Þjóðviljinn - 31.01.1992, Síða 19

Þjóðviljinn - 31.01.1992, Síða 19
Sigurður A. Magri- ússon rithöfundur • ♦ Omurleg kaflaskipti jóðviljinn er að kveðja og stórt skarð fyrir skildi. Það tnega verða miklar og rót- tækar breytingar á þeim blaða- kosti sem eftir stendur, ef maður á að gera sér vonir um að mega opna íslenskt dagblað nema sér til sárra leiðinda. Jaðrar raunar við undur, að í öllu því lesmáli sem landsmönnum er dagsdaglega boðið uppá skuli fábreytnin, flat- neskjan og andlega örbirgðin vera svo yfirþyrmandi. Þjóðviljinn var sá fjölmiðill sem af mestri reisn og metnaði leitaðist við að sigla beitivind gegn lágkú- runni og doðanum í þjóðlífmu, og má segja að mælskastur vottur um ríkjandi ástand sé einmitt sú stað- reynd að hann er nú að syngja sitt síðasta. Við brotthvarf hans blasir við endalaust eyðiland í íslenskri fjölmiðlun. Um það þarf naumast að fjöl- yrða að Þjóðviljinn var langsamlega læsilegasta dagblað sem hér kom út á síðustu áratugum, og er raunar undrunarefni sé miðað við fjárhag- inn og mannaflann sem blaðið löng- um bjó við. Þar var valinn maður í hveiju rúmi og peningar aldrei látnir skipta meginmáli, þótt fjárhagsvandi yrði um síðir það sker sem blaðið steytti á, og er þá vert að hafa hug- fast að þeir sem nú fara með völd í þjóðfélaginu létu ekki sitt eftir liggja að koma blaðinu á kné. Þeim kafla má ekki gleyma þegar saga íslenskr- ar blaðamennsku á öldinni verður skráð. Islenskum jafnaðarmönnum svíður það sárast, að þögnuð er sú röddin sem skeleggast tók svari lítil- magnans í samfélaginu og andæfði af mestum myndugleik hverskyns sukki og spillingu sem búið hafa um sig í þjóðarlíkamanum eins og illk- unjuð æxli. Hvar er nú sá fjölmiðill sem talar máli einstæðra mæðra, bama, gamalmenna, sjúklinga, fanga og fatlaðra? Hver verður nú til að „Af öllum fslenskum fjölmiðlum hefur Þjóðviljinn staðið dyggastan vörð um þau verðmæti og lífsgildi sem for- takslaust ráöa úrslitum um málfars- lega og menningarlega tilveru þjóðar- innar.“ Sigurður A. Magnússon. benda á fjármálahneyksli á borð við Perluna, ráðhúsið, Flugstöð Leifs Ei- ríkssonar, Sameinaðra verktaka og önnur þau æxli sem óðum eru að sýkja útfrá sér og lama þjóðfélagið. Af öllum íslenskum fjölmiðlum hefúr Þjóðviljinn staðið dyggastan vörð um þau verðmæti og lífsgildi sem fortakslaust ráða úrslitum um málfarslega og menningarlega til- veru þjóðarinnar á komandi áratug- um. Menningarumræða í landinu verður naumast svipur hjá sjón að Þjóðviljanum kvöddum, og sömu sögu er reyndar að segja um nálega öll önnur svið þjóðlífsins. Ekkert ís- lenskt blað hefur til dæmis fjallað af meiri skilningi og alvöru um trúleg efni og kristin lífsviðhorf, að ekki sé minnst á hérlend mannréttindamál sem eru í megnasta ólestri, eins og meðal annars kemur fram í nýbirtri skýrslu Sameinuðu þjóðanna sem veitti íslenskum stjómvöldum þung- ar ákúrur. Þarflaust ætti að vera að hafa mörg orð um þá vá sem er fýrir dyr- um við brotthvarf Þjóðviljans. Um orðinn hlut tjáir ekki að sakast, en hitt hlýtur að vera sammæli sann- sýnna manna, að hér hafi orðið hörmulegt menningarslys og líða muni ár eða jafnvel áratugir þartil bætt verður fyrir þau glöp að láta best skrifaða dagblað Islendinga ganga fyrir ættemisstapa. mönnum, krefjast þess