Þjóðviljinn - 01.09.1990, Síða 3
FRETTIR
Álmálið
Megn óánægja í stjóminni
Iðnaðarráðherra gagnrýndurfyrir einleik ísamningaviðræðum. Alumax rennir hýru auga tilReyðarfjarðar.
Niðurstöður bráða birgðaskýrslu sýna að kostnaðarmunur milli staða er mun minni en talið hefur verið fram til þessa
Samkvæmt áreiðanlegum og Borgaraflokks mjög óánægðir landi. Þá herma heimildir Þjóð-
heimildum innan ríkisstjórn- með þau vinnubrögð sem iðnað- viljans að Reyðarfjörður sé enn
arinnar eru ráðherrar Fram- arráðherra hefur viðhaft í samn- sterklega inni í myndinni og að
sóknarflokks, Alþýðubandalags ingagerð um nýtt álver hér á Atlantáls-hópurinn sé reiðubúinn
Álmálið
Ekkert verið ákveðið
Iðnaðarráðherra mótmœlir því harðlega að það hafi verið sýndar-
mennska frá upphafi að álver verði reist á Reyðarfirði
Jón Sigurðsson iðnaðarráð-
herra mótmælir harðlega
þeirri persónulegu skýringu
Björns Grétars Sveinssonar vara-
formanns Alþýðusambands
Austfjarða, að álver á Reyðar-
flrði hafi verið sýndarmennska
frá upphafi. Ráðherra sagðist
vilja ítreka það sem þegar hefur
komið fram af hans hálfu að enn
hafi engin ákvörðun verið tekin
um staðarval nýs álvers.
í vikunni funduðu fulltrúar á
vegum Atlantál-hópsins með
fulltrúum verkalýðsfélaga og at-
vinnurekenda, ásamt því að tala
við heildarsamtök þeirra. Meðal
þess sem rætt var um var ósk
Atlantál-shópsins að gerður yrði
rammasamningur við starfsmenn
hins fyrirhugaða álvers til að
koma í veg fyrir „óþarfa vinnu-
deilur" eins og það var orðað. Á
þessa fundi var enginn fulltrúi
boðaður frá Austurlandi en hins-
vegar voru þar verkalýðsforkólf-
ar frá Eyjafjarðarsvæðinu og
Suðurnesjum. Björn Grétar seg-
ist persónulega hafa þá skýringu
afhverju enginn fulltrúi frá Al-
þýðusambandi Austurlands var
boðaður og hún er sú að það hafi
verið sýndarmennska frá upphafi
að álver skuli rísa á Reyðarfirði.
Iðnaðarráðherra segir að fund-
arboðið hafi ekki verið á vegum
ráðuneytisins þó svo að það hafi
aðstoðað fulltrúa Atlantáls-hóps-
ins á ýmsan hátt. Af þeim sökum
vilji hann ekki leggja neitt út af
því afhverju Austfirðingar voru
ekki með. Hinsvegar hafi ráðu-
neytið verið í sambandi við Hauk
Þorleifsson formann verkalýð-
sfélagsins á Reyðarfirði og fleiri á
Austurlandi. Ráðherra segir að
ef engin alvara hafi legið að baki
því að Reyðarfjörður væri einn af
þeim stöðum sem komi til álita,
hafi menn ekki lagt út í þann
kostnað og fyrirhöfn sem því hef-
ur fylgt að meta kosti og galla
hans sem hugsanlegan stað fyrir
nýtt álver. -grh
Frá Varsjá í maí sfðastliðnum. Mótmæli ýmissa hópa við þinghúsið eru daglegt brauð.
Ljósmyndasýning
Samstaða tíu ára
Iágúst héldu Pólverjar upp á
það að tíu ár eru liðin frá því að
Samstaða var stofnuð. Barátta
Samstöðu markaði upphafið að
hruni kommúnismans, ekki að-
eins í Póllandi, heldur í allri
Austur-Evrópu.
I tilefni af þessum tímamótum
hefur verið sett upp sýning á ljós-
myndum sem rekja sögu Sam-
stöðu í húsakynnum Verkamann-
afélagsins Dagsbrúnar að Lind-
argötu 9.
Ljósmyndirnar eru sagðar að
því leyti óvenjulegar að þær eru
teknar frá öðru sjónarhorni en
þær fréttamyndir sem áður hafa
birst hér á landi og upprunnar eru
hjá erlendum fréttastofum.
Myndirnar á sýningunni lýsa at-
burðum frá sjónarhóli hins al-
menna félaga Samstöðu.
