Þjóðviljinn - 02.12.1989, Side 7
löng og erfið. Það hjálpaði hon-
um þó mikið að Steinvör sat hjá
honum langdvölum og hjúkraði
sem best hún gat og stytti honum
stundir. Þar kom best í ljós
hversu samrýnd þau voru og sam-
stillt og í raun og veru háð hvort
öðru. Þau höfðu gengið æviveg-
inn saman og höfðu stutt hvort
annað í gegnum súrt og sætt.
Steinvör hafði fylgt bónda sínum
eftir nánast til allra verka og ég er
raunar ekki í vafa um að ef henn-
ar hefði ekki notið við á spítalan-
um, þá hefði frændi minn ekki
komið lifandi þaðan út. En
seiglan var mikil og þótt þrekið
hefði næstum þorrrið var haldið í
vonina og smám saman kom bat-
inn. Ég leit nokkrum sinnum við
hjá Ásgrími þegar hann lá á spít-
alanum. Oft var þar margt um
manninn. Eitt skiptið er mér
minnisstæðara en önnur. Nokkrir
voru í heimsókn og var Ásgrímur
hinn hressasti. Allt í einu segir
hann við Steinvöru: „Er ekki
eitthvað til að bjóða gestunum.
Er ekki hægt að sýna gestrisni?"
Þetta var í raun dæmigert fyrir
hann, alltaf boðinn og búinn að
taka vel á móti öllum enda höfð-
ingi heim að sækja og þau hjónin
bæði. Jafnvel á sjúkrahúsi var
hugsunin um gestrisni efst.
Þegar heilsan skánaði kom
hann stundum í heimsókn og var
nú ýmislegt skrafað. Ég átti
harmóníku sem ég hafði keypt
fyrir um það bil 10 árum, náði
svona rétt lagi á, en hafði endan-
lega lokað gripinn í tösku og sett
niður í kjallara. Hófst nú smá
þref hvort ég ætti að ná í hljóð-
færið og reyna, sem varð úr. Ás-
grímur hafði mjög gaman af
harmóníkumúsík og hvatti mig
mjög til að æfa. Ég gaf lítið út á
það en mér er minnisstætt að þeg-
ar við kvöddumst sagði hann:
„Heldurðu nú að þú æfir ekki
svolítið, það er miklu betra en að
hafa hljóðfærið niðri í kjallara!"
Þetta sat í mér og varð raunar til
að ég fór í tíma.
Ásgrímur kom nú oft við er
hann var hér syðra í eftirliti hjá
læknum. Þá þurfti að sjálfsögðu
að taka lagið enda taldi frændi sig
eiga nokkurn þátt í framförum
þótt litlar væru. Þótt Ásgrímur
hefði hætt vinnu hóf hann að
byggja sér sumarhús þegar
heilsan leyfði. Er það hið snotr-
asta hús sem hann reisti í ásnum
fyrir neðan beitarhúsin í landi
Lindarhóls. Jörðina Lindarhól
seldi hann í fyrra en hélt eftir smá
skika fyrir sumarhúsið. Það er,
eins og allt annað sem Ásgrímur
smíðaði, vandað og traust, og
ekki kastað til höndunum til
neins. í Lindarbæ, en svo heitir
húsið er ákaflega gestkvæmt.
Síðla sumars kom ég þar og var
slegið upp veislu. Þá höfðu hátt á
annað hundrað manns skrifað
þar í gestabók bara sumarið 1989.
Allir þökkuðu móttökurnar og
hver einasti talaði um gestrisni.
En nú er komið að leiðarlok-
um. Við sem eftir stöndum
geymum minningar um góðan
samferðamann. Steinvöru votta
ég samúð og bið guð að styrkja
hana í þeim erfiðleikum sem hún
má nú ganga í gegnum.
