Þjóðviljinn - 18.05.1990, Blaðsíða 26
FÍM-salurinn, Garðastræti 6,
Maj-Siri Österling, málverk. Opið
kl. 13-18 virka daga, kl.14-18 um
helgar, til 29.5.
Gallerí Borg, Austurstræti 3 og
Síðumúla 32, grafík, vatnslita-,
pastel- og olíumyndir, keramik-
verk og módelskartgripir, opið
lau 10-14.
GalleríH Skólavörðustíg4a,
Þorbjörg Pálsdóttir opnar sýn-
ingu á skúlptúrum á lau kl. 15.
Opiðalladagafrákl. 14-18.
Gallerí Sævars Karls Óla-
sonar, Bankastræti 9, Húbert
Nói sýnir málverk. Opið 9-18
virkadaga,til24.5.
Norræna húsið, kjallari og and-
dyri: Hernám og stríðsár, ljósm-
yndasýning frá stríðsárunum á f s-
landi 1940-45. Opin 14-19 dag-
lega, til 24.júní. Sjá hitt og þetta,
fyrirlestur.
Hótel Lind, veitingasalur, Anna
Gunnlaugsdóttir, málverk. Til
27.5.
Kjarvalsstaðir, vestursalur:
Steinunn Þórarinsdóttir, högg-
myndir. Austursalur: Myndlista-
og handíðaskólinn sýn. á útskrift-
arverk. nemenda. Opiðdaglega
frákl. 11-18.
Listasafn Einars Jónssonar
opið helgar 13.30-16, hög-
gmyndagarðurinn alla daga 11 -
17.
Listasafn íslands, Olli Lyytikan-
en, 1949-1987: Draumurífjórum
litum. Opið alla daga nema mán.
kl. 12-18, aðg.ókeypis. Til 27.5.
Menntamálaráðuneytið, Daníel
Magnússon sýnir f ígúratívar og
geómetrískar lágmyndir.
Minjasafn Rafmagnsveitunn-
ar, húsi safnsins v/ Rafstöðvar-
veg, su 14-16.
Gerðuberg, Örn Þorsteinsson
og Thor Vilhjálmsson, Spor í
spori.Til31.5.
Hafnarborg, Sveinn Björnsson
opnar sýningu á lau, olíumálverk
og klippimyndir. Opið kl. 14-19, til
27.5.
Nýhöfn, Hafnarstræti 18, Vignir
Jóhannsson listverk. Opið kl.10-
18 virka daga nema má, og kl. 14-
18umhelgar. Til 30.5.
Saf n Ásgríms Jónssonar,
Bergstaðastræti 74, eldgosa- og
flóttamyndir Ásgríms. Til 17.6.
þri, fi, lau og su 13:30-16.
Sjóminjasafn íslands, Vestur-
götu 8 Hf. Opið helgar 14-18, e/
eftirsamkomulagi.
Slunkaríki ísafirði, Kess Visser
sýnir rýmisverk, sýningin fram-
lengd til su, opið fi-su 16-18.
Þjóðminjasafnið, opið 15.5-
15.9 alla daga nema má kl. 11 -
16.
TÓNLISTIN
Einar Kristján Einarsson, gítar-
leikari, heldur tónleika í Hvera-
gerðiskirkju lau kl. 17 og safnað-
arheimili Ólafsvíkurkirkju su kl.
16 og Grundarfjarðarkirkju kl.
20:30. Áefnissfrránni eru verkfrá
Japan, S-Ameríku og Spáni.
LEIKLISTIN
Leikfélag Akureyrar, Fátækt
fólk.
Leikfélag Kópavogs, Félags-
heim. Kópav. Virgill litli. (s.
41985).
Leikfélag Reykjavíkur, Borgar-
leikhúsið, Litla sviðið, Sigrún Ást-
rós, í kvöld og lau og su kl.20.
Ungum er það allra best...Ljóða-
dagskrá Leiklistarskóla ísl. og
L.R.má. kl. 20.
Nemendaleikhúsið Lindarbæ,
Glataðirsnillingare/W.Heinesen
í kvöld kl.20. Sýn.hlé 19.-27.maí.
Norræna húsið, kabarettsýning:
“Þeir héldu dálitla heimsstyrj-
öld...“, flytjendur Edda Heiðrún
Backman, Egill Ólafsson, Jó-
hann Sigurðsson og Ása Hlín
Svavarsdóttir, ásamt Jóhanni
G.Jóhannssyni. Lau kl.21 og su
kl. 16.
