Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1995, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1995, Blaðsíða 18
34 MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1995 Iþróttir________________ HagnaðurUnited tveirmilljarðar á síðasta ári Stjóm enska knattspyrnufé- lagsins Manchester United til- kynnti. í gær að hagnaður þess á tímabilinu 1994-95 hefði numið um 2 milljörðumíslenskra króna. Það er nær helmings aukning frá árinu á undan. Það sem gerir útslagið í fjórmál- um félagsins er gífurleg aukning á sölu á alls kyns vamingi tengd- um því, búningum, merkjum og fleiru í þeim dúr. Félagið seldi slíkt fyrir 2,3 milljarða á tímabíl- inu, sem var 65 prósent aukning frá tímabilinu 1993-94. Félagið á nú 800 milljónir króna i varasjóði og Martin Edwards, stjórnarformaður, segir að þeim peningum veröi varið til kaupa á nýjum leikmönnum ef liðinu gangi ekki nægilega vel þegar líð- ur á veturinn. Sætaferðir Stjörnumanna Stjörnumenn ætla að fjölmenna á leik áinna manna gegn Víkingi í 1. deildinni í handknattleik sem fram fer í Víkinní í kvöld. Stuðn- ingsklúbbur Stjömunnar verður með sætaferöir frá Stjörnuheim- ilinu í Garðabæ og er brottför þaöan klukkan 19.15. SiggiSveins gegn Guðmundi í 2. deildinni Tveir af þekktustu handbolta- mönnum landsins mætast í kvöld sem þjálfarar liða í 2. deildinni. HK, undir stjórn Sigurðar Sveinssonar, sem jafnframt leik- ur með liðinu, tekur á móti Fram, undir stjóm Guðmimdar Guð- mundssonar, í Digranesi klukkan 20. Þessum liðum er spáð topp- baráttu i deildinni í vetur og því verður eflaust um hörkuleik að ræða. - ' V Draumaliðá vetrarleikum Útlit er fyrir að vetrarólympiu- leikamir eignist sitt „draumal- ið“, á svipaðan hátt og banda- risku NBA-leikmennirnir hafa lífgað upp á tvo síðustu sumar- leika. Atvinnumönnum í íshokkí hefur verið heimiiað að taka þátt í leikunum í Nagano í Japan árið 1998 og gert verður hlé á amer- rísku atvinnudeildinni, NHL- deildinni, sextán dögum áður en leikarnir hefjast til að gera leik- mönnunum kleift að æfa með landsliöum sínum. Tveiríslendingar hjá norska liðinu Oppsal Tveir íslendingar eru nú hjá norska handknattleiksliðinu Oppsal. Ingi Þór Guömundsson, fyrmm leikmaður Víkings og Breiðabliks, spilar nú sitt annað tímabil með félaginu og á dögim- um var Örn Ölafsson ráðinn þjálfari liðsins. Örn hefur starfað i Noregi í nokkur ár. Götukörfubolti íKolaportinu Körfuknattsleikssamband ís- lands hefur samið við Kolaportiö aö þar verði boðið upp á götu- körfubolta í allan vetur. Sam- starflö hófst í fyrra og gekk það mjög vel. Opnað verður í dag klukkan 16 og veröur opið til klukkan 22 frá mánudegi til funmtudags. Alls verða 20 körfu- boltavellir til staðar fyrir al- menning til að spila körfuknatt- leik. Landshreyfing ’95: 10 þúsund Islendingar tóku þátt í verkef ninu Um 10 þúsund íslendingar tóku þátt í Landshreyfingu ’95 á um 250 þátttökustöðum um land allt. í sam- vinnu við Ungmennafélag íslands tóku Sundsamband íslands og Frjáls- íþróttasamband íslands þátt í verk- efninu. Landshreyfing stóð í 95 daga, frá 28. maí til 30. ágúst. Til aö taka þátt gat þátttakandi valið um að ganga, skokka eða hlaupa 3 kíló- metra eða synda 200 metra. Yfir 5 þúsund gull-, silfur- og brons- verðlaun voru veitt og á sjöunda hundrað manns tóku þátt oftar en 75 sinnum og komast þar með í svo- nefndan 75 hópinn. Ur þeim hópi veru dregin út fimm nöfn sem veitt voru verðlaun á blaðamannafundi sem Ungmennafélag íslands efndi til í gær. Fyrstu verðlaun, helgarferð á Hótel Eddu, hreppti Anna Marín Kristjáns- dóttir frá Akureyri. Önnur verðlaun, 10 þúsund króna vöruúttekt í Frí- sport hlaut Ölvir Thorstensen úr Reykjavík. Þriðju verðlaun, 10 þús- und króna vöruútekt í Frísport, hlaut Ósk Elín Jóhannesdóttir úr Reykja- vík. Fjórðu verðlaun, Speedotösku, fékk Erna Erlingsdóttir, Akureyri, og fimmtu verðlaun Friðþjófur Þor- steinsson frá ísafirði. Eins og í fyrra voru veitt verðlaun til íþrótta- og ungmennafélaga fyrir góða þátttöku. Annað árið í röð voru þeir kröftugir á Þingeyri en íþrótta- félagið Höfrungur hlaut verðlaun fyrir flestar þátttökur í hlaupinu, en