Þjóðviljinn - 16.06.1990, Síða 6
ERLENDAR FRETTIR
Skammdrœg kjarnavopn
lltrýming úr Evrópu?
Upplýst hefur verið í aðalstöðv-
um Nató í Brussel að sovéska
stjórnin hafi lagt til að bæði það
bandalag og Varsjárbandalagið
útrými öllum þeim skammdrægu
kjarnavopnum/sem þau hafa i
Evrópu. Af hálfu Nató hefur
þessu þegar verið hafnað.
Hér er um að ræða eldflaugar
sem skotið er frá jörðu, kjarn-
orkufallbyssur og sprengjuflu-
gvélar sem flytja kjarnaspreng-
jur. Skammdræg kjarnavopn eru
þau kölluð, sem draga í lengsta
lagi 500 km. Talið er að Nató hafi
yfir 3500 kjarnaodda í þesskonar
vopn í Evrópu, en af þess hálfu er
því haldið fram að Sovétmenn
hafi þar margfalt fleiri slíka odda,
jafnvel 14 sinnum fleiri.
Sovéska stjórnin lagði til að
viðræður um eyðingu vígtóla
þessara hæfust í sept. eða okt. í
haust, en Bandaríkjastjórn og
Nató hafa svarað því til að fyrst
verði að nást fullnaðarsamkomu-
lag um niðurskurð hefðbundins
vígbúnaðar. Flest hinna
skammdrægu kjarnavopna Nató
eru á vesturþýskri grund, og fer
áhugi á því að losna við þau vax-
andi þarlendis og í fleiri evróp-
skum Natóríkjum.
Reuter/-dþ.
Sameining
1992
Rainer Eppelmann, afvopnun-
ar- og varnarmálaráðherra Aust-
ur-Þýskalands, lagði í gær til að
þýsku ríkin sameinuðust form-
lega og að fullu 1. sept. 1992. Gaf
hann í skyn að hann teldi líkur
vera á því að þá hefði náðst sam-
komulag um að leggja niður
hernaðarbandalögin tvö frá
kalda stríðinu, Nató og Varsjár-
bandalag, og sameina Evrópu alla
í eitt öryggiskerfi.
Eppelmann virðist stinga upp á
þessu út frá ágreiningi Nató og
Sovétríkjanna um sameiningu
Þýskalands. Sovétríkin eru mót-
fallin því að sameinað Þýskaland
gangi í Nató og vilja hraða mynd-
un samevrópsks öryggiskerfis.
Ráðamenn Nató segjast að vísu
stefna að því að slíku kerfi verði
komið á, en vilja að þangað til
verði Þýskaland í Nató.
Átta fórust
Vitað er að átta menn fórust í
flóðum, sem urðu í gær austan-
vert í Ohio, Bandaríkjunum. Um
50 er saknað. Miklar rigningar
hafa verið þar um slóðir undan-
farnar tvær vikur og hljóp af völd-
um þeirra gífurlegur vöxtur í ár
og læki.
Sri Lanka
Óöld hafin á ný
Klögumálin ganga á víxl umfjöldamorð á föngum og óbreyttum
borgurum
Bardagar halda áfram norðan-
og austanvert á Sri Lanka
milli stjórnarhersins og tamflskra
uppreisnarmanna, sem nefnast
Frelsistígrar Tamil Eelam.
Hundruð manna munu hafa fallið
frá því að bardagarnir hófust á
mánudag og eitthvað kvað hafa
verið um dráp á óbreyttum borg-
urum.
Kyrrt hefur verið að mestu
milli stríðsaðila þessara í rúmt ár,
en á mánudag hófu Frelsistígrar
árásir og hertóku margar lög-
reglustöðvar í norður- og austur-
héruðunum. Tóku þeir þar um
800 lögreglumenn til fanga og
segja stjórnartalsmenn að tí-
grarnir hafi drepið marga þeirra,
eftir að þeir höfðu gefist upp.
Tígrar bera af sér þær sakir og
segja á móti að stjórnarhermenn
hafi drepið niður fjölda óbreyttra
borgara, tamflskra og íslamskra,
og ekki eirt konum og börnum
fremur en öðrum.
