Þjóðviljinn - 21.01.1992, Side 6
Vegið að íslenska skólakerfinu
AÓlafur Gíslason skrifar
Nú gerist skammt stórra högga á
milli á hinu háa Alþingi í mennta-
málum þjóðarinnar. Fyrst eru
samþykkt fjárlög sem boða flatan
niðurskurð í grunnskólum upp á 180 milj-
ónir og um 130 miljónir í framhaldsskólum,
og síðan er lagt fyrir þingið „Frumvarp til
laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum",
Bandormurinn svokaUaði, sem í raun ógUd-
ir í veigamiklum atriðum núgUdandi lög um
grunnskóla, sem Aiþingi samþykkti með
samstöðu allra stjórnmálaflokka á síðast-
liðnu vori.
Þar sem mál þessi hafa verið flækt í með-
förum þingsins og blandað saman við óskylda
hluti, þá skal hér reynt að greiða úr flækjunni
og greina frá, hvílíka óhæfu er hér verið að
fremja gagnvart íslenska menntakerfinu, böm-
um og bamafjölskyldum þessa lands.
Flati niðurskurðurinn
270 kennarastöður þegar allt er talið. Til sam-
anburðar má nefha að kennarastöður á Vest-
fjörðum eru 140.
í nefndarálitinu segir einnig:
,JRáðherra staðfesti á fundi menntamála-
nefndar, að til umræðu væri að aka nemendum
á milli skóla á höfuðborgarsvæðinu, en sá
kostnaður lendir á viðkomandi sveitarfélög-
um... Hugmyndir ráðherrans um akstur á nem-
endum á milli skóla sýna svo ekki verður um
villst, að til stendur að fækka bekkjum og
flytja þá nemendur sem „afgangs" verða, í aðra
skóla, þar sem þeim verður deilt niður á bekki.
Þetta er fyrirkomulag sem óveijandi er að
bjóða bömum upp á. Þær spumingar vakna
hvort yfirleitt séu kennslustofur fyrir svo stóra
bekki í skólum landsins, og hvort virkilega sé
ætlunin að troða bömum í skólastofur eins og
rollum í rétt?“
í niðurlagi álitsgerðar minnihluta mennta-
málanefhdar Alþingis segir:
„Því miður hefur núverandi rikisstjóm
markað stefnu sem gengur þvert á æskilega
þróun. Hún situr við að saga af alla vaxtar-
brodda og höggva á þær rætur, sem eiga að
næra íslenskt þjóðlíf. Að þessu sinni em það
bömin sem gjalda niðurskurðarins og er þar
ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur. Hér
er um ranga steíhu að ræða og aðgerðir sem
verður að stöðva áður en alvarlegt tjón hlýst af.
Því leggjum við til að allar niðurskurðartillög-
ur ríkisstjómarinnar í skólamálum verði felldar
út úr frumvarpi til laga um ráðstafanir í ríkis-
fjármálum."
Bréf Kennarasambandsins
í bréfi Kennarasambands Islands til alþing-
ismanna frá 3. desember sl. er vakin athygli á
alvöru þessa máls. Þar segir m.a.:
.d’egar nýju grunnskólalögin vom í undir-
búningi og umíjöllun Alþingis á síðasta ári
náðist um þau breið samstaða allra þingflokka.
Þingmenn lýstu þannig vilja sínum til að
tryggja farsælt skólastarf til framtíðar og festa í
lög skipulag skólastarfs sem er í samræmi við
þróun þjóðfélagsins á undanfömum árum...
Með nýju grunnskólalögunum var m.a. stefnt
að einsetnum gmnnskóla, samfelldum sjö
stunda skóladegi og fækkun nemenda í stórum
bekkjardeildum. Þessi ákvæði vom fyrst og
frernst nemendum til hagsbóta og tryggðu
þeim markvissari menntun, en komu auk þess
til móts við þarfir þjóðfélags sem byggir á
vinnuframlagi beggja foreldra. Með frumvarpi
um ráðstafanir í n'kisljármálum ráðgera núver-
andi stjómvöld að fresta eða fella niður öll
jæssi mikilvægu ákvæði op mörg fleiri.
