Þjóðviljinn - 04.01.1991, Blaðsíða 1
Föstudagur 4. janúar 1991 — 2. tölublað 56. árgangur
Félag heyrnarlausra
Snýst um mannréttindi
Beiðni um textun á áramótaskaupi hafnað í útvarpsráði. Sigurlín M. Sigurðardóttir: Heyrnarlausir þurfa á
umboðsmanni að halda
Um síðustu áramót bauðst
Félag heyrnarlausra til þess
að borga textun á áramóta-
skaupi Sjónvarpsins. Boði
þeirra var hafnað á þeim for-
sendum að beiðni þeirra um
textun hefði borist of seint, að
sögn Hauks Vilhjáimssonar
formanns félagsins.
í október síðastliðnum sendi
Sigurlín M. Sigurðardóttir, fé-
lagsmálafulltrúi Félags heymar-
lausra, beiðni til útvarpsstjóra um
að setja texta á áramótaskaup.
Þessari beiðni var haíhað skýr-
ingalaust.
Inga Jóna Þórðardóttir, for-
maður útvarpsráðs, sagði að
ákveðið hefði verið að ekki væri
hægt að gera áramótaskaupið að
sérmáli, heldur þyrfti að setja al-
mennar reglur sem giltu um text-
un innlends dagskrárefnis. Innt
eflir því hvort verið væri að vinna
Leikhús
Dagurvonar
í víking
Dagur vonar sýndur í
Bandarikjunum, Dan-
mörku og Noregi
Leikrit Birgis Sigurðssonar,
Dagur vonar, verður frumsýnt í
Los Angeles Theater Center í
Kaliforníu 30. maí nk. Þetta er
fyrsta íslenska leikritið sem sett
er upp í stóru og virtu leikhúsi í
Bandaríkjunum, en leikhúsið er
eitt virtasta leikhús vestan hafs
og í forystu þeirrar endurreisn-
ar sem nú á sér stað í leikhúslífl
Kaliforníu.
Dagur vonar var leiklesinn á
leiklistarhátíð þessa sama leikhúss
fyrir tveimur árum og var það eina
nýja erlenda verkið á hátíðinni, öll
hin voru bandarísk. Þetta mun líka
vera í fyrsta sinn sem norrænt nú-
tímaleikrit verður sýnt í þessu leik-
húsi.
En Dagur vonar verður færður
á íjalimar víðar á þessu ári. 11.
janúar verður leikritið frumsýnt i
leikhúsinu í Alaborg, sem margir
telja besta leikhús Dana um þessar
mundir. Stefán Baldursson leik-
stýrir verkinu þar, leikmynd er eft-
ir Messíönu Tómasdóttur og tón-
list eftir Gunnar Reyni Sveinsson.
Leikritið verður síðan sýnt í Kon-
unglega leikhúsinu í Kaupmanna-
höfn 25. janúar. Hinn þekkti
sænski leikari og Ieikstjóri Göran
Stangertz leikstýrir verkinu í
Kaupmannahöfn.
A næsta leikári verður leikritið
svo sýnt í Det norske teater í Osló
og síðan í Rogalandsleikhúsinu i
Stavanger. Þá verður Dagur vonar
leiklesinn í New York innan
skamms.
-Sáf
að slíkum reglum svaraði Inga
Jóna því til, að skrifað hefði verið
til menntamálaráðuneytis og fé-
lagsmálaráðuneytis þar sem leit-
að var svara við því hvemig Rík-
isútvarpið gæti aukið þjónustu
við heymarlausa.
Þegar málið var tekið fyrir í
útvarpsráði vom tveir fúlltrúar
fylgjandi því, að orðið yrði við
beiðni Félags heymarlausra; þær
Magdalena Schram fúlltrúi
Kvennalistans og Asta R. Jóhann-
esdóttir fúlltrúi Framsóknar-
flokksins. Fimm fulltrúar greiddu
atkvæði gegn beiðni félagsins.
Að sögn Sigurlínar M. Sig-
urðardóttur em heymarskertir og
heymarlausir ein-
angraðir í þjóðfélag-
inu vegna þess að
þeir geta ekki fylgst
með innlendu dag-
skrárefni og fféttum.
Samkvæmt tölum frá
Heymar- og tal-
meinastöð Islands
em heymarlausir og
heymarskertir á sjö-
unda þúsund talsins á
landinu. Sagði Sigur-
lín að tvöhundmð
manns væm heymarlausir og
tjáðu sig á táknmáli, aðrir væm
gamlir og heymarskertir sem geta
illa fylgst með töluðu máli í sjón-
varpi.
Eina þjónustan við heymar-
lausa hjá Ríkissjónvarpinu er
fimm mínútna fféttaþáttur á tákn-
máli, þar sem ekki kemur fram
nema lítill hluti þeirra upplýsinga
sem koma ffam í aðalfréttatíma.