Hér er fyrst og fremst um að
ræða stríð milli Singhala, fjöl-
A ustur-Þýskaland
Níu RAF-liðar
handteknir
Austurþýska lögreglan handtók
í gær sjö manneskjur, sem all-
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Raf-
magnsveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í
11 kV rafbúnað fyrir Aðveitustöð 7.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri,
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn 3.000 kr. skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudag-
inn 15. ágúst 1990, kl. 11:00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR.
Frikirkjuvegi.3 - Simi 25800
★
IÐNSKÓLINN I REYKJAVÍK
Nám í flugvirkjun
Gert hefur verið samkomulag við flugvirkja-
skólann í Vásterás í Svíþjóð um að taka við
nemendum að loknu aðfararnámi við Iðn-
skólann í Reykjavík.
Þetta aðfararnám mun hefjast nú í haust.
Áætlað er að aðfararnámið taki tvær til þrjár
annir og nýtist einnig að fullu sem nám í bifvéla-
virkjun.
Þeir sem ná nægjanlega góðum árangri í aðfar-
arnáminu eiga þess kost að halda náminu
áfram í Svíþjóð.
Námið þar tekur tvö og hálft ár. Náminu lýkur
síðan með tveggja ára þjálfunartíma.
Umsóknarfrestur um þetta nám er til 5. júlí
næstkomandi.
ar eru grunaðar um aðild að
hryðjuverkasamtökunum Rote
Armee Fraktion (RAF) og hlut-
deild í hinu og þessu sem sá félags-
skapur hefur látið af sér leiða.
Skömmu áður hafði sama lög-
regla handtekið tvær konur, sem
einnig eru sagðar vera í RAF, sem
oft er kennd við tvo þekktustu
liðsmenn sína, Andreas Baader
og Ulrike Meinhof.
Meðal þeirra sem handtekin
voru í gær eru hjónin Barbara og
Horst Meyer, sem lögreglan náði
í Leipzig. Telur austurþýska lög-
reglan að þau hafi verið foringjar
hópsins á níunda áratugnum og
staðið fyrir flestu, sem RAF gerði
af sér á þeim árum. Þau eru t.d.
talin vera skipuleggjendur á bak-
við morðið á Alfred Herrhausen,
bankastjóra Deutsche Bank, í
nóv. s.l. Herrhausen var einn
áhrifamesti bankastjóri Vestur-
Þýskalands og þar með Evrópu.
RAF var athafnasömust á átt-
unda áratugnum og stundaði
sprengingar, morð á háttsettum
mönnum og bankarán. Flestir
upphaflegra fyrirliða hópsins
voru handteknir eða drepnir
snemma á níunda áratugnum og
telur vesturþýska lögreglan að
Meyerhjónin hafi þá tekið að sér
forustuna. Vesturþýska lögregl-
an álítur að alls hafi um 30 liðs-
menn hópsins leitað hælis í
Austur-Þýskalandi og dvalist þar
undir vernd Stasi, austurþýsku
öryggisþjónustunnar sem nú hef-
ur verið leyst upp. Hafi þetta fólk
lifað þar hversdagslegu lífi, verið
í ýmsum störfum og sumt stofnað
fjölskyldur.
Meðal annarra af fólki þessu
sem handtekið hefur verið und-
anfarið eru þær Inge Veitt og Sus-
anne Albrecht, sem báðar komu
við sögu á áttunda áratugnum.
Reuter/-dþ.
mennustu þjóðar eyjarinnar sem
ræður mestu um stjórn hennar og
Tamfla, sem eru þorri íbúa nyrstu
héraðanna og einnig fjölmennir í
austurhéruðunum. Þegar yfir-
standandi uppreisn Tamfla hófst,
studdu Indverjar uppreisnar-
menn í fyrstu en sendu her út á
eyna 1987. Átti svo að heita að
það væri gert til að stilla til friðar,
en áður en varði var hvor-
umtveggjum orðið jafnmikið
kappsmál að losna við indverska
herinn, stjóminni og uppreisnar-
mönnum. Varð það til þess að
hann var kallaður heim og fóru
síðustu indversku hermennirnir
frá Sri Lanka í mars s.l.
