Þjóðviljinn - 16.06.1990, Page 3
FRÉTTIR
Seyðisfjörður
Gjaldkerinn rændi bankann
Pappír settur í stað rúmlega 5.6 miljóna króna
Aðalgjaldkeri Landsbankans á
Seyðisfirði viðurkenndi í gær
að hafa dregið sér rúmar 5,6 milj-
ónir króna úr geymslu Seðla-
bankans f bankanum, og hafa sett
pappírsbúnt í stað peninganna.
Gjaldkerinn var handhafi annars
af tveimur lyklum sem gengu að
hirslunni. Útvarpið greindi frá
þessu í kvöldfréttum í gær og auk
þess að gjaldkcrinn hefði staðið
einn að fölsuninni.
Málið komst upp á þriðjudag
sl. þegar starfsmenn Landsbank-
ans á Seyðisfirði ætluðu að ná í
seðla í geymsluna. Þá kom í ljós
að pappír hafði verið settur í stað
seðla í bunkana. Til að komast
inn í geymsluna þarf tvo lykla.
Trúnaðarmaður Seðlabankans á
staðnum var því ætíð viðstaddur
þegar gjaldkerinn kom peninga-
búntunum fyrir, en hann gat ekki
vitað að í búntunum var pappír
sem var lítils virði, því peningas-
eðlar voru yst í búntunum.
Yfirheyrslur hófust í gærmorg-
un yfir starfsmönnum Lands-
bankans, sem lyktaði með því að
aðalgjaldkerinn játaði verknað-
inn.
ns.
Bretadrottning
Þrír íslendingar
heiðraðir
Hennar hátign Elizabeth II
Bretadrottning hefur ákveðið að
heiðra þrjá íslendinga fyrir þjón-
ustu þeirra við Breska sendiráðið
og fyrir að gæta hagsmuna Bret-
lands á íslandi.
Þau sem heiðurinn hljóta eru
Hilmar Foss löggiltur skjala-
þýðandi og dómtúlkur, Aðal-
steinn Jónsson vararæðismaður
Bretlands á Akureyri og Inga
Wendel bókari í Breska sendi-
ráðinu í Reykjavík.
Öll þrjú hljóta þau sæmdar-
heitið „Honorary Member of the
Order of the British Empire“.
Bandarísku kvenskörungarnir í fylgdarliði Betty Friedan komu til landsins í gær, og var myndin tekin á Hótel
Borg skömmu seinna. A myndina vantar leikkonuna Dukakis. Mynd: Kristinn.
Kvennabarátta
Hugbúnaðariðnaður
300 ný störf
Um 50 hugbúnaðarfyrirtæki
eru starfandi á íslandi og er
meðalaldur þeirra einungis fimm
ár. Meðalstarfsmannafjöldi
þeirra er sex manns. Miðað við
þetta má segja að á sl. fimm árum
hafi íslensk hugbúnaðarfyrirtæki
skapað um 300 ný störf.
Þetta kemur fram í könnun
sem Þróunarfélag fslands, Iðn-
lánasjóður og Félag íslenskra
iðnrekenda hafa nýlokið við að
gera. í könnuninni var lögð sér-
stök áhersla á að kanna mögu-
leika þessara fyrirtækja til út-
flutnings. Það kom fram að helsta
vandamál hugbúnaðarfyrirtækj-
anna er hvað þau eru fjárhags-
lega veikburða og hafa ekki yfir
að ráða reyndu starfsfólki til að
annast sölu og markaðsmál er-
lendis. Hins vegar eru þau talin
eiga góða möguleika hér heima.
Fyrirtækin eru almennt talin á
háu tæknistigi og starfsfólk þeirra
vel menntað á sviði hugbúnaðar
og forritunar. Heildarþróunar-
vinna fyrirtækjanna er talin nema
um 800 miljónum á fimm ára
tímabili.
Fyrirtækin sem könnuð voru
eru sjálfstæð einkafyrirtæki, en
ríkisreknar stofnanir og tölvu-
deildir stórfyrirtækja voru ekki
teknar með. Að mati þeirra sem
stóðu að könnuninni er ljóst að
þessi hugbúnaðarfyrirtæki eiga í
harðnandi samkeppni við ýmsar
ríkisreknar stofnanir, sem að
undanförnu hafa byggt upp eigin
kerfisfræðideildir í stað þess að
kaupa þjónustu frá einkafyrir-
tækjum. Það er talið brýnt
hagsmunamál að þessu sé snúið
við, og að ríkið geri verksamn-
inga við lítil sjálfstæð hugbúnað-
arfyrirtæki.
ns.
