Þjóðviljinn - 03.01.1990, Blaðsíða 6
og hver veit
nema maður sem fullyrðir að
sér leiðist Ijóð
geti þrátt fyrir það
nœrt okkur
á Ijóði lífs síns
sœrt okkur
við Ijóð alls lífs
dag og dag.
Góðir landsmenn. Ég hef eins
og stundum áður látið mér tíðrætt
um ræktun lands og lýðs. Skilji þó
enginn orð mín svo að ég geri lítið
úr því sem á þeim sviðum hefur
verið unnið hingað til. t>ar hefur
oft verið lyft grettistökum. En á
hverjum tíma ber okkur skylda til
að byggja á þeirri þekkingu sem
við vitum besta og sannasta.
Okkur ber ávallt að vera reiðubú-
in að endurskoða starfsaðferðir
okkar, jafnt í landrækt sem
mannrækt. Við lifum tíma svo
stórstígra breytinga að margir
jafna til byltingar. Án þess að
gera okkur sek um óleyfilega
bjartsýni getum við meira að
segja haldið því fram að þjóðir
heimsins muni á nýjum áratug
snúa sér að ræktun og uppbygg-
ingu með stórfenglegum hætti.
Stórbætt sambúð ríkja og ríkja-
blakka leiðir til þess að stigin eru
merkileg skref í þá átt að skera
niður vígbúnað, fækka eyðingar-
vopnum. Með því móti er dregið
að rniklum mun úr líkum á því að
styrjaldir brjótist út manna í
milli. Um leið verða til nýir
möguleikar á því að semja sátt í
stríði mannkynsins gegn móður
náttúru, sem alltof lengi hefur
staðið og haft hörmulegar afleið-
ingar. Heimurinn gerir sig nú lík-
legan til að hrista sem víðast af
sér fjötra, til að höggva
eldflaugaskóg og snúa orku sinni
og hugviti að þvi að vernda nátt-
úrlegt umhveifi mannsins, - snúa
við blaði, hreinsa mengunar-
kaunin, rækta upp, láta sár foldar
gróa. Pað er trú mín og von og
ósk, að á þessu ári og þeim næstu
munum við sjá vakningu um allan
heim, samstillt átak til að bæta
það sem við höfum óvart eða vilj-
andi rifíð niður eða eyðilagt, átak
til að byggja upp jörðina sem við
göngum á og manninn sjálfan.
Fari svo, kann að blasa við okkur
ný og mennskari framtíð á þess-
um síðasta áratug aldarinnar en
okkur hefur dreymt um að und-
anfömu. í raunsærri bjartsýni
höfum við þá fulla ástæðu til að
segja af sannfæringarkrafti:
Gleðilegt nýár, gifturíka fram-
tfð.
Guð blessi land vort og þjóð.
ERLENDAR FRETTIR
A ustur-Pýskaland
Fylgi kommúnistaflokks vaxandi
Aðrirflokkar ogsamtök njóta takmarkaðsfylgis. Nærri 60 afhundr-
aði hlynntir Modrow
Samkvæmt niðurstöðum skoð-
anakönnunar, sem austur-
þýska félagsvísindaakademían
gerði fyrir hálfum mánuði, nýtur
kommúnistaflokkurinn þarlendis
fylgis um 34 af hundraði lands-
manna og hefur hækkað í fylgi
um þrjú prösentustig frá könnun,
sem akademían gerði í nóvember
s.l. Er flokkurinn samkvæmt
niðurstöðunum langt fyrir ofan
alla aðra stjórnmálaflokka og
samtök í fylgi.
Annar í röðinni er flokkur
kristilegra demókrata, en tæp-
lega átta af hundraði aðspurðra
lýstu yfir fylgi við hann. Ekkert
andófssamtakanna, en þeirra
helst er Nýr vettvangur, er með
fylgi yfir sex af hundraði, sam-
kvæmt niðurstöðunum. Um 28 af
hundraði kváðust ekki hafa gert
upp hug sinn, en það svar gáfu 42
af hundraði í nóv. Niðurstöðum-
ar benda til mikilla og vaxandi
vinsælda Hans Modrow, forsætis-
ráðherra Austur-Þýskalands. 59
af hundraði aðspurðra lýstu fyrir
ánægju sinni með hann, á móti 42
af hundraði í könnuninni í nóv.
Niðurstöðurnar benda og til að
um tveir af hverjum þremur
Austur-Pjóðverjum séu andvígir
því að Þýskaland verði sameinað.
Samkvæmt niðurstöðum skoð-
anakannana, sem vesturþýskir
aðilar hafa gert frá því í nóvem-
ber, er fylgi austurþýska komm-
únistaflokksins allmiklu minna
en niðurstöður könnunar félags-
vísindaakademíunnar austur-
þýsku benda til. Samkvæmt vest-
urþýsku niðurstöðunum hefur
flokkurinn eigi að síður fylgi um
Modrow (hér fremst t.h. í kröfugöngu í Dresden 6. nóv. s.l.)
drjúgan meirihluta á bakviö sig.
hefur
fjórðungs landsmanna eða miklu
meira en nokkur annar flokkur
Búlgaría
Mótmæli gegn eftirgjöf
við múslíma
Kristnir Búlgarar krefjast þess að tilskipanir Zhivkovs um réttinda-
sviptingu múslíma gildi áfram
gy| ikil ólga er nú upp komin í
eða samtök. Uwe Burmester hjá
félagsvísindaakademíunni, sem
stóð fyrir umræddri könnun, tel-
ur eina af skýringunum á niður-
stöðunum vera þá, að stjórnar-
andstöðusamtök séu mörg og lítt
samstæð. Ákveðið hefur verið að
frjálsar kosningar fari fram í
landinu í maí n.k.
