Þjóðviljinn - 02.12.1989, Qupperneq 2
^ FRÉTTIR
>1.«^ II ■■ - ■■■■!— —.■«■■■ ' .. ' ... "
Virðisaukaskattur
Hagsbót fyrir láglaunafólk
Barnabœtur ogpersónuafsláttur hœkka um 7,5%. Skattbyrði tekju-
skatts þyngist á hátekjufólki en stendur í stað eða minnkar hjá lágtekju-
fólki
Itengslum við ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar um lækkun virð-
isaukaskatts úr 26% í 24,5% var
ákveðið að hækka tekjuskatts-
prósentuna um 2%. Á móti var
tekin ákvörðun um að helmingur
tekna ríkissjóðs af hækkun tekju-
skattsins færi til hækkunar pers-
ónuafsláttar og barnabóta.
Barnabætur og persónuafsláttur
essar uppsagnir eru skelfileg
tíðindi sem við vonum í
lengstu lög að komi ekki til fram-
kvæmda. I nóvemberbyrjun voru
hér á atvinnuleysiskrá um 140
manns og ef 77 manns bætast þar
við 1. mars verða hér rúmlega
200 manns atvinnulausir sem
þýðir að 10% alls vinnuafls
bæjarins verða þá án atvinnu,"
sagði Gísli Gíslason bæjarstjóri.
I fyrradag var öllu starfsfólki
skipasmíðastöðvar Þorgeirs og
Ellerts á Akranesi sagt upp störf-
um með þriggja mánaða fyrir-
vara. Astæða uppsagnanna er
verkefnaskortur hjá fyrirtækinu.
Það sem Skagamenn horfa til sem
tímabundinnar lausnar á þessum
munu samkvæmt tilkynningu frá
fjármálaráðuneytinu hækka um
7,5% og þess vegna komi hækkun
tekjuskatta fyrst og fremst við
fólk með tekjur yfir meðallagi.
I tilkynningu ráðuneytisins
segir að að lágtekjufólk og barna-
fjölskyldur komi til með að borga
svipað eða minna í tekjuskatt
vanda fyrirtækisins er að það fái
annað hvort breytingarverkefni
það sem Hafrannsóknastofnun
hefur ákveðið að láta vinna á
rannsóknarskipinu Árna Frið-
rikssyni eða nýsmíði á mælinga-
skipi fyrir Landhelgisgæslu Is-
lands.
Að sögn bæjarstjórans hefur
það legið fyrir síðustu 15 mánuði
hvert stefndi í málefnum skipa-
smíðastöðvarinnar og allan þann
tíma hafa bæjaryfirvöld rætt við
þingmenn kjördæmisins og eins-
taka ráðherra og lýst fyrir þeim
áhyggjum sínum um þróun þess-
ara mála en án sýnilegs árangurs
til þessa.
-grh
eftir þessa breytingu en fyrir
hana. Breyting úr 25% sölu-
skatti, eins og nú er í gildi, í
24,5% virðisaukaskatt lækki al-
mennt vöruverð um 1% en end-
urgreiðsla ákveðins hluta virðis-
aukans lækki verð á algengustu
matvælum um 7-8%. f fjárlaga-
frumvarpi er gert ráð fyrir að
persónuafsláttur og barnabætur
hækki um 3,5% en nú hefur ríkis-
stjórnin sem sagt ákveðið að
þessi hækkun verði 7,5%.
Hækkun tekjuskatts um 2%
leiðir til þess samkvæmt tilkynn-
ingu fjármálaráðuneytisins, að
hlutfall tekjuskatta af heildar-
tekjum launafólks verður 0,9%
hærra en það er í ár. Skattbyrðin
þyngist mest hjá fólki með háar
tekjur, allt upp undir 2%. En
hins vegar lækki skattbyrðin hjá
láglaunafólki, auk þess sem lægra
matvöruverð komi því fólki til
góða. Sýnd eru nokkur dæmi um
hvernig breytingin komi út. Ein-
staklingúr með 65 þúsund króna
mánaðarlaun greiði eftir
breytinguna 470 krónur nettó í
tekjuskatt til ríkisins en fyrir
breytinguna hefði hann greitt 601
krónu. Einstaklingur með 150
þúsund króna mánaðarlaun
greiði aftur á móti 28.350 kr. í
stað 26.781 kr. áður. Hjón með
130 þúsund króna mánaðarlaun
fái 9.460 kr endurgreiddar eftir
breytinguna í stað 8.484 kr. og
einstætt foreldri með 65 þúsund
króna mánaðarlaun fái 22.371 kr.
endurgreiddar í stað 20.672 kr.
