Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1995, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1995, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1995 Fréttir Sökuð um aðför að lögreglu og tUraunir til að hindra hana 1 starfi: Við spurðum bara hvort þetta væri nauðsynlegt - segir Guðbjörg Ósk sem ásamt manni sínum, Domenico Alex Gala, var á staðnum „Hvorki ég né maðurinn minn snertum við lögreglumanninum. Við spurðum bara hvort þetta væri nauð- synlegt eftir að við sáum hvernig þeir tóku unghnginn, hentu honum í götuna og rifu hann svo aftur upp á hárinu,“ segir Guðbjörg Ósk Frið- riksdóttir sem ásamt manni sínum, Domenico Alex Gala, lenti í orða- hnippingum við lögreglumenn í miöbæ Reykvíkur fyrir skömmu. Nú eru þau sökuð um að hafa veist að lögreglunni og fyrir að hafa reynt að hindra hana í starfi. Guðbjörg segir að þeim hafi ofboðið meðferðin á piltinum og haft um það orð en ekki meira. Þau voru bæði handtekin og flutt á lögreglustöðina þar sem Domenico varð að sitja heila nótt. Guöbjörgu var sleppt eftir aö hún neitaði að gefa skýrslu. Domenico er af ítölsku bergi brotinn en íslenskur ríkisborgari. Rannsóknarlögreglan hefur yfir- heyrt Domenico og er hann sakaður um að hafa slegið lögregluþjón utan- undir og slegið af honum húfuna. Upphaflega var Guðbjörg sökuð um þau verk. Að sögn RLR hefur enn ekki veriö tekin ákvörðun um hvort málið á hendur Dominico verður sent ákæruvaldinu en vitni hafa ver- ið yfirheyrð vegna þess. Að öðru leiti vill RLR ekki ræða stööu málsins. „Okkur fmnst slæmt að vera sökuð um afbrot sem við höfum alls ekki framið. Okkur ofbauð bara meðferð lögreglunnar á piltinum sem að vísu var fullur en ekki til nokkurra vand- ræða og með smálempni hefði mátt komast hjá öllum iUdeilum,“ segir Guðbjörg. Guðmundur Guðjónsson, yfirlög- regluþjónn í Reykjavík, segir að í þessu máh standi orð á móti orði. „Lögregluþjónninn var sleginn en rannsókn verður að leiða í ljós hver er sekur í því máh,“ sagði Guðmund- ur við DV. -GK Stuttar fréttir Störfum fækkar Störfum á vegum ríkisins fækk- ar um 800 til 900 vegna skertra framlaga til verklegra fram- kvæmda. RÚV hafði eftir Bene- dikt Davíðssyni, forseta ASÍ, að skv. fjárlagafrumvarpinu geri ríkisstjórnin ekkert til að skapa ný störf í atvinnuleysinu. Meiraféífangelsin Framlag rfltíssjóðs til fangelsis- mála eykst um 100,7 milljónir á næsta ári og verður 424 milljónir. Fimmtung hækkunarinar má rekja til hallareksturs á þessu ári. Sýslumönnum fækkað Sýslumannsembætti á Ólafs- firði og í Bolungarvík veröa lögð niður á næsta ári og sameinuð embættum á Akureyrí og ísafiröi. Skv. fj árlagafrumvarpinu lækka útgjöld ríkisins i kjölfariö um 14 mflljónir á næsta ári og 12 millj- ónir árið 1997. Minna til ráðstöf unar Ráðstöfunartekjur einhleypra, sem hafa 100 þúsund krónur í mánaðarlaun, hafa skerst um 4,7% vegna hækkana á tekju- skatti sl. 7 ár. Hjá þeim sem hafa 250 þúsund króna tekjur er skerð- ingin 7,3 prósent. Meira fé til Bessastaða Endurbætumar á Bessastööum kalla á 45 mflljóna viðbótarfjár- veitingu í ár en til verksins átti að verja 72 milljónum. Á næsta ári renna 37 milljónir til endur- bótanna samkvæmt fjárlaga- frumvarpi ríkisstjómarinnar. Minní hjálparstarfsemi Framlög ríkisins til alþjóðlegr- ar hjálparstarfsemi, þróunar- mála og Þróunarsamvinnustofn- unar íslands, lækka um samtals 13,4 milljónir á næsta ári sam- kvæmt flárlagafrumvarpínu. Alls verður 264 milljónum veitt tfl þessa málaflokks. Færri f élag slegar íbúðir Rikisstjómin ráðgerir að skerða framlög til félagslegra íbúðakerfisins um 208 milljónir á næsta árí. Áætlaö er að lána til nýbygginga á 230 ibúðum í stað 420. Þetta kemur fram í fjárlaga- frumvarpi ríkisstjómarinnar, Bolabrögðogpukur Siguröur Tómas