Sigurður Guðmundsson
ERLENT
A ustur-Þýskaland
Valdaeinokun úr
stjórnarskrá
Volkskammer, austurþýska
þingið, samþykkti í gær með
miklum meirihluta atkvæða að
fella úr stjórnarskrá ákvæði um
forustuhlutverk kommúnista-
flokksins í stjórnmálum, eins og
þing Tékkóslóvakíu gerði fyrir
þremur dögum. Einnig samþyk-
kti þingið að biðja Tékkóslóvaka
afsökunar á hlutdeild Austur-
Þjóðverja í innrás Varsjárbanda-
lagsins 1968, eins og Pólverjar og
Ungverjar hafa þegar gert.
Samþykkt var að fella úr 1.
grein stjórnarskrárinnar setningu
er svo hljóðar, að þýska alþýðu-
lýðveldinu sé stjórnað af verka-
lýðsstéttinni og marxlenínskum
fíokki hennar. Eftir breytinguna
hljóðar greinin svo: Þýska alþýð-
ulýðveldið er sósíalískt ríki
verkamanna og bænda. Það er
pólitísk stofnun vinnandi fólks í
borg og sveit. Reuter/-dþ.
Uppreisn
gegn Aquino
Nokkrar einingar í Filippseyja-
her hófu uppreisn í fyrrakvöld
með það fyrir augum að steypa af
stóli Corazon Aquino, forseta
landsins. Varð uppreisnar-
mönnum nokkuð ágengt fram að
hádegi í gær, en fóru eftir það
halloka og mun nú ósigur þeim
vís. Þetta er sjötta uppreisnin,
sem hermenn miður hollir Aqu-
ino gera gegn henni. Orrustuflug-
vélar frá flugstöð Bandaríkjanna
skammt frá Manila veita stjórn-
arhernum aðstoð. 24 menn eru
sagðir fallnir eftir bardagana.
Singh myndar
Indlandsstjórn
Vishwanath Pratap Singh var í
gær kjörinn leiðtogi Þjóðfylking-
arinnar, flokkabandalags sem var
höfuðandstæðingur Þjóðþings-
flokksins í kosningunum í Ind-
landi nýverið. Skömmu síðar
kvaddi Ramaswamy Venkatar-
aman forseti Singh á sinn fund og
fól honum að mynda nýja ríkis-
stjórn. Þjóðfylkingin hefur þó
ekki nema 144 þingsæti af 545 alls
í neðri deild þingsins og verður
því upp á aðra flokka komin um
stuðning, einkum Bharatiya Jan-
ata, flokk heittrúarhindúa, sem
fékk 88 þingsæti í kosmngunum.
Armenaþing
samþykkir sam-
einingu við
Fjalla-Karabakh
Æðstaráð Armeníu samþykkti
í gær að Armenía og héraðið
Fjalla-Karabakh skyldu samein-
uð. Gengur armenska æðstaráðið
þar með í berhögg við það sov-
éska, sem nýverið samþykkti að
héraðið yrði aftur lagt undir
stjórn Sovét-Aserbædsjans.
Fjalla-Karabakh hefur undanfar-
ið verið undir beinni stjórn sov-
ésku miðstjórnarinnar, en hefur
annars heyrt undir Aserbædsjan
frá því snemma á 3. áratug, enda
þótt flestir íbúa þar séu armensk-
ir.
Danir sleppa
við kosningar
Danska ríkisstjórnin undir for-
ustu Pouls Schlúter, leiðtoga
íhaldsflokksins, hefur náð
samkomulagi við Framfaraflokk-
inn um afgreiðslu fjárlaga gegn-
um þingið. Hefði ekki þing-
meirihluti fengist við fjárlög,
hefði orðið að kjósa til þings þar-
lendis í þriðja sinn á 30 mánuð-
um.
Miljón Úganda-
manna smitaðir
af eyðni
Nærri miljón manns í Úganda
er smituð af eyðni og af þeim eru
a.m.k. um 10.000 veikir, að sögn
ríkisútvarpsins þar í landi. Ef hér
er rétt með farið eru sex af hundr-
aði landsmanna smitaðir af
eyðni. Alþjóðlega heilbrigðis-
málastofnunin (WHO) helgaði
gærdaginn baráttunni gegn sjúk-
dómi þessum. Að sögn tals-
manna WHO eru nú yfir 198.000
manns veikir af eyðni í 152
löndum, sem stofnunin hefur
skýrslur frá, eða um 11.000 fleiri
en fyrir mánuði. WHO telur þó
líklegt að raunveruleg tala
eyðnisjúklinga sé komin upp í um
600.000 þar eð mörg þriðja-
heimsríki gefi ófullnægjandi
skýrslur um útbreiðslu sjúkdóms-
ins.
