Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1995, Side 22
26
ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 1995
Menning
Aðstandendur Glerbrots.
Nú standa yfir æixngar á nýj-
asta leikriti Arttiurs Millers,
Glerbrotum, sem frumsýnt verð-
ur í Þjóðleíkhúsinu í byrjun nóv-
ember. Efni verksins er mjög í
anda Millers, snilldarleg og
spennandi leikflétta þar sem
saman tvinnast átök í einkalífinu
og þau átök sem eiga sér stað í
samfélaginu,
Ldkendur eru Guðrún Gísia-
dóttir, Sigurður Sigurjónsson,
Arnar Jónsson, Ragnheiöur
Steindórsdóttir, Lilja Guörún
Þorvaldsdóttir og Helgi Skúlason.
Þýðandi verksins er Birgir Sig-
uiðsson,:;höfundur leikmyndar
og búninga er Sigurjón Jóhanns-
son og leikstjóri er Þórhildur Þor-
leifsdóttir.
Norðurianda
Tónlistarkeppni Norðurlanda
fer fram í Reykjavík 3., 5. og 7.
október. Keppnin er skipulögð af
Rikisútvarpinu, Tónlistarskólan-
um í Reykjavik og Norræna tón-
listarháskóÍaráðinú í samvinnu
við Sinfóníuliljómsveit íslands og
Qölda annarra. Fyrstf hluti
keppninnar felst í einleiks- og
samleikstónleikum og í öðrum
hluta korna keppendurnir fram
með Sinfóniuhijómsveit íslands
undir stjórn Osmos Vánská.
Keppendur eru fimm talsins og
er Guðrún Mariu Finnbogadótiir
sópransöngkona fulltrúi islands
i keppninni.
Dansperlur í
íslenski dansfiokkurinn hefur
hafið æfingar fyrir sýningu sem
frumsýnd verður í Borgarleik-
húsinu þann 9. nóvember nk,
Sýndar verða perlur úr gömlum
og nýjum sígildum verkum. ■
Náðst hafa samningar við hinn
fræga aöaldansara og danshöf-
und hjá New York City Ballet,
Robert LaFosse, og mun hann
setja upp verk sitt Rags við tón-
list Scott Joplin. Verk Roberts
hafa veriö flutt víða um heim við
góðarundirtektar. Þá verða flutt-
ir tvídansar úr verkunum Blóma-
hátiðin í Genzono og La Sylphide
eftir Boumonville og stutt brot
úr verkinu Rauðar rósir eftir
Stephen Mills við söngva Edith
Piaf. Einnig verður flutt hið vin-
sæla Grand pas de dux tir Hnetu-
brjótnum. Þá Iruraflytur dans-
flokkurinn verkiö Næsti viö-
komustaður: Álfasteinn eftir
Ingibjörgu Björnsdóttur. Útsetn-
ingu og undirleik annast Szymon
Kuran. -sv
Viðar Eggertsson flytur sig nú milli leikhússtjórastóla, að norðan og suður. Hér heldur hann kampakátur á Menn-
ingarverðlaunum DV frá þvi á liðnum vetri. DV-mynd GVA
Nýráðinn leikhússtjóri hjá LR:
Óskaplega spenn-
andi vettvangur
- segir Viðar Eggertsson
„Eg tek formlega við í september
næsta haust og við tekur óskaplega
spennandi vettvangur sem ég hlakka
mikið til að takast á við. Leikfélag
Reykjavíkur er ein elsta menningar-
stofnun Reykjavíkur og það verður
hundrað ára á næsta ári. Ég byrja
því mitt fyrsta leikár á því að skipu-
leggja það,“ sagði nýráðinn leikhús-
stjóri Leikfélags Reykjavíkur, Viðar
Eggertsson, sem lætur af störfum
sem leikhússtjóri hjá Leikfélagi Ak-
ureyrar um næstu áramót.