-hmp
Akranes
Dauðahald í vonina
Að öllu óbreyttu getursvofarið að 10% alls
vinnuafls í bœnum verði án atvinnul. mars
eða rúmlega 200 manns
Hlaðvarpinn
Myndteppi með ásaumi
Heidi Kristiansen opnar sýningu á myndteppum saumuðum með
ásaums og quilt-tækni í Gallerí Hlaðvarpanum í dag kl. 14. Á sýning-
unni eru 22 myndverk, flest unnin á þessu ári. Heidi er frá Þrándheimi í
Noregi en heftir verið búsett hér á landi frá 1980. Sýningin er opin alla
daga frá 12-18 fram til 17. desember.
Hjónagarðar fullbúnir
í gær var tekinn í notkun þriðji og síðasti áfanginn í nýju hjónagörð-
unum við Suðurgötu. Alls eru í húsinu 93 íbúðir en byggingin kostar um
500 miljónir á núgildandi verðlagi. Með tilkomu nýju garðanna er nú
rúm fyrir um 4% stúdenta á stúdentagörðum. Á myndinni eru arkitekt-
ar hússins þeir Guðmundur Gunnlaugsson t.h. og Pétur Jónsson t.v.,
á milli þeirra stendur byggingarverktakinn Sigurður K. Eggersson.
Eiríkur Ingólfsson framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta stend-
ur í stiganum ásamt Valdimar K. Jónssyni og Halldóri Birgissyni sem
sátu í byggingarnefnd garðanna. Mynd-Kristinn
Norrœna húsið
Austfirski torfbærinn
Dagskrá um Austfirska torfbæinn verður í Norræna húsinu í dag og
hefst hún kl. 15. Sýndar verða skuggamyndir af austfirskum bæjum,
aðallega af Fljótsdalshéraði. Sveinn Einarsson mun segja frá hvernig
bæir voru byggðir fyrr á tímum og hvernig var að búa í þeim. Hann
mun einnig segja frá ýmsum breytingum sem orðið hafa á þessari öld.
Ritstjórn og höfundar 4. bindis af sögu íslands. Sitjandi eru frá vinstri
Hörður Ágústsson, Jakob Benediktsson og Sigurður Líndal en í aftari
röð frá vinstri eru Sigurgeir Steingrímsson, Guðrún Ása Grímsdóttir og
Ingi Sigurðsson. Mynd: Kristinn.
Norrœni
sumarháskólinn
Aðlögun
að EB
Aðlögun íslands að innri mark-
aði Evrópubandalagsins. Hvað
mun gerast á íslenskum vinnu-
markaði? er yfirskriftin á fram-
söguerindi sem Gestur Guð-
mundsson félagsfræðingur flytur
á almennum fundi Evrópuhóps
Norræna sumarháskólans.
Fundurinn verður í hliðarsal*
Norræna hússins í dag kl. 13.
Þetta er annar af tveim al-
mennum fundum Evrópuhópsins
í desember. Sá síðari verður
laugardaginn 16. desember. Þá
hefur Þór Rögnvaldsson
heimspekingur framsögu um efn-
ið: Sjálfsímynd (identitet) ein-
staklinga og þjóða. Kemur hún
sjálfkrafa?
Leiðrétting
í viðtali við Svanhildi Boga-
dóttur borgarskjalavörð í Þjóð-
viljanum si. fimmtudag féll ein
lína niður í viðtalinu og sú máls-
grein varð því óskiljanleg. Svan-
hildur var spurð hvaðan skjölin á
safninu væru komin. Rétt svar
hennar er:
„Öllum borgarstofnunum og
fyrirtækjum borgarinnar er skylt
að skila skjölum sínum til
safnsins og eru þau skjöl stærsti
hluti þess. Einnig tekur safnið við
skjölum einstaklinga og fyrir-
tækja í Reykjavík til varðveislu,
en slík gögn geyma oft mikilvæg-
ar upplýsingar um sögu, starf-
semi og mannlíf í borginni.“
Hlutaðeigendur eru beðnir
velvirðingar á þessum mistökum.