Heilagur Georg og Mikjáll erkiengill
Miklar vœntingar fyrir Möltufund
Gorbatsjov í heimsókn hjá Thatcher - sækist eftir vestrænum við-
skiptum og tækniaðstoð.
Athygli heimsins er vissulega
stöougt bundin við þá tvo á-
hrifamestu af mennskum íbúum
hans, æðstu menn Bandaríkj-
anna og Sovétríkjanna. En nú,
þegar þeir hittast í fyrsta sinn
eftir að báðir komust til æðstu
valda hvor í sínu landi, er athygl-
in sem að þeim beinist og vonirn-
ar er við þá eru tengdar slíkar, að
engu er líkara en að þarna væru
að ráða ráðum sínum um framtíð
heimsins þeir heilagur Georg og
Mikjáll erkiengill, helgisagna-
kempur þær sem þeir George
Bush og Míkhafl Gorbatsjov og
óteljandi menn aðrir heita eftir,
þegar öllu er á botninn hvolft.
Einhverjum þykir efalaust
táknrænt að Malta skuli vera val-
in sem fundarstaður. Talsvert
hetju- og heilagleikaorð hefur
farið af þeirri eyju að fornu og
nýju. Hún var Iengi virki Jóhann-
esarriddara, sem vörðu kristnina
fyrir íslam, og í heimsstyrjöldinni
síðari varnarvirki gegn öxulríkj-
um nasisma og fasisma.
Endurmat
samskipta
Að vísu er gert ráð fyrir að
fundur þeirra forsetanna á her-
skipum við þessu sögufrægu eyju
verði fyrst og fremst óformlegt
rabb. Sagt er að þeir muni lengst
af ræðast við tveir einir, að eng-
um öðrum viðstöddum nema
túlkum. En það liggur í loftinu að
á fundinum muni forsetarnir
leitast við að samræma sjónarmið
sín um afvopnun, gang mála í
Austur-Evrópu og fleira og
fleira. Þar verði lagður grund-
völlui að víðtækri samningsgerð.
Látið hefur verið að því liggja að
fundurinn muni marka tímamót í
samskiptum stórveldanna
tveggja. Þau muni á fundinum
hefja gagngert endurmat sam-
skipta sinna í ljósi atburða síð-
ustu ára og einkum mánaða, at-
burða sem eru að leysa kalda-
stríðsheimsmyndina upp. í ljósi
þeirrar þróunar er andhverfan
austur-vestur þegar orðin tíma-
skekkja.
Mennirnir tveir sem mætast við
Möltu í dag eru ólíkir um margt.
George Bush er af bandarísku
austurríkjahástéttinni, fæddur
með silfurskeið í munninum eins
og það er orðað og kom sér inn í
stjórnmál á grundvelli þess og
texanskra olíumiljarða. Viðmæl-
andi hans í dag og á morgun er af
smábændaættum í Stavropol-
umdæmi, miðhluta Norður-
Kákasíu, og slapp á fyrstu mán-
uðum ævinnar lífs af úr hung-
ursneyð samyrkjubyltingarár-
anna, sem varð að bana fjölda
ungabarna á þeim slóðum, jafn-
aldra hans. Báðireru leiðtogarnir
gáfumenn en fleira stuðlaði að
frama beggja. Bush naut í því ætt-
ernis og auðs, Gorbatsjov holl-
ustu við ríkisflokk.
