Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1995, Blaðsíða 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 1995
íþróttir
Knattspyrnuferð
til Newcastle
Ferðaskrifstofan Alís hefur
skipulagt knáttspyrnuferð til
Newcastledagana 6.-9. nóvernber
og kostar ferðin 25.500 krónur.
Farið verður á leik Newcastle og
Blackburn sem verður 8. nóv-
ember. Innifalið í verði er flug,
gisting, ferðir til og frá flugvelli,
miði á leikinn og fleira. Verð mið-
ast við tvo í herbergi og eru 40
sæti til ráðstöfunar.
Beardsley kemur
ekkitil Islands
Vegna meiðsla getur Peter Be-
ardsley ekki komið til íslands
eins og fyrirhugað var. Staðfest-
ing fékkst á því að Beardsley
væri tilbúinn aö koma 19. nóv-
ember en það fannst Ferðskrif-
stofunni Alís of seint. Að sögn
Laufeyjar Jóhannsdóttir hjá Alís
ætlar hún aö reyna að fá Beards-
ley hingað til lands á næsta ári.
Bæjarráð
Akraness
styrkirmeistarana
í tilefni af frábærum árangri
íslandsmeistara ÍA áriö 1995 sam-
þykkti bæjarráð Akranes í sið-
ustu viku að veita Knattspymu-
félagi Akraness 250 þúsund króna
styrk. Auk þess bauð bæjarráð
leikmönnum og mökum til kvöld-
verðar síðastliðinn laugardag.
Jörundurþjálfar
liðStjörnunnar
Jörundur Áki Sveinsson hefur
verið ráðimi þjálfari kvennaliðs
Stjömunnar í knattspyrnu fyrir
næsta keppnistímabil. Hann tek-
ur við af Jóni Óttarri Karlssyni
sem sagði starfl sínu lausu í lið-
ijrni viku.
Þýskaland:
Markalaust
hjá Eyjólfi
Hertha Berlín, lið Eyjólfs Sverr-
issonar, gerði markalaust jafh-
tefli gegn Lúbeck í þýsku 2. deild-
inni í knattspymu i gærkvöldi.
Eyjólfur, sem ekki hefur veriö í
liðinu í undanfórnum leikjum,
byrjaöi inni á en var skipt út af
á 85. mínútu. Hertha er í 10. sæti
með 13 stigen Þórður Guðjónsson
og félagar hans í Bochum, sem
unnu 0-2 útisigur á Fortuna Köln
um helgina, em í 2. sæti með 22
stig, stigi á eftir Leipzig.
England:
Bessantbjargaði
liði Southampton
Southampton og West Ham
gerðu markalaust jafntefli i
ensku úrvalsdeildinni í knatt-
spymu i gærkvöldi. Félögin eru
bæði með 6 stig eftir viöureignina
í gær og eru í 3.-4. neðsta sæti
deildarinnar. Dave Bessant,
markvörður Southampton, var
hetja sinna manna en varði
nokkrum sinnum mjög vel og
bjargaði sínum mönnum frá tapi.
Bikarkeppni HSÍ:
Haukar mæta
erkifjendunum
Hafnarfjarðarliðin Haukar og FH
drógust saman í 32-liöa úrslitum bik-
arkeppninnar í handknattleik. Það
var viðeigandi því dregið var í hálf-
leik í landsleiknum á Kaplakrika í
fyrrakvöld.
Annar stórleikur er á milli 1. deild-
arliða, Stjörnunnar og Afturelding-
ar, og þá leikur Grótta við KA. Ann-
ars fór drátturinn þannig:
ÍH-KR
BÍ-Valur
Grótta-KA
Fram - ÍR
Fylkir - HK
ÍA/ÍR-B - ÍBV
Selfoss-B/ÍBV-B - Víkingur
Breiðablik - Fjölnir
Haukar - FH
Afture.B/Valur-B - Keflavík
Reynir S. - Selfoss
Völsungur - Ármann
ÍH-B/Vík.B - Ögri/FH-B
Höttur - Grótta B
Stjarnan - Afturelding
Valur Reyðarf. - Þór Ak.
Knattspyma:
Tveir nýliðar
eru hjá Guðna
Unglingalandsliðið í knattspyrnu
fór í morgun til Norður-írlands þar
sem það leikur í undanriðli Evrópu-
keppninnar í vikunni. íslensku
strákamir mæta Hvít-Rússum á
morgun og heimamönnum á föstu-
daginn en sigurliðið í riðlinum kemst
í úrsiitakeppnina.
