Þjóðviljinn - 16.11.1990, Page 6

Þjóðviljinn - 16.11.1990, Page 6
í tveimur flokkum f einu Glistrup stofnar Vellíðanarflokk og leitar samstarfs við annan „ óvenjulegan “ stjórnmálamann, sem gagnstœtt honum er vinstra megin Mogens Glistrup, stofnandi hins danska Framfara- flokkss og kunnastur forustu- manna hans, er ekki af baki dottinn í því að valda óvæntum uppákomum í stjórnmálum lands síns. Nú hefur hann stofn- að nýjan stjórnmálaflokk og er þó áfram í Framfaraflokknum og meira að segja í forustu hans. Ókyrrð heíúr lengi verið í Framfaraflokknum vegna ágrein- ings milli þeirra, sem vilja að flokkurinn tileinki sér að nokkru hefðbundinn stíl gömlu flokkanna og hinna sem telja rétt að hann haldi fast við þann svip sem Glistrup gaf honum í upphafi, þ.e.a.s. að vera „öðruvísi“, kjaft- for og ósvífmn í málflutningi. Hér er fyrst og ffemst deilt um ytri svip og stíl, en lítt um málefni. Danskur húmor Fyrir þeim „hófsömu“ í Fram- faraflokknum er Pia Kjærsgaard, núverandi formaður flokksins. Fyrir hinum arminum er sem vænta mátti Glistrup sjálfur og hafa deilumar stundum snúist upp í persónuleg einvígi þeirra Piu. Glistrup sakar andstæðinga sína í flokknum um að hafa brugðist hugsjónum hans og beitt óbilgimi þá flokksmenn, sem ekki vilji dansa eftir þeirra línu. Honum finnst líka að Pia og hennar fylgismenn, sem nú ráða mestu i fíokksforustunni, séu allt- of samvinnuþýð við núverandi rikisstjóm hægri- og miðflokka. Glistmp er Dani í húð og hár og hefur í deilu þessari sem fyrr sýnt að hann hefúr i vöggugjöf fengið sinn deilda verð af ekta dönskum húmor. Nýi flokkurinn hans, sem hann stofnaði í mót- mælaskyni við stefnu Piu og hennar manna, kallar hann Triv- selsparti. A íslensku myndi það vera Vellíðanarflokkurinn. Hærri eftirlaun, músl- fma burt Stefnuskrá flokksins nýja er sumpart í glistrupsstíl, en öðmm þræði er á henni velferðarsvipur. Þar stendur að flokkurinn muni beita sér fyrir skattalækkun, hækkun eftirlauna og að innflytj- endum frá þriðja heiminum, sér- staklega múslímum, verði vísað úr landi. Velferðarþátturinn (hækkun eftirlauna) í stefnuskránni er kannski öðrum þræði tilkominn af því, að Glistmp stefnir að sam- starfi við annan nokkuð sérstakan mann í dönskum stjómmálum, sem gagnstætt Glistmp er vinstra megin í þeim. En áður hefúr kom- ið fram að þeir tveir eiga nokkuð gott með að skilja hvor annan. Vinstriforingi þessi er Preben Möller Hansen, lengi leiðtogi samtaka sjómanna og áður í danska kommúnistaflokknum. Hann er nú leiðtogi flokks, sem hann stofnaði og nefnist Fælles Kurs. Sá flokkur hefúr ásamt með öðm haldið því firam að stjóm- völd séu alltof eftirlát við útlend- inga frá þriðja heiminum sem setjast vilja að í Danmörku. Báðir frelsisflokkar „Hófsami“ armur Framfara- flokksins brást við tilkomu Vel- líðanarflokksins með því að reka Glistrap úr þingflokknum. En sú samþykkt fékkst með naumum meirihluta og þrír þingmenn gengu úr þingflokknum Glistmp til samlætis. Og hann er eftir sem áður í miðstjóm Framfaraflokks- ins og úr henni er ekki hægt að víkja honum nema á flokksþingi, kvöddu saman sérstaklega til að taka samþykktir flokksins til end- urskoðunar. Glistmp hefur ekki formlega tilkynnt sig sem félaga í Vellíðan- arflokknum, sennilega til að gera sig ekki alltof beran að pólitískri tvöfeldni. En jafnframt segir hann, eins og honum er líkt, að ekkert ætti að þurfa vera því til