Bush þykir heldur daufgerður
sem persónuleiki og ekki laus við
klaufaskap. En hann hefur tamið
sér blátt áfram framkomu Tex-
ana, sem stingur nokkuð í stúf við
hefðina frá frændum hans í
austurstrandarríkjum. Frá því á
s.l. áratug, er hann var ambassa-
dor Bandaríkjanna hjá Samein-
uðu þjóðunum, hefur hann tamið
sér að kynnast persónulega er-
lendum íeiðtogum í stjórnmál-
um. Bush er gætinn og hefur sætt
ámæli fyrir hik og hægagang
PRÓFÍLL
gagnvart atburðum í Austur-
Evrópu og Sovétríkjunum. En
margt bendir til að á því sé að
verða gagnger breyting. Nýtil-
komnir ráðamenn í Póllandi og
Ungverjalandi, sem Bandaríkin
telja sér skyldugt að hjálpa, hafa
sagt við Bush: Allt okkar ráð er
undir því komið að Gorba mis-
heppnist ekki. Og nú benda frétt-
ir til að Bandaríkin hyggist á
næstu árum takast á hendur stór-
fellda afvopnun, sem slaga mundi
hátt upp í afvopnun þeirra eftir
heimsstyrjöldina síðari. Það
bendir til þess að Bandaríkin séu í
þann veginn að gefa heimsskipan
kalda stríðsins upp á bátinn.
Gorbatsjov er bráðsnjall, hug-
rakkur atorkumaður sem frá því
að hann kom til æðstu valda fyrir
aðeins fjórum árum hefur breytt
Sovétríkjunum svo mjög, að
flestum þykir undrum sæta. Völd
hafa þar færst að nokkru frá ríkis-
flokki til ríkisstofnana, frjálsar
þingkosningar hafa verið haldn-
ar, þingræði og tjáningarfrelsi
hefur verið komið á og Eystra-
saltslýðveldin hafa fengið sjálf-
stjórn í efnahagsmálum. í
efnahags- og þjóðernismálum
Sovétríkjanna hefur gengið verr,
lífskjör hafa að margra áliti
versnað frá því á Brezhnevstím-
anum og þjóðernishreyfingar og
hatur milli þjóðerna ógna einingu
ríkisins. í þessu felst meiriháttar
ógnun við nýskipan stjórnar Gor-
batsjovs. Meðal þess, sem hann
hefur á prjónunum til að bæta úr
efnahagsástandinu eru aukin við-
skipti við Vesturlönd og öflun
tækniaðstoðar þaðan. Honum er
því kappsmál að ryðja úr vegi
öllum hindrunum forns fjand-
skapar og tortryggni á milli Sov-
étríkjanna og Vesturlanda.
Sögulegar sættir
Moskvu og
Rómar
Sem persónuleiki er Gorbat-
sjov andstæða viðmælanda síns,
geislandi og hrífandi og fjölda-
sjarmör slíkur að með fádæmum
er miðað við það sem gerist um
stjórnmálamenn. Sagt er að hann
verki á fjöldann ekki ósvipað
vinsælustu poppstjörnum. Hrifn-
ingin á honum er allmjög farin að
dvína heimafyrir, vegna illa
heppnaðrar perestrojku, en ítalir
urðu við heimsókn hans til þeirra
fyrir Möltufund gripnir Gorba-
æði, ekki síður en Vestur-
Þjóðverjar og Bandaríkjamenn
áður. Þriggja daga dvöl hans á
Ítalíu verður kannski sögulegri
en Möltufundur sem slíkur. f
Róm gekk Gorbatsjov á fund
páfa, fyrstur leiðtoga Sovétríkj-
anna, og bauð Jóhannesi Páli
öðrum í opinbera heimsókn til
Sovétríkjanna. Allt bendir til
þess að sögulegar sættir milli ka-
þólsku kirkjunnar og Sovétríkj-
anna, er verið hafa hatrammir
andstæðingar allt frá byltingunni
í Petrograd, séu að komast í
kring. Gorbatsjov er enn sem fyrr
í hópi þeirra stjórnmálamanna,
sem eiga frumkvæði að atburðum
í sögunni. Bush er öllu fremur
einn þeirra, sem bíða atburðanna
og bregðast við þeim er ekki
verður hjá því komist. -dþ.
Kór sovéska hersins heilsar upp á Bush í Hvíta húsinu - hindrunum
forns fjandskapar rutt úr vegi.
Laugardagur 2. desember 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7