Þjóðviljinn - 18.05.1990, Qupperneq 18
Terminal eða Endastöð í stáliðjuborginni Bochum í Þýskalandi. Stálplötumar fjórar eru tólf metra háar og
nítíu tonn að þyngd.
STÁLSMHXJ
SERF
Listaverkið sem hluti af umhve
Einn af gestum Listahátíðar
Reykjavíkur nú er listamaðurinn
Richard Serra. Eins og lesendum
Nýs Helgarblaðs er vonandi í
fersku minni var sett upp verk
eftir Serra úti í Viðey ekki alls fyrir
löngu. Stuðlabergsúlurnar átján
sem þar tróna eru gjöf Serra til
íslensku þjóðarinnar. En hver er
hann þessi Richard Serra?
Þegar Listahátíðarnefnd hug-
leiddi hverjum skyldi bjóða á há-
tíðina í sumar komu eflaust marg-
ir til greina, einn af þeim var Ric-
hard Serra. Þegar haft var sam-
band við umboðsmanns hans var
forsvarsmönnum Listahátíðar
greint frá því að verk hans kost-
uðu ekki minna en þrjátíu milj-
ónir. Af einskærri heppni var
listamaðurinn áhugasamari um
ísland en umboðsmaðurinn og
hingað kom hann síðasta sumar
og hreifst mjög af náttúru lands-
ins eins og títt er um stórborg-
aútlendinga. Richard Serra
ákvað að gefa þjóðinni verk eftir
sig með þeim skilyrðum þó að
stofnaður yrði sjóður til handa
ungum myndhöggvurum.
Það varð því úr að Serra setti
upp verk út í Viðey. Stuðlabergs-
súlurnar, eða Áfangar eins og
verkið heitir, prýða nú, eða lýta
eftir smekk, eyjuna fögru.
og mótaðist í New York borg á
sjöunda áratugnum. Þessir lista-
menn reyndu að forðast persónu-
lega tjáningu í verkum sínum eða
að verkin væru hlaðin tilvísunum
og táknum. Þeir leituðust við
óhlutstæðni og sem minnsta
sköpun af hálfu listamannsins.
Serra hefur ætíð látið verkið mót-
ast af efninu og aðstæðum verks-
ins hverju sinni. Áfangar mótast
af landslagi Viðeyjar og umhverfi
hennar.
Serra fékk snemma á ferli sín-
um áhuga á stáli, en fyrstu þekktu
verk hans vann hann í blý. Blýið
er auðmótanlegt og Serra fór
ótroðnar leiðir í meðferð
málmsins. Blýverkin voru mótuð
á staðnum, og oft var ekki hægt
að færa þau úr stað án þess að
skemma þau. Þessi hugsun var
síðar einnig ríkjandi í umhverfis-
stálverkum Serra. Þau voru hugs-
uð og unnin fyrir einn sérstakan
stað og flutningur þeirri þýddi
eyðilegging.
Stáliðjur og
naumhyggja
Richard Serra fæddist í San
Fransiskó árið 1939. Faðir hans
var frá Spáni en móðir hans var
rússneskur Gyðingur. Serra lagði
í fyrstu stund á enskar bók-
menntir áður en hann snéri sér að
listnámi. Á námsárum sínum
vann hann fyrir sér í stáliðjuver-
um og mætti ímynda sér að það
hefði haft áhrif á list hans síðar
meir. Eftir að Serra lauk námi
hélt hann til Evrópu, ferðaðist
um en var síðan eitt ár við nám í
Flórens á Ítalíu. Um miðbik sjö-
unda áratugsins hætti Serra að
mála og sneri sér að „högg-
myndalist“.
Um þetta leyti kynnist hann
listamönnum á borð við Robert
Morris, Walter de Maria, Sol
T oTI1 A _ .1 ■ — - .
LLtuu, \^an /-vnure, Kobert
Smithson og Donald Judd, sem
var gestur Listahátíðar 1988. All-
ir þessir listamenn hafa verið
bendlaðir við minimalisma eða
naumhyggju. Sú stefna kom upp
Bogann burt
Umhverfisverkum Serra hefur
verið komið fyrir í stórborgum
víða um heim. Þau hafa oft á tíð-
um vakið upp hörð mótmæli
íbúa. Eitt kunnasta dæmið um
það eru málaferlin út af Tilted
Arc (Boginn bogi) á Federal
Plaza í New York.
Verkið var sett upp árið 1981
en fjarlægt á ný nokkrum árum
seinna. Aðalrök Serra og verj-
enda hans voru þau að verkið
væri ekki hægt að flytja úr stað og
út í náttúruna þar sem stærð þess
yrði ekki jafn yfirþyrmandi vegna
þess að án torgsins væri verkið
ekki til. Boginn var hugsaður
fyrir Federal Plaza og þau stór-
hýsi sem þar standa en ekki fyrir
nokkurt annað torg eða stað.
í þeim deilum sem uppsetning
verksins olli voru mótrökin með-
al annars þau að í skjóli við stál-
vegginn þrifust smáglæpir og veg-
gjakrotarar. Undanfarin ár hefur
borið mikið á árásum öfgasinn-
aðra hægrimanna að lista-
mönnum, sem ekki falla f kramið
hjá þeim. Af þessu hafa sprottið
töiuVeröfir umræour um itst Og
listaverk. Serra er einn þeirra
sem dreginn hefur verið inn í
þessar pólitísku deilur um listir.
Það er andstætt eðli Serra sem
listamanns vegna þess að verk
Tilted Arc eöa Bogni boginn á Federal Plaza í New York, sem olli miklum úlfaþyt.
Landslagsverk á Ítalíu sem minnir á Áfanga í Viðey.
18 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAP' Föstudagur 18. maí 1990