„Við munum fagna aldarafmælinu
á viöeigandi hátt á næsta ári og ég
mun fara með LR inn í nýja öld þar
sem leikhússtjóri er ráðinn til fjög-
urra ára. Á þessu stigi verður ekkert
gert opinbert um það hvað verður
gert en það verður vonandi margt
skemmtilegt. Ég ætla að láta verkin
tala líkt og ég hef gert hér á Akur-
eyri. Mitt hlutverk verður fyrst og
fremst að vera listrænn stjórnandi
og marka listræna stefnu með leik-
húsráðinu. Ég lít á mig sem hstræn-
an stjórnanda starfseminnar, þ.e. sjá
um verkefnaval, listamenn og list-
ræna stjórnendur hússins," sagði
Viðar.
Leikfélag Akureyrar frumsýnir
Drakúla fostudaginn 13. október og
að sögn Viðars er mjög spennandi
leikár að hefjast hjá leikfélaginu.
Hann segist munu koma til með að
sakna Akureyrar og Akureyringa.
„Þetta hefur verið afskaplega lær-
dómsríkur tími hér fyrir norðan og
mér hefur verið afar vel tekið hér.
Ég veit líka að min bíður gott sam-
starfsfólk hjá Leikfélagi Reykjavíkur
og Reykvíkinga þekki ég ekki nema
af góðu einu,“ sagði Viðar. Hann
kemur til starfa hjá LR 1. janúar nk.
til þess að skipuleggja næsta starfsár
og segir að koma verði í ljós þegar
tjöldin verði dregin frá í haust hvaða
stefna verði mörkuð." Viðar hlaut
sem kunnugt er Menningarverðlaun
DV sl. vetur.
-sv
Carmina Burana frumsýnd:
Syng steiktan svan
- segir Þorgeir Andrésson
„Þetta er fyrst og fremst kórverk
og kórinn skipa um 50 manns. Við
erum þrjú með einsöng, Bergþór
Pálsson, Diddú og ég, og æflngar
hafa gengið mjög vel. I raun ér þetta
bara upprifjun fyrir okkur Diddú því
við sungum þessi sömu hlutverk þeg-
ar óperan var flutt hér 1990,“ sagöi
verkfræðingurinn og tenórsöngvar-
inn Þorgeir Andrésson í samtali við
DV en hann verður í miklum önnum
á söngsviðinu nú í vetur. Hann syng-
ur steiktan svan í Carminu Burana
og leikur síðan nomina í barnaóper-
unni Hans og Grétu sem frumsýnd
verður annan í jólum. Þá syngur
hann stórt hlutverk í Othello sem
íslenska óperan fer með til Japans á
næsta ári. Meginástæðan fyrir upp-
setningu Carminu Burana nú er sú
för. Loks syngur Þorgeir Galdra-Loft
á Listahátíð í júní á næsta ári.
Carmina Burana verður frumsýnd
í íslensku óperunni á laugardags-
kvöld. Stjórnandi er Garðar Cortes
og leikstjóri Terrence Etheridge.
-sv
SEMENTSBUNDIN
HÁGÆÐA FLOTEFNI
FLOTSPARTL - DUKASPARTL - FLOTGOLF
IÐNAÐARFLOT - HLEÐSLUSPARTL
Islensk framieiðsia
síðan 1972
Sterk, ódýr og z'/ytt
hra&þornandi flotefni. m < •z: ggy f-* ■■
Til vi&ger&a, ílagna og
yfirlagna á ný e&a gömul ■I
gólf. Frá 0-30 mm á þykkt.
r M m
Stangarhyl 7, sími 567 2777
Bók um Intemetið:
Áupp-
lýsinga-
hraðbraut
„Tildrögin voru þau fyrst og
frðmst að við fundum hve mikil
forvitni var alls staðar og okkur
fannst tilvahð að taka saman yfir-
lit um mismunandi notkun og
hvað menn væru að gera með
netið. íslendingar hafa tekið þetta
með áhlaupi og það er skemmti-
legt að sjá að þeir nota netið mjög
skynsamlega. Þetta er ekki bara
leikfang," segir Sigrún Klara
Hannesdóttir, prófessor og rit-
stjóri nýrrar bókar sem heitir Á
upplýsingahraðbraut. Frásagnir
um notkun Internetsins. Sigrún
segir að leitað hafi verið til fólks
og það beðið að lýsa því hvernig
það noti netið. Þetta séu reynslu-
sögur fólks en ekki fræðileg um-
fjöllun. Sagt er frá netinu sjálfu,
Islenska menntanetinu o.s.frv.