Hvað á að gera um helgina?
Dr. Jakob Jakobsson
fiskifræðingur
Ég er nú ekki búinn að ákveða það ennþá þar sem ég er nýkominn úr
fríi. Af þeim sökum tel ég það líklegt að ég verði eitthvað að vinna um
helgina. Nú ef ég hef tíma aflögu fyrir sjálfan mig þá reyni ég að taka til
í sumarbústaðnum mínum, sagði dr. Jakob Jakobsson fiskifræðingur
og forstjóri Hafrannsóknastofnunar.
HITT OG ÞETTA
Ferðafélag íslands, afmælis-
ganga Reykjavík-Hvítárnes.
Tveir hópar, fyrri brottför
kl. 10:30, seinni kl.13. Sameinast
og ganga 7-8 km leið. Verð
kr.800, fríttf.börn. Brottförfrá
Umferðamst. austanm.
Útivist, Krísuvíkurberg su kl.13.
Brottförfrá Umferðarmiðstöð-
bensínsölu.
Göngu-Hrólfar, Félag eldri
borgara, hittast á morgun lau
kl. 11 við Nóatún 17, opið hús
Goðheimum Sigtúni 3 su kl. 14,
frjálst spil og tafl, dansaðfrá
kl.20.
Hana-nú í Kópavogi, samvera
og súrefni á morgun lau, lagt af
stað frá Digranesvegi 12 kl. 10,
molakaffi.
Heimsstyrjöldin, Hakon Brand-
ers sendiherra Finnlands talar
um Finnland og síð.heimst.
(sænska) í Norræna húsinu lau
kl. 16.
Fuglaskoðun, reyndirfuglask-
oðarar verða staddir í vesturbæ
Kópavogs á mótum Urðarbrautar
og Sunnubrautar á lau kl.15:30
og su kl.16, boðiðuppáfugla-
skoðun í Kópavogsleiru og fjöru.
Hafið m/sjónauka, fuglabók og
skriffæri.
SKAK
HELGI
ÓLAFSSON
Fisher 111 liðs við samtök stórmeistara?
- Aðalfundur Skáksambands íslands haldinn um helgina
Aöalfundur Skák-
sambands íslands
Aðalfundur Skáksambands ís-
lands verður haldinn um helgipa.
Nú er ljóst að Einar S. Einarsson
gefur ekki kost á sér til endur-
kjörs en mun hafa í hyggju að
starfa á vettvangi norræna skáks-
ambandsins og FIDE. Varafor-
seti SÍ, Jón Rögnvaldsson, gefur
kost á sér sem forseti. Að öðru
leyti er ekki búist við miklum
breytingum á stjórninni.
Fyrir u. þ. .b. hálfum mánuði
síðan dvaldi Bobby Fischer í fjóra
daga á heimili Bessel Kok stjórn-
arformanns GMA, samtaka stór-
meistara, og forstjóra SWIFT-
fyrirtækisins. Það var Fischer
sem átti frumkvæði að fundi sín-
um við Kok. Á skrifstofu GMA í
Belgíu fengust litlar upplýsingar
um dvöl Fischers aðrar en þær að
Kok og Fischer hefðu rætt fram-
tíð skáklistarinnar í heiminum.
Einvígið um heimsmeistaratitil-
inn milli Kasparovs og Karpovs
hefst í byrjun október nk. í New
York. Þá má búast við að kastljós
fjölmiðla beinist mjög að þessum
glataða syni heimsborgarinnar.
Fischer er 47ára gamall. ítrek-
aðar tilraunir til að fá hann. að
skákborðinu aftur hafa mistekist.
Beljavskí á
sigurbraut í Miinc-
hen
Sovéski stórmeistarinn Alex-
ander Beljavskí stóð með pálm-
ann í höndunum er tveimur um-
ferðum var ólokið á móti í Munc-
hen sem kennt er við Mephisto-
skáktölvurnar. Beljavskívar með
6V2 vinning úr 9 skákum, IV2
vinningi á undan landa sínum
Jusupov, Júgóslavanum Nikolic,
Hollendingnum Van der Sterren
og Bandaríkjamanninum Boris
Gulko.