fyrirstöðu að menn væm í bæði Framfaraflokki og Vellíðanar- flokki samtímis. Þessir flokkar séu ekki óvinir, „þeir em báðir ffelsisflokkar og svo sannarlega ætti maður að mega vera í tveim- Glistrup - hversvegna skyldi maður ekki mega vera (tveimur flokkum samtlmis ef báðir em góðir? ur ffelsisflokkum samtímis“. Fellir þetta Schlíiter? Eijumar í Framfaraflokknum era síður en svo einkamál hans, því að þeim hefur fylgt að stjóm íhaldsmannsins Pouls Schltiter getur ekki lengur reitt sig á stuðn- ing Framfaraflokksins í vissum málum. Sá stuðningur er mikil- vægur fyrir stjómina, sem aðeins hefúr ömgglega á bakvið sig 67 þingmenn af 179. I staðinn varð Schliiter að leita til jafnaðar- manna, stærsta stjómarandstöðu- flokksins, um stuðning við að koma fjárlögum næsta árs og ráð- stöftmum til aðlögunar Evrópu- bandalaginu í heild sinni i gegn- um þingið. En viðræður um það fóm út um þúfúr er stjómin hafn- aði kröfúm jafnaðarmanna um kjarabætur handa lægstlaunuðum og hærri skatta á efnafólki. Búast nú sumir við nýjum þingkosning- um í desember, þótt ólíklegt sé talið að þær breyttu miklu um Umhverfiseyðing í fomöld Aþeningar hjuggu upp skóga sína í her- skip og með skemmtanalífi sínu útrýmdu Rómverjar heilum villidýrastofnum í mörgum löndum Umhverfið og meðferð mann- kynsins á því em sem alkunna er eitt af málum málanna nú á dög- um og yflrleitt er á þetta litið sem vandamál síðustu tíma fyrst og ffernst. En svo er ekki; þegar í fomöld höfðu vitrir menn sárar áhyggjur af jarðvegs- og skógar- eyðingu, loftmengun, útrýmingu vissra dýrategunda o.s.frv. Og ekki að ástæðulausu. Um þetta fjallar þýskur sagn- fræðingur að nafni Karl- Wilhelm Weber í nýútkominni bók, sem á frummálinu heitir Smog iiber Attika. Hann tekur þar m.a. AÐUTAN Grikki hina fomu fyrir og ber þeim sérstaklega á brýn gegndar- lausa rányrkju á skógum lands síns. Aþeningar, sem vom menn- ingarmenn mestir með Fom- Grikkjum, voru einnig afkasta: mestir þeirra í náttúraspjöllum. I skip Aþeninga, sem á blómatíð sinni vom flotaveldi mest við Miðjarðarhaf, bæði til hemaðar og verslunar, þurfti fim af timbri og að því skapi gekk á skógana. í Pelopsskagastríðið, sem stóð í 27 ár, þurfti gífur- Iegan fjölda her- skipa, enda var Attíka, uppland Dagur Þorleifsson Sjóorrusta Grikkja og Persa við Salamis 480 f.Kr. - sjóhemaðurinn var frekur á skógana. Aþenuborgar, því sem næst skóg- laus orðin er því loksins lauk. Rómverjar hinir fomu vom þó enn verri í þessum efnum. Skemmtanimar á hringleiksvið- um þeirra, þar sem villidýmm var att saman og á skylmingamenn, gengu stórlega á vissa dýrastofna og útrýmdu sumum alveg. Pompejus þrístjóri, samtímamað- ur og keppinautur Sesars, lét á einum leikum aðeins drepa 20 fíla, 600 ljón og 410 hlébarða. Á einni af sigurhátíðum Trajanusar keisara vom 11.000 villidýr drep- in. Með þessu vom Rómveijar um aldamótin 300 búnir að út- rýma vatnahestum í Neðra-Eg- yptalandi, Ijónum í Þessalíu og fílum í Líbýu. Og lýsingar á loft- mengun í Róm á fyrstu öld okkar tímatals em þannig að ekki er laust við að minni á Mexíkóborg nútímans. Platon heimspekingur og ljöl- fræðingurinn Pliníus eldri vom meðal þeirra, sem hörmuðu mengun og lunhverfisskemmdir og vömðu við afleiðingum þessa fyrir mannkynið. En fáir hlustuðu áþá. 6 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 16. nóvember 1990

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.