Þaö er Lindin hf„ útgáfa og dreif-
ing, sem gefur bókina út. Hún
mun að sögn Sigrúnar fást í ein-
hverjum bókabúðum en mest
muni henni verða dreift eftir öör-
umleiðum. -sv
Bóksalan
Nú er Leikfélag Reykjavíkur að
hieypa af stokkunum leikhús-
bóksölu í forsal Borgarleikhúss-
ins. Þar verður boðið upp á gott
úrval leikrita, fagrita og hverju
einu sem tengist leikiisl. Á boð-
stólum verða helstu perlur leik-
luisbókmennta. bæði inniendar
og erlendar, og geisladiskar og
hijómplötur frá uppsetningum
hússins.
tónleikaröð
Þann 10. októher hofst tónleika-
röð Leikfélags Reykjavíkur,
glæsileg dagskrá sem verður í
leikhúsinu hvert þriðjudags-
kvöld kl. 20.30 í ailan vetur. Flest-
ir tónleikarnir fara fram á Stóra
sviðinu en Litla sviðið verður
einnig notað. Rjóminn af íslensku
tóniistarfólki mun koma þarna
fram og tónlistin mun spanna alit
litrófið.
Öilu tóniistarfóiki var gefinn
kostur á að sækja um þátttöku í
tónleikaröðinni, mikill fjöldi sótti
um og svo var valið úr. Þeir sem
ríða á vaðið 10, okt. verða 3-5
hópurinn, níu góðkunnir tónlist-
armenn sem ílytja kvintetta og
eítt tríó á Litla sviðinu. Snigla-
bandið kemur næst og siðan má
sjá á iista Kristin Sigmundsson
og Jónas Ingimundarson, Mezzo-
forte, Bubba Morthens og hljóm-
sveit o.fi.
Tvær nýjar Ijóðabækur
Ijóðabækur
Þór Stefánsson hefur sent frá
sér ijóðahókina Hjartarætur í
snjónum. Alúð við tunguna og
gráleit glettni samfara djúpri al-
vöru einkenna ijóðmál höfundar.
Ennfremur hefur Magnúx Gezz-
on sent frá sér Syngjandi sól-
kerfi, ijóðabók sem er stefnumót
við óendanleikann í okkur ölium.
Trojudætur
Hvunndagsleikhúsiö hóf æfing-
ar á einum magnaðasta harmleik
heimsbókmenntanna fyrir
skömmu. Er hér um aö ræða
Trójudætur Evrípídesar, í þýð-
ingu Helga Hálfdánarsonar, sem
margir segja áhrifamestu lýsingu
á stríði þjóða og þeim skelíingum
sem ævinlega fylgja í kjölfarið.
Um 30 manns taka þátt i sýning-
unni og fer hún fram í Iðnó, í því
ástandi sem húsið er nú, og mun
verkið vaxa út úr hálfköruðu
bákninu.
Leikstjóri er Inga Bjamason,
Leifur Þórarinsson scmur tónlist,
hljómsveitinni stjórnar Óskar
Ingólfsson, Lára Stefánsdóttir sér
um dansa og Ásdís Guðjónsdóttir
og Gerla sjá um mynd og bún-
inga. Leikarar í helstu hlutverk-
um eru Bríet Héðinsdóttir, Helga
E. Jónsdóttir, Sigrún Sól Óiafs-
dóttir o.fl.
Kói-verkið er mjög viðamikið
og er í höndum bæöi leikara og
söngvara, þ.á m. eru Lilja Þóris-
dóttir, María Ellingsen, Kolbrún
Erna Pétursdóttir, Guðrún Þórð-
ardóttir, Björk Jónsdóttir, Jó-
hanna Linnet o.fl. Stefnt er að
frumsýningu um miðjan október
og að henni lokinni og nokkrum
aukasýningum veröur haldið
áfram að vinna verkið. -sv