Sýningin er opin á venjulegum
skrifstofutíma. BE
Pappírs-Pési
Frumsýning í dag
Barna- og fjölskyldumyndin
Ævintýri Pappírs-Pésa verð-
ur frumsýnd í Háskólabíói í dag.
Myndin er framleidd af fyrirtæk-
inu Hrif hf. Höfundur handrits og
leikstjóri er Ari Kristinsson,
framleiðandi er Vilhjálmur
Ragnarsson. Kvikmyndin var
sýnd fyrir fjölmiðlafólk og tæp-
lega fimmtíu börn frá dagheimil-
inu Grænuborg á fimmtudag.
Pappírs-Pési fjallar um ein-
mana strák sem teiknar leikfé-
laga á pappír. Stráknum til undr-
unar lifnar pappírsdrengurinn
við, og saman lenda þeir í ýmsum
ævintýrum ásamt nokkrum
prökkurum úr hverfinu.
Myndin er samsett úr stuttum
spaugilegum og spennandi at-
riðum, og er það eflaust kostur
þegar áhorfendur eru í yngri
kantinum og ættu kannski í erfið-
leikum með að fylgja söguþræði
að taka tillit til fleiri þátta en ein-
ungis kostnaðar við staðsetningu
nýs álvers eins og látið hefur verið
í veðri vaka að undanförnu.
Þegar málið kom inn á ríkis-
stjórnarfund í gær brá mönnum
mjög í brún þegar þeim varð ljóst
hversu langt málið var komið.
Finnst samráðherrum iðnaðar-
ráðherra þeim vera stillt upp við
vegg því málið sé komið á það stig
að nú sé annað hvort að hrökkva
eða stökkva.
Heimildarmenn Þjóðviljans
sögðu að málið væri komið á lok-.
astig þrátt fyrir að umhverfis-
rannsóknum væri ólokið. Ráð-
herrum annarrra flokka en Al-
þýðuflokksins mun ekki hafa lit-
ist vel á þær hugmyndir sem liggja
fyrir um raforkuverð og skatta-
mál.
Hörð gagnrýni kom fram á rik-
isstjórnarfundi á fimmtudag á
vinnubrögð Jóns Sigurðssonar.
Ráðherranefnd með fulltrúum
allra stjómarflokkanna, sem
skipuð hafði verið til að fylgjast
með samningaviðræðum við
Atlantáls-hópinn, hafði ekki
komið saman í þrjá mánuði og
vissi því ekkert um stöðu mála.
Þá bar heimildarmönnum
blaðsins saman um það að
Atlantáls-hópurinn væri reiðubú-
inn til að horfa í fleiri þætti en
einungis kostnaðarhagkvæmni
þegar staðarval fyrir álver væri
ákveðið og að tillit yrði tekið til
pólitískrar hliðar málsins og
byggðarsjónarmiða.
Alumax, bandaríski aðilinn í
Atlantáls-hópnum, hefur einnig
gefið til kynna í viðræðum við ís-
lenska aðila, að hann sé hvað
spenntastur fyrir því að nýju ál-
veri verði valinn staður í Reyðar-
firði. Kemurþar til að bandaríska
fyrirtækið telur sig hafa góða
reynslu af því að starfrækj a álver í
minni byggðarlögumm enda séu
viðhorf íbúa í þeim yfirleitt já-
kvæðari til slíkrar starfsemi.
Heimildarmenn blaðsins bentu
einnig á að þarna gæti líkað spilað
inní að fyrirtækið teldi sig hafa
sterkari samningsstöðu gagnvart
vinnuafli á fámennari stöðum.
Hinsvegar gætir ákveðinna efa-
semda meðal fulltrúa fyrirtækis-
ins vegna þess að byggðarlögin á
Austfjörðum séu of fámenn fyrir
svo stóran vinnustað.
Afstaða fulltrúa hinna tveggja
fyrirtækjanna sem að Atlant-
áls-hópnum standa, þess sænska
og hollenska, sé ekki eins afdrátt-
arlaus og Bandaríkjamannanna.
Komið hefur þó fram að Svíarnir
hallast að Keilisnesi en Hollend-
ingarnir séu frekar tvístígandi
hver af þeim þremur stöðum sem
nefndir hafa verið komi helst til
greina.
Á ríkisstjórnarfundinum var
lögð fram bráðabirgðaskýrsla
sænsks ráðgjafarverkfræðings á
'kostnaðarhagkvæmni þeirra
þriggja staða sem til greina eru
taldir koma fyrir nýtt álver. Þar
kemur fram að kostnaðarmunur
er mun minni milli staða en hald-
ið hefur verið fram hingað til, er
rennir frekari stoðum undir það
að Reyðarfjörður sé enn fyllilega
inni í myndinni. -rk/Sóf
HELGARRUNTURINN
sem gengi í gegnum alla mynd-
ina. Auk þess er ekki mikið talað,
heldur skiptir tónlistin miklu
máli. Hana samdi Valgeir Guð-
jónsson.