samtals voru þær 11.136 í sumar sem telst ótrúlegur árangur hjá ekki stærra bæjarfélagi en Þingeyri. Ungmennafélagið Samhygð var meö mesta þátttöku miðað við íbúa- íjölda en meöaltalið hjá þeim var 22,1 á íbúa. Samhygð og Höfrungi voru veittar 100 þúsund krónur fyrir afrekið. „Þurfum margt að laga í vörn og sókn“ - öruggur sigur Sljörnustúlkna 1 Víkinni, 16-21 Helga Sigmundsdóttir skrifar: Víkingur tók á móti Stjörnunni úr Garðabæ í 1. deild kvenna í hand- knattleik í gærkvöld í Víkinni og lauk leiknum með sigri Stjörnunnar, 16-21. Staðan í leikhléi var 9-11. „Ég er ekki ánægð með leikinn en sigur er sigur svo þaö þýðir litið að kvarta. Við byrjuðum vel og komust í 2-7 en þær náðu að minnka muninn í 7-8 og það sýnir að það þarf að laga margt hjá okkur bæði í sókn og vörn,“ sagði Herdís Sigurbergsdóttir, leikmaður Stjörnunnar. Hjá Víking stóðu Halla María Helgadóttir og Svava Sigurðardóttir sig vel ásamt Helgu Torfadóttur markverði sem varði 12 skot. Herdís Sigurbergsdóttir stóð sig með prýði fyrir Stjörnuna ásamt Guðnýu Gunnsteinsdóttur. • Mörk Víkings: Halla María 6/2, Svava 5,Helga 2, Hanna 2, Þórdis 1. • Mörk Stjörnunnar: Herdís 5/1, Ragnheiður 5/3, Guðný 4, Laufey 3, Sigrún 3, Inga Fríða 1. • Laufey Sigvaldadóttir reynir markskot að marki Víkings í gærkvöldi. DV-mynd GS • Þátttakendur, sem verðlaunaðir voru sérstaklega, saman komnir eftir verðlaunaafhendingu í húsakynnum Ung- mennafélags íslands i Reykjavik i gær. Þórir Jónsson, formaður UMFÍ, Guðbjörg Guðmundsdóttir, Samhygð, Anna Marin Kristjánsdóttir, Akureyri, Ölvir Thorstensen, Reykjavík, Stefán Jasonarson. Fyrir framan eru þær Halldóra Markúsdóttir, Berglind Heigadóttir og Ingibjörg Markúsdóttir. DV-mynd GS ÓlafurtilÍH Ólafur Thordarsen, fyrrum lefkmaður Víkings og þjálfari 2. deildar liðs Keflavíkur í hand- knattleik í fyrra, er genginn til liðs við 2. deildar lið IH. Bohinentil Black- burn Ensku meistararnir í knatt- spymu, Blackburn Rovers, hafa fest lcaup á norska landsliðs- manninum Lars Bohinen frá Nottingham Forest fyrir 70 millj- ónir króna. Royrannsakaður Ensk knattspyrnuyfirvöld eru að kanna ásakanir um að Bryan Roy, hollenski landsliðsmaður- inn hjá Nottingham Forest, hafl hrækt á áhorfanda í bikarleik í Bradford fyrir skömmu. Irwin meiddur Denis Irwin, leikmaður Manc- hester United, getur ekki leikið með írum gegn Lettum í Evrópu- keppninni i knattspyrnu í næstu viku, vegna meiðsla. Terry Phel- an frá Manchester City hefur ver- ið valinn í hans stað. Mótískvassi Opið skvassmót á vegum Skvassfélgags Reykjavíkur verð- ur haldið í Veggsporti við Gullin- brú um helgina, frá föstudegi til sunnudags, og verður keppt í öll- um flokkum karla og kvenna. Mótið gefur punkta til íslands- móts. Skráning og upplýsingar eru í síma 587-2111. Þjálfaranámskeið Fræðslunefnd HSÍ stendur fyrir tveimur námskeiðum dagana 6.-7. október. Bæði námskeiðin fara fram i Víkinni. Annars vegar er það seinni hluti B-stigs nám- skeiðs, en fyrri hluti þess var síðla sumars. Hins vegar er það barnastigsnámskeið þar sem far- ið er í alla þætti í þjálfun barna. Innritun fer fram á skrifstofu HSÍ, s 568-5422 Aðalfundurhjá HK Framhaldsaöalfundur knatt- spyrnudeildar HK verður hald- inn í Digranesi í kvöld og hefst klukkan 20.30. í kvöld Nissandeildin í handbolta: FH-KA................20.00 Selfoss - ÍBV........20.00 ÍR-KR.............,...20.00 Valur - Grótta.......20.00 Víkingur- Stjarnan...20.00 1. deild kvenna í handbolta: Valur-FH.............18.15 Fylkir - Fram........18.30 Haúkar-KR............20.00 2. deild karla í handbolta: HK-Fram..............20.00 EM í kvennahandbolta: Allir leikir um sömu helgi ISvíþjóð? , Allar líkur eru á því að riöill ísiands í Evrópukeppni kvenna í handknattleik verði leikinn um eina helgi í Svíþjóð eftir áramót- in, í stað þess að sptia heima og heiman eins og gert var ráö fyrir. ísland er í riðli með Rússlandi, Svíþjóö og sigurvegaranum í við- ureign Hollands og Belglu. Leik- irnir áttu að fara fram á tímabil- inu febrúar-apríl og mótiö í Sví- þjóð veröur þá innan þeirra tíma- marka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.