýmun þjóðartekna. Ólafur Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra sagði þá röksemd- arfærslu að efnhagsstefna ríkis- stjórnarinnar væri ónýt, mjög skrýtna. Tímasetningin væri einnig skrýtin þar sem núna fyrst væri árangur efnahagsaðgerða stjórnarinnar að koma í ljós. í fyrsta sinn í tvö ár væra útflutn- ingsatvinnuvegimir reknir með jákvæðum hætti. Ríkisstjóminni hefði tekist að snúa við hrani at- vinnulífsins og koma í veg fyrir stöðvun þess, eins og blasað hefði við eftir ríkisstjóm Þorsteins Pálssonar. Þetta væri viðurkennt af öllum forsvarsmönnum sjávar- útvegs og fiskvinnslu. Fjármálaráðherra sagði vöra- skiptajöfnuð nú jákvæðan í fyrsta skipti síðan 1986, meira væri flutt út en inn. En vöraskiptajöfnuð- urinn hefði verið í graut í tíð Þor- steins þegar meira var flutt inn er út. „Þá hefur tekist að skap; jafnvægi á peningamarkaði þannig að lausafjárstaða bank; er betri en í langan tíma,“ sagð Ólafur. Nýjustu skýrslur Seðla bankans sýndu mikla raunvaxta breytingu þótt enn þyrfti ac fylgja þeim málum eftir. Tekisi hefði að eyða þeirri þenslu serr ríkti og var að sporðreisa landið. Ráðherrann sagði stefnu stjóm- arinnar skila nýju efnhagslegu jafnvægi eftir stórslys Sjálfstæðis- flokksins. Tímasetning van- traustsins hefði því varla getað verið óheppilegri fyrir Sjálfstæð- isflokkinn og Kvennalistann. Formaður þingflokks Kvenna- listans, Danfríður Skarphéðins- dóttir, sagði Kvennalistann standa að vantrausti vegna þess að allt væri í upplausn og óeirð innan ríkisstjómarinnar. Ekki væri hægt að sjá að stjómin gæti haldið vel á nokkram málum. Nefndi Danfríður viðræðumar við EB, virðisaukaskattinn og framvarp til aðstoðar loðdýra- rækt, sem einn stjómarflokkanna hefði sett sig upp á móti en hinir samþykkt. Vantraust á ríkisstjóm er borið upp í sameinuðu þingi þar sem ríkisstjómin hefur öraggan meirihluta, eða 37 þingmenn af 63. -hmp Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins leggur á ráðin með Eyjólfi Konráð Jónssyni og Ólafi G. Einarssyni. Mynd: Kristinn. Loðna Lýst eftir kynþroska loonu Ámi Friðriksson: Lítið af kynþroska loðnu fyrir norðan og austan. Loðnu- nefnd: Smáloðna út um alian sjó. Ofsnemmt að mála skrattann á vegginn. Sádarvinnslan: Eitt þúsund tonn komin á land. Miðað við sama tíma ífyrra að er smáloðna út um allan sjó svo það er ekki fæðuskorti um að kenna að ekki hefur fundist né veiðst meira af kynþroska loðnu en raun ber vitni. Þannig að ég tel alltof snemmt að mála skrattann á vegginn þótt veiðarnar gangi ekki sem skyldi nú í augnablik- inu, sagði Ástráður Ingvarsson hjá Loðnunefnd. Engin veiði var í fyrrinótt á loðnumiðunum úti fyrir Norður- landi sökum brælu. Þó tilkynntu 14 skip um samtals 7 þúsund tonna afla frá miðnætti sem þau höfðu náð að skrapa saman áður en byrjaði að bræla fyrir alvöra á miðunum. Ekki var útlit fyrir neina veiði í gær sökum veðurs. nemur tekjutapið um Heildaraflinn frá vertíðarbyrjun er því orðinn um 32 þúsund tonn en var á sama tíma í fyrra vel yfir 160 þúsund tonn. Þessi lélega loðnuveiði er farin að fara fyrir brjóstið á sjó- mönnum sem og öðram sem eiga afkomu sína undir loðnunni. Til að mynda hafa aðeins borist á land til Sfldarvinnslunnar í Nes- kaupstað um eitt þúsund tonn af loðnu en á sama tíma í fyrra um 20 þúsund tonn og árið þar á undan um 30 þúsund tonn. Að sögn Finnboga Jónssonar fram- kvæmdastjóri er tekjutapið vegna þessa aflabrests metið á um 200 miljónir króna og munar um minna. 200 miljónum króna Þá auka ekki bjartsýni manna þær fréttir sem berast frá Haf- rannsóknastofnun eftir fimm vikna loðnuleit rannsóknaskips- ins Árna Friðrikssonar fyrir vest- an og norðan land. Að sögn Sveins Sveinbjörnssonar leiðang- ursstjóra fundu þeir á Áma lítið af loðnu en að öðra leyti vildi hann ekki tjá sig um niðurstöður leiðangursins fyrr en búið væri að ganga frá gögnum úr leiðangri rannsóknaskipsins Bjama Sæmundssonar. Skipin mættust út af Vestfjörðum um miðjan mánuðinn í loðnuleit og síðan leitaði Bjarni að loðnu fyrir austan land og var skipið væntan- legt til lands í gær. Vegna hafíss fyrir Norðvesturlandi var ekki hægt að leita þar að loðnu og má vera að hún haldi sig enn þar nyrðra undir ísnum. Loðnan er sem kunnugt er uppsjávarfiskur sem þrífst best í skilum milli hlýrra og kaldra haf- strauma og ef breyting verður á þessum umhverfisþáttum vegna veðurfarsbreytinga getur það valdið vissum mglingi hjá loðn- unni miðað við það sem er í venjulegu árferði. Hvort það er skýringin á því að lítið hefur fundist af kynþroska loðnu eða hvort hún felur sig undir ís- breiðunni er of snemmt að full- yrða um að svo stöddu. -grh

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.