Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1995, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1995, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1995 11 Fréttir Fjárlagafrumvarpið fyrir 1996 lagt fram á Alþingi: í milljónum króna ■ Fjárlög 1995 Fjárlagafrv. 1996 Greiðsluyfirlit A-hlu1 - milljónir króna á verölagi ■ Rekstrarafkoma útgjöld ríkisins aukast um 7,8 milljarða miðað við gildandi fjárlög Utgjiild - eftir Aðalstjórn rikisins - f -gjj Forsætisrn. !|^ Menntamálarn. Utanríkisrn. ■ 1-788 1.866 Landbúnaðarm. Sjávarútvegsrn. Dóms- og kirkjumrn. Félagsmálarn. Heilbr. og Tryggmrn. Fjármálarn. Samgöngurn. lönaöarrn. Viðskiptarn. Hagstofa íslands j*|| Umhverfisrn. JJg' * i.iii B 1.185 ■N5. 5.936 ! 9.329 9.283 9.183 8.474 1.091 1.147 173 1193 18.349 17.754 hlutfall skatta og ■ Skattar j 46.228 S» 49.196 A-hluta ríkissjððs hvers árs - DV 3.561 -í milljónum króna - Reikn. '94 Fjárlög '95 Áætlun '95 11.360 B.114 3.555 Frumvarp '96 12.665 8.180 Eignarskattar l Skattar á vörur og þjónustu S Tryggingagíöld, launaskattar \ ■ Tekjuskattar I Aórar tekjur Tekjur ríkissjóðs á næsta ári hækka um tæplega 7,8 milljarða mið- að við gildandi fjárlög. Útgjöldin auk- ast um ríflega 4,2 milljarða og hefur þá verið tekið tillit til aukinna sér- tekna ríkisstofnana upp á 518 millj- ónir. Þetta kemur meðal annars fram í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinn- ar sem Friðrik Sophusson fjármála- ráðherra lagði fram á Alþingi í gær. í frumvarpinu er gert ráð fyrir að tekjur ríkissjóða á næsta ári verði 119.9 milijarðar og útgjöldin 123,8 miUjarðar. Gangi þetta eftir mun fjárlagahalli næsta árs nema tæplega 3.9 milljörðum króna. Til saman- burðar má geta þess að í gildandi fjárlögum þessa árs er gert ráð fyrir 7,4 milljarða halla. Fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir að heildarlánsfjárþörf ríkissjóðs aukist um tæplega 3,5 milljarða frá fjárlögum þessa árs og verði 25,4 milljarðar. Hrein lánsfjárþörf ríkis- sjóðs lækkar hins vegar úr 9,4 millj- örðum í rúmlega 4,2 milljarða. Auknar tekjur ríkissjóðs stafa af skattahækkunum og aukinni veltu í þjóðfélaginu að undanfórnu. Miðað við fjárlög þessa árs er gert ráð fyrir að tekjuskattar á einstaklinga skili ríkissjóði tæplega 1,4 milljörðum í auknar tekjur og tekjuskattur á fyr- irtækin 1 milljarði. Launaskattar og hækkun tryggingagjalds eiga að auka tekjur ríkissjóðs um tæplega 1,3 milljarða og skattar á vörur og þjónustu eiga að skila 3,4 milljörðum í auknar tekjur. Aðrar tekjur ríkis- sjóðs aukast um 560 milljónir. Ekki er gert ráö fyrir að persónuafsláttur hækki um næstu áramót með vísan til þess að skattlagning á lífeyrisið- gjöld verður að fullu afnumin á árinu 1997. Á útgjaldahliðinni er gert ráð fyrir að rekstrarkostnaður ríkissjóðs auk- ist um tæplega 8,7 prósent miðað við fjárlög 1995 eða tæplega 4 miiljarða og verði 49,8 milljarðar. Launakostn- aðurinn eykst um 11,9 prósent eða rúmlega 4,3 milljarða og önnur rekstrargjöld um 1 prósent eða um 164 milljónir. Á móti vega hins vegar sértekjur sem aukast um 7,6 prósent eða 518 milljónir. Samkvæmt frumvarpinu munu út- gjöld til tryggingamála og