Þjóðviljinn - 29.06.1991, Síða 7

Þjóðviljinn - 29.06.1991, Síða 7
Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra er á beininu Við höfum engu fómað, en allt að vinna Samningur EFTA-ríkjanna og Evrópubandalagsins hefur verið mikið í kastljósi fjölmiðia að undanfornu, enda ekki að undra þar sem hér er um að ræða yfirgripsmesta og jafnframt afdrifa- ríkasta miiliríkjasamning sem ísland hefur átt aðild að. Ekki eru all- ir þó á eitt sáttir um þau samningsdrög sem fyrir virðast liggja eftir fund ráðherra samningsaðila í Lúxemburg á dögunum. Stórsigur fyrír íslendinga segir forsætisráðherra, en aðrir telja of miklu fórn- að með því að hleypa flota EB-landanna inn fyrír íslenska fískveiði- lögsðgu. Það er því ekki að ófyrirsynju að Jón Baldvin Hannibalsson, ut- anríkisráðherra, er á beininu í dag og svarar fyrir ávinninga í mál- inu og meintar misgjörðir íslenskra ráðamanna. Er ekki nær sanni að kalla það samkomulag sem tókst i Lúxem- burg á dögunum Pyrrosarsigur fremur en stórsigur þegar þess er gætt að við neyddumst til að gefa eftir og veita EB-flotanum tak- markaðan aðgang að fiskimiðum okkar? - Nei, þetta var ekki Pyrrosar- sigur og þetta var engin eftirgjöf frá yfirlýstri stefnu. Spumingin er sú hvort við Lúxemburgarsam- komulagið verður staðið. Verði það ekki, þá má segja að við höf- um orðið fyrir áfalli. Það sem gerðist í Lúxemburg var þetta: Eftir að hvorki hafði gengið né rekið í samningaviðræð- unum á annað ár hvað sjávarút- vegsmálin varðar, sögðu talsmenn EB loksins að með tillögu Norð- manna lægi samningshugmynd um pólitíska lausn málsins á borðinu. Þær gætu verið samkomulags- grundvöllur þótt þær kölluðu á sér- fræðilega skoðun. EFTA hefúr alla tíð krafist toll- fijáls aðgangs að mörkuðum EB fyrir sjávarafúrðir og synjað al- gjörlega körfúm, EB um einhliða veiðiheimildir. Á móti hefur EB krafist veiðiheimilda gegn tolla- lækkunum eða afriámi tolla. Á þessu hafði engin breyting orðið í hálft annað ár. Ef samningsniðurstaðan verður sú sem þama var á borðum, þá má kalla það sigur út frá íslensku sjón- armiði. Þar með hefði EB fallið frá grundvallarstefnu sinni í fiskveiði- málunum sem er krafan um veiði- heimildir gegn aðgangi að mörk- uðum. Gangi þetta samningstilboð eftir náum við samningsmarkmið- um okkar. Þau hafa alla tíð verið tollftjáls aðgangur, engar einhliða veiðíheimildir. Það er rétt hjá for- sætisráðherra, haldi þetta sam- komulag þá er það sigur sem bæði íslendingar, Norðmenn og sjávar- útvegsþjóðir sem eiga í samskipt- um við EB mega vel við una. Þú nefhdir spuminguna um skipti á veiðiheimildum. Það mál er hundgamalt. Það á rót sína að rekja til ákvæðis í fríverslunar- samningi Islendinga allt frá árinu 1972. Sá samningur varð virkur að loknum sigri í þorskastríðinu 1977. Þar er kveðið á um að samningsað- ilar muni halda viðræðum áfram, og bakvið það var sú hugsun að við gerðum með okkur samstarfs- samning um sjávarútvegsmál. Allar ríkisstjómir á íslandi frá 1976 hafa gert atrennur að því að ná svona samningi. Seinast var það 1981 í tíð