Þjóðviljinn - 15.12.1989, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 15.12.1989, Blaðsíða 19
Orðið eignar skattur4 ‘ er sjaldgæft í orðaforða þeirra sem eiga spariskírteini Hefur þú leitt hugann að því hvað þú þarft að greiða í eignarskatt þegar þú ávaxtar sparifé þitt? Einn af mörgum kostum spari' skírteina ríkissjóðs er að þau eru tekju- og eignarskattsfrjáls á sama hátt og spari- fé í innlánsstofnunum. Samkvæmt lögum um tekju- og eign- arskatt kemur ekki til skattlagningar á vaxta- og verðbótatekjur af skírteinum hjá fólki utan atvinnurekstrar. Séu skírteinin ekki tengd atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi manna, er heimilt að draga þau aftur frá eignum að því marki sem þau eru umfram skuldir. Þannig geta spariskírteinin þín notið ákveðinna skattfríðinda. Næst þegar þú ávaxtar sparifé þitt skaltu hafa í huga hagstæð ákvæði tekju- og eignarskattslaga um spariskírteini ríkis- sjóðs. Það er nefnilega tvennt ólíkt, vextir fyrir skatt og vextir eftir skatt. RIKISSJOÐUR ISLANDS GOTT FÓLK/SlA

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.