Þjóðviljinn - 14.12.1989, Síða 1
Fimmtudagur 14. desember 1989 215. tölublað 54. örgangur
Framkvœmdastjórn Verkamannasambandsins felldi tillögu varaformanns
Dagsbrúnar vegna tímamarka hennar. HalldórBjörnsson: Dagsbrúnarmenn samþykkja
aldrei samning án kaupmáttaraukningar
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans er trúnaðarráð Dags-
brúnar óánægt með viðbrögð
framkvæmdastjórnar VMSI við
tillögu sem varaformaður Dags-
brúnar, Halldór Björnsson, flutti
á fundi framkvæmdastjórnarinn-
ar um kröfurnar í komandi kjara-
samningum. Er útlit fyrir að
Dagsbrún fari sínar eigin leiðir í
samningaviðræðum og segja
Dagsbrúnarmenn raunar útilok-
að að samningar verði samþykkt-
ir af félagsmönnum nema þeir
leiði ótvírætt til kaupmáttar-
aukningar.
Tillagan var byggð á tillögu
trúnaðarráðs Dagsbrúnar frá 9.
þm. Hún gerði ráð fyrir hækkun
kaupmáttar, ma. með því að
lækka framfærslu- og fjármagns-
kostnað, hækka skattleysismörk
úr 52 þúsundum í 57 þúsund og að
lægra virðisaukaskattsþrep verði
á nauðsynjavörum. En það sem
fór helst fyrir brjóstið á fram-
kvæmdastjóm VMSÍ var að til-
lagan gerði einnig ráð fyrir að
gripið yrði til harðra aðgerða
verði þessum kröfum ekki
fullnægt fyrir 1. mars.
„Framkvæmdastjórn Verka-
mannasambandsins þótti þessi
tillaga mín ekki góð latína og
felldi hana ásamt því að endur-
Jólabœkurnar
Verb'ðin
fer vel
af stað
Góð sala í íslenskum
skáldsögum.
Heimsbókmenntirnar
ekki síður söluvara en
reyfararnir
Jólabókasalan fór fyrr af stað
núna en í fyrra og má segja að
salan hafi verið jöfn og þétt alveg
frá því um miðjan nóvember. Það
skiptir talsverðu máli að bækur
hafa lítið hækkað í krónum talið
þannig að í raun eru þær ódýrari
nú en oft áður, sagði Þórunn ís-
feld Þorsteinsdóttir, verslunar-
stjóri í Bókabúð Máls og menn-
ingar í Síðumúlanum. Hún sagði
að nýjar íslenskar skáldsögur
seldust áberandi vel um þessar
mundir og tilnefning til íslensku
bókmenntaverðlaunanna hefði
þau áhrif að meira væri spurt um
Sjónvarpið
Langt
í land
Það hefur nánast ekkert verið
gert vegna peningaleysis síðan út-
varpið flutti í húsið. En okkur líð-
ur ágætlega hér, enda höfum við
lagað okkur að aðstæðum í 24
ár,“ sagði Pétur Guðfinnsson
framkvæmdastjóri Sjónvarpsins
þegar Þjóðviljinn spurði hann
hvort til stæði að flytja í Útvarps-
húsið við Efstaleiti á næstunni.
Sá hluti hússins sem Sjónvarp-
ið hefur til umráða er enn aðeins
fokheldur þannig að langur tími
getur liðið áður en hægt verður
að flytja inn. Sem kunnugt er
hafa margir aðilar innan Sjón-
varpsins lýst andstöðu sinni við
flutníngjnn, enda var húsið ekki
byggt að fullu samkvæmt upphaf-
legrihönnun. -þóm
\ ■
T' '
Ragnar Arnalds og Sigurður A. Magnússon voru að skoða úrval jólabóka í ár þegar Ijósmyndara bar að
garði í bókabúð Máls og menningar í gær. Mynd-Jim Smart
þær bækur. Af erlendum bókum
sagði Þórunn að það væru ekki
síður góð bókmenntaverk eftir
þekkta höfunda sem seldust vel,
en reyfararnir, þótt sala þeirra
væri alltaf ágæt. I sama streng tók
verslunarstjóri bókaverslunar
Sigfúsar Eymundssonar, Fanný
Jónmundsdóttir.