ríkisstjómar Gunnars Thoroddsens. Þá lágu fyrir samn- ingsdrög sem slitnaði upp úr á seinustu stundu. í tíð síðustu ríkis- stjómar var enn reynt að höggva á þennan hnút í samskiptum okkar við EB með því að Halldór Ás- grímsson fór í formlega vinnu- heimsókn til sjávarútvegsdeildar bandalagsins. Þar lýsti hann því yfir að íslensk stjómvöld höfnuðu algjörlega kröfú EB um einhliða veiðiheimildir. Hann tilkynnti þeim hins vegar að við værum til- búnir til þess að ræða gagnkvæmar veiðiheimildir og markaðsaðgang. Svör EB-manna vom engin við þessu. Þegar þessu var svo fylgt eflir vom svör embættismanna banda- lagsins þau að þeir teldu þýðingar- laust að ræða nánar við Islendinga um tvíhliða samning um veiði- heimildir nema því aðeins að við samþykktum fyrirfram kröfú þeirra um veiðiheimildir. Þannig að þegar EB lætur loks- ins undan síga í þessu máli skömmu fyrir Lúxemburgarfúnd- inn, með þvi að óska eftir tvíhliða viðræðum við fjögur strandríki EFTA, þá em það þeir en ekki við sem vom að breyta um stefnu. Hin hliðin á þessu máli er sú að íslendingar hafa á annan áratug verið að reyna að ná samningum við Grænlendinga varðandi nýt- ingu á sameiginlegum fiskistofn- um. Við höfúm slíkan samning um loðnuna og við höfúm reynt að fá slíka samninga um rækju, þorsk og karfa. Það sem gerðist í Lúxemburg er einfaldlega það að gegn því að fá jafúgildar veiðiheimildir á loðnu fynr ísland í grænlenskri landhelgi bjóðum við EB sem svarar 2600 tonna þorskígildum, eða 3000 tonnum í karfaígildum af vannýtt- um tegundum sem yrðu að tveimur þriðju hlutum langhali og einum þriðja karfi. Þetta samsvarar afla tveggja góðra vertíðarbáta. Við lát- um ekkert af hendi annað en það sem við fáum í staðinn. Eru þetta ekki harla rýr býti þegar þess er gætt að EB hefur á undanjomum árum ekki getað nýtt þann loðnukvóta sem það hefur innan grœnlenskrar lögsögu? - Nei, þetta eru aldeilis ágæt býti út ffá okkar eigin hagsmun- um. Ef þetta dygði til að bjarga andliti EB og í staðinn næðum við ffam öllum okkar megin markmið- um í sjávarútvegsmálum, þá er leitun að hagstæðari samningi sem við höfúm gert. Jón Baldvin Hannibalsson, utanrfkisráöherra, segir mikiö til aö vinna fyrir Islendinga að samningar um sameiginlegt efnahagssvæði takist. Mynd: Þorfinnur. En hver er vinningsvon okkar í reynd afþessum samningum? - Það að sleppa við tolla er engan veginn stærsta málið þótt það muni um 20 miljörðum á ára- tug fyrir sjávarútveginn, heldur hitt að við verðum þá búnir að brjóta á bak aftur tollamúr EB, sem er mið- aður við það að hvetja til innflutn- ings á hráefni, gera veiðiþjóðimar að hráefnisútflytjendum og tryggja niðurgreiddri og ríkisstyrktri fisk- vinnslu EB hráefni með þeim hætti. Tollffelsi fyrir unnar fiskafúrð- ir gerbreytir allri starfsaðstöðu ís- lensks sjávarútvegs og fiskvinnslu og skapar okkur í fyrsta sinn að- stöðu til að byggja hér upp tækni- væddan og þróaðan matvælaiðnað. Ef menn vilja endilega staldra við þetta með veiðiheimildimar og segja þetta er samt sem áður opnun á landhelginni, þá em tvö