Reuter/-dþ.
Búlgaríu vegna þeirrar á-
kvörðunar stjórnvalda aS veita á
ný þarlendum múslímum, sem
flestir líta á sig sem Tyrki, rétt til
að bera íslömsk nöfn og iðka trú
sína. Á síðustu stjórnarárum To-
dors Zhivkov var allmjög þrengt
að múslímum þarlendis; voru
þeir sviptir réttindum sem trúar-
hópur og neyddir til að taka upp
búlgörsk nöfn.
Hin nýja forusta Búlgara,
undir stjórn Petars Mladenov,
Vinningstölur laugardaginn
30. des. ’89
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 3 896.385
O ^íSSíWr éCL m 4 df 5 5 93.328
3. 4af 5 169 4.763
4. 3af5 5.507 341
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
5.838.992
UPPLYSINGAR: SIMSVARI
681511 - LUKKULÍNA 991002
hafði áhyggjur af þeim álits-
hnekki er Búlgaría varð fyrir út af
þessu og úrskurðaði í s.l. viku að
múslímar fengju fyrri réttindi sín
aftur. En það hefur vakið veru-
lega reiði meðal albúlgarskra
landsmanna og hafa mótmælin út
af úrskurðinum orðið mest í
Kurdzhali, borg í suðurhluta
landsins, þar sem inargt múslíma
býr. Á mánudag mótmæltu um
10,000 Búlgarar þar í borg téðri
ráðstöfun stjómar Mladenovs og
í gær varð lögregla með kylfur að
ganga á milli búlgarskra mótmæl-
enda, sem kröfðust þess að ráð-
stafanir Zhivkovs viðvíkjandi
múslímum yrðu í gildi áfram, og
íslamskra sem voru á öndverðum
meiði. Spennuna í ástandinu má
marka af því, að ráðamenn í
Kurdzhali ákváðu á laugardag að
hafa að engu áðumefndan úr-
skurð Mladenovsstjómar.
Búlgarskt mótmælafólk í
Kurdzhali hrópaði vígorð frá
sjálfstæðisbaráttu Búlgara gegn
Tyrkjum og fólk streymir utan af
landi til höfuðborgarinnar Sofíu,
þar sem það hyggst mótmæla við
þinghúsið og krefjast þess að til-
skipunin nýja um réttindi til
handa múshmum verði úr gildi
numin. Um hálf önnur miljón
múslíma býr í Búlgaríu og líta
flestir þeirra á sig sem Tyrki, en
um 200,000 telja sig með Búlg-
ömm. Reuter/-dþ.
Havel: Hef ekki á móti
sameiningu
Vaclav Havel, andófsfrömuð-
ur og leikritaskáld sem kjörinn
var forseti Tékkóslóvakíu fyrir
áramótin, sagði í gær að ástæðu-
laust væri fyrir Evrópumenn að
óttast sameinað Þýskaland, að
því tilskildu að það yrði undir
Hollendingar
hjálpfúsir
Af öllum þeim, sem látið hafa
hjálp af hendi rakna til Rúmena
yfir hátíðamar hafa Hollendingar
að líkindum reynst örlátastir. Þar
söfnuðust um 920 miljónir króna
eftir að skorað hafði verið á
landsmenn í sjónvarpi að bregð-
ast við til hjálpar nauðstöddu
fólki í nefndu Austur-
Evrópulandi. Fjárhæðin nemur
rúmlega 60 krónum á hvern Hol-
lending að meðaltali.
Þýskalands
lýðræðisstjórn. Havel lét þetta í
ljós í opinberri heimsókn til
þýsku ríkjanna tveggja, þeirri
fyrstu sem hann fer í. A valdatíð
kommúnista í Tékkóslóvakíu var
föst regla að fyrsta opinbera
heimsókn þarlends forseta væri
til Moskvu. Ekki var við öðru bú-
ist en að Havel brygði af þeim
vana, en hitt vakti verulega at-
hygli að hann skyldi heimsækja
Þýskaland fyrst landa.
5000-10,000
drepnir
Finninn Per Stenback, forseti
Alþjóðasamtaka Rauðakrossfé-
laga, sagðist í gær telja að 5000-
10,000 manns hefðu verið drepn-
ir í rúmensku uppreisninni í s.l.
mánuði. Áður hafði heyrst að um
60,000 þúsund manns hefðu látið
lífið, en ýmislegt bendir til að sú
tala hafi þegar í upphafi byggst á
misskilningi. Stenback sagði enn-
fremur að vel væri að særðum
mönnum búið á rúmenskum
sjúkrahúsum og að ekki væri þörf
á erlendum læknum eða beinni
neyðarhjálp. Hann kvað um 3000
manneskjur, sem særðust í upp-
reisninni, vera á sjúkrahúsum í
Rúmeníu, þar af um 1700 í Búka-
rest.
Blóðugur
nýársdagur
Fimm manneskjur, þrír karlar
og tvær konur, voru á nýársdag
skotin til bana á skemmtistað í
bænum Narsaq í Grænlandi og
tvær konur, sem særðar voru
skotsárum í sama sinn, létust í
gær á sjúkrahúsi. Var þar að
verki ungur námsmaður, sem
sinnaðist við eitthvað af fólkinu á
staðnum, brá sér síðan heim,
sótti riffill og skaut á fólkið með
fyrrgreindum afleiðingum. Einn
maður í viðbót særðist.
6 SÍÐA - PJÓÐVILJINN
Blindrabókasafn
íslands
Bókavörö vantar í heilt starf í útlánsdeild
Blindrabókasafns. Þarf að hafa áhuga og þekk-
ingu á bókum.
Upplýsingar í síma 686922.