Kjamakonur í heimsókn
r
Itilcfni af því að 75 ár eru liðin
frá því að íslenskar konur
fengu kosningarétt hefur Kven-
réttindafélag íslands boðið
kvenréttindafrömuðinum Betty
Friedan í heimsókn. í för með
henni eru nokkrar bandarískar
konur sem vildu af eigin raun
kynna sér stöðu kvenna í
stjórnmálum, og einnig hvernig
staðið er að málefnum barna og
fjölskyldna á íslandi.
Konurnar eru Kathleen L.
Bonk framkvæmdastjóri fjöl-
miðla- og upplýsingastofnunar í
Washington, sem beitir sér fyrir
jafnréttis-, mannréttinda- og um-
Fullt nafn
Þau mistök áttu sér stað í Þjóð-
viljanum á fimmtudag, að við les-
endabréf um formann Alþýðu-
bandalagsins voru einungis upp-
hafsstafir bréfritara, en þar átti
að vera fullt nafn hans. M.F.
heitir fullu nafni Magnús Finn-
bogason.
Fyrirtækjalæknar
í frétt um fyrirtækjalækna á
forsíðu Þjóðviljans á fimmtudag
urðu þau mistök að starfsmenn
fyrirtækjanna voru sagðir skikk-
aðir til að leita til fyrirtækislækni-
sins, en ekki til heimilislæknis
síns. Það er ekki rétt því heimilis-
læknum er ekki meinað að annast
sjúklingana. Hinsvegar eru
starfsmennirnir skikkaðir til að
hafa auk þess samband við
fyrirtækislækninn svo hann geti
fýlgst með. Hann kemur því inn í
dæmið sem eftirlitsaðili en það
kemur meðferð sjúklingsins ekk-
ert við. Hana annast áfram heim-
ilislæknirinn.
hverfismálum. Hún hefur lengi
starfað með Betty Friedan, og
hafði forgöngu um komu kvenn-
anna. Diana M. Meehan er dokt-
or í fjölmiðlafræði og kvikmynd-
aframleiðandi. ClaudiaM. Dissel
er aðstoðarframkvæmdastjóri
Rannsóknaráðs Vísindasíofnun-
ar Bandaríkjanna í Washington
og vinnur einkum að því að fjölga
konum í raungreinum. Ann
Berghout Austin er dósent og
doktor í þroskasálfræði við há-
skóla Utha fylkis. Rae K. Grad er
framkvæmdastjóri fyrir alríkis-
nefnd um varnir gegn ungbarna-
dauða í Washington, og doktor í
heilbrigðisfræðslu. Marsha Ren-
wanz doktor í mannfræði er sér-
fræðingur fyrir alríkisnefnd um
varnir gegn ofbeldi og misnotkun
á börnum. Jarðfræðingurinn K.
Krohn slóst og í för með hópnum
á síðustu stundu. Þá er eftir að
nefna þá konu sem menn þekkja
hér á landi, leikkonuna Olympiu
Dukakis, sem útnefnd var til ósk-
arsverðlauna í fyrra fyrir leik sinn
í myndinni “Moonstruck“.
Þessar sprenglærðu og virtu
konur munu dveljast hér á landi í
nokkra daga, en Kvenréttindafé-
lagið skipulagði heimsókn þeirra.
Betty Friedan mun halda opin-
beran fyrirlestur í Odda, hugvís-
indahúsi Háskóla íslands,
næstkomandi fimmtudag kl.
20.30. BE
Kristileg fjölmiðlun
Frelsið fyrir bí
Útvarpsstöðin Alfa aftur íloftið. Frjáls kristi-
leg fjölmiðlun verður Kristileg fjölmiðlun
Fyrirtækið Frjáls kristileg fjöl-
miðlun sem rak útvarpsstöð-
ina Alfa, er nú gjaldþrota og hef-
ur íslandsbanki hf. höfðað mál á
hendur framkvæmdastjóra þess,
Eiríki Sigurbjörnssyni. Frjáls
kristileg fjölmiðiun var í eigu
Eirlks og fjölskyldu hans.
Eins og margir vita var ein-
göngu flutt kristileg tónlist á Alfa
og trúarlegur boðskapur. Að
sögn Gunnars Þorsteinssonar
forstöðumanns Krossins, sem
stundar kristilegt starf, tengdist
Krossinn ekki Frjálsri kristilegri
fjölmiðlun, né Alfa. Það fyrir-
tæki hefði alfarið verið í höndum
Eiríks Sigurbjörnssonar.