fordæmi fyrir því að við höfúm hleypt er- lendum fiskiskipum inn i íslenska lögsögu, einhliða og án þess að fá nokkuð í staðinn. Þar á ég við veiðiheimildir Færeyinga og Belga. Það sem við semjum nú um í gagnkvæmum veiðiheimildum við EB er að mati sjávarútvegsins sjálfs eitthvað sem við höfúm ver- ið að sækjast eftir á annan áratug. Magnið er afar lítið. Við höfum ekkert „prinsipp“ brotið og við höfúm engu fómað til. Hins vegar telja sjávarútvegs- þjóðir EB að bandalagið hafi sam- ið af sér og kollvarpað sjálfum homsteini fiskveiðistefnunnar, og á því strandar nú i samningavið- ræðunum. Það hefur verið eftir þér haft að Evrópubandalagsþjóðirnar verði sjálfar að höggva á þann Gordíonshnút sem upp er kominn i samningaviðræðum EFTA og EB. Er ekki allt eins hugsanlegt að samningamenn EB hugsi sem svo, að fýrst Islendingar hafi gefið eftir, hvort ekki sé þá hœgt að knýja þá til frekari eftirgjafar? - Mitt mat er það að þeir hafa gert það upp við sig i eitt skipti fyrir öll eftir að hafa hlustað á ræð- ur okkar hundrað sinnum yfir samningaboðið að það sé vonlaust mál að koma tauti við þessa Is- lendinga. Enda hafa þeir ekki rætt við okkur eitt einasta orð um aukn- ar veiðiheimildir. Þeir hafa einbeitt sér að Norðmönnum þar sem þeir hafa haldið að þeir vildu allt til vinna til að ná samningi, jafnvel opna fiskveiðilögsöguna með ein- hliða veiðiheimildum. Þú ert þá ekki á því, að þá snurðu sem hlaupin er á þráðinn megi skýra með því fomkveðna að mikið vilji meira? - Að sjálfsögðu er nú svo að menn munu reyna allt ffam á sein- ustu stund að fá eitthvað meira í sinn hlut. Þeir mega vita það, og þeir vita það hvað varðar íslend- inga að við höfum sagt okkar sein- asta orð. Einn af þeim fyrirvömm í samningaviðræðum sem Islending- ar hafa gert lýtur að ffjálsum fjár- magnsflutningum og hlutabréfa- kaupum útlendinga í íslenskum at- vinnufyrirtækj um. Spánverjar og jafnvel fleiri hafa að því er virst hefur sýnt tals- verðan áhuga á að kaupa sig inn i íslensk sjávarútvegsfyrirtœki. Er tryggt að frá þessum fyrirvara verði ekki hvikað? - Já, frá honum verður ekki hvikað. Bæði íslendingar og Norð- menn gerðu sín tilboð með skilyrð- um. Gegn heimild til hlutafjár- kaupa og fijálsum fjármagnsfiutn- ingum viljum við fá tollfijálsan markaðsaðgang og við emm með skriflega fyrirvara að því er varðar fjárfestingarheimild í veiðum og ffumvinnslu. Rök okkar em þessi: Upphaflega gerði EFTA kröfú til þess að fá fríverslun með fisk al- veg eins og við komum á innan EFTA. í þvi felst ekki bara toll- ftjáls aðgangur að markaði, heldur einnig samræmdar samkeppnis- reglur, s.s. afnám á ríkisstyrkjum og niðurgreiðslum. Þessu hafnaði samninganefnd EB í nóvember 1990, með þeim rökum að hún hefði ekki samningsumboð til þess að falla ffá forsendum hinnar sam- eiginlegu fiskveiðistefúu, sem er styrkjastefna en ekki fríverslunar- stefúa. Þar með hafa þeir sjálfir hafúað samræmdum samkeppnis- reglum. Ur því að ekki eru samræmdar samkeppnisreglur, þá fylgir enginn fjárfestingarréttur. Þeir hafa því sjálfir grafið