Gunnlaugur Jónasson eigandi
bókaverslunar Jónasar Tómas-
sonar á ísafirði sagði að salan
hefði gengið ágætlega og vegna
góðrar færðar hefði talsverður
fjöldi fólks úr nágrannabyggðar-
lögunum komið í verslunarl-
eiðangur til ísafjarðar. - Ég hef
ekki orðið var við neinar sérstak-
ar metsölubækur ennþá, salan
hefur verið nokkuð jöfn. Fólk
sýnir alltaf ævi- og endurminn-
ingabókum talsverðan áhuga ef
þær kitla forvitnina á einhvem
hátt, auk þess sem sögur af sjó-
mönnum og aflaklóm seljast
alltaf vel héma. Mér finnst fólk
sækja meira í þýdd bók-
menntaverk heldur en spennu-
sögumar þótt þær standi fyliilega
fýrir sínu, sagði Gunnlaugur.
Jón Lámsson eigandi bóka-
verslunarinnar Bókvals á Akur-
eyri sagðist vera mjög bjartsýnn á
góða sölu bóka fyrir jólin og taldi
hana vera svipaða núna og í fyrra.
Hann sagði söluna jafna og ekki
hægt að benda á neinn einn titil
öðmm fremur sem seldist vel.
»Þ
Keflavíkurvöllur
Maimfæð hamlar löggæslu
Stöðugildum verið fœkkað um 13. Gœsla Flugstöðvarinnar í lágmarki.
Herlögregla gengur í störf íslenku lögreglunnar
Lögreglan á Keflavíkurflugvelli
á í erfiðleikum með að gæta
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar
vegna mannfæðar, en stöðugild-
um við lögregluna hefur verið
fækkað um 13. Nú er bara einn
lögregluþjónn á vakt á nóttinni en
þeir voru áður þrír. Á dagvakt er
gert ráð fyrir þremur lögreglu-
þjónum en oft eru ekki nema tveir
á vakt vegna veikinda eða fría.
Áður voru fjórir á dagvakt að
staðaldri.
Nýkjörin stjóm Lögreglufé-
lags Suðumesja hefur mótmælt
ákvörðun stjómvalda að fækka í
liði lögreglunnar á Keflavíkur-
flugvelli. Telur stjórnin að þessi
fækkun hafi haft alvarlegar af-
leiðingar í för með sér, samanber
þá atburði sem átt hafa sér stað
við Flugstöðina. Þar er m.a. átt
við innbrotið í SAS - vélina, þeg-
ar rænt var áfengi um borð, auk
annarra alvarlegra atburða.
Þá bendir stjómin á að herlög-
reglumenn gangi í auknum mæli í
störf íslenskra lögreglumanna,
einsog t.d. í gæslu við hliðin.
Segir í ályktuninni að hér sé um
að ræða afturför um tugi ára, auk
þess sem það hafi í för með sér
kjaraskerðingu. Er bent á að
herlögreglumennimar eru með
öllu ómenntaðir á sviði íslensks
réttarfars.
taka ályktun frá 15. þingi VMSÍ,“
sagði Halldór Björnsson. Sér
þætti þetta einkennilegt vegna
þess að ef gera ætti „núll samn-
ing“ sem fæli engar kaupkröfur í
sér, yrði slíkur samningur að hafa
eitthvað annað í sér til að hífa upp
kaupmáttinn. „Við vomm í
sjálfu sér ekki ósammála tillög-
unni sem slíkri en það hefur ævin-
lega verið til bölvunar að setja
dagsetningar inní kröfugerðir og
menn festast gjarnan við þær. A
þeirri forsendu greiddi ég at-
kvæði gegn tillögunni en aðrir
þættir hennar koma beint eða
óbeint fram í ályktun okkar,“
sagði Björn Snæbjörnsson í fram-
kvæmdastjóm VMSÍ, aðspurður
um tillögu Bjöms. Vonandi yrði
búið að semja fyrir 1. mars og
reyndar hefðu VMSÍ-félagar
ekki efni á að draga málin svo
lengi. Hann vonaði að menn
stæðu saman í þessari baráttu og
hann hefði reyndar alla trú á að
svo yrði.
Halldór Bjömsson var reyndar
sammála því að ekki væri hægt
„að bíða til eilífðamóns með að
semja,“ einsog hann orðaði það
og sagði það vera ástæðuna fyrir
fyrrgreindri dagsetningu. „En
aðalatriði tillögunnar er vita-
skuld að rífa upp kaupmáttinn og
að farið verði eftir lögum varð-
andi persónuafslátt, en ekki ein-
hverjum geðþóttaákvörðunum
fj ármálaráðherra, “ sagði Halldór
ennfremur.
-þóm
10
dagartíljóla
Stúfurhét
sá þriðji
Ragnar Guðmundsson, 6 ára,
teiknaði þessa mynd af Stúfi.
Einsog sjá má er stubburinn sá
ansi hálslangur enda verður
hann að teygja vel á honum til
þess að ná upp í gluggana.