Þjóðviljinn - 31.01.1992, Page 7

Þjóðviljinn - 31.01.1992, Page 7
]ÞJC®VHJINN kvætt og vinstri jákvætt, eða öfugt. Ef við lítum á hægri hyggjuna þá sjáum við þar fyrst og fremst ein- staklingshyggju og frelsi. Til vinstri sjáum við félagshyggju, samstöðu og jöfnuð. Eg var að krota niður grein í dag og þar er minnst á þetta gamla; frelsi, jafnrétti og bræðralag, sem franska byltingin fór af stað með. Nóbelsskáldið Octavio Paz segir að frelsið geti verið án jafnaðar - og þá endum við í yfirgangi hinna sterku - og að jöfnuður geti verið án ffelsis - og þá endum við í ein- hveijum allsherjar dauða. Menn þurfa þjóðfélag þar sem þessir straumar takast á. Þeir verða að takast á til þess að halda niðri hinu neikvæða í hvorum fyrir sig.“ Þannig að frelsi og jöfnuður getur ekki farið saman? „Það getur kannski farið saman ef bræðralagið er haft til að brúa bilið. Frelsi og jöfnuður eiga að vera í sambýli: Þótt þessi munur sé á verða frelsið og einstaklings- hyggjan og jafnaðarhugsjónin hinsvegar að sætta sig við tilveru hins og búa saman. Ef annar af þessum straumum ræður öllu þá koma verstu einkenni hans frarh. Þessvegna er fjölbreytni í sam- félaginu dyggð. Síðan er það eftir innstillingu, skapgerð og gildis- mati hvers og eins hvað hann vill leggja áherslu á.“ Þegar þú talar um fjölbreytni í samfélaginu, þá á það ekkert síður við um fjölbreytni í fjölmiðlun. „Já, hún er afar mikilvæg." Flokkurinn og Þjóðviljinn Þjóðviljinn hefur alla tið verið mjög tengdur Alþýðubandalaginu. Samskiptin við flokksforystuna? „Ég er vond heimild um þetta, vegna þess að ég var ekki beinlínis á þeim póstum. Eg var aldrei pólit- ískur ritstjóri blaðsins. Ég var menningarblaðamaður, greinahöf- undur, ritstjóri Sunnudagsblaðsins og seinna ritstjóri seni fékkst aðal- lega við innblað. Ég vandi líka flokksforystumenn af því að vera að hringja í mig.“ Hvemig gerðirðu það? „Ég hummaði þá fram af mér. Með mér voru ágætis samstarfs- menn sem höfðu miklar áhyggjur af þessu; fannst að flokkurinn væri of frekur. En vandinn var sá að þeim tókst ekki að leysa þennan vanda. Þeir sögðu oft að þeir vildu að blaðið væri óháð en í praxís voru þeir sjálfir á kafi í átökum innan flokksins. Þessvegna komust þeir ekki undan ámælum um að þeir væm líka að nota blaðið. Mál- ið var því alltaf í hnút.“ A þetta við alveg frá fyrstu tíð, þegar Magnús Kjartansson réð þig til blaðsins? „Það var öðmvisi fyrst. A þeim dögum komu átök í flokkunum ekki fram í fjölmiðlum. Þetta magnast smám saman. Ég kaus hinsvegar að haida mig utan við þessar deilur því mér fannst aðrir vera alveg nógu djúpt í þeim þótt ég væri þar ekki líka. Menn verða bara að ganga út ffá einu, sem er hinn almenni sannleikur, að allir sem vom eitthvað áberandi í Al- þýðubandalaginu, vildu hver með sínum hætti nota Þjóðviljann í sína þágu, eða láta hann þjóna sér að einhverju leyti, alveg sama hvort menn vom kallaðir flokkseigendur eða eitthvað allt annað. Allir vildu toga Þjóðviljann í sína átt. Þetta var stundum erfitt fyrir okkur en ég stóð ekki beinlínis í þessu. Ég taldi mjög nauðsynlegt fyrir líf blaðsins að hér væri einhver maður sem ekki væri á kafi í þessu. Það er svo margt annað sem hægt er að gera heldur en að standa í flokks- pólitíkinni." Þú hefur kannski enst svona lengi á Þjóðviljanum þessvegna? „Ég veit það ekki. Þetta _er kannski líka að sumu leyti leti. Ég nennti ekki að fara á fundi þar sem átti að fara að ræða þessi mál og ég hef alltaf verið latur við að taka þátt í nefndastörfum.