Þjóðviljinn - 04.01.1991, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 04.01.1991, Blaðsíða 14
VIÐ BENDUM A DAGSKRA UTVARPS OG SJONVARPS Andrea með Nýjasta nýtt Rás 2 kl. 19.32 Andrea Jónsdóttir, sem er les- endum Þjóðviljans að góðu kunn, hefur umsjón með þættinum Nýj- asta nýtt, sem hefst strax að aflokn- um kvöldfréttum. I þættinum eru leiknar nýjar plötur, stuðst er við bandariska og breska vinsældalista og lagið í 100. sætinu ekki síður leikið en lagið i efsta sætinu. Frjáls- leg yfirreið að hætti Andreu og áð í ýmsum poppgeirum. Morðmál að hætti Derricks Sjónvarpið kl. 21.20 Starfsstúlka á ljósmyndastofu fremur sjálfsmorð og fyrrum við- skiptavinur hennar finnst skotinn til bana. Derrick tekur að sér mál- ið og að venju kemst hann að sannleikanum í málinu. Það er Horst Tappert sem fer með hlut- verk hins geðþekka Derricks. Samsæri gegn Græn- friðungum Sjónvarpið kl. 22.2S Rainbow Warrior-samsærið nefnist Nýsjálensk sjónvarps- mynd í tveimur hlutum sem sýnd verður i kvöld og annað kvöld. Myndin fjallar um það þegar flaggskipi Grænfriðunga var sökkt í höfninni i Auckland á Nýja-Sjálandi í júlí 1985. Franska leyniþjónustan reyndist ekki með hreinan skjöld í málinu. Leikstjóri Chris Thomson. Aðalhlutverk Brad Davis og Jack Thompson. Aftökusveitin Stöð 2 kl. 23.10 Myndin Aftökusveitin (Firing Squad) gerist í seinni heimsstyrj- öldinni. Kapteinn sem brást félög- um sínum í bardaga þarf að sanna sig. Honum er fengið það verkefni að skipa sveit til að taka af lífi samheija sinn. Nokkrum klukku- stundum fyrir aftökuna kemst hann að því að hann á að drepa saklausan mann. Myndin er byggð á metsölubók Colins McDougall. Aðalhlutverk Steph- en Quimette, Robin Renucci og Cedric Smith. Leikstjóri Michael Macmillian. SJONVARPIÐ 17.50 Litli víkingurinn (13) Teikni- myndaflokkur um víkinginn Vikka. Leikraddir Aðalsteinn Bergdal. 18.20 Lína langsokkur (7) Sænsk- ur framhaidsmyndaflokkur. 18.50 Táknmálsfréttir. 18.55 Gömlu brýnin (4) Breskur gamanmyndaflokkur. 19.20 Dave Thomas bregður á leik (1) Bandaríski spéfuglinn Dave Thomas og gestir hans leika á als oddi. 19.50 Hökki hundurTeiknimynd. 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Myndbandaannáll I þættin- um verður valið besta islenska tónlistarmyndband ársins 1990. 21.20 Derrick (7) Þýskur sakamála- þáttur. 22.25 Rainbow Warrior-samsærið Fyrri hluti. Nýsjálensk sjónvarps- mynd. I júlí 1985 var flaggskipi Grænfriðunga sökkt í höfninni í Auckland á Nýja- Sjálandi, en franska leyniþjónustan þótti ekki hafa hreinan skjöld í því máli. Seinni hluti myndarinnar er á dag- skrá annaö kvöld. 00.00 Útvarpsfréttir i dagskráriok. STÖÐ2 16.45 Nágrannar Ástralskur fram- haldsþáttur. 17.30 Túni og Tella Teiknimynd. 17.35 Skófólkið Teiknimynd. 17.40 Ungir afreksmenn I þessum fyrsta þætti kynnumst við Hjördísi Onnu Haraldsdóttur. Hún er heyrnarlaus og stundar nám i myndlistarskóla og jassballett. 17.55 Lafði lokkaprúð Teiknimynd með islensku tali. 18.10 Trýni og Gosi Teiknimynd um hund og kött sem kemur ekki allt- af sem best saman. 18.30 íþróttaannáll ársins Endur- tekinn þáttur frá 31. des. sl. 19.19 19.19 Fréttaþáttur. 20.15 Kæri Jón Bandarískur gam- anmyndaflokkur um fráskilinn mann. 20.40 Skondnlr skúrkar Breskur gamanþáttur um tvo svikahrappa. 