Þjóðviljinn - 16.11.1990, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 16.11.1990, Qupperneq 8
níii Þióoviljinn Úigefandl: Úigáfufélag Þjóðviljans Framkvœmdastjóri: Hallur PáJl Jónsson Rltstjórar Ámi Bergmann, Óiafur H. Torfason Helgi Guðmundsson Umsjónarmenn Holgarblaðs: ólafur Gfslason og Sævar Auglýsingastjóri: Stein Afgrelðala:« 68 13 33 Auglýslngadetld:« $8 Slmfax: 68 19 35 Verð: 150 krónur I lausa ar Harðarson 1310-6813 s«u 31 . Guðbjðmsson. Fréttasfjóri: Siguröur Á. Friðjjjófsson Setnlng og umbrot: Pn Prentun: Oddi hf. mismiðja Þjóf Sviljans hf. Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis Herlaust land Sumum kann að finnast að nú sé komið að leið- arlokum hjá þeim samtökum sem andæft hafa gegn herstöðvum og hernaðarhyggju hér á landi í áratugi, heimurinn sé nú svo breyttur að upphaf- legu hlutverki herstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli sé lokið, húsráðendur á vellinum muni innan tíðar taka sitt hafurtask og fara, samtökin séu því verk- efnalaus og réttast að leggja þau niður. Því miður bendir flest til að þessu sé ekki svo varið. Utanríkisráðherra hefur lýst þeim skilningi sínum að samningur við Bandaríkin skipti meira máli nú en áður, og haft ereftir heimildum í Banda- ríkjunum að engin breyting sé fyrirhuguð af þeirra hálfu, af öllum herstöðvum Bandaríkjamanna er- lendis muni þeir síðast fara frá íslandi. Þar á ofan tala NATOsinnar um nýtt hlutverk bandalagsins í breyttum heimi, samkvæmt því á það að gegna veigameira pólitísku hlutverki en áður. Vissulega er nauðsynlegt fyrir friðarsinna og herstöðvaandstæðinga að velta fyrir sér nýjum leiðum í Ijósi gjörbreyttra aðstæðna. Enda þótt her- stöðvaandstæðingar hafi aldrei fallist á þau rök að herstöðin á Keflavíkurflugvelli eða vera Islands í Atlantshafsbandalaginu væri framlag til friðar, þá blasir hitt þó við, óvinurinn sem berjast átti gegn er úr sögunni og um alla Evrópu verður nú tekið upp blandað hagkerfi með fjöiflokka lýðræði. Það er því ekkert annað en forstokkuð íhaldssemi af Islend- ingum að halda dauðahaldi í hugmyndir um áfram- haldandi dvöl Bandaríkjahers á (slandi. I Ijósi þess að valdamiklir aðilar hér á landi, með Sjálfstæðisflokkinn í broddi fylkingar, virðast ekki átta sig á að breytingarnar umhverfis okkur hljóti að hafa áhrif hér á landi er nauðsynlegt að friðarsinnar og herstöðvaandstæðingar haldi sinni vöku. Enn steðjar gríðarleg hætta að íslenskum auð- lindum með ferðum kjarnorkuknúinna kafbáta um- hverfis landið, við þurfum ekki einu sinni að hugsa þá hugsun til enda hvaða áhrif það hefði á markaði fyrir íslenskan fisk ef svo mikið sem fréttist af kjarn- orkuslysi á því hafsvæði sem við viljum enn halda fram að sé hið hreinasta í veröldinni. Hreinn sjór stendur því beinlínis undir íslensku þjóðlífi. Það er auðvitað fagnaðarefni að afvopnun á höfunum verður til umræðu fyrir forgöngu íslenskra stjórn- valda, en almenningur í landinu má ekki láta eins og honum komi málið ekki við, það þarf samtök og samstöðu til að halda því vakandi, skapa umræður og skilning jafnt þjóðarinnar allrar sem stjórnmála- manna á nauðsyn þess að höfin verði friðuð. (s- lendingar eru í mörgum skilningi gæslumenn auð- lindarinnar sem í hafinu felst, þeir ákveða sjálfir hvernig hún verður nýtt þannig að hún eyðileggist ekki, og þeir verða að hafa forgöngu um að verja hana slysum. Friðarsinnar hljóta að beita sér fyrir því að frið- ur sé tryggður eins og kostur er með alþjóðlegum samningum. Eftirlit með ferðum hertóla umhverfis landið ætti því að verða á grundvelli alþjóðlegra samninga, en ekki á vegum NATO eða samkvæmt samningi við Bandaríkjamenn. Andóf gegn veru Islands í NATO og dvöl Bandaríkjahers á íslandi hefur staðið í áratugi með mismunandi miklum krafti. Allan þennan tíma hef- ur þjóðin skipst í tvær fylkingar, þar sem vinstri sinnar hafa í aðalatriðum verið í annarri, en hægri menn í hinni. Nú ætti að vera skilyrði til mikilla breytinga, og af því tilefni er vert að minna á þá staðreynd að þúsundir íslendinga sættu sig á sín- um tíma við það að herinn yrði hér svo lengi sem ekki gætu talist friðartímar. Frá stríðslokum hefur ekki verið betra útlit fyrir varanlegan frið í okkar heimshluta en nú. Allsstaðar er stefnt að minnkun vígvæðingar, rússneskir herir eru á förum frá Aust- ur- Evrópu, Varsjárbandalagið er að liðast í sundur og NATO ætti að fara sömu leið, hvarvetna er af- vopnun til umræðu. Öllum þessum breytingum hljóta hérlendir friðarsinnar að fagna og halda áfram baráttunni fýrir herlausu landi. hágé. 0-ALIT 8 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 16. nóvember 1990

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.