Þjóðviljinn - 13.02.1990, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 13.02.1990, Qupperneq 2
FRETTIR Sleipnir Samið á ASÍ nótum Samningurinn eins og hjá ASÍog VSÍ. Landleiðamenn sjálfstæð deild í félaginu Félagsmenn í bifreiðastjórafé- laginu Sleipni héldu fund um nýgerðan kjarasamning í gær- kvöldi, en úrslit atkvæðagreiðsl- unnar lágu ekki fyrir þegar blað- ið fór í prentun. Fyrirfram var búist við að samningarnir mættu töluverðri andstöðu fundar- manna og að mjótt yrði á munun- um. Kjarasamningur Sleipnis- manna og atvinnurekenda er samhljóöa samningi þeim sem ASI og VSI gerðu á dögunum. Einnig náðist samkomulag um að bflstjórar hjá Landleiðum mynd- uðu sérstaka deild innan Sleipnis og færu með eigin samningamál. Landleiðamenn litu svo á að þeir væru ekki í Sleipni og verkfalls- aðgerðir félagsins næðu því ekki til þeirra. Sleipnisbflstjórar voru því hins vegar ekki sammála og sökuðu Landleiðabflstjórana um verkfallsbrot. Aðilar urðu einnig sammála um að engir eftirmálar yrðu vegna aðgerða Sleipnismanna í verkfallinu sem hófst á miðnætti á laugardag og í verkfallinu í jan- úar, þegar vindi var hleypt úr dekkjum Landleiðabfla og ryð- varnarefni sprautað á framrúður þeirra. „Ég er ánægður með að þetta Landleiðamál skuli vera komið í höfn. Mér finnst það stór áfangi. En ég er hundóánægður með þennan kjarasamning og ég lít ekki á hann sem endanlegan, fyrr en félagsfundur er búinn að fjalla um hann,“ sagði Magnús Guð- mundsson, formaður Sleipnis, í samtali við Þjóðviljann síðdegis í gær. Kjarasamningur Sleipnis og viðsemjenda þeirra var undirrit- aður um klukkan sjö í gærmorg- un, með fyrirvara um samþykki félagsfundar. Samningamenn höfðu þá fundað frá því klukkan hálf níu á sunnudagskvöld. -gb Níundi bekkur Réttarholtsskóla var í umferðarfræði í gærmorgun og meðal þeirra sem komu á fræðslufund var Svavar Gestsson menntamálaráðherra. Auk hans fluttu Guðmundur Þorsteinsson og Stefán Sigur- valdason erindi. Umferðarfræðinni veröur haldið áfram á næstu vikum og í kjölfar fræðslufunda munu nemendur fást við ýmis verkefni, ritgerðasmíð, vettvangsferðir og fleira. Mynd Jim Smart. Áfengi Neyslan jókst um 23% 1989 Minni neysla á víni og brenndum vínum Mú eru komin í Ijós áhrifln af því að bjórbanninu var aflétt hér á landi: Heildaráfengisncysl- an miðað við 100% áfengi í lítrum á mann jókst um 0,78 lítra á árinu 1989 eða 23,28%. * Neysla á brenndum vínum dróst saman um 0,39 lítra á mann eða 15,12%. Neysla á léttum vín- um dróst saman um 0,20 lítra eða 25,97% Neysla á áfengum bjór mældist í 100% vínanda vera 1,37 lítrar á mann eða rétt um þriðjungur heildaráfengisneyslunnar, sem mældist 4,13 lítrar af 100% vín- anda á mann. Hlutfallslega hefur því dregið meira úr neyslu á léttvíni en brenndum drykkjum í vínanda mælt, en sá munur verður enn meiri ef mælt er í rúmmáli. Niðurstaðan sýnir að bindind- ismennirnir höfðu rétt fyrir sér í því að bjórleyfið yki heildar- neyslu áfengis, en sú fullyrðing þeirra að um hreina viðbót yrði að ræða hefur reynst röng. -ólg. Rúmenía