Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1995, Blaðsíða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1995
Sviðsljós
Madonna mun leika Evitu í samnefndri kvikmynd. Hér er hún ásamt höfundum söngleiksins sem myndin byggir á, Andrew Lloyd Webber, t.v., og Tim Rice.
Simamynd Reuter
Pauline eins og hún er í myndinni.
Ýmislegt er nú á mann lagt:
Sharon breytist í
akfeitt morðkvendi
Madonna ásamt meðleikurum sínum i Evitu, Jonathan Pryce, t.v., og Antonio
Banderas. Simamynd Reuter
íslenskir sjónvarpsáhorfendur
þekkja Pauline Quirke, feitlagnari
systurina í Sækjast sér um líkir,
bresku þáttaröðinni. Pauline ætlar
að skipta um ímynd, hætta að vera
þessi krúttlega bolla, og taka að sér
öllu umfangsmeira hlutverk: Rúm-
lega hundrað kílóa morðkvendis.
Ekki er Pauline nú örðin rúm
hundrað kíló í alvörunni og sem bet-
ur fer fyrir hana, þarf hún ekki að
borða yfir sig næstu vikurnar til að
bæta á sig kílóum. Nei, þess í stað
þarf hún að æfa sig í að fara í og úr
fltubúningi. Hún virðist sextíu kfló-
um þyngri þegar hún er komin í
hann en hún er í raun og veru.
í sjónvarpsmyndinni, sem heitir
The Sculptress, leikur Pauline hús-
móöurina Olive Martin sem dundar
sér við að drepa móður sína og syst-
ur og skera þær í sneiðar.
„Það er langur vegur frá Olive til
Sharon í Sækjast sér um líkir,“ segir
Pauline. „En hlutverkið hefllaöi mig
samstundis þegar ég las skáldsöguna
eftir Minette Walters."
Pauline eins og hún er.
Pauline heldur áfram: „Olive er
stórkostlegt tækifæri fyrir hvaða
leikkonu sem er. Svo hef ég aldrei
leikið morðingja áður. Hún er rúm-
lega hundrað kíló en ég er ekki enn
komin svo langt. Búningadeildin
þurfti því að bæta utan á mig og ég á
í basli við að hreyfa mig alminlega,"
segir Pauline Quirke.
Madonna
leikur Evitu
Söngkonan Madonna mun leika
Evitu í nýrri kvikmynd sem byggir
á hinum þekkta samnefnda söngleik
eftir þá félaga Andrew Lloyd Webber
og Tim Rice. Webber og Rice eru ein-
ir helstu söngleikjasmiðir sam-
tímans en eftir þá liggja söngleikir
eins og Jesus Christ Superstar og
Chess. Upptökur á tónlistinni fyrir
Evitu hófust á mánudag og var
mannskapurinn þá myndaður í bak
og fyrir. Með aðalkarlhlutverkin í
myndinni fara þeir Jonathán Pryce
og hjartaknúsarinn Antonio Band-
eras, ástmaður Melanie Griffith.
Leikstjóri myndarinnar er Alan Par-
ker.
Mel Gibson til
bjargar
Skotarnir vita sem er að þaö er
alltaf hægt að reiða sig á Mel Gib-
son, sérstaklega eftir að hann
gerði hetjumyndina um William
„Braveheart“ Wallace Englend-
ingabana. Nú hefur Gibson kom-
ið skoskum þjóðernissinnum til
bjargar. Sökum vinsælda mynd-
arinnar vegnaði þeim betur en
áöur í skoðanakönnun.
Elton endur-
gerir Aidu
Popparinn Elton John hefur
tekið að sér aö gera tónlistina við
teiknimyndaútgáfu Disney-sam-
steypunnar af Aidu, óperu Verd-
is. Elton stjórnaði tónlistinni fyr-
ir Konung Ijónanna og fékk ósk-
arsverðlaun fyrir snúð sinn.
Samstarfsmaður Eltons veröur
Tim Rice, sá frægi textahöfundur.
Mussolini hrif-
inn af Mikka
ítalski einræðisherrann og erki-
fasistinn Benito Mussolini var yfir
sig hrifinn af teiknimyndafígúr-
unni Mikka mús. Þá var hann lika
skotinn í Mjallhviti og dvergunum
sjö. Benito lagði það í vana sinn
að syngja lög úr Disney-myndum
fyrir börnin sín og hann hitti Di-
sney sjálfan árið 1935.
Góð ráð við bíl-
þjófnaði
Leikkonan Sandra Bullock var
orðin svo þreytt á því að láta stela
frá sér bílunum sínum fínu (þjóf-
ar höfðu tekið fimm bíla frá henni
traustataki á tveimur árum) aö
hún keypti sér bara gamla
beyglu. Og i gluggann setti hún
orösendingu um aö þjófum væri
velkomið að hirða hræið þar sem
þaö hefði bara verið til vandræða.