Þjóðviljinn - 02.12.1989, Side 3
FRETTIR
Vantrauststillaga stjórnarand-
stöðuflokknna á Alþingi á
ríkisstjórnina var felld á fimmtu-
dagskvöld með 36 atkvæðum
gegn 25. Ræða Jóns Baldvins
Hannibalssonar utanríkisráð-
herra vakti sérstaka athygli, þar
sem hann veittist harkalega að
forystu Sjálfstæðisflokksins,
sagði hana barnunga og fávísa um
málefni Evrópu. A dauða sínum
hefði hann átt von en ekki því að
þurfa að standa í því að verja ís-
Norrœna félagið
Fjallkirkjan
áHaustvöku
Hjörtur Pálsson mun tala
um Gunnar Gunnarsson
skáld og Fjallkirkjuna á
Haustvöku Norræna félags-
ins í Kópavogi á morgun
sunnudaginn 3. desember.
Haustvakan er að þessu sinni
tileinkuð aldarafmæli Gunn-
ars fyrr á þessu ári.
í>au Ólöf Ýr Atladóttir,
Sigurður Grétar Guðmunds-
son og Valdimar Lárusson
munu lesa upp valda kafla úr
Fjallkirkjunni. Haustvakan
hefst kl. 15 í Pinghól, Hamra-
borg 11. f hléi verða kaffi-
veitingar á boðstólum.
lenska hagsmuni gagnvart stjórn-
arandstöðunni. Hann hefði átt
von á að standa í þeim vörnum á
erlendum vettvangi.
Fjármálaráðherra, Ólafur
Ragnar Grímsson rakti hvernig
aðgerðir ríkisstjórnarinnar væru
nú farnar að skila árangri og
hvernig grunnur hefði verið
lagður að nýju stöðugleikatíma-
bili í íslenskum efnahagsmálum.
Vantrauststillaga Sjálfstæðis-
flokksins væri eins og brennu-
vargar lýstu yfir vantrausti á
slökkviliðið, þar sem Þorsteinn
Pálsson hefði skilið við efnahags-
og atvinnulíf íslendinga í rjúk-
andi rúst.
Forsætisráðherra sagðist ekki
skilja hvar rætur þessarar van-
trauststillögu lægju, svo furðuleg
væri hún. Hann Iýsti stöðunni í
samningaumleitunum EFTA-
ríkjanna við Evrópubandalagið
og hvernig íslenskir ráðamenn
hefðu undirstrikað sérhagsmuni
íslendinga í viðræðum við pólit-
íska leiðtoga EB-ríkjanna.
Þorsteinn Pálsson sagði daginn
áður en vantrauststillagan var
borin upp að nú reyndi á þá
stjórnarþingmenn sem lýst hefðu
yfir óánægju sinni með stjórnina.
Þessir þingmenn, Hjörleifur
Guttormsson, Skúli Alexanders-
son og Karvel Pálmason greiddu
allir stjórinni atkvæði sitt en
gerðu einnig grein fyrir afstöðu
sinni. Hjörleifur sagði ma. að
traust hans á stjórninni færi þver-
randi. -hmp
Jól í Árbæ
l Árbæjarsafni var verið að skreyta jóltré í Prófessorsbústaðnum í gær, en á morgun hefst sýningin Jól í
Árbæjarsafni. Þá mun leikhópurinn Fantasía, nemendur úr Árbæjarskóla, hópur áhugamanna af eldri
kynslóðinni og starfsmenn safnsins sýna á sunnudag. Mynd Kristinn.
Breiðafjörður
Nýja ferjan sjósett
Hleypt af stokkunum á laugardag og trúlega afhent eigendum um
áramót. Mun taka 200 manns í sœti og 25 bíla af minni gerð
Idag verður nýju Breiðafjarð-
arferjunni hleypt af stokkunum
hjá skipasmíðastöð Þorgeirs og
Ellerts á Akranesi og ef að líkum
lætur verður hún afhent eigend-
um sínum fyrir áramót.
