Þjóðviljinn - 02.12.1989, Blaðsíða 1
Laugardagur 2. desember 1989 207. tölublað 54. órgangur
Greitt úr flækjunni. Mynd: Jim Smart
Kjaramál
Lánskjaravísitalan burt?
Með lœkkun verðbólgu í6-7% œtlar ríkisstjórnin að afnema vísitölu-
tryggingu en mun annars gera lítið til að greiða fyrir komandi samning-
um. Asmundur Stefánsson: Viljum lœgra verð á nauðsynjavörum.
Steingrímur Hermannsson: Gerum ekki frekar út á ríkissjóð
Fyrsji fundur forystusveitar
ASI með ríkisstjórninni vegna
komandi kjarasamninga var
haldinn i gær. Ekki voru miklar
ákvarðanir teknar á fundinum og
kölluðu fundarmenn hann „eld-
hússdag" af þeim sökum. For-
menn stjórnarflokkanna töldu
ríkissjóð ekki geta tekið á sig
meiri byrði en þegar hefur verið
gert og er því ólíklegt að ríkis-
stjórnin nái að auðvelda gerð
samninga. Þeir vonast hinsvegar
til að geta lækkað verðbólgu og
afnumið vísitölutryggingu þannig
að hægt verði að semja til lengri
tíma.
„Við spurðum ríkisstjórnina
hvað hún væri reiðubúin að gera
til að greiða fyrir samningum og
þá sérstaklega hvað hún gæti gert
til að greiða niður verð á
nauðsynjavörum. Enginn niður-
staða fékkst hvað þetta snertir en
stjórnin telur sig hafa gert flest
sem í hennar valdi stendur með
komandi skattbreytingum,“
sagði Ásmundur Stefánsson for-
maður ASÍ er hann kom út af
fundinum.
Á fundinum reifaði ríkisstjórn-
in hugmyndir til að koma í veg
fyrir verðhækkanir um áramótin
en þær eru allar á frumstigi. „Við
teljum að með virðisaukaskattin-
um lækki verð á matvælum um
2% og um 8% á einstökum teg-
undum. Við sjáum því ekki að
hægt sé að gera frekar út á ríkis-
sjóð miðað við ástand og horfur.
Þeir voru að mestu sammála okk-
ur um það en við vonumst til að
geta komið til móts við launafólk
með aðhaldi í verðlagi og aðgerð-
um í atvinnumálum,“ sagði
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra eftir fundinn.
Ekkert var rætt um hvort
semja ætti til lengri eða skemmri
tíma enda er ríkisstjórnin ekki
beinn samningsaðili ÁSÍ. Það er
þó ljóst að ríkisstjórnin vill að
samið verði til lengri tíma og telur
jafnframt að hægt verði að fella
niður vísutölubindingu á næsta
ári. Stjórnarmeðlimir segja góð-
ar horfur á að lækka megi verð-
bólgu niður í 6-7% og þannig
megi leggja niður lánskjaravísi-
tölu. Með slíkum stöðugleika
væri hægt að semja til lengri tíma
og auka líkur á stöðugu atvinnu-
ástandi. Forkólfar verkalýðs-
hreyfingarinnar munu þó fara sér
hægt hvað þetta varðar og óvíst
að þeir fáist til að skrifa undir
langtímasamning án vísitölu-
tryggingar.
Þá gekk ASÍ á fund vinnu-
veitenda á fimmtudag og var
ákveðið að halda fundi í smærri
hópum á mánudag. Nokkuð
mikið ber í milli samningsaðila og
útlit fyrir ýmsa erfiðleika við að
knýja fram samninga. Ekkert var
ákveðið í gær varðandi annan
fund ASÍ og ríkisstjórnarinnar en
að sögn Steingríms Hermanns-
sonar er stjórnin tilbúin til frekari
funda hvenær sem er.
-þóm
Sögulegar sœttir
Gorbatsjov á páfafundi
*
Akváðu að taka upp stjórnmálasamband. Jóhannesi Páli boðið til Sovétríkja
Gorbatsjov Sovétríkjaforseti
gekk í gær á fund Jóhannesar
Páls páfa annars í Páfagarði og
ræddust þeir einir við í 75 mínút-
ur, hálftíma lengur en ráðgert
hafði verið. Er þetta fyrsti fundur
æðstu manna Sovétríkjanna og
kaþólsku kirkjunnar. A fundin-
um urðu þeir Gorbatsjov og páfi
sammála um að taka upp
stjórnmálasamband með Páfa-
garði og Sovétríkjunum.
Haft er lýrir satt að fundur
þessi marki tímamót í sam-
skiptum kaþólsku kirkjunnar og
Sovétríkjanna, en á milli þessara
aðila hafa verið litlir kærleikar,
vægast sagt, allt frá byltingu bols-
évíka 1917. Hið besta fór á með
þeim höfðingjunum á fundinum
og þurftu þeir ekki túlks við, þar
eð páfi talar rússnesku. Talsmað-
ur Vatíkansins sagði að eftir væri
að ákveða nánar í hvaða formi
stjórnmálasambandið yrði, og
myndu stjórnarerindrekar
beggja sjá um það. Um heimboð-
ið sagði talsmaðurinn: „Hinn hei-
lagi faðir þakkaði honum hjart-
anlega og kvaðst vona að gangur
mála gerði sér kleift að þiggja."
Viðkvæmasta atriðið í sam-
skiptum Páfagarðs og Sovétríkj-
anna er kaþólska úníatakirkjan í
Úkraínu, sem Stalín bannaði
1946 og enn hefur ekki fengið
fulla löggildingu.
Páfi óskaði Gorbatsjov góðs
gengis með perestrojku og kvað
hinn helga stól „reiðubúinn til
stuðnings hverju frumkvæði til
tryggingar réttindum og skyldu-
rækni einstaklinga og þjóða, með
það fyrir augum að friður mætti
verða tryggður í Evrópu og
heiminum." - Pólland er eina
Varsjárbandalagsríkið, sem
Páfagarður hefur stjórnmálasam-
band við eins og er. Var það tekið
upp í júlí s.l.
Reuter/-dþ.
I