Tveir nýliðar eru í 17 manna hópi
sem Guðni Kjartansson þjálfari valdi
fyrir ferðina. Það eru Jóhann B.
Guðmundsson, sóknarmaðurinn
efnilegi frá Keflavík, og Njörður
Steinarsson, leikmaður með 3. deild-
arliði Selfyssinga.
Aðrir í hópnum eru eftirtaldir: Ól-
afur Þór Gunnarsson, ÍR, Gunnar S.
Magnússon, Fram, Rúnar Ágústs-
son, Fram, Valur F. Gíslason, Fram,
Þorbjörn Atli Sveinsson, Fram, Sig-
urður Elí Haraldsson, Fram, Árni
Ingi Pjetursson, KR, Edilon Hreins-
son, KR, ívar Ingimarsson, Val, Ás-
geir F. Ásgeirsson, Fylki, Heiðar Sig-
urjónsson, Þrótti R., Arnar Viöars-
son, FH, ívar Benediktsson, ÍA, Jón
Freyr Magnússon, Grindavík, og
Arngrímur Arnarson, Völsungi.
FIFA:
HM-keppni
félagsliða?
Sepp Blatter, aðalfranikvæmda-
stjóri Alþjóða knattspymusam-
bandsins, FIFA, tilkynnti í gær að
sambandið íhugaði að stofna til
heimsmeistarakeppni félagsliða eftir
HM-keppnina í Frakklandi 1998.
Blatter nefndi að verið væri að skoða
tvo möguleika, annaðhvort að keppa
um titilinn með svipuðu sniði og
keppt er í meistaradeild Evrópu eða
að 16 félög kepptu um heimsmeist-
aratitil félagshða á .2 vikum sem
mætti þá kalla „mini“ heimsmeist-
arakeppni.
,r ö d d
FOLKSINS
904-1600
Hvernig fer leikur Keflavíkur og Njarðvíkur
í úrvalsdeildinni í körfubolta?
Alllr I stafrana kerfinu me6 tónvalsslma geta nýtt sér þegsa þjftnustu.
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aO
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
Sigur Keflavíkur :jJ
Sigur Njarövíkur jzj
Birgir Sigurðsson og félagar hans í Víkingi leika báða leikina gegn Gumarny Zubri í EHF-kepnninni í Tékklandi
um næstu helgi.
íslensku liðin í Evrópukeppninni í handbolta:
Víkingar leika báða
leikina í Tékklandi
sjö leikir á dagskrá um næstu helgi hér heima og erlendis
íslensku félagsliðin hefja þátttöky
sína á Evrópumótunum í handknatt-
leik um næstu helgi. Karlalið KA og
Aftureldingar leika sína fyrri leiki
erlendis og þá síðari heima viku síð-
ar. Valsmenn og Víkingar hafa hins
vegar samið um að leika báða leiki
sína úti. Svo er einnig með kvennalið
Fram en stúlkurnar í Stjörnunni
leika heima og að heiman.
Valsmenn mæta um næstu helgi
rússneska liðinu CSKA Moskvu í
Evrópukeppni meistaraliða og varö
að samkomulagi milli félagana að
mætast á miðri leiö og leika báða
leikina í Lúbeck í Þýskalandi. Með
því tókst aö fá ferðakostnaðinn niður
og á þetta sættust liðin. Fyrri leikur-
inn verður á fóstudag en sá síðari
tekið við. Engu að síður verður róð-
urinn eflaust erfiður hjá Valsmönn-
um en á góðum degi er Valsmenn lík-
legir til alls.
KA-menn mæta norska liðinu Vík-
ing Stavanger í Evrópukeppni bikar-
hafa og verður fyrri leikruinn í
Stavanger á laugardaginn kemur.
Síðari viðureignin verður á Akureyri
15. október í KA-heimilinu. KA-liðið
ætti að eiga möguleika í þessum
leikjum. Markiðið hlýtur aö vera að
ná sem hagstæðustum úrslitum í
Noregi ög láta síðan sverfa til stáls á
sterkum heimavelli norður á Akur-
eyri.
Afturelding mætir Povardarie Ne-
gotino frá Makedóníu í borgakeppni
Evrópu. Fyrri leikur liðanna verður
gömlu Júgóslavíu.
Víkingar völdu þann kostinn aö
leika báða leiki sína í Tékklandi gegn
Gumarny Zubri í Evrópukeppni fé-
lagsliða. Fyrri leikurinn verður 13.
október og sá síðari 15. október. Ekki
er vitað mikið um mótherja Víkings
en tékkneskur handbolti talar sínu
máli og verða Víkingar að sýna allar
sínar bestu hliðar til að standast
þessu hliði snúning.