Gunnar sagði að eftir að Frjáls
kristileg fjölmiðlun varð gjald-
þrota, hefðu flest kristileg samfé-
lög á höfuðborgarsvæðinu sam-
einast um stofnun nýs fyrirtækis,
Kristilegrar fjölmiðlunar. „Við
stefnum að því að koma Alfa aft-
ur í loftið um mánaðamótin
næstu," sagði Gunnar. „Við
köllum þetta fyrirtæki Kristilega
fjölmiðlun. Nú verður allt með
nýrri skipan og frelsið er búið.
Það verður ekkert „frjálsræði" í
þessum málum!" sagði Gunnar
Þorsteinsson.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til
að ná sambandi við Eirík Sigur-
björnsson, bar það ekki árangur.
ns.
Laugardagur 16. júní 1990 IÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 3
HELGARRÚNTURINN
G AGN og gaman er listasmiðja fyrir börn sem starf rækt var á Listahá-
tíð, í dag kl. 14 gefst mönnum kost á því að sjá afrakstur smiðjunnar á
sýningu í Gerftubergi sem hefst með leikþættinum í hafsins djúpi. í
Miðbæjarskólanum er einnig sýning á verkum barna, þar er til sýnis
list barna og unglinga sem sendu inn verk í samkepnni sem Listahátíð
stóð fyrir. Á sýningunni kennir margra grasa, málverk, Ijóð, skúlptúrar,
myndbönd, teiknimyndasögur og fleira. Sýningin er opin daglega frá
kl. 14-18. Listahátíð er að renna sitt skeið á enda og eru síðustu forvöð
að sjá flestar þær sýningar sem haldnar voru á hennar vegum þessa
helgi.
MEXÍKANSKUR hundur er heiti á allsérstæðum gesti Listahátíðar,
leikhóp frá Hollandi sem sýnir verkið Norðurbærinn í Borgarleikhúsinu
í kvöld kl. 21.30. Verkið er blanda af samtölum, tónlist og kvikmyndum,
og er leikið á ensku. Úr myndabók Jónasar Hallgrímssonar kallast
leikgerð Halldórs Laxness sem er samsetning ævintýra og Ijóða þjóð-
skáldsins sem frumsýnd verður á Kjarvalsstöðum í kvöld kl. 21. Tón-
listina samdi Páll ísólfsson. Á morgun mun Þjóðhátíðarnefnd bjóða
mönnum á sýninguna ítilefna dagsins. í kvöld er allra síðasta tækifær-
ið til að kynnast hinni glaðbeittu Sigrúnu Ástrósu á Litla sviði Borgar-
leikhússins kl. 20. áður en hún heldur í leikferð um landið. Á ferð sinni
gæti hún rekist á ísaðar gellur úr Alþýðuleikhúsinu sem í kvöld eru
staddar á ísafirði og leika í Alþýðuhúsinu kl. 21.15. Annað kvöld kl.
20.30 gefst svo íbúum Suðureyrar kostur á að sjá gellurnar.
PALLI og Palli er nýstárlegur barnaballett sem (slenski dansflokkur-
inn sýnir á Listahátíð í íslensku óperunni kl. 14.30 og 17 í dag. Sylvía
von Kospeth samdi þennan fjöruga barnaballett, sem eingöngu gefst
kostur á að sjá í dag. Miðbæjarfjörið undir yfirskriftinni 17:17 hefst í
dag kl. 14 með því að Þjóðdansafélagið stígur dans, eitthvað nútíma-
legri verða síðan vafalaust hopp nemenda dansskóla Hermanns
Ragnars og Jóns Péturs og Köru. Inni á Café Hressó hefst fjölbreytt
dagskrá kl. 15. Trúbadúrar troða upp, og Leikfélag Mosfellssveitar
mætir auk fleiri góðra gesta. Þegar kvelda tekur tekur ekki síðri dag-
skrá við á kaffihúsinu með söng, Ijóðalestri og hljóðfæraleik. Sarrta
kvöld verður ekki síður stuð í Höllinni þegar rokkað verður til styrktarN
landgræðslu frá kl. 20. Sykurmolarnir, Risaeðlan, Bootlegs, Megas, \
Síðan skein sól, Bubbi kóngur, Todmobil og Sálin hans Jóns míns
trylla lýðinn fram á nótt. Og þá verður kominn 17. júní og húllum hæ út
um allt land. Margt býðst til að stytta stórum og smáum stundirnar á
þjóðhátíðardaginn og er dagskrána í Reykjavík að finna í blaðinu.
SPAUGSTOFAN er á ferð um landið og auk þess að sýna gaman-
leikinn í gegnum hljóðmúrinn leita þeir logandi Ijósi að léttustu lund
landsins. Á þjóðhátíðardaginn verða þeir í Hótel Borganesi, síðan fara
þeir félagar ásamt Ragnari Reykás á sínum fjallbíl hringinn.