Fréttir á táknmáli hafa tíðkast
með sama sniði í tíu ár, og aðstoð-
armanni táknmálsfréttaflytjend-
anna er enn borgað kaup af Félagi
heymarlausra. Fréttaþulur hafa í
alllangan tíma þegið sömu þókn-
un fyrir lesturinn.
Þau Sigur-
lín og Haukur
vom sammála
um að tregða
yflrvalda Sjón-
varpsins til að
texta innlent
efni byggðist
fyrst og ffemst
á fordómum.
Textar á
lendu dagskrárefni væm ekki
fremur lýti á því en á erlendum
kvikmyndum og sjónvarpsefni.
Þau sögðu einnig að brýnt
væri að fá lengri og ítarlegri þætti
um innlend mál og menningu sem
væm í umsjón heymarlausra ef sá
hópur ætti ekki að missa tengsl
við íslenska menningu.
Inga Jóna sagði að hugsanlegt
væri að nýta laugardagsmorgna
til þess að sýna efni fyrir heymar-
lausa. Einnig hefði komið til tals
að endursýna innlent efni fljót-
lega og texta það þá. Á Norður-
löndunum hefði textað efúi fyrir
heymarlausa alltaf verið sýnt utan
aðaldagskrártímans. Auk þess
gerði fólk sér ekki grein fyrir því,
að ekki væri ódýrara
að texta innlent efni en
erlent. Kostnaður af
þessari textun kæmi
því óhjákvæmilega
niður á öðmm liðum. Formaður
útvarpsráðs sagði ennfremur að
eindregin tilmæli hefðu komið ffá
Sjónvarpinu um að hafna beiðni
heymarlausra um að fá textun á
áramótaskaupið.
Sigurlín hjá Félagi heymar-
lausra sagði að málið hefði hvað
eftir annað verið tekið upp í út-
varpsráði og engu líkara væri en
það væri orðið pólitískt. Hún
sagði fúlla þörf á því að heymar-
lausir fengju umboðsmann til að
tala máli þeirra á alþingi. Málinu
ætlar félagið að fylgja eftir.
Heymarlausum er jafnmikilvægt
og öðmm að fylgjast með menn-
ingu þjóðar sinnar, sagði Sigurlín
að lokum. BE
ínn-
Haukur Vilhjálmsson formaður Félags heyrnarlausra og Sigurlln M. Sigurðardóttirfélagsmálafulltrúi félagsins. Mynd: Jim Smart.
Fljótsdalsheiði
Giftusamleg björgun sex ungmenna
Björgunarsveitarmenn frá Egilsstöðum björguðu sex ungmennum af Fljótsdalsheiði
ífyrrinótt
að fór vel um okkur allan
tímann sem við vorum í
jeppunum þó svo að það hafí
trúlega ekki farið eins vel um
ættingja okkar á meðan á leit-
inni stóð. Við höfðum nóg að
bíta og brenna, hlustuðum á út-
varpið en talstöðin klikkaði ein-
hverra hluta vegna svo við gát-
um ekki látið vita af okkur,“
sagði Linda Rós Guðmunds-
dóttír tuttugu og sex ára og ein
af sexmenningunum sem björg-
unarsveitarmenn frá Egilsstöð-
um björguðu af Fljótsdalsheiði í
fyrrinótt.
Hópurinn, sem taldi tvær kon-
ur og fjóra karla á aldrinum 17-26
ára, hélt upp á áramótin í Snæ-
fellsbúðum en um hádegi á nýárs-
dag hélt hópurinn svo af stað til
byggða. Linda sagði að seinnipart
dags hefði farið að snjóa og
skömmu síðar skollið á glórulaust
veður. Nokkru áður hafði annar
jeppinn bilað og því sóttist þeim
ferðin seint. Eftir að óveðrið skall
á var ekki um annað að ræða en
að láta fyrirberast í jeppunum og
voru þau fjögur í öðrum þeirra og
tvö í hinum.
Linda sagði að veðurhamur-
inn hefði verið slíkur að ekki
hefði einu sinni verið hægt að fara
út að pissa, hvað þá annað. Hún
sagði að þessi dvöl á Fljótsdals-
heiðinni mundi þó ekki aftra
henni né öðrum úr hópnum frá
því að halda á ný upp til fjalla,
enda hafi þau verið vel útbúin.
Jafnframt hcfði það aldrei komið
til greina af þeirra hálfu að yfir-
gefa jeppana til að freista þess að
komast leiðar sinnar gangandi.
Þess í stað skriðu þau í svefnpoka
sína og létu sér líða eins vel og
hægt var, þó svo að jeppamir
rugguðu eilítið í verstu hviðun-
um.
-grh