Þjóðviljinn - 29.06.1991, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 29.06.1991, Blaðsíða 5
FIÉTTER A Umsjón: Dagur Þorleifsson Vopnahlé í Slóveníu - liðhlaup úr sambandsher Stjórnir Júgóslavíu og Slóveníu tilkynntu síðdegis í gær að þær hefðu komist að samkomulagi um vopnahlé milli hersveita sinna og gengi það í gildi klukkan 21.00 að greenwichmeðal- tíma. Skðmmu áður höfðu Slóvenar haidið því fram að mikið væri um liðhlaup úr her júgósiavnesku sambandsstjórnarinnar. íbúar þorps nálægt landamær- um Austurríkis sögðu fréttamönn- tim í gær að um 400 sambandsher- menn í herstöð þar skammt frá, margir þeirra Slóvenar, Albanir, Króatar og Makedónar, hefðu hlaupist undan merkjum og gengið í lið með slóvenska þjóðvarðarlið- inu. Ante Markovic, forsætisráð- herra Júgóslavíu, tilkynnti snemma í gær að her stjómar hans hefði náð þeim árangri með aðgerðum sínum sem hann hefði ætlað sér og hefði því látið af árásum. En bar- dagar héldu eigi að síður áfram ffam undir kvöld og var þá ekki vitað með vissu hvort þeim hefði að fullu verið hætt. Átökin i þessu stríði júgóslav- neska sambandslýðveldisins og Slóvenru, sem hófst á fimmtudags- morgun með árás sambandshers- ins, hafa verið hörð og þjóðvarðar- lið Slóvena varist snarplega. í því eru að sögn um 40.000 manns, en það er miklu verr vopnum búið en her sambandsstjómar. Vitað var í gær að um 20 menn að minnsta kosti höfðu verið drepnir, margir þeirra óbreyttir borgarar. Sambandsstjómarher virðist hafa lagt mesta áherslu á að ná á vald sitt landamærastöðvum til að einangra lýðveldið frá umheimin- um og mun í gær hafa verið búinn að taka margar þeirra. Að sögn ungversks herforingja höfðu Sló- venar þó hrandið áhlaupi hersins á eina slíka stöð við landamæri Ung- veijalands. Janez Jansa, vamarmálaráð- herra Slóveníu, sagði að Slóvenar hefðu eyðilagt 19 herfarartæki, þ.á m. skriðdreka, við bæinn Me- dvedie skammt frá landamæram Króatíu. Stríðsþotur sambandshers skutu á lest vörabíla við Trebnje suður af höfuðborginni Ljubljana og köstuðu á þá sprengjum. Fórast þar sjö menn, að sögn sjónarvotta. Einnig létu nokkrir óbreyttir borg- arar lífið er flugvélar slrátu á bíla nálægt varðstöð á austurrísku landamærunum. Austurríska stjómin segir júgó- slavneska flugherinn hafa rofið loflhelgi landsins og kveðst ætla að mótmæla. Júgóslavneski flugherinn réðist ennfremur á tvo flugvelli með skothrið og sprengjukasti, eyði- lagði flugskýli, fleiri byggingar og tvær litlar flugvélar. Brennd flök skriðdreka, fólks- og vörubíla era víða á vegum lýðveldisins, að sögn fréttamanna og annarra. ,Jler annars rikis er að hertaka Slóvenskir lögreglumenn á verði ( Loiblskarði við landamæri Austurrikis. Landamærastöðvar Slóveníu urðu öðrum stöðum fremur fyrir árásum júgóslav- neska hersins. slóvenska rikið,“ sagði Milan Kuc- an, Slóveníuforseti í gær. Evrópubandalagið hefur sent utanrikisráðherra þriggja af aðild- am'kjum sínum, Hollands, Italíu og Lúxemborgar, til Júgóslavíu þeirra erinda að reyna að koma á samn- ingaviðræðum. Sumsstaðar í Evr- ópu gætir samúðar með Slóvenum, ekki síst í ítölskum grannhéraðum Slóveniu. Einnig var í gær að heyra á Helmut Kohl, sambands- kanslara Þýskalands, að hann væri óhress með aðgerðir júgóslavneska hersins. „Það er ekki hægt að sætta sig við að í Evrópu okkar daga sé fólk skotið niður, og að sjálfsákvörðun- arréttur skuli ekki lengur hafa gildi," sagði kanslarinn. Israelar yfirbuguðu mannræningja Walesa með Danutu konu sinni heima hjá þeim í Gdansk, eftir að hann hafði verið kjörinn forseti - segist kvíða fyrir „pólskum ríkisdegi." Walesa tapar fyrir þingi Fjóram ísraelskum ferðamönn- um, sem kasmírskir skæralið- ar námu á brott í fyrradag frá hóteli við Dalvatn í Himalajafjöll- um, tókst skömmu