Að sögn Guðmundar Lárus-
sonar framkvæmdastjóra Flóa-
bátsins Baldurs hefur afhending
ferjunnar dregist all nokkuð frá
því sem upphaflega var gert ráð
fyrir. Samkvæmt verksamningi
fyrirtækisins við skipasmíðastöð-
ina átti ferjan að verða tilbúin í
mars fyrr á þessu ári en ýmsar
ástæður hafa orðið til þess að
seinka þeirri áætlun. Ástæðuna
fyrir þessari seinkun taldi Guð-
mundur einkum liggja í því að
smíði ferju væri flóknara verk en
menn hugðu í fyrstunni. í upp-
hafi verksins var kostnaður áætl-
aður rúmar 156 miljónir króna en
Guðmundur taldi það ekki ólík-
legt að hann yrði eitthvað yfir 200
miljónir þegar upp yrði staðið.
Nýja Breiðafjarðarferjan verður
um 400 brúttórúmlestir að stærð
og í henni verða sæti fyrir um 200
farþega. Þá er gert ráð fyrir að
hún eigi að geta tekið um 25 bíla
af minni gerðinni.
-grh
Málrœkt
Skýrslan í hús
Verkefnastjórn málrœktarátaks hefur lokið störfum og skilað skýrslu
til menntamálaráðherra og mun hann leggja hana fyrir Alþingi
Málræktarátaki 1989 er form-
lega lokið þótt átakið haldi
auðvitað áfram með öðrum
hætti. Þrettán manna verkefnis-
stjórn hefur ásamt verkefnis-
stjóra unnið að málræktarátaki
frá því í aprfl sl. á mjög fjöl-
breytta vegu. Auk þess sem ríkis-
sjóður veitti sjö miljónum króna I
þetta átak hefur fjöldi stofnana og
fyrirtækja lagt hönd á plóginn
þannig að heildarkostnaður er
vart metanlegur.
Svavar Gestsson menntamála-
ráðherra sagðist mjög ánægður
með störf verkefnastjórnar og
samvinnu hennar við ótal aðila í
þjóðfélaginu. „Málræktarátakið
er með því allra skemmtilegasta
sem við höfum fengist við í
menntamálaráðuneytinu á þessu
ári. Mér fannst það sérstaklega
skemmtilegt hve jákvæður áróð-
urinn var og að átakið náði svo
vel til almennings í stað þess að
lokast innan stofnana," sagði
Svavar Gestsson við kynningu á
skýrslu verkefnastjórnar í gær.
Hann sagðist einnig vera
bjartsýnni nú en áður á að íslensk
tunga næði að sigrast á þeim hætt-
um sem óneitanlega steðja að
henni.
Aðgerðum verkefnastjórnar
var skipt í þrjá meginflokka:
hvatningar og tilmæli, fræðslu og
rannsóknir og fræðistörf. Forseti
íslands hóf átakið með tilmælum
til þjóðarinnar og eftir það hefur
málræktarátakið orðið æ meira
áberandi í íslensku þjóðlífi. í al-
mennri fræðslu bar mest á þátt-
unum um Bibbu í málrækt, hlust-
endaþáttum í útvarpi, haldin var
móðurmálsvika í skólum og dag-
vistum í október sl., ritgerðasam-
keppni í grunnskólum, svo sitth-
vað sé nefnt. Hvað varðar rann-
sóknir og fræðistörf vinnur Há-
skóli íslands nú að gerð tíðniorð-
abókar, unnið er að gerð hand-
bókar um talmál og uppeldi, tal-
að mál og mállýskur eru í rann-
sókn ofl.
í skýrslu verkefnastjórnar er
ekki einungis farið yfir störf
stjórnarinnar heldur er farið ítar-
lega yfir móðurmál og skólastarf
á öllum stigum, athugað er mál-
far fjölmiðla og reynt er að meta
málræktarátakið og þær niður-
stöður sem því fylgja.
Menntamálaráðherra mun á
næstunni leggja skýrsluna fyrir
Alþingi og óska eftir umræðum
um íslenska tungu, en slíkar um-
ræður hafa ekki farið formlega
fram áður.
-þóm
Guðmundur B. Kristmundsson verkefnastjóri málræktarátaks, Svavar Gestsson og Guðrún Ágústsdóttir
kynna skýrslu verkefnastjórnar. Mynd: Jim Smart.