“ Þj óðsagnapersónurnar Þú hefur starfað á Þjóðviljan- um með fólki sem er þjóðsagna- persónur, bæði lífs og látið. Hveijir eru eftirminnilegastir í þinum huga? „Þetta er svo margt fólk að það er sennilega best að ræða bara um ritstjórana sem vom hér þegar ég kom til starfa á Þjóðviljanum, þá Magnús Kjartansson og Sigurð Guðmundsson. Það var margt sem hægt var að læra af þessum mönnum. Sigurður Guðmundsson var afar slæmur í augunum. Þrældómurinn á kvöld- vöktunum þafði farið mjög illa með hann. Ég heimsótti hann einu- sinni á spítala þegar hann lá þar með bundið fyrir augun eftir augn- skurð. Hann var þá búinn að liggja þar í mánuð. Það var gott að tala við Sigurð. Hann átti einhverja innri gleði. Hann segir við mig: Nú veit ég til hvers menntun er. Hún er til þess að mér leiðist ekki þegar ég ligg svona blindur, þegar ég ligg svona og sé ekki neitt mánuð- um saman. Það væri hægt að segja mjög margt um Magnús Kjartansson. Það voru margar þverstæður í hon- um. Ég man eftir einu dæmi, sem ég rifjaði upp í síðasta jólaboði Þjóðviljans. Éinhvemtíma vorum við Magnús saman á kvöldvakt og klukkan var langt gengin í tólf. Við vorum að rýna í sátrið á blýsíðun- um, sem átti að fara að steypa, og leita að prentvillum. Þá tekur Magnús út úr sér pípuna og segir: Segðu mér eitt, Ami. Veist þú Þaö eru forréttindi að hafa starfað á sama vinnustaðn- um ( þrjátíu ár og hafa aldrei beðið eftir því að klukkan hringdi. Mynd: Kristinn. hversvegna við emm að þræla hér ffam á nótt fyrir skítakaup? Ég hafði ekkert svar á reiðum hönd- um. Þá sagði hann: Er það til þess að allir verkamenn geti eignast bíla? I þessu kristallaðist þessi ei- lífðar vandi allrar vinstrimennsku, hvort sem menn em kratar eða kommar. Þegar kjarabarátta ber mikinn árangur, hvað er það þá sem menn standa uppi með? Hvert er inntak þess sem menn hafa verið að beijast fyrir? Er það t.d. þessi bíll sem er margbreytilegt fyrir- bæri? Hann er annarsvegar eitt- hvað sem gefur mönnum aukið frelsi og hinsvegar er hann tákn um þessa miklu neyslu sem heim- urinn ris varla undir.“ Við lifðum furðu lengi Ef við snúum okkur að þessum tímamótum. Þú átt þínar skýringar á því hversvegna Þjóðvilinn hættir nú að koma út. „Jú, jú. Menn munu vitaskuld segja að okkur hafi mistekist að búa til vöru sem selst. Það má vel vera að það sé eitthvað til í þvi. Ég veit ekki hversu stór markhópurinn fyrir blað einsog Þjóðviljann er. Segjum að hann sé um fjórðungur þjóðarinnar. Við getum ekki gert tilkall til þess að vera allsheijar fjölskyldublað ef við ætlum að vera vinstra megin í tilverunni. Það þýðir samt ekki að við getum fengið allan þennan fjórðung til þess að kaupa blaðið. Sannleikur- inn er samt sá að við höfúm lifað fúrðu lengi. Flest blöð af þessum toga eru liðin undir lok. A Norður- löndum stendur kratapressan, sem á sér mikla sögu og naut velvildar og stuðnings öflugrar verkalýðs- hreyfmgar, mjög höllum fæti og mörg blöð hafa dáið. Höfuðástæðan fyrir því að Þjóðviljinn hættir að koma út og Tíminn hangir á horriminni hlýtur að vera fyrst og ffemst breyttar að- stæður á þessum fjölmiðlamarkaði. Blaðadauði er mjög mikið mál um allan heim og víða þar sem voru tvö blöð fyrir er bara eitt eftir. Þetta fer ákaflega mikið eftir aug- lýsendum. Auglýsingar greiða það mikið niður af verði blaða að án þeirra geta blöð ekki lifað. Þama kemur viss vítahringur. Eitthvert blað hefur náð forskoti og þótt það hafi ekki náð nema um tíu prósent forskoti framyfir annað blað, þá fær það strax 20-30 prósent meira af auglýsingum og getur notað peningana til að stækka blaðið á meðan hitt blaðið verður að skera niður.“ „Allskonar skríbentum, ekki síst hjá DV og Pressunni, hefur tekist að hamast geipilega á því sem hefúr verið kallað blaðastyrk- ur, einsog hann væri einhver hiyllileg svívirða, þjóðnýting eða einhverskonar ríkisrekstur á blöð- unum. Þessi styrkur til blaða hér var alltaf í skötulíki, annarsvegar var um að ræða að ríkið keypti ákveðinn fjölda af blöðunum til að dreifa á sjúkrahús og í aðrar stofn- anir ríkisins, og hinsvegar útgáfu- styrkur til flokkanna, sem þeir gátu ráðið hvað þeir gerðu við. Það var ekki komið á kerfi einsog í Noregi og Svíþjóð, framleiðslusfyrkjum til þess að tryggja fjölbreytni blaða. Hægri sinnað gæðablað, einsog Svenska Dagbladet, varð að viður- kenna það um áramótin síðustu, að án framleiðslustyrks frá ríkinu hefði það ekki lifað af þrengingar að