rekstrar- tilfærslu nema 47,9 milljörðum króna samanborið við 46,4 milljarða í fjárlögum 1995. Greiðslur vegna bóta almannatrygginga og atvinnu- leysistrygginga eru áætlaðar 31,6 milljarðar og til landbúnaðarins renna 5,7 milljarðar. Þá lækka fram- lög til Lánasjóðs íslenskra náms- manna um 1,4 milljarða. í vaxtagreiðslur er áætlað að fari 13,1 mUljarður á næsta ári og í við- haldsverkefni, einkum hjá Vegagerð- inni, er ráðgert að fari rúmlega 3,3 milljarðar sem er ívið minni upphæð en í fjárlögum þessa árs. Samkvæmt frumvarpinu verður dregið úr fjár- festingum ef undan eru skildar end- urbætur á menningarbyggingum og framhaldsskólum. Verja á alls 9,7 milljörðum til fjárfestinga á næsta ári samanborið við 11,6 milljarða í fjárlögum þessa árs. -kaa Frysting persónuafsláttar og miklar skattahækkanir Þjóöhagsáætlun: ISÍS-iSSS H Hagvöxtur '95 H Hagvöxtur '96 4,0%--------------------------------------------- Dregur úr hagvexti Ný þjóðhagsáætlun gerir ráð fyrir að það hægi á hagvexti hér á landi á næsta ári vegna skeröingar á afla- heimildum og aukins aðhalds í þjóð- arútgjöldum. í ár er gert ráð fyrir að hagvöxturinnv verði 3,2 prósent en á næsta ári er gert ráð fyrir að hann verði einungis um 2 prósent. Á næsta ári er reiknaö með að þjóð- arútgjöldin aukist um 2,8 prósent og að viðskiptajöfnuðurinn verði já- kvæður um 3,4 milljarða í stað 4,7 milljarða í ár. Búist er við að verð- bólgan verði um 2,5 prósent og að það dragi lítils háttar úr atvinnuleysi. Á árinu 1997 er gert ráð fyrir að hag- vöxtur aukist á ný og verði að jafn- aði um 2,5 prósent á ári til aldamóta. -kaa Tekjuskattur einstaklinga: Hækkar um milljarð Tekíuskattsbyrði einstaklinga meðtengingutekjutengdrabótavið mun aukast ura milljarð króna fjármagnstekjur og um 250 milJjón- ákveði Alþingi að frysta persónuaf- ir með setningu r eglna um svokali- sláttinn eins og gert er ráð fyrir í aöar heimildarbætur. fjárlagafrumvarpi ríkisstjómar- Skerðingbótagreiðslnanæreinn- innar. Hækkun á tryggingagjaldi ig til feðra- og mæðralauna og er atvinnuvega erætlaðaðskilaríkis- ætlunin aö minnka ríkisútgjöldin sjóði öðrum milljarði í auknar tekj- um 125 milljónir með þeim hætti. ur. Alls gera þetta um 2 milljarða Hætta á greiðslu bóta með einu í aukna skatta. bami og bótafjárhæðir með öðm í fjárlagafrumvarpinu er enn- og þriðja barni veröa skertar um fremur gert ráð fyrir að sértekjur sömu krónutölu eða um 12.576 aukist um 518 miUjónir miðaö við krónuráári.Ennfremurergertráö fjárlög þessa árs. Meðal annars er fyrir 5 miUjóna króna sparnaði gert er ráð fyrir að sértekjur meöþvíaðfeUaniðurekkjulífeyri. sjúkrahúsa aukist um 104 miUjónir Á sviði sjúkratrygginga er einnig með aukinni gjaldtöku. ráögert að lækka útgjöldin veru- Samkvæmt frumvarpinu verða lega eða um 880 milljónir. Meðal greiðslur bóta vegna lífeyristrygg- annars er gert ráð fyrir að afsláttur inga skertar um ríflega 1,1 milljarö. efdrlaunaþega á greiðslum fyrir Um 450 miUjónir á að spara með heUbrigðisþjónustu hefiist við 70 þvi aö afnema verðlagsuppfærslu ára aldur í stað 67 ára. bóta, um 285 miUjónir á að spara -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.