Kvennalið. Stjörnunnar mætir
gríska liðinu í fyrri leiknum í
Garðabæ á laugadaginn kemur í Evr-
ópukeppni meistaraliða. Grískur
handbolti hefur verið á uppleið á síö-
ustu árum en Stjarnan ætti þó í öllu
falli að eiga góða möguyleika á að
komast í 2. umferð. Síðari leikurinn
daginn eftir, á laugardeginum. CSKA Moskva hefur um árabil ver- ið í hópi bestu félagsliða Rússa en nokkur uppstokkun hefur átt sér stað hjá liðinu og yngri menn hafa í Makedóníu á laugardaginn kemur. Síðari leikruinn verður í Mosfellsbæ 15. október. Afturelding rennir nokk- uð blint í sjóinn en handknattleikur hefur átt sterka hefð í þessum hluta verður í Grikklandi 15. október. Fram leikur báða leiki sína gegn belgíska liðinu Meeuwen í Belgíu. Þann fyrri næsta laugardag og dag- inn eftir þann síðari.
Bréf frá fvrrverandi stiórnarmönnmn í SSÍ:
-
Sævart ekurviðc ioðu bui
Vegna ummæla Sævars Stefáns- sonar, nýkjörins formanns Sund- sambands íslands, á dögunum á íþróttasíðu DV, vil ég sem fyrrver- þings ásamt reikningum, er sýndu að ný stjórn tæki við rúmum þrem- ur milljónum til að hefja næsta starfsár. w Á síðasta tímabili var vel unnið í þessum nefndum og í dag eru til A-, B- og C-stigs námskeið fyrir þjálfara. Einnig voru dómararegl-
andi formaður fráfarandi stjórnar taka eftirfarandi fram. Á orðum Sævars mátti skilja aö viðskflnaður minn og fráfarandi Á sundþingum er lögð gárhagsá- ætlun til samþykktar og hafa stjórnir undir minni stjórn reynt að halda sér innan hennar og hefur ur og leiðbeiningar fyrir starfsfólk á sundmótum þýddar á íslensku úr ensku. Sævar tekur því við góðu búi og
sfjórnar haíi verið slæmur og pen- ingamál sambandsins hafi staðið sundinu fyrir þrifum. Þessi fullyrðing Sævars á ekki við það tekist ágætlega. Sundþing hafa ekki talið ástæðu til að leggja fé til ráðníngar landsl- iösþjálfara fram tO jiessa. Heldur ætti því ekkert að þurfa óttast, þar sem góöur grunnur er nú til staðar bæði fjárhagslega og félagslega innan sundhreyfingarimiar.
rök að styðjast, eins og glögglega kemur fram í skýrslu fráfarandi stjómar, sem hún skOaði til sund- sett peninga í fræðslu, dómara og garpanefnd. Til eflingar og út- breiðslu sundíþróttarinnar. F.h. fyrrverandi stjórnarmanna Guðfinnur Ólafsson, fyrrverandi formaður SSÍ.
Celtic spennt
fyrir lan Rush
Skoska úrvalsdeildarliðið
Glasgow Celtic vill kaupa Ian
Rush frá Liverpool og er tilbúiö
að greiða 100 milljónir króna fyr-
ir þennan 34 ára gamla mikla
markaskorara. Ljóst er róðurinn
getur orðið þungur fyrir Rush að
komast í byijunarliðið. Robbie
Fowler hefur farið á kostum upp
á síðkastið og ekki er búist við
því að Stan Coflymore, dýrasti
knattspyrnumaður Bretlands-
eyja, verði settur á bekkinn.
1 milljarð
fynrTissier
Ensk
dagblöð
skýrðu frá
því um
helgina að
ensku
meistar-
arnir í
Blackburn væru reiðubúnir að
kaupa Matthew Le Tissier frá
Southampton fyrir 1 railljarö ís-
lenskra króna.
Ekkert hefur gengið hjá meist-
urunum á tímabilinu og vilja
sfjórnendur liðsins fá liðsstyrk.
Chicago
kaupir
Rodman
-Bandaríska körfuknattleikslið-
ið Chicago Bulls gekk í nótt frá
kaupum á umdeildasta leik-
manni NBA-deildarinnar, hinum
skrautlega Dennis Rodman, frá
San Antonio Spurs. í staðinn fór
Will Purdue frá Chicago til Spurs.
Rodman er 34 ára og besti frák-
astari deildarinnar en er sífellt til
vandræða á einn eða annan hátt.