af þeim að þeir gangi upp á svið og vitni eins og forlyftar herkerlingar um villur síns vegar og ljósið sem nú á að hafa kviknað á skilningsperu þeirra. I hvert sinn sem ég verð vör við þessa áráttu langar mig til að biðja sigur- vegarana að fara sér hægt, doka við eitt andartak og fylgjast með ffam- gangi mála næstu misserin, bæði hér heima og erlendis. Hver verður þró- unin í ríku löndunum þar sem auður- inn safnast á sífellt færri hendur og æ fleiri verða útundan? Og hvað ger- ist í þriðja heiminum þegar ríku þjóðimar verða endanlega búnar að koma sér upp því nýja jámtjaldi sem skilur að suður og norður? Ætli þjóðfrelsisbarátta og sósíalismi hafi verið kveðin endanlega í kútinn? Þessum spumingum, og mörgum fleiri, verður væntanlega svarað í nýju málgagni sósíalisma, þjóðfrels- is og verkalýðshreyfingar sem óhjá- kvæmilega mun Ííta dagsins ljós, þótt síðar verði. Til lesenda Þjóðviljans Vikublaðið Austurland er heimildarit og pólitískt málgagn vinstri hreyfingarinnar. Austurland er elsta bæjar- og héraðsfréttablað landsins. Gerist áskrifendur að Austurlandi. Ársfjórðungsáskrift kostar kr. 1.050,-. Áskriftarsím- inn er 97- 71571 - Fax 97-71756. Útgefandi blaðsins er kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Austurlandi. Austurland „Eftir á að hyggja finnst mér að Þjóð- viljinn hafi á þessum löngu liðnu ár- um kennt mér að tvinna saman þjóð- ernisstefnu og sóslalisma á þann hátt sem ég sætti mig ennþá við." Ingiþjörg Haraldsdóttir rithöfundur. Það er mikil árátta meðal sigur- glaðra íhaldsmanna nú um stundir að heimta „uppgjör“ af vinstri ÞJÓÐ¥HJ3NN Ingibjörg Haraldsdóttir, formaður Samtaka herstöðvaandstæðinga Baráttan gegn hemum Við lifum á fjölmiðlaöld, þar sem áhrifamiklir fjölmiðlar geta þagað atburði í hel, eða blásið upp ómerkileg atvik þannig að þau virðast marka tímamót. Sjónvarpsstöðvar sýna eigin útgáfu af hrikalegum stríðs- átökum í „beinni útsendingu“ og láta þau líta út eins og spennandi tölvuleik. Við urðum vitni að slíku í Persaflóastríðinu. Þeir sem ekki hafa fjármagn eða fjalla um mál sem eru valdhöfum á móti skapi, eiga hins vegar oft erfitt með að fá hlutlæga umfjöllun í fjölmiðlun- um. Þetta hafa herstöðvaandstæð- ingar, eins og mörg önnur grasrót- arsamtök, þurft að búa við lengi. Það er auðvitað ekkert skritið að fjölmiðlarisamir á hægri vængnum, Morgunblaðið og DV, vilji draga sem mest úr umræðum um herinn ef litið er til þess ógnargróða sem her- setan hefúr fært í vasa fáeinna valdamikilla einstaklinga innan þeirra raða. Sérstaklega á þetta við nú á síðustu árum þegar Rússagrýl- una hefur dagað uppi og málstaður hersinna verður æ aumlegri. Hins vegar er það meira umhugsunarefni að hlutleysisstefna ríkisfjölmiðlanna hefur ekki náð til hermálsins. Þeir hafa til dæmis margsinnis hunsað aðgerðir herstöðvaandstæðinga eins og gleggst kom fram þegar húsfyllir var í Háskólabíói til að mótmæla 40 ára Natóaðild vorið 1989 en frétta- stofa Sjónvarps minntist ekki einu orði á fundinn. Ef litið er til þessara fjölmiðla er ljóst að umfjöllun Þjóð- viljans um herstöðvamálið hefur verið mun vandaðri og umfangs- meiri. Jafnffamt hefur hlutverk hans sem mótvægi gegn þessum voldugu íjölmiðlum verið mikilvægt. Hins vegar má alltaf deila um „Sú mikla andstaöa sem er