Björgvinsson, fráfarandi framkvæmdastjóri Al- þýðuflokksins, sakar gjaldkera flokksins og formann fram- kvæmdastjómar um bolabrögð. Meðal annars hafi gjaldkerinn leynt sig gpgnum um fiármál flokksins. RÚV greindi frá. -kaa Krafa um að tjöm í skrúðgarðinum í Keflavík verði vatnstæmd: Dauðagildra fyrir börnin Tjörnin í skrúðgarðinum. Ástríður Sigurðardóttir vill láta vatnstæma hana. DV-mynd Ægir Már Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum; „Ég fer fram á að tjömin verði vatnstæmd. Hún er dauðagildra fyrir börnin. Bam getur drukknað í minni polli en þessum og þama gæti orðið dauðaslys. Þá nota mávarnir jjennan stað sem baðstaö," segir Ástríður Siguröardóttir, 75 ára Keflvfltíngur, sem fer fram á að tjömin í skrúð- garðinum í Keflavík verði vatnstæmd. Hún hefur þegar kvartaö til nefnd- ar um öryggismál barna í Reykja- nesbæ og vill aö nefndin beiti sér fyrir því að tjörnin verði tæmd. Ástríður, sem býr rétt hjá tjörninni, segist hafa séð barn vera nálægt því að detta í tjömina viö að ná í dúkk- una sína sém það hafði misst í vatnið. „Þaö er fuht af litlum bömum sem sækja í tjömina. Þau vaða upp í mitti berfætt. Þarna er mikiö af glerbrot- um á botninum. Ég sé enga fegurð í þessar tjörn. Þama hendir fólk mat- arrush ofan í og mávamir bera með sér ahs konar bakteríur. Þaö er hægt að segja að ég sé orðin of gömul til að skipta mér af þessu en mér finnst mér koma þetta við. Ég ætla að halda minni baráttu áfram og fá þennan fúla pytt í burtu,“ segir Ástríður. Sauðárkrókur: Hrekkjóttur kláðamaur „Það eina sem ég get sagt er að maurinn er ófundinn enn,“ segir Sigurjón Þórðarson, heilbrigðis- fulltrúi á Sauðárkróki, um leit að kláðamaur þar í bænum. Til- kynning kom um aö maurinn herjaði á ungmenni staðarins og voru heimkynni hans rakin til líkamsræktarstöövar. Var leitaö til lækna um leið og líkamsræktarstöðin var rann- sökuö. Enginn maur fannst og ekki heldur ungmenni þau sem áttu að vera með kláðann. Varð því niðurstaða rannsókn- arinnar að telja maurinn hrekk- jóttan í meira lagi ef ekki illkvitt- inn og tfl þess vakinn upp aö koma óoröi á likamsræktarstöð- ina. -GK Afbrot á Akureyri: Fóru úr fíkniefna- samkvæmi í innbrot - lögreglan sein að taka við sér? Maöur, sem tflkynnti um flkni- efnasamkvæmi í húsi á Akureyri á sunnudagskvöldið, itelur vinnubrögð lögreglu undraverð í ljósi þess að hægt hefði verið aö koma í veg fyrir innbrot í húsnæði Sálarrannsóknar- félagsins í fyrrinótt. Lögreglubíl hefði verið eítíð margoft framhjá húsi þar sem þjófamir voru í sam- kvæmi en síöar um nóttina hefðu þeir látið tfl skarar skríða og brotist inn. Sex aðilar voru handteknir í gær en tveimur var haldið eftir vegna yfirheyrslna. „Mér finnst þetta hart því annar aöilanna, sem var í haldi lögreglunn- ar, hefur m.a. verið að selja 16-17 ára ungmennum fíkniefni. Auk þess var einn aðih í þessu partíi, sem aldrei hefur lent í slíku, útsprautaður þvi hann var svo öfurölvi að hann vissi ekki hvað hann var að gera,“ sagði maðurinn við DV. „Á sunnudagskvöldið lá fyrir vitn- eskja um að fíkniefni væru í húsinu og var lögreglunni tilkynnt um það. Merktum lögreglubíl var margsinnis ekiö framhjá húsinu en það var ekki fariö inn fyrr en um tveimur klukku- stundum síðar - þá var allt um sein- an og engin efni fundust," sagði mað- urinn. Gunnar Jóhannsson rannsóknar- lögreglumaður sagði í samtah við DV að lögreglan hefði m.a. verið að hafa afskipti af fólki í viðkomandi húsi vegna málefna ótengdum fíkniefnum eða innbrotum. Hann gæti að öðru leyti ekki svarað fyrir aðgerðir lög- reglunnar á sunnudagskvöldið og aöfaranótt mánudags. Þýfi að verð- mæti mörg hundruð þúsund króna var komið í leitirnar í gær, sam- kvæmt upplýsingum Gunnars. -Ótt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.