Kindakjötið útá næstunni Stjórnvöld í Rúmeníu ætla að þiggja kindakjötið sem íslenska ríkisstjórnin ákvað að gefa bág- stöddum þar í landi í kjölfar bylt- ingarinnar. Skilaboð þess efnis hafa borist hingað frá skipulags- nefnd hjálparstarfs í Rúmeníu fyrir milligöngu sendiherra landsins í Moskvu. í orðsendingunni þakka Rúm- enar fyrir höfðinglega gjöf og þeir segjast munu dreifa kjötinu á þann hátt sem íslendingar óska. Rauði kross íslands, sem falið var að hafa umsjón með dreifingu kjötsins, leggur áherslu á að það fari til munaðarleysingjahæla, elliheimila og stofnana fyrir þroskahefta. Ekki hefur enn verið ákveðið hvenær kjötið fari úr landi, en ljóst er að það verður á næstu dögum. Þeir aðilar sem hafa haft kjötmálið á sinni könnu hér munu hittast í dag til að taka ákvörðun um það. íslendingar ætla að gefa Rúm- enum 600 tonn af kjöti, sem næg- ir til að fylla 33 frystigáma. Héð- an fer það til Þýskalands, þar sem þýsku járnbrautirnar taka við því og flytja til Ungverjalands. Ung- verjar munu síðan sjá um að flytja það til Búkarest. Flutnings- kostnaðurinn frá Reykjavík til Búkarest er um 8.6 miljónir króna. Sendifulltrúar Rauða krossins verða í Rúmeníu þegar kjötið kemur þangað og munu þeir fylgjast með dreifingu þess. -gb Hörður G. Ólafsson Skagafjarðarbítið sigraði Eitt lag enn eftir Hörð G. Ólafs- son við texta Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar bar sigur úr býtum í íslensku forkeppninni fyrir Söng- lagakeppni sjónvarpsstöðva, sem fram fer í Júgóslavíu í vor. Það voru þau Sigríður Beinteinsdóttir og Grétar Orvarsson sem fluttu lagið. Eitt lag enn hlaut 129 stig en næst á eftir því kom Eitt lítið lag eftir Björn Björnsson og í þriðja sæti Til þín eftir Gunnar Þórðarson. Hörður G. Ólafsson fékk 200 þúsund krónur og verð- launagrip í því tilefni að þetta var fimmta skipti sem íslendingar velja lag í keppnina. Einsog mönnum er í fersku minni fengu íslendingar ekkert stig í sönglag- akeppninni í fyrra Gítarnámskeið Dagana 17. og 18. febrúar verður sænski gítarleikarinn Torvald Nilsson með gítarnámskeið í húsnæði Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar að Hraunbergi 2. Námskeiðið er opið öllum og geta umsækjendur valið um að vera virkir þátttakendur, eða áheyrendur. Gjaldið fyrir virka þátttakendur er kr. 2.500 og fyrir áheyrendur kr. 1.000. Nánari upplýsingar veitir Símon ívars- son í síma 667634. Torvald er mjög virtur kennari og kennir nú við Sundsgárdens Folkhögskola, Tónlistarskóla Helsingborgar og við Tónlistarháskólann í Malmö. Þá starfar hann einnig sem ein- leikari en laugardaginn 24. febrú- ar gefst kostur á að hlýða á hann ásamt Símoni ívarssyni á tón- leikum í Kristskirkju kl. 15. Þá munu þeir félagar vera með hlj óðfærakynningu í nokkrum skólum. Kynning fyrir bændur Dagana 14. - 17. febrúar gengst Stéttarsamband bænda fyrir kynningarfundum um nýgert samkomulag sambandasins og aðila vinnumarkaðarins. Haldnir verða 15 fundir á Suðurlandi, Vesturlandi og Norðurlandi þar sem stjórnarmenn og starfsmenn