Þjóðviljinn - 23.12.1989, Side 1
Jólinkoma. Nústyttistóðumsátímisemertiljólaþósúlitlaámyndinnilátiséfáttumfinnast. Þjóðviljinn sendir öllum lesendum sínum nær og fjær bestu
jólakveðjur. Mynd: Jim Smart. Jólitl
Þungur róður hjá mörgum
Fleiri leita aðstoðar hjá Félagsmálastofnun Reykjavíkur um þessijól.
Ingibjörg Broddadóttir: Jafnvel fullfrískt fólk í vinnu á í erfiðleikum
Skjólstæðingum félagsmála-
stofnana hefur fjölgað mikið á
þessu ári og er jóiamánuðurinn
ekki hvað síst erfiður hjá mörg-
um fjölskyldum. Það hefur verið
mikið að gera hjá Féiagsmála-
stofnun Reykjavíkurborgar að
undanförnu og greinilega fleiri
sem leita aðstoðar fyrir þessi jól
samanborið við jólin í fyrra.
- Ég gæti trúað því að fjölgun
skjólstæðinga verði um 20% fyrir
þessi jól og það er svipuð aukning
og á árinu öllu miðað við síðasta
ár, sagði Gunnar Svandal hjá Fé-
lagsmálastofnun Reykjavíkur.
Gunnar taldi versnandi atvinnu-
ástand skýra stóran hluta af þess-
ari fjölgun, fólk sem misst hefði
vinnuna eftir langan starfsaldur
gæti lent í verulegum erfiðleikum
og fólk sem koma væri út af ýms-
um stofnunum, t.d. fangelsum,
hefði til þessa getað gengið að
einhverri atvinnu, en slíkt væri
ekki hægt nú.
Auk þess leitar til Félagsmála-
stofnun-ar fólk í fullri vinnu og
sagði Gunnar áberandi að erfið-
leikar þeirra stöfuðu fyrst og
fremst af háum húsnæðiskostn-
aði. Undir þetta tók Ingibjörg
Broddadóttir hjá Félagsmála-
stofnun Kópavogs og sagði að
það væri nokkuð stór hópur fjöl-
skyldna með einni fyrirvinnu sem
ekki tækist að láta enda ná saman
þrátt fyrir fulla atvinnu og benti á
að lágmarkslaun í landinu væru
álíka há og húsaleigan ein.
- Við finnum vel hve róðurinn
er miklu þyngri núna og hefur
raunar verið það allt þetta ár.
Atvinnástand hefur versnað og
það er fljótt að segja til sín hér hjá
okkur, sagði Ingibjörg.
Það er alltaf einhver hópur
fólks sem ekki á í nein hús að
venda og í Reykjavík er rekið
gistiskýli fyrir þá sem þannig er
ástatt um. Gunnar sagði að vegna
kuldanna undanfarið hefði verið
yfirfullt þar undanfarið og bjóst
hann við því að svo mundi einnig
vera yfir jólin.
- Það eru þó ekki einungis
fjárhagserfiðleikar margra sem
vert er að hafa áhyggjur af heldur
ekki síður ýmsir einstæðingar
sem finna sárt fyrir einverunni á
jólunum þegar flestir njóta
ánægjulegra samvista við fjöl-
skyldu og vini, sagði Gunnar.
-iþ
Rúmenía
Ceausescu fallinn
Sá harðsnúnasti allra austur-
evópskra valdhafa var hrak-
inn frá völdum af meiri skynd-
ingu en nokkur hinna. Á sjötta
degi frá því að það sýndi sig að
austurevrópska lýðræðishrey-
fingin hafði náð til Rúmeníu
hrundi veldi Nicolae Ceausescus
eins og spilaborg er her hans gekk
í lið með mótmælafólki í Búka-
rest. Sjálfur flýði hamingjusvipt-
ur einræðisherrann í ofboði úr
höfuðborginni en var handtekinn
síðdegis í gær.
Mikil ólga var þá enn í Rúmen-
íu og börðust öryggislögreglu-
sveitir, trúar Ceausescu, enn við
herinn í Sibiu, borg í sunnan-
verðri Transsylvaníu, og í Búka-
rest hófst undir kvöld skothríð
nálægt miðnefndarhúsi. Úrslitin
voru þá ekki enn fullráðin, þar eð
öryggislögreglan, Securitate, er
þrautþjálfuð og þrælvopnuð og
að lfkindum vfgaíegri liðsafli en
herinn. Talsvert getur því verið
undir því komið hve trúnaðurinn
við einræðisherrann, sem stjórn-
aði fyrst og fremst með tilstyrk
öryggislögreglunnar, er al-
mennur innan hennar. En eftir
öllum fréttum að dæma er allur
þorri landsmanna andsnúinn Ce-
ausescu og líkurnar á að hann eigi
sér viðreisnar von því litlar sem
engar.
Bráðabirgðastjórn hefur tekið
við völdum í Búkarest og hefur
hún fyrirskipað að Ceausescu
skuli færður til höfuðborgarinnar
og dreginn þar fyrir lög og dóm.
Er þá svo komið að á árinu sem
nú er að líða hefur verið bundinn
endir á alræði kommúnistaflokka
í öllum Austur-Evrópuríkjum
nema Albaníu, auk þess sem það
stendur enn að nokkru í Júgó-
slavíu. -dþ.
1
dagur til jóla
tólfti m
Ketkrokur
Þóra Þorkelsdóttir 6 ára teiknaði
þennan fína Ketkrók á leið til
byggða.