Við slíkt ábyrgðarleysi verður ekki unað.
Kennarasamband Islands mótmælir því harð-
lega að lagaákvæði, sem samþykkt hafa verið
og kynnt foreldmm og kennurum, skuli gerð
marklaus sem nú er ráðgert.
Kennarasamband Íslands heitir á alþingis-
menn að standa vörð um þær breytingar á
grunnskólalögunum, sem allir þingflokkar
vom sammála um á síðastliðnu vori. og tryggja
skólastarfinu fjárveitingar í samræmi við lög
um grunnskóla ffá 1991.“-
Rétt er að hafa í huga að um tvíþætt mál er
að ræða: annars vegar þegar samþykkt fjárlög
sem kveða á um flatan niðurskurð á fjárfram-
lögum til skólanna, sem í raun þýðir fækkun
stöðugilda og minna námsframboð, og hins
vegar lagabreytingu, sem enn er til meðferðar
á þinginu, og felur í sér veigamiklar breytingar.
á gildandi lögum um gmnnskóla og ætlað er
að spara ríkissjóði sérstaklega 80 miljónir
króna á yfirstandandi ári og um 100 miljónir á
næsta ári á grunnskólanum einum.
Skólastarf er þess eðlis að kostnaður er nær
allur fólginn í launum starfsfólks, og flatur nið-
urskurður á fjárveitingu til gmnnskólans kem-
ur því nær allur fram sem fækkun stöðugilda
eða kennslustunda. Nú hefur verið ákveðið að
þessi flati niðurskurður komi fyrst til fram-
kvæmda á haustönn, og flytjist á allt skólaárið
1992-93. Samkvæmt útreikningum Kennara-
sambands Islands jafngilda 180 miljónir 159
stöðugildum í gmnnskólanum á heilu skólaári.
í kennslutíma reiknað nemur þetta 166.000
kennslustundum. Þetta mun þýða að kennslu-
framboð á bekkjardeild vcrður minnkað um
tæpar 3 kennslustundir á viku í 3.-10. bekkjar-
deild í öllum gmnnskólum landsins. Er þá bara
talinn niðurskurður samkvæmt fjárlögum.
Skipting eftir landshlutum
Flatur niðurskurður
í framhaldsskólum
Samkvæmt upplýsingum fjármálaskrif-
stofu mcnntamálaráðuncytisins jafngildir flatur
niðurskurður í framhaldsskólum öðmm cn há-
skólanum 110 stöðugildum, cn það samsvarar
því að Fjölbrautaskólinn í Breiðholti yrði lagð-
ur niður, þar sem em 120 stöðugiidi. I minnis-
blaði frá fjármálskrifstofunni er bcnt á nokkrar
leiðir til að mæta þessum niðurskurði. Mcðal
þeirra em eflirfarandi:
- Ekki verði um neitt nýtt námsframboð að
ræða í ncinum skóla.
- Felld verði niður takmörkuð verkleg
kennsla á fámennum námsbrautum og í fá-
mennum námshópum og valgreinahópum.
- Fækkað verði vikulcgum kennslustund-
um sem hver nemandi getur tekið t.d. þannig
að hámark sé sett á 40 stundir í verknámi og
34-5 í bóknámi.
- Hertar verði reglur um lágmarksfjölda
ncma í verklegu og bóklegu námi, og þeim
reglum fylgt eftir af hörku.
— Viðmiðunarreglur um starfsmagn í ffarn-
haldsskólum verði endurskoðaðar, jafhffamt
því sem stjómunarstörf verði skilgreind betur
en nú er.
- Fækka vikulegum kennslustundum í fög-
um/námsgreinum, þannig að námsgrein sem
áður var kennd t.d. í 6 stundir á viku yrði
kennd í 4-5 að óbreyttu námsefhi.