gegn hernum þrátt fyrir áratuga hersetu sýnir að fólk lætur ekki mata sig á lygum". Ingibjörg Haraldsdóttir, for- maður Samtaka herstöðvaandstæö- inga. Mynd: Kristinn. hve vel „málgagni þjóðfrelsis" hefur tekist að rækja hlutverk sitt og hvemig ber að meta þátt blaðsins í þeirri baráttu gegn erlendu hervaldi sem hér hefur staðið í áratugi. Tak- markaður fjöldi lesenda hefur gert það að verkum að um ójafna að- stöðu hefur verið að ræða gagnvart hægri pressunni. A meðan Morgun- blaðið nær inn á flest heimili lands- ins sér aðeins hluti herstöðvaand- stæðinga Þjóðviljann að staðaldri. Hann hefur því hvorki getað veitt andstæðingum hersetunnar sameig- inlegan vettvang til umræðu, né nægt til að koma málstað þeirra á framfæri við allan almenning. Ekki hefúr heldur alltaf verið fyrir hendi skilningur á mikilvægi þjóðfrelsis- baráttunnar innan ritstjómar blaðs- ins. Þótt margir herstöðvaandstæð- ingar hefðu vissulega viljað sjá þróttmeiri úttekt á hinum ýmsu þátt- um hersetunnar á síðum Þjóðviíjans hefur blaðið óneitanlega alltaf sinnt þessum málaflokki og gert sér far um að standa undir heitinu „mál- gagn þjóðfrelsis“. Fréttaflutningur af aðgerðum og uppákomum gegn hemum hefúr verið mun hlutlægari en í öðrum fjölmiðlum. Á undan- fomum árum hafa oft birst í blaðinu greinar sem hafa verið þarft innlegg í herstöðvabaráttuna. Er þar skemmst að minnast greina um mengun af völdum hersins, sem birtust í blaðinu í sumar, auk mikill- ar umfjöllunar í tilefni Keflavíkur- göngu. Sú mikla andstaða sem er gegn hemum þrátt fyrir áratuga hersetu sýnir að fólk lætur ekki mata sig á lygum, það trúir ekki síendurteknum frösum tjölmiðlarisanna, en vill hlutlæga umfjöllun um hermálið. Á síðasta áratug hafa orðið örari breyt- ingar á stöðu herstöðvarinnar hér en nokkm sinni síðan á sjötta áratugn- um. Möguleikamir á að losna við herinn hafa sennilega aldrei verið meiri en nú. Það er því mikill missir að Þjóðviljanum í þeirri baráttu sem fram undan er og reyndar ljóst að á næstunni verður erfiðara fyrir and- stæðinga hersins að koma sjónar- miðum sínum á ffamfæri en hingað til. Enn er ekki vitað hvort eða hve- nær nýtt blað verður stofhað sem gæti orðið vettvangur skoðanaskipta um hermálið. Það er þó vissulega óskandi því núverandi ástand á fjöl- miðlamarkaðnum gefur alls ekki rétta mynd af skoðunum fólks hér á landi. Steingrímur J. Sigfússon, varaformaður Alþýðubandalagsins Barátta smáþjóðar fyrir frelsi er þrotlaus Nú þegar komið er að tímamótum í útgáfu Þjóðviljans, tímamótum sem breyttar aöstæður hafa knúið fram, hvarflar hugurinn víða. Það verður ekki viðfangsefni þessa stutta pistils að ræða þær áleitnu spurningar sem vakna um fortíð, nútíð og framtíð útgáfu i þágu róttækra sjónarmiða, þótt þær spurningar séu margar. Ekki heldur að lesa í þau tíðindi sem erfíðleikar Þjóðviijans og fleiri miðla af slíkum toga flytja okkur og hafa um alllangt skeið verið hugsandi mönnum mikið áhyggjuefni, ekki síst vestanhafs. Sem sagt, að hvers kyns dýpri umfjöllun og ítarlegri í ræðu og riti, þar sem farið er eitthvað að ráði undir yfirborðið, láti stanslaust undan síga kröfum um afþreyingu og hraða. þessar hugsanir og margar fleiri, sem Iáta nú á sér kræla, bíða enn um sinn. Því einu skal spáð að umræða og skoðanaskipti um sósíalisma - jafnaðarstefnu, verkalýðsbaráttu og þjóðfrelsismál brjóti sér með einum eða öðrum hætti farveg; annað er óhugsandi. Það er Þjóðviljinn og þjóðfrelsis- málin sem ég ætla að ræða nokkrum orðum. 