undan öllum kröfum og rökum fyrir rétti til ljárfestinga á þessu sviði. Víkjum að öðru. Er ekki sýnt að útgjöld ríkissjóðs koma til með að aukast í kjölfar þátttöku Islands í Evrópska ejhahagssvœðinu og skýtur það ekki skökku við á sama tima og rikisstjómin boðar aðhald og niðurskurð í útgjöldum þess op- inbera? - Takist þessir samningar þá sparar íslenskur þjóðarbúskapur sér umtalsverðar fjárhæðir í toll- greiðslum. Annað er nokkuð ljóst að sjávarútvegurinn getur nýtt sér þetta tækifæri til þess að stórauka vinnsluvirði íslenskrar fiskvinnslu, flytja atvinnuna heim og auka verðmæti afla. Af þessum sökum er þetta þjóðhagslega mjög hag- kvæmt fyrir þjóðarbúskapinn. Þetta er nú ekki allt og sumt. Tiltölulega snemma á ferli síðustu ríkisstjómar vom ýmsar opinberar stofúanir fengnar til að meta hvaða ávinningar fælust í samningum við EB út frá þeim forsendum sem ég hef hér talað um. Það verður að segjast eins og er að engin þeirra skýrslna sem við fengum var eins jákvæð og skýrsla fjármálaráðu- neytisins. Þar er talað um að áhrif þessa muni stuðla mjög að lækkun ríkisútgjalda. Eg vísa bara beint í þá skýrslu hver rök ráðuneytisins em. Meðal annars er þar vísað í opnun fjánnagnsmarkaðarins sem mun binda endi á þetta gamla og löngu úrsérgengna rikisábyrgðar- kerfi. Orðrétt segir í skýrslunni: „Áhrifin koma bæði ffarn í aukn- um tekjum vegna meiri umsvifa í efúahagslífinu og spamaði í ríkis- útgjöldum. Þessi áhrif gætu mælst á bilinu 4-6 milljarðar króna, þegar upp er staðið, eða sem svarar til 1- 1 1/2 af landsframleiðslu." Því næst er því lýst hvemig aðlögunin að innri markaðinum er jákvæð í heild fyrir íslenskt atvinnulíf, hvemig aðlögun skattkerfisins muni bæta samkeppnisstöðu ís- lensks atvinnulífs og að ríkisút- gjöld munu lækka. Jafúffamt segir fyrrverandi fjármálaráðherra, Ólaf- ur Ragnar Grímsson: „Þar að auki mun aðild að evrópska efúahags- svæðinu leiða til agaðri hagstjóm- ar og stuðla að auknum kröfiim um skynsamlega hagstjóm í ríkisfjár- málum. Allt mun þetta að lokum stuðla að bættu jafnvægi í ríkisfjár- málum.“ Eg rengi ekki þessi orð Ólafs Ragnars. Skýtur það ekki skökku við að á sama tima og islensk stjómvöld draga á eftir sér lappimar með að styðja við islenskt atvinnulif, eins og varðandi vanda rækjuvinnsl- unnar, þá skuldbindi rikissjóður sig til að styrkja atvinnulíf í Suður- Evrópu með þátttöku i sk. þróun- ar- eða byggðasjóði EB? - Fyrst um þann hluta spum- ingarinnar sem lýtur að því að styrkja íslenskt atvinnulíf. Við eig- um að hverfa ffá þeim aðferðum að ríkið hlaupi undir bagga með einkaaðilum í atvinnurekstri þegar á bjátar. Atvinnulífið á að vera samkeppnisfært og á að geta staðið á eigin fótum. Vissulega er það rétt í vissum tilfellum að rikissjóður hlaupi undir bagga, eins og gerðist í tíð síðustu ríkisstjómar þegar hmn blasti við í sjávarútvegi víðs vegar úti um land. Af því að þú nefúir rækjuna Framhald á bls. 8 Síða 7 ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 29. júní 1991

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.