- Hámarksljöldi nemenda við hvem skóla
verði ákveðinn og tryggt að ekki verði teknir
inn nemendur umffam það hámark, nema fjár-
veiting sé tryggð til að mæta auknum kostnaði
sem af fjölgun kann að hljótast.
— Endurmetið verði framboð á ýmiskonar
fullorðinsfræðslu, s.s. kennslu í öldungadeild-
um og meistaranámi.
í krónum talið er niðurskurðurinn til fram-
haldsskólanna um 213 miljónir eða 5,22% frá
fyrra ári. Sem dæmi er fjárveiting til Mennta-
skólans í Hamrahlíð skorin niður um rúmar 11
miljónir og Fjölbrautaskólans í Breiðholti um
tæpar 19 miljónir og Iðnskólans í Reykjavík
um 23 miljónir.
Bandormurinn
Bandormurinn svokallaði, sem hcfur verið
til mcðferðar á Alþingi undanfamar vikur, heit-
ir fullu nafni „Fmmvarp til laga um ráðstafanir
í ríkisfjármálum“. Bandormur þessi hefur að
gcynta lagabreytingar á mörgum ólíkum svið-
um íslcnskra laga, og það er dæmigcrt um þá
virðingu sem stjómvöld sýna menntakerfinu í
landinu, að það skuli
vera ætlun þeirra nú að
framkvæma veigamikl-
ar gmndvallarbreyting-
ar á íslenska skólakcrf-
inu í skjóli þcssa frum-
varps, án þcss að það
fái viðcigandi faglega
mcðferð til dæmis inn-
an ramma þcirra breyt-
inga sem mcnntamálaráðhcrra hcfur hvort sent
cr boðað að séu í vændum á sjálfum gmnn-
skólalögunum.
Það mun vcra yfirlýst markmið Bandorms-
ins aö ná frani samtals 80 miljón króna spam-
aði í gmnnskólanum umfram þær 180 miljónir
scm koma til framkvæmda samkvæmt fjárlög-
um. Þannig á samanlagt að skcra 260 miljónir
af gmnnskólanum.
Meginmarkmiðið cr að fresta gildistöku
nokkurra ákvæða í nýju gmnnskólalögunum
eins og fækkun ncmcnda í bckkjardcildum. Þá
em fclld niður ákvæði nýju grunnskólalaganna
frá síðasta vori um að stcfnt skuli að einsetnum
skóla á 10 ámm og að skólamálsverðir komi til
framkvæmdar á 3 ámm. Og það sem sérstaka
athygli vckur: í þcssu frumvarpi um „ráðstaf-
anir L ríkisfjármálum" cr gcrð sú gmndvallar-
brcyting á grunnskólalögunum, að vikulcgur
kennslutími á bekk í gmnnskólum skuli ekki
Icngur (ryggður í lögum, heldur skal hann vera
ákvcðinn mcð reglugcrð menntamálaráðuncyt-
isins frá ári til árs!
Ef litiö er á hlutfallslcga skiptingu niður-
skurðarins cílir landshlutum kemur eftirfarandi
í Ijós:
□ í Reykjavík tapast 38 stöðugildi eða sem
samsvarar Ölduselsskóla í Breiðholti.
□ A Reykjanesi tapast 32 stöðugildi eða sem r
samsvarar Lækjarskóla í Hafnarfirði
□ A Vesturlandi tapast 10 stöðugildi eða sem
samsvarar Gmnnskólanum á Hellissandi.
□ A VestQörðum tapast 7 stöðugildi eða sem
samsvarar Gmnnskólanum á Flateyri.
□ A Norðurlandi vestra tapast 7 stöðugildi
eða sem samsvarar Gmnnskólanum á Hofsósi.
□ Á Norðurlandi eystra tapast 15 stöðugildi
eða sem samsvarar Oddeyrarskóla á Akureyri.