Krakkarnir úr Grænuborg sátu
hugfangnir allan tímann og or-
guðu oft úr hlátri. Þegar forsýn-
ingu lauk gengu þau að því virtist
hæstánægð út úr húsi og sungu
hástöfum: „Allt í plati“
BE
Laugardagur 1. september 1990 ÞJÓÐVILJINN - SfÐA 3
HAFIÐ, BLÓM og EKKI ER ALLT SEM SÝNIST voru viðfangsefni
listasmiðjunnar Gagns og gamans fyrir börn í Gerðubergi í sumar.
Þessa dagana stendur yfir sýning í Menningarmiðstöðinni Breiðholti á
afrakstri smiðjunnar. í dag milli kl. 13 og 16 verður leiðsögn um
sýninguna, og kynnir starfsmaður listasmiðjunnar aðferðir hennar og
markmið.
FÉLAG ELDRI BORGARA í Reykiavík opnar aftur Goðheima við
Sigtún 3 á morgun kl. 14. Verðurtekio í spil og spjallað fram á kvöld, en
þá hefst dansleikur kl. 20. Árbæjarsafn er með fjölbreytta dagskrá um
helgina. Á morgun kl. 14 leikur Hafliði Jónsson vinsæla stríðsáratón-
list á píanó í Dillonshúsi milli kl. 14.30 og 16 í tilefni sýningar safnsins
„Og svo kom blessað stríðið". Margt verður fleira fróðlegt og
skemmtilegt að gerast á safninu, og býðst gestum að fylgjast með fólki
að störfum við tóvinnu og grautarlummubakstur.
TEXTÍLLISTAKONUR opna sýningu á verkum sínum í Hafnarborg í
dag kl. 15. Konurnar átta sýna máluð og þrykkt myndverk, nytjalist og
fleira. Á kaffistofunni í Hafnarborg opnar Anna Leós einnig sýningu í
dag. Anna tileinkar sýninguna látinni vinkonu sinni, Lóu, sem var mikil
baráttukona fyrir alheimsfriði. í menningar- og listamiðstöð Hafnar-
fjarðar verður fleira á boðstólnum þessa helgi því að á morgun hefst
þar tónleikaröð sem safnið stendur að í samvinnu við Tríó Reykja-
víkur. Tónleikarnir hefjast kl. 20 og verður, m.a. frumfluttursvonefnd-
ur Hafnarborgarkvartett eftir Þorkel Sigurbjörnsson.
CAPUT nefnir sig hópur ungra tónlistarmanna, sem alls ekki er kapútt,
heldur merkilegur mjög. Hópurinn heldur fyrstu tónleikana af fernum,
sem fyrirhugaðir eru á næstunni, í dag kl. 16 á Litla sviði Borgarleik-
hússins. A dagskrá tónleikanna verður frumflutningur tónverka
Finns Torfa Stefánssonar á íslandi.
NORRÆNA HÚSIÐ verður iðandi af listum og fróðleik um helgina. í
dag kl. 16 verða staddir í húsinu níu finnskir rithöfundar. Jarkko
Laine formaður finnska rithöfundasambandsins segir frá starfsemi
þess, og nokkrir rithöfundanna munu lesa úr verkum sínum. Dagskrá
Finnanna fer fram á finnsku og sænsku og verður túlkur til aðstoðar
skyldu tungumálaerfiðleikar gera vart við sig. Á morgun verður opnuð í
anddyri hússins sýningin Barn vatns og vinda, grafíkmyndir Kaljo
Pollu frá Eistlandi. I tengslum við sýninguna verður sýnt myndband
þar sem myndum Pollus, Ijóðum landa hans Jaan Kaplinski og tónlist
er fléttað saman. Tónskáldið Eduard Tubin hefur samið sónötu fyrir
píanó með myndir Pollus í huga og er það leikið af Vardo Rumessen.
NÝLISTASAFNIÐ varð þess heiðurs aðnjótandi á dögunum að fá
Jack Lang menningarmálaráðherra Frakka í heimsókn. Af því tilefni
var sett upp sýning á verkum í eigu safnsins. Verkin eru glæný og
gömul eftir erlenda og innlenda listamenn. Sýningu þessa gefst
mönnum kostur á að sjá í dag og á morgun milli kl. 14 og 18.