1 raun og veru gæti ég haft það stutt og nánast afgreitt þá hlið mála á eftirfarandi hátt: „Svo lengi sem ég man og þekki til að aðrir muni, hefur Þjóðviljinn stutt með ráðum og dáð baráttu andstæðinga erlendrar hersetu í landinu til að koma þessum sama her burt.“ Þjóðviljinn hefúr staðið með rót- tækustu kröfúm hvers tima um brott- för hersins, unr úrsögn úr NATO, með kröfum um afvopnun, með bar- áttu friðarhreyfinga og svo mætti áfram telja. Eg leyft mér einnig að halda því fram að um fá, ef nokkur, meiriháttar málefni sem Þjóðviljinn hefúr látið sig sérstaklega varða, hafi gegnum tíðina ríkt meiri samstaða hvað afstöðu og umfjöllun blaðsins snerti. Sömuleiðis leyfi ég mér hiklaust að segja að í þessum efnum haft Þjóðviljinn verið málgagn stærri hluta þjóðarinnar en að ýmsu öðru leyti. Það er mín bjargföst sannfær- ing að með andstöðu Þjóðviljans við inngöngu í hemaðarbandalag og komu erlends hers, slógu hjörtu þess meirirhluta þjóðarinnar sem her- námsöflin leyfðu aldrei að segja sitt álit. En barátta smáþjóðar fyrir frelsi sínu er þrotlaus, snýr innávið jafnt sem útávið og felst ekki síst t þeirri staðreynd að oft er ekki minna verk- efni að gæta fengins hlutar en afla. sú glíma hefúr staðið og mun standa án afláts í hinu stjómmálalega tilliti og rödd Þjóðviljans hefur þar þjónað þeim tilgangi að halda öllum vakandi á verðinum. Sterkust hefúr málefnafylgja Þjóðviljans að þessu leyti vafalaust verið á menningar- sviðinu, enda blaðið átt þar góða að. Styrkur þess og lán fólst löngum í því að þeir sem í blaðið skrifúðu eða lögðu því lið vom vopnaðir skarpri hugsun og hvassri málsnilld, flestum öðmm fimari. Þannig var úrslitaþýð- ing hinnar menningarlegu undirstöðu sjálfstæðisins brýnd fyrir mönnum með þeim hætti á síðum Þjóðviljans að jafnvel hinum slakari meðal sláttumannanna hlaut að bíta. Allt hefúr sinn tíma og nú er hranin sú heimsmynd vígbúnaðar- „Þjóðviljinn hefur staðið með róttæk- ustu kröfum hvers tíma um brottför hersins, um úrsögn úr NATO, með kröfum um afvopnun, með baráttu friðarhreyfinga og svo mætti áfram telja." Steingrimur J. Sigfússon. bijálæðis, kennd við kalt strið, sem Þjóðviljinn eyddi drjúgum hluta ævi sinnar í að tala gegn. En þá ber einn- ig uppá tímamót í sögu blaðsins sjálfs, sem við nauðug viljug verðum að horfast í augu við. Þá er hið minnsta að færðar séu þakkir Þjóð- viljanum og öllum sem hafa í hann skrifað og stutt að því að gæti komið út, fyrir framlög til þjóðfrelsismála íslendinga. Hefðu, án Þjóðviljans, herstöðv- amar orðið margar og til 99 ára? Hefðu landhelgisstríðin aldrei unn- ist? Væri Island orðið hreppur í rís- andi Stór-Evrópu? Væri töluð enska á tilteknum nesjum? Þessum spum- ingum og fleiri líkum verður að sjálfsögðu aldrei svarað nema með tilgátum. Hitt er mikilvægara að það sem ekki varð í þessum efrium þarf einnig að muna og vöku Þjóðviljans er þar ýmislegt að þakka, um það verður aldrei deilt. Síða 19 ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 31. janúar 1992

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.