Þjóðviljinn - 18.05.1990, Qupperneq 28
Dauðinn
með hatt
vænst var á þessum miöum,
og enn munu nægir miöar falir
hjá Samvinnuferðum á síðari
hluta mótsins með flugi til
Rimini 18. júní. Áhugi lands-
manna á þessum íþróttavið-
burði ársins virðist því ekki
hafa mætt þeim væntingum
sem skipuleggjendur íþrótta-
hreyfingarinnar og ferðaþjón-
ustunnar höfðu gert sér.B
Munurinn
er komma
Hver er munurinn á íslensk-
um radíóamatörum og Barátt-
usamtökum írskra þjóðernis-
sinna á Norður-írlandi. Mun-
urinn er komma. Einsog al-
þjóð er kunnugt ganga írsku
þjóðernissinnarnir dags dacj-
lega undir nafninu IRA. Is-
lensku radíóamatörarnir
skammstafa félag sitt hins
vegar ÍRA. ÍRA stendur fyrir
fyrirlestri í kvöld kl. 20 í húsi
Verkfræðideildar HÍ við Hjarð-
arhaga. Fyrirlesturinn nefnist
„Hlustað á gervitungl" og er
fluttur á ensku af Geoff Perry.
Perry var skólastjóri og eðlis-
fræðikennari við Kettering
Boy School á Englandi. í fjöl-
da ára var hann með hóp
nemenda, sem hlustuðu á
gervitungl og náðu undra-
verðum árangri með einföld-
um aðferðum við að ákvarða
brautir gervitungla, hvaðan
þeim var skotið m.fl. Þegar
opinberir aðilar vissu ekki
hvað Rússarnir voru að að-
hafast gátu Perry og nemend-
ur hans upplýst fjölmiðla um
málið.B
Nýstárleg
fjáröflun
Aðstandendur framboðs Nýs
vettvangs í Reykjavík hafa að
undanförnu hringt í grunaða
stuðningsmenn og beðið þá
um fjárhagsstuðning. Það er í
sjálfu sér ekki í frásögur fær-
andi en hins vegar er upphæð
framlagsins ákveðin með
fremur óvenjulegum hætti
fyrir stjórnmálasamtök. Við-
komandi eru nefnilega beðnir
um að heita ákveðinni upp-
hæð á framboðið fyrir hvert
prósent sem það fær í kosn-
ingunum, t.d. 500 krónum.
Góður árangur Nýs vettvangs
gæti því þýtt veruleg fjárútlát
fyrir þá. Þetta skyldi þó aldrei
verða til þess að heittrúaðir
stuðningsmenn, sem hafa
heitið á H-listann, fái bak-
þanka í kjörklefanum og hætti
við að greiða honum atkvæöi
vegna blankheita?B
Nafnavenjur á
umhverfi-
sráðstefnu
Þáð vakti athygli hvað fulltrúar
íslenska umhverfismálaráð-
uneytisins á nýafstaðinni um-
hveiíisráðstefnu í Bergen
voru góðir fulltrúar fyrir ís-
lenskar nafnavenjur. Herra-
mennirnir Sólnes, Líndal og
Schram voru nefnilega mættir
þar fyrir fslands hönd.B
Nú loksins getur landinn feng-
ið að bragða ósvikinn svarta
dauða, því ÁTVR hefur tekið
að sér framleiðslu á þessum
görótta drykk sem Siglfirðing-
urinn Valgeir Sigurðsson hef-
ur framleitt við góðan orðstír í
Lúxemborg. Valgeir hefur í
langan tíma reynt að fá ÁTVR
til samstarfs, bæði við fram-
leiðslu og sölu á drykknum
hér á landi, en ÁTVR hefur
sett ýmislegt fyrir sig, m.a.
það að merki drykksins, höf-
uðkúpan, væri of fráhrind-
andi. Þá datt Valgeiri það
snjallræði í huga að láta
teikna hatt á höfuðkúpuna og
þar með opnuðust dyrnar að
ríkinu.B
hverfanda hveli
Tvær ágætar konur eru til
sögu nefndar: þær hafa báðar
tengt pólitíska atburði á ís-
landi með eftirminilegum
hætti við heimsþróunina.
Þetta hér er haft eftir ann-
arri:
Mér er um og ó, ekkert er
eins og það var: ekki nóg með
það að kommúnisrninn er
hruninn heldur er SÍS lasinn
líka.
Hin konan mælir svo:
Ekki skal mig furða þótt
Ólafur Ragnar Grímsson
leggi Alþýðubandalagið í rúst,
en við hinu bjóst ég ekki að
hann væri svo magnaður að
hann tæki alla Austur-Evrópu
með sér í leiðinniM
HM a Italíu -
áhuginn minni
en tafið var?
Fáir hafa komist hjá því að
heyra að íþróttaatburður árs-
ins stendur nú fyrir dyrum, þar
sem er heimsmeistaramótið í
knattspyrnu á Ítalíu. Sala
miða á leiki hófst þegar á síð-
asta ári, og hefur salan á Ítalíu
farið í gegnum banka eftir
ströngum reglum. Stakir mið-
ar á leiki eru ekki á lausu fyrir
útlendinga, en seldir hafa ver-
ið „pakkar" fyrir útlendinga
með innifalinni gistingu á
uppsprengdu verði.
Hér á landi fékk Knatts-
pyrnusamband íslands út-
hlutað ákveðnum skammti
stakra aðgöngumiða, en ekki
reyndist áhugi á þeim mikill,
og voru miðarnir þá afhentir
Ferðaskrifstofunni Sögu, sem
ekki reyndist heldur geta selt
miðana. Frá Sögu gengu mið-
arnir síðan til Samvinnuferða
Landsýnar, sem er eina
ferðaskrifstofan hér á Jandi
með beint leiguflug til Ítalíu.
Nýtt Helgarblað hefur frétt að
áhugi hafi reynst minni en
Húsbréf
Einföld og örugg
fasteignaviðskipti
t#3
HÚSNÆÐISSTOFNUN
RÍKISINS
SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 696900
Nú stendur húsbréfakerfið öllum opið við
kaup og sölu notaðra íbúða. Með þessum
nýja valkosti á að aukast öryggi bæði
kaupenda og seljenda, jafnframt því sem
stuttur afgreiðslutími og hátt langtímalán
á einum stað mun koma báðum aðilum
til góða.
Húsbréfaviðskipti grundvallast á því að
tilvonandi kaupandi hafi í höndum umsögn
ráðgjafastöðvar um greiðslugetu sína.
Án hennar er hvorki hægt að gera
kauptilboð né fá íbúð metna.
Tilvonandi íbúðakaupendur:
Byrjið á að sækja um umsögn ráðgj afastöðvar,
áður en þið takið nokkrar skuldbindandi
ákvarðanir á fasteignamarkaðnum. Það er
mikilvaegt öryggisatriði fyrir bæði kaupendur
og seljendur og algjört skilyrði fyrir íbúðar-
kaupum í húsbréfakerfinu.
ítarlegt kynningarefni um húsbréfakerfið liggur
frammi hjá fasteignasölum um land allt og í
afgreiðslu Húsnæðisstofnunar.
Kynningarmynd um húsbréfakerfið verður sýnd í
ríkissjónvarpinu mánudaginn 21. maí kl. 22.45.
SAMEINAÐA/SlA