undanfömu. Þetta er meiri hátt- ar vandamál hvemig á að komast hjá allsheijar einokun á dagblaða- markaði. Eða að ekkert verði ann- að eftir en gul pressa. Menn hafa því ýtt þessu frá sér af alltof mik- illi léttúð. Ég er ekki að segja að það sé auðvelt að finna peninga f slíkt kerfi núna, en menn hafa aldrei hugsað um þetta í alvöru. A Islandi héldum við mjög lengi gömlu blaðakerfí. Fjögur morgunblöð sem hafa hvert um sig sinn pólitiska þingflokk. Þetta var mögulegt, ekki síst vegna þess að menn keyptu yfirleitt stærsta blað- ið, þ.e.a.s. Morgunblaðið, og svo vom menn tilbúnir að kaupa annað blað til viðbótar eftir sínu höfði. Menn vom ekki beint í samkeppni við Morgunblaðið, heldur fyrst og ffemst í samkeppni um það hvaða blað yrði númer tvr. Síðan em blöðin ekki beint í samkeppni inn- byrðis - Tíminn og Þjóðviljinn hafa sinn markhópinn hvort - heldur var þetta baráttan um það hvort menn væm fáanlegir til þess að kaupa tvö blöð áffam. Það hefúr dregið úr því vegna sjónvarpsfram- boðs og annars. Þetta held ég að sé mjög mikilvægt atriði.“ Óvíst að nýtt dagblað komi Fjölmiðlaumhverfið breytist mikið við það að Þjóðviljinn hverfúr af sjónarsviðinu og erfið- leikar blasa við hjá Timanum. Það stefnir i það að hér verði eitt stórt Morgunblað og svo síðdegisblað. Bæði blöðin mörkuð af hægri- stefnu. Hvað heldurðu að þetta muni hafa að segja fyrir þjóðfélag- ið? Eða hefúrðu trú á því að ffam á sjónarsviðið komi nýtt morgunblað í öflugri samkeppni við Moggann? „Eg skal ekki segja hvort nýtt blað kemur. Það er mjög óvíst einsog er, ekki síst vegna þess að það er erfitt að gera ráð fyrir mjög miklu meiri sölu á dagblöðum. Slíkt dagblað þyrfti að ryðja burt einhveiju sem væri fyrir á markað- inum, það er einhveiju af sölu DV og Morgunblaðsins. Það er mjög erfitt að finna formúlu fyrir slíku blaði. Þama gæti að vísu komið annað til. Einsog ég sagði fyrr þá skipti það miklu máli fyrir Þjóð- viljann hverskonar eftirspum eftir vinstri viðhorfúm voru í þjóðfélag- inu. Ef eftirspum eftir slíkum við- horfúm eykst aftur, sem mjög lík- legt er því sagan hefúr tilhneigingu til að gerast í sveiflum, þá kannski kæmi upp einhver tilraunastarf- semi á þessu sviði. Dagblað er mjög mikið fyrirtæki og þvi erfitt að byggja það upp. Það geta verið til fleiri blöð en dagblöð. Þegar árið 1988 fannst mér Þjóðviljinn vera kominn í háska, þótt ég hafi lítið vit á fjár- málum. Þá fór ég að hugsa að kannski væri vitlegast að stefna að góðu vikublaði. Mótrökin gegn þvi voru hár innheimtukostnaður og mikill fastakostnaður miðað við dagblað. Ég held samt að þar sé kostur í útgáfústarfsemi á þessum væng, að minnsta kosti á meðan ekkert annað gerist.“ Aldrei beðið eftir að klukkan hringdi Að lokum vil ég leggja fyrir þig sömu spuminguna og Magnús Kjartansson lagði fyrir þig forðum. Hversvegna varstu að þræla á skítakaupi fram á nótt i allan þenn- an tíma? Var það bara til þess að útvega verkamönnum bíla, þú sem ferð svo til allra þinna ferða á reið- hjóli? „Hver og einn er nú afar flink- ur að finna einhverja skynsamlega ástæðu fyrir því sem hann gerir. Það er partur af tilverunni. Hitt er svo annað mál að það getur verið erfitt að formúlera það í orðum. Það er gaman að vera i svona fjöl- breytilegu starfi. Það er gaman að geta samræmt vinnu sína og áhugamál. Það held ég að sé það jákvæðasta við minn þijátíu ára starfsferil á Þjóðviljanum. Þegar bæði pólitísk hugaðrefúi, menn- ingarleg hugðarefni og leit að ein- hveiju skrýtnu og sérkennilegu til tilbreytingar fer saman við vinnu manns þá er lífið að minnsta kosti ekki tómlegt. Það er skemmtilegt og hefúr eitthvert inntak. Maður bíður aldrei eftir því að tíminn líði. Ég held að það séu forréttindi að hafa starfað á sama vinnustaðnum í þijátíu ár og hafa aldrei beðið eft- ir því að einhver klukka hringdi.“ -Sáf Síða 7 ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 31. janúar 1992

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.