Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1995, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 1995
11
Sviðsljós.
Mikið verður um dýrðir á gjörvöllu Indlandi i dag þegar hindúar halda mikla hátíð sem þeir kalla Dussehra. Hátíðin sú er haldin til að minnast þess og
fagna að guðinn Ram drap djöflakónginn Ravana, að því er ségir i goðafræði hindúa. Það sem hindúar gera sér meðal annars til skemmtunar á þessari
miklu hátíð er að brenna stórar myndir af hinum ægilega djöflakóngi, myndir eins og þær sem þessi drengur í Bombay er með á öxlinni. Annars virð-
ast hindúar vera mikið fyrir hátiðir af ýmsu tagi því skemmst er að minnast uppistandsins sem varð um daginn þegar einhver guðanna þeirra tók upp á þvi
að drekka mjólk sem honum var færð í fórnarskyni. ' Símamynd Reuter
Oprah meö
þeim alríkustu
Bandaríska sjónvarpskonan
Oprah Winfrey hefur komist
verulega í ólnir á undanfórnum
árum og ef svo fer fram sem horf-
ir kynni hún að verða fyrsti
svarti miiljarðamæringurinn, í
dollurum talið. Svo metur aö
minnsta kosti hið virta fjármála-
timarit Forbes. Oprah er komin
á lista tímaritsins yfir 400 ríkustu
Kanana, er númer 399. Gott í
fyrstu tilraun.
Michelle 1 sf-
mæiismynd
Michelle Pfeiffer á eiginmann
sem framleiðir biómyndir. Sam-
an ætla þau aö gera mynd um
hana GilUan á 37. afmælisdegin-
um hennar. Væntanlega leikur
Michelle titilhlutverkið. Margir
fleiri koma við sögu, svo sem
Kathy Bates og Claire Danes, auk
tvítugs sonar frægs látins gaman-
leikara.
Vasaklútur.á
uppboði
Stórtenórinn Luciano Pavarotti
þekkist á vasaklútnum eins og
París á Eiffeltuminum en skyldu
trommukjuðamir hans Ringos
Starrs gegna jafnþýðingarmiklu
hlutverki? Það skiptir kannski
ekki höfuðmáh en hvort tveggja
verður selt á uppboði til styrktar
illa settum tónlistarmönnum.
Fleiri hiutir verða seldir: tón-
leikabúningar Kiri Te Kanawa og
smáflauta James Galways.
Raquel í söng-
hvað?
Áreiðanlegar heimildir herma
að leikkonan Raquel Welch eigi í
alvarlegum samningaviöræðum
viö leikhúsmenn á Broadway í
New York um aö taka að sér aðal-
kvenhlutverkiö í söngleiknum
Applause, eða klappi. Lauren
Bacall fór með hlutverk þetta
þegar verkið var fyrst flutt árið
1970. Raquel hefur áður tekið að
sér hlutverk sem Lauren fór með
áður, neMlega í söngleiknum
Konu ársins.
Það fauk heldur betur í Díönu prinsessu þegar hún sá nýtt málverk af sér
eftir breska málarann Henry Mee. Fór hún í fýlu og neitaði að afhjúpa
verkið. Finnst þeim sem skoðað hafa að Diana, helsti hjónabandsskelfir
Englands, virki óttaslegin, spennt og undir álagi i útfærslu Mees. Málarinn
sagðist einungis hafa reynt að túlka útgeislun hennar með penslinum.
bparileikur
í'"'
sparihefta heimiianna
904 1750
39,90 mínútafi
Taktu þátt í sparileik sparihefta heimilanna með
því að hringja í síma 9041750 og svara þrem laufléttum
spurningum úr Spariheftum heimilanna sem dreift
hefur verið inn á öll heimiH á höfuðborgarsvæðinu.
Glæsileg verðlaun í boði!
Einn heppinn þátttakandi hlýtur
Hotpoit 1200 snúninga þvottavél
með innbyggðum þurrkara frá
Heklu að verðmæti^ 79.277
flutuuint^
• dótturfyrirtæki General Electric
[h]HEKLAHF
Að auki eru 27 heppnir þátttakendur dregnir úr pottinum
og hljóta þeir einn af eftirfarandi vinningum hver:
Vöruúttekt að verðmæti kr. 5.000 frá Benetton
Matarúttekt fyrir 4 frá veitingastaðnum Sjanghæ
Vöruúttekt að verðmæti kr. 4.000 frá Karel hílFtíl
Fjölskyldupitsu, gos og brauðstangir frá Pizza Hut
Rug Ban værðarvoð að verðmæti kr. 5.900
Marco
húsgagttaverslun
ÍSTlMDmiW
llgB
fráMarco húsgagnaverslun
Filmuframköllun að verðmæti kr. 3.000 frá
Framköllun á stundinni
Gjafabréf að verðmæti kr. 3.000 frá Rafha
Mánaðar líkamsræktarkort í World Class
Hreinsun að verðmæti kr. 2.000 frá
Efnalauginni Björg
Dregið verður úr réttum lausnum mánudaginn 16. október.
Nöfn vinningshafa verða birt í síma 9041750 þriðjudaginn 17. október.
/aum.