Beljavskí tók snemma foryst-
una í sínar hendur m.a. með sigri
yfir sterkasta V-Þjóðverjanum,
Robert Hubner, og bætti við sig
hægt og bítandi. í 8. umferð lagði
hann Aríur Jusupov að velli í
skák sem skoðast má sem úrslit-
askák þessa móts:
Strax í 7. leik valdi Jusupov
hina hvössu peðsfórn Polugajev-
skí sem m.a. kom fyrir í 2. einvíg-
isskák Kasparovs og Karpovs
1984. Beljavskí breytti út í 12.
leik með - Rba6 í stað 12. .. Bf6.
Juspov vann peðið fljótlega til
baka og riddarinn á d6 batt stöðu
svarts saman. Veikleikar í peð-
astöðu hans gerðu honum hins
vegar erfitt fyrir enda leið ekki á
löngu þar til svartur náði að not-
færa sér þá, 22. .. Da4. í 27. leik
vann svartur peð og mótfæri hvíts
reyndust ónóg. Baráttan sem í
hönd fór var athyglisverð því
hvítur var bundinn í báða skó
vegna yfirráða svarts eftir löngu
skáklínunni, a8-hl. Er tíma-
mörkunum var náð kom á daginn
að hvítur var í leikþröng. Hann
gat á engan hátt varist hótuninni
41. .. Rd4, t.d. má kóngurinn
ekkihreyfasigvegna41... Hxe5.
Arthur Jusupov
- Alexander Beljavskí
Drottningarindversk vörn
1. d4 Rf6
2. c4 e6
3. RO d6
4. g3 Bb7
5. Bg2 Be7
6. Ö-Ó Ö-Ö
7. d5 exd5
8. Rh4 c6
9. cxd5 Rxd5
10. Rf5 Rc7
11. Rc3 d5
12. e4-Rba6
13. Bf4 Bf6
14. Rd6 Bc8
29. Kg2 Hd5
30. Dg4 Db7
31. Kh2 Hdl
32. He4 h5
33. Df5 Hfl
34. Bd4 Hd5
35. He5 Hxe5
36. Bxe5 Hel
37. Kg2 Hdl
38. Kh2 Hd5
39. Kg2 a5
40. c4 Hc5
~*—*—mrz-*
jlmiB"'
^!1§ S
15. excd5 Bxc3
16. bxc3 Rxd5
17. Bxd5 cxd5
18. Dxd5 Be6
19. Dh5 Dd7
20. Hfel RcS
21. He3 Had8
22. Hael Da4
23. a3 Hd7
24. Rf5 Bxf5
25. Dxf5 Re6
26. Be5 Hfd8
27. HO Dxa3
28. h4 De7
8
7
6
5
4
3
2
1
a b c d e f g h
- og Jusupov gafst upp.
Um nokkurt skeið hefur Belj-
avskí reynt að flytjast frá Sovétr-
ívinniim pn huðar. virðisí stands
IIVJ UllUlll w«1 J/UUUI* YliWiJl
yfir einhverskonar atgervisflótti.
Eigi alls fyrir löngu tók Lev
Pshakis, tvöfaldur Sovétmeistari,
staf sinn og hatt og flutti ásamt
fjölskyldu sinni til ísrael. Hann
bjó í Krasnojarsk í Síberíu og
furðulega afskiptur af sovéska
skáksambandinu. Og sjáifur
Mikhael Tal hafði á tíma uppi
sömu áform en mun hafa fallið
frá þeim.
Jóhann og Jón L.
tefla í Moskvu
Jóhann Hjartarson og Jón L.
Árnason tefla á „lokamóti“
GMA sem hefst í Moskvu þann
23. maí nk. 12 þátttakendur í
þessu móti komast áfram í næsta
hring heimsbikarmóta. Jón L.
vann sér rétt til þátttöku í lokam-
ótinu með góðri frammistöðu í
Palma De Mallorca í desember
en Jóhann komst beint áfram sem
þátttakandi í síðustu heimsbik-
arkeppni. Keppendur verða um
60 talsins en tæplega helmingur
þeirra sovéskir skákmenn.
Strax að mótinu loknu stendur
GMA fyrir fyrsta „At-skákmóti“
sambandsins í bænum Murcia á
Spáni. Þeir Jóhann og Jón koma
beint frá Moskvu og undirritaður
og Margeir Pétursson munu
væntanlega bætast í hópinn ásamt
tleiri keppendum.
Leiðrétting
Vegna mistaka í vinnslu misrit-
aðist nafn franska skákmeista-
rans Joel Lautier í myndartexta
með síðasta pistli.
26 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 18. maí 1990