Þjóðviljinn - 16.11.1990, Side 9

Þjóðviljinn - 16.11.1990, Side 9
Almennt nám þarf aó miöa aó því aó gena nemendur læsa í víötækum skilningi þannig aö þeir geti tileinkaó sér upp- lýsingar og unnið með þær. Sérhæft nám miöar aftur aö því aö búa nemendur undir ákveöna starfsgrein eöa frekara nám í háskóla eöa sérskóia. Árið 1988 samþykkti Alþingi ný lög um framhaldsskóla og síðastliðið vor voru gefnar út reglugerðir við þessi lög. Segja má að þeir sem starfa við framhaldsskól- ann hafi beðið eftir lögunum og reglugerð- um við þau með nokkurri óþreyju. Meðal nýjunga i lögunum er að nú heyrir rekstur framhaldsskólans alfarið undir ríkið, þ.e. menntamálaráðuneytið ber ábyrgð á rekstri hans. Verkefni ráðuneytis- ins og skólanna á næstu árum verður að framfylgja þessum lögum og koma á þeim breytingum sem þau gera ráð fyrir. I 2. grein laganna segir að hlutverk framhaldsskólans sé „að búa nemendur undir líf og starf í lýðræðissamfélagi með því að skapa skilyrði til náms og þroska við í framhaldsskólanum. Staða listgreina hef- ur hingað til verið ffernur bágborin í skól- unum. Leggja þarf áherslu á að nemendur eigi kost á annars vegar að leggja stund á listiðkun í skólanum og hins vegar að þar fari fram umfjöllun um listir. Nemendum gefist tækifæri til að upplifa og njóta lista. 4. Leggja þarf mikla vinnu í námskrár- gerð. Námskrá framhaldsskóla verður að vera í stöðugri endurskoðun. I henni skal skýrt kveðið á um hlutverk ffamhaldsskól- ans, markmið einstakra brauta skilgreind, svo og áfangamarkmið námsgreina. Nám- skráin er unnin í samstarfi við skólastjóm- endur, kennara og fagfélög þeirra og þáttur starfsmenntunar í náinni samvinnu við að- ila atvinnulífsins. á tilteknum sviðum skólastarfsins. Búast má við að aukin ábyrgð á faglegu starfi innan þess ramma sem markaður er í nám- skrá skili sér í betri árangri í skólastarfi. Skólar þurfa því að hafa sjálfstæði til að skipuleggja starf sitt í samræmi við að- stæður á hveijum stað og hveijum tíma. Breytingar á ffamhaldsskólakerfinu taka langan tíma vegna þess að það er þungt í vöfum og flókið. Þróunarstarf í skólum þarf því að skipuleggja vel. Það þarf að vera vel afmarkað og skilgreint í upphafi bæði hvað varðar viðfangsefni og þátttakendur. Jafnffamt er nauðsynlegt að niðurstöður þróunarstarfs í einum skóla skili sér til annarra skóla svo eðileg heild- arþróun eigi sér stað. haldsskólanna nýtist fólki á öllum aldri og þeir breytist í alhliða menntastofhanir sem fólk á greiðan aðgang að. Með því móti verða skólamir tengdari umhverfi sínu og öðrum sviðum þjóðfélagsins. I lögum um ffamhaldsskóla ffá 1988 segir svo í 36. grein: „Heimilt er ffam- haldsskólum að ...efha til endurmenntunar- náms, m.a. i samráði við faggreinafélög, stéttarfélög, atvinnurekendur eða aðra hagsmuna- eða áhugahópa“. I samræmi við þessa lagagrein hafa nokkrir ffamhalds- skólar, aðallega úti á landsbyggðinni, stofnað til svo nefndra farskóla. Hér er um að ræða skipulegt námskeiðahald fyrir full- orðna af ýmsum toga þar sem leitast er við að svara þörfum á viðkomandi svæði. Þessi allra hæfi...“ og „að búa nemendur undir störf í atvinnulífinu..." og einnig „...að búa nemendur undir nám í sérskólum og á há- skólastigi". Samkvæmt framansögðu hlýtur það að vera hlutverk ffamhaldsskólans að bjóða fram nám sem hæfir þeim stóra og marg- breytilega hópi nemenda sem mun sækja þangað nám á næstu árum. Hér er um að ræða almennt nám og sérhæft. Almennt nám þarf að miða að því að gera nemendur læsa i víðtækum skilningi þannig að þeir geti tileinkað sér upplýsingar og unnið með þær. Sérhæft nám miðar aftur að því að búa nemendur undir ákveðna starfsgrein eða frekara nám í háskóla eða sérskóla. Breytingar til bóta Til þess að koma á þeim breytingum sem lögin gera ráð fyrir þurfa menntamála- ráðuneytið og skólamir að leggja áherslu á eftirtalin atriði: 1. Fjölbreytni í námi aukin til þess að ná því markmiði að ffamhaldsskólinn verði í raun fyrir alla. Allir nemendur eigi völ á ljölbreyttu bóklegu og verklegu námi við hæfi. Leggja þarf áherslu á að þær náms- brautir sem í boði eru séu eftirsóknarverðar að mati nemenda sjálfra. Námsbrautir verði mislangar og tengist helstu sviðum atvinnu- og menningarlífs á hveijum tíma. Allir nemendur skulu eiga kost á náms- og starfsráðgjöf. 2. Samstarf skóla og atvinnulífs eflt. Leggja þarf áherslu á að verklegt nám og starfsþjálfun verði eðlilegur hluti náms á sem flestum starfsmiðuðum brautum. Þannig verður námið raunhæfara fyrir nemendur og í takt við þá þróun sem á sér stað í atvinnulífinu og sú mikla kennslu- geta sem atvinnulífið býr yfir nýtist. A þennan hátt berast nýjungar í atvinnulífinu einnig betur inn í skólana. 