síðar að yfir- buga mannræningjana og komast undan, og vora þrír þeirra þó særð- ir. Einn félagi þeirra var drepinn í viðureigninni við skæraliðana og HANDBRAGÐ MEISTARANS Bakarí Brauðbergs Ávallt nýbökuð brauð “heilnæm og ódýr- Aðrir útsölustaðir: U agkaup-Skeifimni -Kringlunni -Hólagarði Verslunin Vogar, Kópavogi. Brauðberg léuitólnr 2 6 siœi 71539 Hnmnberg 4 sfaoi 77272 af þeim síðamefndu féllu og særð- ust nokkrir. Alls tóku mannræningjamir með sér ffá hótelinu átta erlenda ferðamenn, sex ísraelska karlmenn og tvær konur, hollenska og ísra- elska. Konunum slepptu þeir fljót- lega. Israelsku karlmennina fóra þeir með á báti til kofa nokkurs við vatnið, sögðu við þá að þar sem þeir væra Israelar yrðu þeir að deyja, bundu hendur þeirra_ og stilltu þeim upp við vegg. En ísra- elunum tókst að losa af sér böndin, ná vopnum af skæraliðunum og komast undan, að undanskildum einum, sem féll í viðureigninni, og öðram sem varð viðskila við fé- laga sína og var handtekinn af öðr- um skæraliðum, er heyra til sam- tökum andstæðum hinum. Var hann enn í gær fangi þeirra. Islamskir skæraliðar hafa bar- ist fyrir skilnaði Kasmírs við Ind- land síðan í ársbyijun 1990. Mikið er jafnan um ísraelska ferðamenn í Indlandi, ekki síst unga menn sem nýleystir hafa verið úr herþjónustu. írakar heiðraðir fyrir hugrekki Hussein Kamel Hassan, vam- armálaráðherra íraks, sæmdi í gær heiðursmerkjum 350 hermenn, sem hann sagði hafa auðsýnt hug- rekki í vörninni gegn „30 þjóða og síonistaárásinni“ eins og Irakar kalla Persaflóastriðið. riggja vikna reiptogi pólska þingsins og forseta landsins, Lec.h Walesa, lauk í gær með ósigri forsetans er þingið hafnaði tillögum hans um kosningareglur i þriðja sinn. Era þessi úrslit talin áfall nokkurt fyrir Walesa. Hann á nú vart annars úrkosta en að undirrita framvarp þingsins að kosningalögum, sem hann er sáróánægður með, enda þótt þingið hafi komið talsvert til móts við hann með því að breyta upphafleg- um tillögum sínum um þetta. Pólland er nú eina Áustur- Evr- ópuríkið, sem ekki hefur fullkom- lega lýðræðislega kjörið þing. 65 af hundraði núverandi þingmanna era fyrrverandi fulltrúar kommún- istaflokksins, sem útnefndir vora á þingið. Þeir snerast gegn tillögum Walesa um kosningareglur og fengu til þess liðveislu Lýðræðis- sambandsins, en í því era fyrrver- andi baráttufélagar Walesa er nú hafa gerst andstæðingar hans. Walesa er sérlega óánægður með að samkvæmt framvarpi þingsins geta menn kosið einstaka ffambjóðendur á listum, án þess að kjósa listana í heild sinni, en það segir hann að leiða muni til þess að þingið verði álíka samstætt og „pólski ríkisdagurinn" fyrr á öld- um, þar sem hver þingmaður hafði neitunarvald. Comecon og Varsjárbanaa- lag lögð niður Comecon, efnahagsbanda- lag Sovétrikjanna, Búlgariu, Tékkóslóvakíu, Ungverja- lands, Póllands, Rúmeníu, Kúbu, Mongólíu og Víetnams var lagt niður formlega á fundi viðskipta- og efnahagsmála- ráðherra ríkjanna í Búdapest í gær. Hefur það lengi staðið til, enda bandalagið orðið litið annað en nafnið. Viðskipti milli aðildarríkja þess hafa undanfarið skroppið mjög saman, efnahag þeirra til vera- legs hnekkis. Varsjárbandalagið, her- málabandalag Sovétríkjanna og Austur- Evrópuríkja, verður lagt niður formlega á mánudag á fundi í Prag. Herskipulag bandalagsins hefur þegar verið leyst upp. Þriðju göngin undir Erma- sund Breskir og franskir vinnu- flokkar náðu í gær saman í þriðja sinn undir Ermarsundi og er fyrirhugað að jámbraut verði lögð eftir þeim göngum. Áður höfðu vinnuflokkamir náð saman í tvennum göngum, öðrum einnig ætluðum fyrir jámbraut en hinum fyrir þjón- ustu. Síða 5 ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 29. júní 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.