Tamíltígrar eru sagðir fá vopn
frá indverska fylkinu Tamilnadu,
sem er byggt Tamílum og þaðan
eru þeir komnir út á Sri Lanka,
sem áður hét Ceylon. Shahul
Hameed, dómsmálaráðherra
eyríkisins, er farinn til Jaffna,
helstu borgar í norðurhluta þess,
til viðræðna við foringja tígr-
anna. Takist þeim ekki að semja
frið hið snarasta, er hætt við að
óöldin, sem hrjáð hefur eyríkið
undanfarin ár, sé komin til að
vera á ný.
Reuter/-dþ.
Jeltsín losar
sig við KGB
Þing rússneska sambandslýð-
veldisins samþykkti í fyrradag að
stofnuð skyldi sérstök öryggis-
sveit er gætti öryggis forseta lýð-
veldisins. Hingað til hefur sov-
éska öryggisþjónustan, KGB,
haft það hlutverk með höndum.
Borís Jeltsín, nýkjörinn Rúss-
landsforseti, sagði að tilkoma
nýju öryggissveitarinnar gerði að
verkum að forsetinn yrði ekki
lengur upp á KGB kominn sér til
verndar.
APN/-dþ.
Múrinn horfinn
fyrir árslok
Austurþýska stjórnin hefur sett
sér það mark og mið að Berlín-
armúrinn skuli vera horfinn með
öllu fyrir næstu áramót, að sögn
ADN-fréttastofunnar. Er nú
unnið sem kappsamlegast að því
að brjóta niður mannvirki þetta
og opnaðar á ný fyrir umferð í
tugatali götur, sem múrinn sleit
er hann var hlaðinn fyrir 28 árum.
Námumenn
aftur til
Búkarest
Námumenn þeir, að sögn
stjórnvalda um 10.000 talsins,
sem komu til Búkarest, höfuð-
borgar Rúmeníu, á miðvikudags-
kvöld að beiðni Iliescus forseta til
aðstoðar lögreglu gegn mótmæ-
lafólki, voru að sögn stjórnvalda
og fréttamanna á förum þaðan í
gær. Samkvæmt fréttum Sjón-
varpsins sneru þeir aftur og voru í
gærkvöld fjölmennir í miðborg
Búkarest. Kvaddi Iliescu námu-
menn til hjálpar stjórninni þegar
lögregla var tekin að fara halloka
í átökum við mótmælafólkið.
Tókst námumönnum, sem vopn-
aðir voru bareflum, fljótlega að
buga andstæðinga sína. Átökin
voru hin heiftarlegustu, fimm
menn biðu bana í þeim og fjöl-
margir slösuðust. Auk þess varð
mikið tjón á byggingum og bfl-
um.
-I
Kauptilboð óskast í Vitaskipið Árvakur, þar sem
það liggur við suðurhöfnina í Hafnarfirði, í því
ásigkomulagi sem skipið er nú í. Skipið verður til
sýnis eftir nánara samkomulagi við forstöðu-
mann Vitastofnunar og gefur hann jafnframt
allar nánari upplýsingar: sími 600000.
Tilboð leggist inn á skrifstofu vora að Borgartúni
7, Reykjavík eigi síðar en kl. 11:00 þann 22. júní
n.k., þar sem þau verða opnuð í viðurvist viðsta-
ddra bjóðenda.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Boraartúni 7. sími 26844
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hitaveitu
Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í verkið „Nesjavallaæð-
Einangrun og klæðning geyma". Verkið felst í að einangra
og klæða tvo 9000 m3 miðlunargeyma á Reynisvatnsheiði
og einn 2000 m3 geymi á Háhrygg, sem er um 2 km vestan
Nesjavalla.
Ljúka skal við geyminn á Háhrygg og annan geyminn á
Reynisvatnsheiði á þessu ári.
Hinn geyminn á Reynisvatnsheiði skal vinna við sumarið
1991 og Ijúka verkinu að fullu 1. ágúst það ár.
Útboðsgögn veröa afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 19. júní 1990 gegn
10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 10. júlí
1990 kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR.
Frikirkjuvegi.3 - Simi 25800