3. Efla listiðkun og umfjöllun um listir 5. Efla verður framboð á náms- og kennslugögnum. Skortur er á námsefhi í ýmsum greinum er mikið vandamál i fram- haldsskólanum. Kortleggja þarf þörfina fyrir námsefni og raða útgáfumálum í for- gangsröð. Koma þarf á kennslufræðilegri og faglegri ráðgjöf til námsefhishöfunda. Æskilegt væri að stofha námsefhissjóð fyr- ir framhaldsskólann er veitti styrk til náms- efnishöfunda. Brýnt er að koma á fót þjónustumið- stöð fyrir framhaldsskólann. Verkefni hennar yrði að kynna allt námsefni sem á boðstólum er handa framhaldsskólum, standa fyrir þróunarstarfi og nýjungum, veita ráðgjöf um námsefnisgerð o.fl. 6. Halda áfram uppbyggingu á húsnæði fJamhaldsskólanna. Skólamir em í dag mjög misvel settir hvað varðar húsnæði. 1 sumum skólum er aðstaða vel viðunandi, vinnuaðstaða kennara þokkaleg, mötuneyti bæði fyrir nemendur og kennara og aðstaða til félagsstarfa nemenda fyrir hendi. I öðr- um skólum er aðstöðunni hins vegar mjög ábótavant. Þeir em ýmist ekki fullbyggðir eða húsnæðið er gamalt og úr sér gengið. Viðhaldi er ábótavant í flestum skólum. Gera þarf heildaráætlun um byggingu skólahúsnæðis fyrir framhaldsskólann í samræmi við þá námskipan sem ákveðin verður á hveijum stað og koma henni í framkvæmd svo skjótt og unnt er. Frumkvæði skóla, sérhæfing og verkaskipting Eitt af því sem huga verður sérstaklega að á næstu árum er aukin verkaskipting á milli skóla og sérhæfmg. Sjálfstæði skóla verður að auka, bæði faglegt og fjárhags- legt. Skapa verður þeim aðstæður til að sýna meira frumkvæði hvað varðar þróun í einstökum greinum og greinaflokkum eða Stefna ber að því að flestir framhalds- skólanna bjóði fram bæði bóklegt og verk- legt nám, en námsframboð einstakra skóla hlýtur þó alltaf að ráðast af aðstæðum og nemendafjölda. Því verður ekki hjá því komist að auka verulega verkaskiptingu á milli skóla frá því sem nú er, einkum á fá- mennum námsbrautum og i mjög sérhæfðu námi. Þetta verður að gera til þess að tryggja gæði námsins og stuðla að hagræð- ingu í rekstri. Áfangakerfið sem flestir framhaldsskólar starfa eftir ætti að gefa mikla möguleika til að ná þessu marki. Til þess að framhaldsskólar hafi mögu- leika til þess að sýna frumkvæði í verki þurfa þeir að hafa töluvert svigrúm innan ramma námskrár. Slíkt svigrúm nýtist þó ekki nema skólamir hafi frumkvæði til þess að víkja frá hefðbundnum kennslu- háttum og frelsi til að ráðstafa fjármunum í samræmi við þarfir. 1 framhaldsskólanum em mjög margar brautir og sumar þeirra em það fámennar að ekki er unnt að starfrækja þær til loka nema á fáum stöðum. Hins vegar býður áfangakerfið upp á þann möguleika að margir fámennir skólar geta séð um kennslu í töluverðum hluta þeirra náms- greina sem kenndar em á þessum brautum. Á þennan hátt geta nemendur stundað lengur nám á heimaslóðum. Mikilvægt er að þessum nemendum verði síðan tiyggð skólavist í stærri skólum til að ljúka námi. Hlutur framhalds- skóla til fulloröinsfræöslu Framhaldsskólamir hafa til margra ára gegnt mikilvægu hlutverki í fullorðins- fræðslu. Hér er aðallega um að ræða rekst- ur svonefndra öldungadeilda þar sem hefð- bundið nám skólans er boðið fram í kvöld- skóla. Mikilvægt er að námsframboð fram- námskeið býður skólinn fram að eigin frumkvæði eða í samráði og samvinnu við fyrirtæki eða félagasamtök. Námskeiðin geta farið fram á mismunandi stöðum eftir því sem tilefni gefst til. Mjög margir aðilar bjóða nú þegar fram fullorðinsfræðslu og endurmenntun og er það af hinu góða. Skólinn verður því að gæta þess að hafa nána samvinnu við aðra fræðsluaðila um þessa starfsemi. I framtíðinni ætti eftirmenntun á veg- um framhaldsskólans að miðast að veru- legu leyti við óskir atvinnulífsins. Skólinn þarf því að hafa góða samvinnu við aðila vinnumarkaðarins um almenna fullorðins- fræðslu og eftirmenntun, hvað varðar námsframboð, kostnaðarskiptingu o.fl. Lokaorö Ef vel tekst til um framkvæmd þeirra atriða sem minnst er á hér að framan era miklar líkur til þess að lögin um firamhalds- skólann frá 1988 komist f raun i fram- kvæmd. Flestir nemendur ættu þá að finna nám við sitt hæfi og koma út úr framhalds- skólanum sáttir við skólann og veru sína þar, hvort sem þeir fara út á vinnumarkað- inn eða í framhaldsnám. Eins og málum er háttað í dag hverfa of margir nemendur ftá námi í framhaldsskólum og halda út í lífið með litið veganesti. Kari Kristjánsson deildarsérfræðingur framhaldsskóladeild menntamála- ráðuneytisins Föstudagur 16. nóvember 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.