Stéttarsambandsins munu kynna og skýra hið nýgerða samkomu- lag. Á Austurlandi verða haldnir fundir í lok febrúar og á Vest- fjörðum svo fljótt sem aðstæður leyfa. Á miðvikudag kl. 13.30 verða fundir að Fólkvangi á Kjal arnesi, í Dalabúð Búðardal, 1 Safnahúsinu á Sauðárkróki og á Hótel Selfossi. Um kvöldið verð- ur fundur í Hlíðarenda á Hvols- velli kl. 21. Fimmtudaginn 15. fe- brúar verða fundir kl. 13.30 á Hótel Borgarnesi, í Félagsheim- ilinu á Reykhólum, í Ásbyrgi Miðfirði og í Tunguseli í V- Skaftafellssýslu. Um kvöldið kl. 21 verður fundur á Hótel KEA. Föstudaginn 16. febrúar kl. 13 verða fundir í Breiðabliki Snæ- fellsnesi, í Sævangi Strandasýslu, á Hótel Blönduósi og að Ýdölum í S-Þingeyjarsýslu. Laugardaginn 17. febrúar verður svo fundur á Kópaskeri kl. 13.30. Fœrð Flestir fjall- vegir mddir Skólahaldféll víða niður vegna veðurs Fjallvegir urðu margir ófærir á sunnudaginn og í gærmorgun vegna ofankomu og skafrennings. Þá varð víða að fella niður skóla- hald vegna veðurs. Að sögn Hjörleifs Ólafssonar hjá vegaeftirlitinu tókst að opna flestar leiðir í gær, en sums staðar varð að fresta mokstri vegna veðurs. Hjörleifur sagði vegi á Suður- landi að Vík yfirleitt færa og fært jeppum og stórum bflum austur af Vík. Fresta varð mokstri á Fjarðarheiði í gær, en hún verður líklega rudd í dag ef veður leyfir. Fært er um allt Snæfellsnes nema Fróðárheiði. Þar hamlaði veðrið snjómokstri. f gær stóð til að moka á milli ísafjarðar, Bolungarvíkur og Súðavíkur, en að öðru leyti átti ekki að moka á Vestfjörðum. Enginn snjómokstur var fyrir- hugaður í Strandasýslu. Fært var til Akureyrar og það- an til Vopnafjarðar. -gg Borgarráð Aðstöðugjald á fjölmiðla Sjálfstæðismenn lögðu til í borgarráði í gær að aðstöðugjald verði lagt á alla fjölmiðla í borg- inni nema Ríkisútvarpið, sem hefur undanþágu samkvæmt lögum. Gert er ráð fyrir að tekjur borgarinnar aukist um 20 miljón- ir króna vegna þessa. Rætt hefur verið um það reglu- lega undanfarin ár að afnema undanþágu fjölmiðla frá að- stöðugjaldi, en ákvörðun hefur ávallt verið slegið á frest. Nú virðist hins vegar ætla að draga til tíðinda. Málið verður tekið til umræðu á fundi borgarstjórnar næst komandi fimmtudag. -gg Ríki í Miklagarð Um næstu mánaðamót verður opnuð ný útsala ÁTVR í Mikla- garði við Sund. Hefur Áfengis- verslunin leigt 250 fermetra húsn- æði af Miklagarði í austurenda verslunarinnar undir starfsemi sína. Vegna þessa hafa staðið yfir miklar breytingar á anddyri og kassalínu verslunarinnar og er áætiað að þeim lj úki fyrir 1. mars. Haskola- tónleikar t morgun miðvikudag munu Kjartan Óskarsson bassaklari- nettleikari og Hrefna Eggerts- dóttir píanóleikari leika á Há- skólatónleikum í Norræna húsinu kl. 12.30. Verkin eru eftir Hel- mut Neumann og Pál Pampichler Pálsson og er um frumflutning beggja verkanna að ræða. Þá verða flutt verk eftir Yvonne Desportes og Frank Martin. :2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINNj Þriðjudagur 13. febrúar 1990

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.