Sagnfrœði
Góðæri
14. aldar
Hið íslenska bók-
menntafélag sendir
frá sérfjórða bindi af
Sögu Islands. ífyrsta
sinn sem þetta tímabil
er almenningi vel að-
gengilegt
Ef til vill má segja að þetta bindi
og hið næsta marki tímamót í
sagnaritun að því leyti, að sögu
14. og 15. aldar hafa ekki fyrr
verið gerð viðlíka skil, segir í
fréttatilkynningu Hins íslenska
bókmenntafélags vegna útgáfu
fjórða bindis af sögu íslands.
Bókin er hluti ritraðar sem
ákveðið var að gefa út í tilefni 11
aldar búsetu á Islandi. Sigurður
Líndal, ritstjóri verksins, sagði
að eitt af þvl sem kynni að koma á
óvart í bókinni, væri að hagur
manna á 14. öld sýndist vera betri
en menn hefðu kannski haldið.
Áður hefðu menn talið að við
cndalok sjálfstæðisins 1262-1264
hefði allt farið niður á við og
myrkt tímabil hafist. Þessi öld
hefði verið um margt hagstætt
timabil.
Þá sagði Sigurður kafla Harðar
Ágústssonar í ritinu eiga eftir að
koma fólki á óvart, vegna þess
hvað fólk hefði búið miklu betur
og veglegar en áður var haldið.
Klaustrin hefðu einnig verið
merkar og stórar byggingar.
Björn Þorsteinsson er aðalhöf-
undur þessa bindis og kýs hann
að kalla þetta tímabil íslands-
sögunnar, „norsku öldina“. Enda
hefðu verið náin tengsl á milli ís-
lands og Noregs á 14. öld. í frá-
sögn er einkum miðað við ytri at-
burðasögu, segir í fréttatilkynn-
ingu og fyrst raktir höfuðdrættir í
sögu Evrópu á síðmiðöldum.
Hugtakið Evrópa er skilgreint,
gerð grein fyrir stöðu álfunnar og
ríkjaskipan, atvinnuvegum lýst
sem og stéttum, stjórnarháttum,
málefnum kirkjunnar og andlegri
menningu sem mótaðist talsvert
af bölsýni og tortímingargeig.
Þessum fyrsta hluta er ætlað að
vera baksvið þjóðarsögunnar.
Að þessum inngangi loknum
hefst rakning „norsku aldarinn-
ar“ og er þráðurinn tekinn upp
þar sem honum var sleppt í þriðja
bindi Sögu íslands. Álmennum
þjóðarhögum er lýst og meðal
annars gerð grein fyrir kólnandi
veðurfari og öðru árferði. Saga
landbúnaðar, sjávarútvegs, iðn-
aðar, verslunar og siglinga er rak-
in og sagt frá helstu stéttum þjóð-
félagsins á þessum tíma; verka-
fólki, lausamönnum og hús-
göngum. En aðrar stéttir hafa
fengið umfjöllun í þriðja bindi.
Bókin endar síðan á kafla um
húsagerð á síðmiðöldum.
Sigurður Líndal benti á að í
bókinni væri greint frá upphafi
skreiðarútflutnings, sem hefði
haft mikið að segja fyrir efnahag
þjóðarinnar, vegna þess að á
þessum tíma hefði átt sér stað
verðfall á helstu útflutnings-
vörum íslendinga, vaðmáli og fl.
Fjöldi mynda og uppdráttá
prýðir bókina og við val á þeim
var reynt að hafa að leiðarljösi að
það yrði til nánari skýringar og
viðbótar við texta. Að sögn Sig-
urðar er fimmta bindi Sögu Is-
lands tilbúið, allur texti þess er
þegar skrifaður og sjötta bindið
er eirmig svo gott sem tilbúið.
Þeir sem skrifa fjórða bindið
eru Ingi Sigurðsson, Björn Þor-
steinsson, Guðrún Ása Gríms-
dóttir og Hörður Ágústsson.
Bókin er 319 síður og sagðist Sig-
urður vonast til þess, að auk þess
að þjóna öllum almenningi gæti
bókin nýst til kennslu. í henni
væru ítarlegar ritskrár þar sem
heimildir væru tíundaðar, ef fólk
þyrfti að afla sér frekari heimilda.
-hmp
2 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 2. desember 1989