Þjóðviljinn - 04.01.1991, Blaðsíða 16
[jMÓÐVIUINN
Föstudagur 4. janúar 1991 2. tölublaö 56. árgangur
..... ...
• ■' "■ ■ < „
. . : .
■ SPURNINGIN ■
Óttastu að til styrjaldir komi
við Persaflóa?
Sigurður Gunnarsson
verkamaður:
Nei, ég vona að ekki verði stríð.
Helgi E. Guðbrandsson
skrifstofumaður:
Já, maður óttast það en vonar
það besta.
Inga Lára Þórisdóttir
íþróttakennari:
Já, ég held að það séu miklar
líkur á stríði nú þegar fólk er
hvatt til að flytjast á brott af
svæðinu.
Þótt reykingafólk á Landsspltalanum þyki heldur kuldalegt að norpa úti undir húsvegg, hafa engin alvarleg mótmæli við reykingabanninu boristslðan
það gekk I gildi um áramótin. Mynd: Jim Smart
Fáar undanþágubeiðnir
A Igert reykingabann, bæði
" fyrir sjúklinga og starfs-
fólk, gekk í garð á Landspítal-
anum nú um áramótin. Reyk-
ingabann þetta hefur verið í
undirbúningi í um þriggja
mánaða skeið og var til þess
skipuð skipulagsnefnd af hálfu
stjórnar spítalans. Nokkrar
mótmælaraddir af hálfu starfs-
fólks hafa komið fram vegna
bannsins og gengið hafa undir-
skriftalistar meðal þess til að
mótmæla framkvæmdinni.
Bergdís Kristjándóttir, hjúkr-
unarframkvæmdastjóri á hand-
lækningadeildum, sagði að enn
sem komið væri virtist fram-
kvæmd reykingabannsins ætla að
fara vel af stað, að minnsta kosti á
handlækningadeildunum, og ekki
yrði vart við mótþróa gagnvart
því, hvorki af hálfu sjúklinga né
starfsfólks.
- Ég hef ekki heyrt neinar
kvartanir vegna þessa og í gær
bárust engar beiðnir um undan-
þágur. Þrjár slíkar beiðnir bárust
hins vegar í fyrradag. Slíkar und-
anþágur eru veittar ef það er talið
nauðsynlegt.
Það gengu einhveijir undir-
skriftalistar meðal starfsfólks til
að mótmæla þessu en ekkert af
þeim hefúr enn borist hjúkrunar-
stjóm eða stjómamefndar Ríkis-
spítalanna, en það er hún sem tók
ákvörðun um að þetta sjúkrahús
skyldi verða reyklaust og því ættu
slíkir listar að berast þangað.
A spítalanum vom fáein her-
bergi sem notuð vom til reykinga
og það er búið að læsa einu þeirra
og úti á kvennadeild er búið að
fjarlægja öskubakka og sameina
herbergið setustofúnni.
Aftur á móti er undirbúningur
að þessu búinn að standa í þrjá
mánuði þótt einhverjum finnist
það kannski of stuttur tími og
starfsfólki hefúr verið boðið upp
á námskeið til að hætta að reykja
þannig að þetta skellur ekki á bara
svona einn tveir og þrír.
Ámi Bjömsson skurðlæknir
er einn þeirra lækna sem gáfú
samþykki sitt fyrir banninu:
- Við rekum hér heilbrigðis-
stofnun og þar sem það eina sem
við raunvemlega vitum um reyk-
ingar er að þær em heilsuspill-
andi, er ekki rökrétt að þær séu
leyfðar innan stofnunarinnar.
Ekki frekar en drykkja; það má
ekki heldur neyta áfengra drykkja
innan spítalans og það finnst eng-
um mótmælavert.
Ekki náðist í Þorstein Blön-
dal, formann samstarfsnefndar-
innar um skipulagningu reyk-
ingabannsins, en haft var eftir
honum að hann vildi ekki tjá sig
um bannið fyrr en komin væri
tveggja til þriggja vikna reynsla á
það. Þó gæti hann ekki betur séð
en að þetta ætlaði að ganga vel og
átakalaust fyrir sig.
Heldur illa gekk að ná tali af
einhveijum þeirra starfsmanna
spítalans sem em á móti banninu
og virtist sem fólk vildi ekki
ganga fram fyrir skjöldu hvað
þetta varðaði og sjúklingar sem
yrt var á neituðu alfarið að tjá sig
um málið. Nokkrir, bæði starfs-
fólk og sjúklingar, tautuðu ofan í
bringu sér á göngum spítalans að
þetta væri út í hött, - þegar fólk
væri veikt væri allt of mikið álag
á það að banna því að reykja. Ein-
staka sjúkling mátti sjá stelast til
að fá sér smók bak við lokaðar
dyr og annars staðar þar sem lítið
bar á. Loks fannst þó einn skel-
eggur málsvari syndaranna.
Vilhelmína Norðfjörð Ósk-
arsdóttir, starfsmaður ræstimið-
stöðvar Landspítalans, er harður
andstæðingur reykingabannsins
og sagði þetta stórhættulegt.
- Það getur farið mjög illa
með fólk að banna því alfarið að
reykja innan spítalans, - tauga-
kerfi þess getur farið úr skorðum
og slíkt getur komið mjög illa
niður á sjúklingum.
Það hættir enginn að reykja
þótt honum sé bannað það ef hann
vill það ekki sjálfúr, og því verð-
ur þetta bara til þess að fólk ann-
að hvort norpar úti undir vegg,
eða reykir í laumi í hinum og
þessum skotum hússins og það
eykur að sjálfsögðu eldhættu i
spítalanum. Svo er þetta bara
hreinlega ekki sanngjamt, sagði
Vilhelmína.
ing
Elías Magnússon
starfsmaður VR:
Ég gæti ímyndað mér að til
styrjaldar kæmi. Saddam tekur
engum sönsum.
RAFRÚN H.F.
Smíðjuvegi 11 E
Alhliða
rafverkta kaþjónu sta
Sími641012
Hátíðahöldin um jólin
fóru á flestum stöðum
friðsamlega fram.
Ástandið í Miðaustur-
löndum setti þó
ákveðinn skugga á
hátíðarnar...