Laugardagur 2. desember 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
HELGARRUNTURINN
JÓLASTÚSS margháttað setur nú svip sinn á mannlífið enda börnin
farin að maula súkkulaðið úr dagatölunum sem tannlæknarnir eru svo
mikið á móti. Og í öllum kirkjum verða aðventukvöld um þessa helgi,
já ekki bara í kirkjum því Kór Átthagafélags Strandamanna ætlar að
taka lagið á aðventusíðdegi í Skaftfellingabúð, Laugavegi 178 á morg-
un, sunnudag kl. 17. Og svo eru það basararnir. Það er einn hjá
Sjálfsbjörg í dag og á morgun og hefst kl. 14 í Hátúni 12. Síðast en ekki
síst verður í dag opnuð sýning í Þjóðminjasafninu á því hvernig jól hafa
verið haldin í aldanna rás á Norðurlöndum...
JÓLASKAPIÐ er farið að segja til sín í röðum leikara enda fá þeir
flestir frí frá sýningum um næstu helgi. Um þessa helgi veröur sýnt eins
og vanalega, Bernarða Alba í kvöld fyrir norðan, Ljósvíkingur á
báðum sviðum Borgarleikhúss í kvöld og því litla annað kvöld,
Blúndur og blásýra í Félagsheimili Kópavogs í kvöld, Tosca í Óper-
unni í síðasta sinn í kvöld og í Þjóðleikhúsinu verður Lítið fjölskyldu-
fyrirtæki sýnt í kvöld og annað kvöld og Óvitar í dag kl. 14. A morgun,
sunnudag, kl. 15 verður hins vegar sérstök jóladagskrá í Leikhúskjall-
aranum og boðið upp á kaffi og pönsur með...
JÓLABRAGURINN er líka farið að hafa áhrif á galleríishölda því þar
er víða búið að hengja upp jólasýningar. Það gildir td. um Art-Hún í
Stangarhyl, Gallerí Kóbolt að Laugavegi 55 og FÍM-galleríið í Garða-
stræti þar sem einnig verður boðið upp á upplestur og söng í dag kl. 15.
En það eru enn haldnar einkasýningar. Einar Garibaldi sýnir málverk í
Gallerí 11, Hulda Halldórsdóttir debúterar í Nýja galleríinu, Lilja
Eiríksdóttir sýnir málverk í Smíðagalleríinu, Mjóstræti 2B og þau
Bjarni Ragnars og Ulla Hosford sýna sömuleiðis málverk í Gallerí
Madeira...
JÓLABÆKURNAR verða víðar opnaðar en í FÍM því í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar verður kynning á verkum þriggja skálda á morg-
un kl. 15. Og svo fer að líða að því að ekki verður þverfótað fyrir
lesandi skáldum í bókabúðunum. Hins vegar ætia þrír fræðimenn að
kryfja íslenska nútímaljóðlist á fundi með áhugafólki um bókmenntir í
Odda í dag kl. 15. f næsta húsi, því Norræna, verður á sama tíma hægt
að fræðast um austfirska torfbæinn en um hann ætlar Auðunn H.
Einarsson að ræða. Gestur Guðmundsson skyggnist inn í evrópska og
íslenska framtíð í Norræna húsinu í dag kl. 13...
JÓLATÓNARNIR undurblíðir eru þegar farnir að streyma um loftin.
Þorsteinn Gauti Sigurðsson leikur einleik á píanó að Logalandi í dag
kl. 14, Kammersveit Reykjavíkur verður í Áskirkju kl. 17, Lúðra-
sveitin Svanur verður í Langholtskirkju sunnudag kl. 17 og um kvöldið
vera tónleikar með verkum danska tónskáldsins Vagns Holmbye í
Norræna húsinu. Stuðmenn halda uppi fjörinu í Hollywood í kvöld en
annað kvöld verður sveiflan í sínum stað í Heita pottinum í Duus-
húsi...
JÓLASTEMMNINGIN hefur ekki merkjanleg áhrif á íþróttafólk því
það verður allt á fullri ferð um helgina í handbolta, körfu, blaki, keilu,
fimleikum og badminton, svo ekki sé minnst á okkur hina sem fylgj-
umst með okkar manni í Stuttgart á skjánum í dag...