Þjóðviljinn - 18.05.1990, Síða 3
Eystrasaltslönd
Slovenía
viðurkennir
sjálfstæöis-
mt/jl 1
rett
Slóvenía hefur viðurkennt rétt
Eistlands, Lettlands og Litháens
til sjálfstæðis og hvatt sambands-
þing Júgóslavíu til að gera slíkt
hið sama. Skýrði blaðið Borba í
Belgrad svo frá, að þing Slóveníu
hefði samþykkt tillögu um þetta í
fyrradag.
„Þing lýðveldisins Slóveníu
leggur fram þá kröfu að þing sósí-
alíska sambandslýðveldisins Júg-
óslavíu... viðurkenni Litháen,
Eistland og Lettland sem sjálf-
stæð ríki,“ segir í tillögunni. At-
hygli vekur í þessu samhengi að
ráðamenn í Slóveníu og Króatíu
hafa haft við orð að lýðveldi þessi
myndu segja skilið við Júgó-
slavíu.
Nærri 700
fórust í
fellibyl
Vitað er nú að um 690 manns
fórust í einum versta fellibyl, sem
Indland hefur fengið að kenna á
þennan áratuginn. Hugsanlegt er
að enn fleiri hafí farist.
Hvirfilstormur þessi skall í s.l.
viku á strönd fylkisins Andhra
Pradesh. Um 400,000 manns hafa
verið fluttir af þeim svæðum, sem
harðast urðu úti. Um 360.000
húsdýr fórust, um 500.000 heimili
eyðilögðust að miklu eða öllu
leyti og uppskera eyðilagðist að
mestu á um 100.000 hektara ak-
urlendi.
Skiptu á
eiginkonum
Tveir kínverskir bændur, bú-
settir sunnanvert í fylkinu Sichu-
an, skiptu fyrir skömmu á eigin-
konum, að því er blað eitt í Pek-
ing greindi frá í gær. Ekki tókust
þau kaup fyrirhafnarlaust, því að
annar bóndinn hélt því fram að
drjúgur munur væri á kvenkost-
um, þar eð kona hins væriúr hófi
stuttvaxin og þar að auki engin
fríðleiksmanneskja.
Hinn bóndinn, Zhang' nefnd-
ur, viðurkenndi um síðir áð hinn
hefði nokkuð til síns máls og urðu
þeir sammála um að hann skyldi
borga 185 yuan (2.400 krónur) á
milli. En þar sem Zhang bóndi
hafði ekki svo mikið reiðufé
handa á milli, galt hann kaupnaut
sínum í staðinn gyltu og þúsund
þakflísar.
Lögregla komst í málið, lýsti
makaskiptin ólögleg og fyrir-
skipaði að bændurnir skyldu
áfram búa hvor við sína upphaf-
legu eiginkonu.
Gefum okkur
tíma í umferðinni.
Leggjum tímanlega af stað!
Umhveríi og mengun - Reykjavík framtíðarinnar
Alþýðubandalagið í Reykja-
vík gengst fyrir umræðu-
fundi um umhverfismálin í
Reykjavík að Hverfisgötu
105 næstkomandi sunnu-
dag kl. 15.00
Frummælendur:
Sigurbjörg Gísladóttir efnafræð-
ingur, sem fjallar um loftmengun.
Auður Sveinsdóttir landslags-
arkitekt, sem m.a. mun segja
fréttir af nýafstaðinni umhverfis-
ráðstefnu í Björgvin.
Guðrún
Ágústsdóttir
Stefán Thors
Auður
Sveinsdóttir
Magnús
Skúlason
Sigurbjörg
Gísladóttir
Stefán Thors skipulagsstjóri
ríkisins sem fjallar um umhverfis-
mat og mengun.
Magnús Skúlason arkitekt, sem
fjallar um umferðarmálin i
Reykjavík.
Fundarstjóri verður Guðrún
Ágústsdóttir borgarfulltrúi.
Kaffiveitingar. Allir velkommr!
Alþýðubandalagið
í Reykjavík
G-listinn.
NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 3
LAUNAMENN
HEFUR STAÐGREÐSLU
ÞINNIVERÐ SKILAÐ?
Áríðandi er að leiðréttingum á staðgreiðsluyfirliti
sé skilað sem allra fyrst.
Nú eiga launamenn að hafa
fengið sent yfirlit yfir frá-
dregna staðgreiðslu af launa-
tekjum sínum á árinu 1989.
Yfirlitið sýnir skil launa-
greiðenda á frádreginni stað-
greiðslu launamanna til inn-
heimtumanna.
Brýnt er að launamenn beri
yfirlitið saman við launaseðla
sína til þess að ganga úr
skugga um að staðgreiðslu
sem haldið var eftir af launa-
tekjum þeirra hafi verið skilað
til innheimtumanna.
Að lokinni álagningu tekju-
skatts og útsvars nú í sumar
fer fram samanburður við
staðgreiðsluskil fyrir viðkom-
andi launamann. Ef upplýs-
ingar um staðgreiðslu launa-
manns eru rangar verður
greiðslustaða röng og launa-
maðurinn hugsanlega kraf-
inn um hærri fjárhæð en hon-
um annars ber að greiða ef
ekki er sótt um leiðréttingu í
tækatíð.
Ef um skekkjur á yfirliti er
að ræða er nauðsynlegt að
umsókn um leiðréttingu sé
komið á framfæri við stað-
greiðsludeild RSK, Skúla-
götu 57,150 Reykjavík, hið
allra fyrsta til þess að
tryggja að greiðslustaða
verði rétt við álagningu
opinberra gjalda nú í
sumar.
Tryggið rétt uppgjör á staðgreiðslu
og álagningu ísumar
RÍKISSKATTSTJÓRI