21.30 Skot f myrkri Clouseau er mættur hér i gamanmynd um þennan seinheppna lögreglufor- ingja. Þaö er Peter Sellers sem fer með hlutverk þessa hrakfalla- bálks, en að þessu sinni rannsak- ar hann morð á þjóni sem finnst myrtur f herbergi þjónustustúlk- unnar. Aðalhlutverk Peter Sellers. 23.10 Aftökusveitin Myndin gerist i seinni heimsstyrjöldinni og segir hún frá John Adam sem er kaf- teinn sem þarf að sanna sig sök- um þess að í bardaga brást hann félögum sínum. Myndin er byggð á metsölubók Colin McDougall. Aðalhlutverk Stephen Ouimette. Stranglega bönnuð börnum 00.40 Ærsladraugurinn 3 f þessari þriðju mynd um ærsladrauginn flytur unga stúlkan, sem er búið að vera að hrella I fyrri myndum, til frænda síns, en allt kemur fyrir ekki, draugurinn gefst ekki upp. Aöalhlutverk: Heather O'Rourke, Tom Skerritt. Stanglega bönnuð börnum. 02.15 Dagskrárlok. Rás 1 FM 92,4/93,5 Morgunútvarp kl. 6.45-9.00 6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Geir Waage fiytur. 7.00 Fréttir. 7.03 Morgunþáttur Rásar 1 Fjölþætt tónlistarútvarp og málefni líðandi stundar. - Soffía Karlsdóttir og Una Margrét Jónsdóttir. 7.45 Listróf - Þorgeir Ólafsson. 8.00 Fréttir og Morgunaukinn kl. 8.10. Veðurfregnir kl. 8.15 og pistill El- ísabetar Jökulsdóttur eftir barna- tíma kl. 8.45. 8.32 Segðu mér sögu „Freyja“ eftir Kristínu Finn- bogadóttur frá Hítardal. Ragn- heiður Steindórsdóttir les (3). Ardegisútvarp kl. 9.00-12.00 9.00 Fréttir. 9.03 Laufskálinn Létt tónlist með morgunkaffinu og gestur lítur inn. Umsjón: Sigrún Björnsdóttir og Már Magnússon. Árni Elfar er við píanóið og kvæðamenn koma I heimsókn. 10.00 Fréttir. 10.03 Við leik og störf Fjölskyldan og samfélagið. Umsjón: Páll Heiðar Jónsson. Leikfimi með Halldóru Björnsdótt- ur eftir fréttir kl. 10.00, veðurfregn- ir kl. 10.10, þjónustu- og neyt- endamál og viðskipta- og atvinnu- mál. 11.00 Fréttir. 11.0 Árdegis- tónar * Fiðlukonsert númer 1 T g- moll eftir Max Bruch. Nigel Kennedy leikur með Ensku kammersveitinni; Jeffrey Tate stjórnar. * „Mainly Black“ eftir Duke Ellington. Nigel Kennedy leikur á fiðlu og Alec Dankworth á kontrabassa. * „East St. Louis Toodle-oo“ eftir Duke Ellington. Duke Ellington og hljómsveit leika. (Einnig útvarpaö að loknum fréttum á miðnætti á sunnudag). 11.53 Dagbókin. Hádeglsútvarp kl. 12.00-13.30 12.00 Fréttayfirtit á hádegi. 12.20 Hádeglsfréttir. 12.45 Veður- fregnir. 12.48 Auölindin. Sjávarút- vegs- og viðskiptamál. 12.55 Dánarfregnir. Auglýsingar. 13.05 I dagsins önn - Inflúensa Umsjón: Steinunn Harðardóttir. (Einnig út- varpað I næturútvarpi kl. 3.00). Miödegisútvarp kl. 13.30-16.00 13.30 Homsófinn Frásagnir, hug- myndir, tónlist. Umsjón: Friðrika Benónýsdóttir, Hanna G. Sigurð- ardóttir og Ævar Kjartansson. 14.00 Fréttir. 14.03 Utvarpssag- an: „I garðinum", eftir vesturís- lenska rithöfundinn Bill Holm Böðvar Guðmundsson les eigin þýðingu. 14.30 Píanósónata núm- er 15 í D-dúr ópus 28 eftir Ludwig Beethoven. Wilhelm Kepff leikur. 15.00 Fréttir. 15.03 Meðal ann- arra orða. Umsjón Jórunn Sigurð- ardóttir. Síödegisútvarp kl. 16.00-18.00 16.00 Fréttir. 16.05 Völuskrín Kristfn Helgadóttir les ævintýri og barna- sögur. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Á förnum vegi Um Vestfirði I fylgd Finnboga Hermannssonar. 16.40 Hvundagsrispa. 