□ Á Austurlandi tapast 9 stöðugildi cða scm
samsvarar gmnnskólunum á Eiðum og
Bakkafirði.
□ Á Suðurlandi tap-
ast 12 stöðugildi eða
sem samsvarar
gmnnskólunum í Vík
og í Vcstur-Landcyj-
um.
Rétt er að taka
það fram, að hér er
stöðugildið rciknað
sem 35,4 kcnnslustundir á viku cða með inni-
falinni 22% yfirvinnu. Þannig talin cm stöðu-
gildin samtals 130 í stað 159.
Að þessu sinni eru það börnin
sem gjalda niðurskurðarins og er
þar ráðist á garðinn þar sem
hann er lægstur.
Þessi mikilvæga ákvörðun virðist hafa ver-
ið tekin án alls faglegs samráðs eða umíjöllun-
ar, enda harðlega mótmælt af stéttarfélögum
kennara og skólastjóra.
Vinnandi fólk hér á Islandi býr við vinnu-
málalöggjöf, þar sem m.a. er ákveðið hvað
skuli teljast eðlileg vinnuvika. Það telst ekki
eðlilegt að slíkt sé geðþóttaákvörðun vinnu-
veitenda í hveiju tilfelli. En gmnnskólanemar á
Islandi hafa engan samningsbundinn rétt og
skulu því settir undir geðþóttaákvarðanir
stjómvalda hveiju sinni. Það mun trúlega leit-
un á annarri eins hugmynd og þessari meðal
siðmenntaðra þjóða. Og ömgglega einsdæmi
að jafn afdrifarík ákvörðun hafi verið ákveðin
á þjóðþingi undir dagskrárliðnum .Trumvarp
um ráðstafanir í ríkisfjármálum".
Spyija mætti hvort ekki væri ástæða til að
tryggja rétt bama í stjómarskránni gagnvart
gerræði af þessu tagi.
Önnur lagabreyting á gmnnskólalögunum,
sem fólgin er í „Bandorminum“ varðar fjölda
nemenda í bekkjardeildum. Samkvæmt
Gmnnskólalögunum á fjöldi í bekkjardeild frá
3.-10. bekk að vera hámark 28. Með „Band-
orminum“ er veitt heimild til að fjölga nem-
endum upp í 30.
Álit menntamálanefndar
Menntamálancfnd Alþingis hefúr fengið
hugmyndir þessar til umsagnar og er klofin í
málinu. Meirihlutinn, sem skipaður er þeim
Sigríði Önnu Þórðardóttur, Bimi Bjamasyni,
Tómasi Inga Olrich, Áma Johnsen og Rann-
vcigu Guðmundsdóttur, hcfur lagt blessun sína
yfir mcnntastcfnu Bandormsins, en minnihlut-
inn, sem skipaður er þeim Kristínu Ástgeirs-
dóttur, Hjörleifi Guttormssyni, Ólafi Þ. Þórðar-
syni og Valgcrði Sverrisdóttur, hefur borið
fram harðorð mótmæli. I áliti hans segir meðal
annars:
„Minni hluti menntamálanefndar mótmæl-
ir harðlega því tilræði við skólakerfið, sem
felst í fyrsta kafla frumvarpsins um ráðstafanir
í ríkisfjármálum 1992 ... Þessar tillögur verður
að fclla! Það cr hlutverk Alþingis að setja lög
um grunnskóla og það á að vera í höndum þess
að ákveða hvaða kennslu ber að veita. Vald til
að fjölga eða fækka kennslustundum á ekki að
vcra í höndum ráðhcrra og ráðast af því hvem-
ig vindurinn blæs i ríkisfjármálum. „
Minnihlutinn vitnar í álit Kcnnarasam-
bands íslands, sem komist hafi að þeirri niður-
stöðu að áætlaður heildarspamaður í gmnn-
skólakerfinu sé ekki bara þau 159 stöðugildi,
sem fólust í fiata niðurskurðinum. heldur 260-
ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 21. janúar 1992
Síða 6