Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1995, Qupperneq 18
34
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1995
Iþróttir________________
HagnaðurUnited
tveirmilljarðar
á síðasta ári
Stjóm enska knattspyrnufé-
lagsins Manchester United til-
kynnti. í gær að hagnaður þess á
tímabilinu 1994-95 hefði numið
um 2 milljörðumíslenskra króna.
Það er nær helmings aukning frá
árinu á undan.
Það sem gerir útslagið í fjórmál-
um félagsins er gífurleg aukning
á sölu á alls kyns vamingi tengd-
um því, búningum, merkjum og
fleiru í þeim dúr. Félagið seldi
slíkt fyrir 2,3 milljarða á tímabíl-
inu, sem var 65 prósent aukning
frá tímabilinu 1993-94.
Félagið á nú 800 milljónir króna
i varasjóði og Martin Edwards,
stjórnarformaður, segir að þeim
peningum veröi varið til kaupa á
nýjum leikmönnum ef liðinu
gangi ekki nægilega vel þegar líð-
ur á veturinn.
Sætaferðir
Stjörnumanna
Stjörnumenn ætla að fjölmenna
á leik áinna manna gegn Víkingi
í 1. deildinni í handknattleik sem
fram fer í Víkinní í kvöld. Stuðn-
ingsklúbbur Stjömunnar verður
með sætaferöir frá Stjörnuheim-
ilinu í Garðabæ og er brottför
þaöan klukkan 19.15.
SiggiSveins
gegn Guðmundi
í 2. deildinni
Tveir af þekktustu handbolta-
mönnum landsins mætast í kvöld
sem þjálfarar liða í 2. deildinni.
HK, undir stjórn Sigurðar
Sveinssonar, sem jafnframt leik-
ur með liðinu, tekur á móti Fram,
undir stjóm Guðmimdar Guð-
mundssonar, í Digranesi klukkan
20. Þessum liðum er spáð topp-
baráttu i deildinni í vetur og því
verður eflaust um hörkuleik að
ræða. - ' V
Draumaliðá
vetrarleikum
Útlit er fyrir að vetrarólympiu-
leikamir eignist sitt „draumal-
ið“, á svipaðan hátt og banda-
risku NBA-leikmennirnir hafa
lífgað upp á tvo síðustu sumar-
leika. Atvinnumönnum í íshokkí
hefur verið heimiiað að taka þátt
í leikunum í Nagano í Japan árið
1998 og gert verður hlé á amer-
rísku atvinnudeildinni, NHL-
deildinni, sextán dögum áður en
leikarnir hefjast til að gera leik-
mönnunum kleift að æfa með
landsliöum sínum.
Tveiríslendingar
hjá norska
liðinu Oppsal
Tveir íslendingar eru nú hjá
norska handknattleiksliðinu
Oppsal. Ingi Þór Guömundsson,
fyrmm leikmaður Víkings og
Breiðabliks, spilar nú sitt annað
tímabil með félaginu og á dögim-
um var Örn Ölafsson ráðinn
þjálfari liðsins. Örn hefur starfað
i Noregi í nokkur ár.
Götukörfubolti
íKolaportinu
Körfuknattsleikssamband ís-
lands hefur samið við Kolaportiö
aö þar verði boðið upp á götu-
körfubolta í allan vetur. Sam-
starflö hófst í fyrra og gekk það
mjög vel. Opnað verður í dag
klukkan 16 og veröur opið til
klukkan 22 frá mánudegi til
funmtudags. Alls verða 20 körfu-
boltavellir til staðar fyrir al-
menning til að spila körfuknatt-
leik.
Landshreyfing ’95:
10 þúsund Islendingar
tóku þátt í verkef ninu
Um 10 þúsund íslendingar tóku
þátt í Landshreyfingu ’95 á um 250
þátttökustöðum um land allt. í sam-
vinnu við Ungmennafélag íslands
tóku Sundsamband íslands og Frjáls-
íþróttasamband íslands þátt í verk-
efninu. Landshreyfing stóð í 95 daga,
frá 28. maí til 30. ágúst. Til aö taka
þátt gat þátttakandi valið um að
ganga, skokka eða hlaupa 3 kíló-
metra eða synda 200 metra.
Yfir 5 þúsund gull-, silfur- og brons-
verðlaun voru veitt og á sjöunda
hundrað manns tóku þátt oftar en
75 sinnum og komast þar með í svo-
nefndan 75 hópinn. Ur þeim hópi
veru dregin út fimm nöfn sem veitt
voru verðlaun á blaðamannafundi
sem Ungmennafélag íslands efndi til
í gær.
Fyrstu verðlaun, helgarferð á Hótel
Eddu, hreppti Anna Marín Kristjáns-
dóttir frá Akureyri. Önnur verðlaun,
10 þúsund króna vöruúttekt í Frí-
sport hlaut Ölvir Thorstensen úr
Reykjavík. Þriðju verðlaun, 10 þús-
und króna vöruútekt í Frísport, hlaut
Ósk Elín Jóhannesdóttir úr Reykja-
vík. Fjórðu verðlaun, Speedotösku,
fékk Erna Erlingsdóttir, Akureyri,
og fimmtu verðlaun Friðþjófur Þor-
steinsson frá ísafirði.
Eins og í fyrra voru veitt verðlaun
til íþrótta- og ungmennafélaga fyrir
góða þátttöku. Annað árið í röð voru
þeir kröftugir á Þingeyri en íþrótta-
félagið Höfrungur hlaut verðlaun
fyrir flestar þátttökur í hlaupinu, en
samtals voru þær 11.136 í sumar sem
telst ótrúlegur árangur hjá ekki
stærra bæjarfélagi en Þingeyri.