17.00 Fréttir. 17.03 Vita skaltu Ari Trausti Guð- mundsson, lllugi Jökulsson og Ragnheiður Gyða Jónsdóttir afla fróöleiks um allt sem nöfnum tjáir að nefna, fletta upp I fræðslu- og furðuritum og leita til sérfróðra manna. 17.30 Tónlist á síðdegi eftir Wolfgang Amadeus Mozart * Kvartett I F-dúr. Gregor Zubicky leikur á óbó, Terje Tönnesen á fiðlu, Lars Anders Tomter á víólu og Truls Otterberg Mörk á selló. * Konsert fyrir hom og strengi I D- dúr. Hermann Baumann leikur á horn með St. Paul Kammersveit- inni; Pinchas Zukerman stjómar. Fréttaútvarp 18.00-20.00 18.00 Fréttir. 18.03 Þingmál (Einnig útvarpað laugardag kl. 10.25) 18.18 Að utan (Einnig útvarpað eftir fréttir kl. 2.07) 18.30 Auglýs- ingar. Dánarfregnir. 18.45 Veður- fergnir. Auglýsingar. 19.00 Kvöld- fréttir. 19.35 Kviksjá. Tónlistarútvarp kl. 20.00-22.00 20.00 I tónleikasal Frá tónleikum á 15. þjóðlagahátlö Kölnarútvarps- ins, þar sem fram koma þjóðlaga- sveitir vfðs vegar úr heiminum. Að þessu sinni: * Pierre Crepillon og Laurent Bigot frá Frakklandi, * Black Fööss sveitin frá Þýska- landi, * Ladysmith Black Mambazo, frá Suður-Afrlku og * Duduki tríóið frá Sovét-Grúslu. 21.00 Sungið og dansað I 60 ár Svavar Gests rekur sögu Islenskr- ar dægurtónlistar. (Endurtekinn þáttur frá 30. desember). Kvöldútvarp kl. 22.00-01.00 22.00 Fréttir. 22.07 Að utan. (Endur- tekinn frá 18.18) 22.15 Veöur- fregnir. 22.20 Orð kvöldsins. Dag- skrá morgundagsins. 22.30 Ur síödegisútvarpi liðinnar viku. 23.00 Kvöldgestir Þáttur Jónasar Jónassonar. 24.00 Fréttir. 00.10 Sveiflur. 01.10 Næturútvarp á báðum rásum til morguns. 01.00 Veðurfregnir. RÁS 2 FM 90.1 7.03 Morgunútvarpið - Vaknað til lífsins. Leifur Hauksson fær til liðs við sig þekktan einstakling úr þjóðlífinu tjl aö hefja daginn með hlustendum. Upplýsingar um um- ferð kl. 7.30 og litið I blööin kl. 7.55. 8.00 Morgunfréttir. 9.03 Níu fjögur Dagskrá Rásar 2, fjölbreytt dægurtónlist og hlustendaþjón- usta. Umsjón: Jóhanna Harðar- dóttir og Magnús R. Einarsson. 11.30 Þarfaþing. 12.00 Fréttayfir- lit og veður. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 N(u fjögur Dagskrá Rásar 2 heldur áfram. 14.10 Gettu bet- url Spurningakeppni Rásar 2 með veglegum verðlaunum. Um- sjónarmenn: Guðrún Gunnars- dóttir, Eva Ásrún Albertsdóttir og Gyða Dröfn Tryggvadóttir. 16.03 Dagskrá Starfsmenn dægurmála- útvarpsins og fréttaritarar heima og erlendis rekja stór og smá mál dagsins. Föstudagspistill Þráins Bertelssonar. 18.03 Þjóðarsálin - Þjóðfundur I beinni útsendingu slmi 91-686090. Umsjón: Arthúr Björgvin Bollason. 19.00 Kvöld- fréttir. 19.32 Nýjasta nýtt Umsjón Andrea Jónsdóttir. (Einnig útvarp- að aðfaranótt sunnudags kl. 02.00). 20.30 Gullskífan frá 8. áratugnum. 21.00 Á djasstón- leikum Kynnir: Vernharður Lin- net. 22.07 Nætursól - Herdls Hallvarðsdóttir. (Þátturinn verður endurfluttur aðfaranótt mánudags kl. 01.00) 01.00 Næturútvarp á báðum rásum til morguns. ÚTVARP RÓT FM 106,8 EFFEMM FM 95,7 BYLGJAN FM 98,9 STJARNAN FM 102,2 AÐALSTÖÐIN FM 90,9 ALFA FM 102,9 Peter Sellers er hér (slnu þekktasta gervi sem lögregluforinginn Clous- eau í myndinni Skot f myrkri, sem er á dagskrá Stöðvar 2 kl. 21.30. 14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 4. janúar 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.