Ungmennafélagið Samhygð var
meö mesta þátttöku miðað við íbúa-
íjölda en meöaltalið hjá þeim var
22,1 á íbúa. Samhygð og Höfrungi
voru veittar 100 þúsund krónur fyrir
afrekið.
„Þurfum margt að laga í vörn og sókn“
- öruggur sigur Sljörnustúlkna 1 Víkinni, 16-21
Helga Sigmundsdóttir skrifar:
Víkingur tók á móti Stjörnunni úr
Garðabæ í 1. deild kvenna í hand-
knattleik í gærkvöld í Víkinni og
lauk leiknum með sigri Stjörnunnar,
16-21. Staðan í leikhléi var 9-11.
„Ég er ekki ánægð með leikinn en
sigur er sigur svo þaö þýðir litið að
kvarta. Við byrjuðum vel og komust
í 2-7 en þær náðu að minnka muninn
í 7-8 og það sýnir að það þarf að laga
margt hjá okkur bæði í sókn og
vörn,“ sagði Herdís Sigurbergsdóttir,
leikmaður Stjörnunnar.
Hjá Víking stóðu Halla María
Helgadóttir og Svava Sigurðardóttir
sig vel ásamt Helgu Torfadóttur
markverði sem varði 12 skot. Herdís
Sigurbergsdóttir stóð sig með prýði
fyrir Stjörnuna ásamt Guðnýu
Gunnsteinsdóttur.
• Mörk Víkings: Halla María 6/2,
Svava 5,Helga 2, Hanna 2, Þórdis 1.
• Mörk Stjörnunnar: Herdís 5/1,
Ragnheiður 5/3, Guðný 4, Laufey 3,
Sigrún 3, Inga Fríða 1.
• Laufey Sigvaldadóttir reynir markskot að marki Víkings í gærkvöldi.
DV-mynd GS
• Þátttakendur, sem verðlaunaðir voru sérstaklega, saman komnir eftir verðlaunaafhendingu í húsakynnum Ung-
mennafélags íslands i Reykjavik i gær. Þórir Jónsson, formaður UMFÍ, Guðbjörg Guðmundsdóttir, Samhygð,
Anna Marin Kristjánsdóttir, Akureyri, Ölvir Thorstensen, Reykjavík, Stefán Jasonarson. Fyrir framan eru þær
Halldóra Markúsdóttir, Berglind Heigadóttir og Ingibjörg Markúsdóttir. DV-mynd GS
ÓlafurtilÍH
Ólafur Thordarsen, fyrrum
lefkmaður Víkings og þjálfari 2.
deildar liðs Keflavíkur í hand-
knattleik í fyrra, er genginn til
liðs við 2. deildar lið IH.
Bohinentil Black-
burn
Ensku meistararnir í knatt-
spymu, Blackburn Rovers, hafa
fest lcaup á norska landsliðs-
manninum Lars Bohinen frá
Nottingham Forest fyrir 70 millj-
ónir króna.
Royrannsakaður
Ensk knattspyrnuyfirvöld eru
að kanna ásakanir um að Bryan
Roy, hollenski landsliðsmaður-
inn hjá Nottingham Forest, hafl
hrækt á áhorfanda í bikarleik í
Bradford fyrir skömmu.
Irwin meiddur
Denis Irwin, leikmaður Manc-
hester United, getur ekki leikið
með írum gegn Lettum í Evrópu-
keppninni i knattspyrnu í næstu
viku, vegna meiðsla. Terry Phel-
an frá Manchester City hefur ver-
ið valinn í hans stað.
Mótískvassi
Opið skvassmót á vegum
Skvassfélgags Reykjavíkur verð-
ur haldið í Veggsporti við Gullin-
brú um helgina, frá föstudegi til
sunnudags, og verður keppt í öll-
um flokkum karla og kvenna.
Mótið gefur punkta til íslands-
móts. Skráning og upplýsingar
eru í síma 587-2111.
Þjálfaranámskeið
Fræðslunefnd HSÍ stendur fyrir
tveimur námskeiðum dagana
6.-7. október. Bæði námskeiðin
fara fram i Víkinni. Annars vegar
er það seinni hluti B-stigs nám-
skeiðs, en fyrri hluti þess var
síðla sumars. Hins vegar er það
barnastigsnámskeið þar sem far-
ið er í alla þætti í þjálfun barna.
Innritun fer fram á skrifstofu
HSÍ, s 568-5422
Aðalfundurhjá HK
Framhaldsaöalfundur knatt-
spyrnudeildar HK verður hald-
inn í Digranesi í kvöld og hefst
klukkan 20.30.
í kvöld
Nissandeildin í handbolta:
FH-KA................20.00
Selfoss - ÍBV........20.00
ÍR-KR.............,...20.00
Valur - Grótta.......20.00
Víkingur- Stjarnan...20.00
1. deild kvenna í handbolta:
Valur-FH.............18.15
Fylkir - Fram........18.30
Haúkar-KR............20.00
2. deild karla í handbolta:
HK-Fram..............20.00
EM í kvennahandbolta:
Allir leikir
um sömu helgi
ISvíþjóð?
, Allar líkur eru á því að riöill
ísiands í Evrópukeppni kvenna í
handknattleik verði leikinn um
eina helgi í Svíþjóð eftir áramót-
in, í stað þess að sptia heima og
heiman eins og gert var ráö fyrir.
ísland er í riðli með Rússlandi,
Svíþjóö og sigurvegaranum í við-
ureign Hollands og Belglu. Leik-
irnir áttu að fara fram á tímabil-
inu febrúar-apríl og mótiö í Sví-
þjóð veröur þá innan þeirra tíma-
marka.