Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1995, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1995, Qupperneq 25
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1995 41 Merming Blásarakvintett Reykjavíkur. Á dönskum nótum Afmælistónleikar voru haldnir í Norræna húsinu sl. sunnudag. Danska tónskáldið Herman D. Koppel varð 87 ára þennan dag og var hann heið- ursgestur tónleikanna. Lék hann á píanó með Blásarakvintett Reykjavík- Tónlist Herman D. Koppel er af pólskum gyðingum kominn, en fæddur í Dan- mörku. Hann stundaði nám í Danmörku við Konunglega tónhstarháskól- ann í Kaupmannahöfn og síðar í Frakklandi, Þýskalandi og Bretlandi. Eftir hann liggja fjölmargar tónsmíðar í stórum sem smáum formum, m.a. óperan Machbeth, sjö sinfóníur, fjórir píanókonsertar og konsertar m.a. fyrir óbó og klarínett, fiðlu og lágflðlu. Auk þess sex strokkvartett- ar, söngtónlist, kammertónlist, píanótónhst og tónhst við kvikmyndir, m.a. við Ditte menneskebarn og Paw. Honum hefur verið sýndur margvís- legur heiður og nú nýlega voru honum veitt Tónskáldaverðlaun Wilhelms Hansens 1995. Efnisskráin hófst með Kvintett í Es-dúr, K. 452 fyrir píanó og blásara. Verk þetta er í þrem þáttum, indælt að yfirbragði, en býr þó yfir marg- slungnum tónvef oft á tíðum og hljómfærsla höfundarins er á stundum mjög sérstök og óvenjuleg. Verkið var leikið af þokka og þótt lipurðin væri kannski ekki söm og áður á píanóið var samt létt og einkar ryt- mískt leikið. Hið mikla meistaraverk Carls Nielsens, Kvintett op. 43 fyrir blás- ara var næst leikið. Verk þetta býr yfir miklum túlkunarmöguleikum og var gaman að heyra aörar áherslur í flutningnum nú en áður hjá Blásarakvintett Reykjavíkur. Nielsen samdi verkið fyrir ákveðinn kvintett og nánast skraddarasaum- aði fyrir hvern meðlim þess kvintetts. Heiðursgesturinn Herman Koppel þekkti Nielsen náið og gat miðlað sumu varðandi hugsun hans í verkinu til þeirra í B.R. en slíkt er ætíð ómetanlegt fyrir flytjendur. Annað verk eftir Nielsen, þema með tilbrigðum fyrir píanó, óp. 42, hljóm- aði síðan fyrst eftir hlé. Þetta er ákaflega sérkennilegt verk, einkum und- ir lokin. Það býr yfir margvíslegum stemningum og virkar nánast eins og einhver paródía undir lokin. Verkið er þannig gert að maður vildi helst heyra það leikið af miklum virtúós og vafalaust hefur Koppel verið slíkur píanisti áður, enda benti margt í leik hans til þess, þótt nú væri fariö að bera á stirðleika. Síðasta verkið var afmælisbamsins sjálfs, Her- mans D. Koppels, Sextett op. 36 fyrir píanó og blásarakvintett, frá árinu 1943. Verkið hefst á þætti í marstakti, síðan taka við vorköll í öðram þættinum, en í þeim síðasta ríkir glaöværðin og vonin. Verkið er háryt- mískt og er oftlega teflt saman stakkatói og legatói. Þetta er bráöskemmti- legt verk, annar þátturinn er einkar fallegur og það er í heild mjög fag- lega skrifuð tónlist. Flutningurinn var og enda innblásinn og skal Nor- ræna húsinu þakkað sérstaklega fyrir að hafa staðið að hingaðkomu hins aldna tónskálds. Askell Másson Tapað fundið Plastbakpoki tapaðist Svartur plastbakpoki tapaðist í miðbæn- um á fóstudagskvöldið sl. í honum var seðlaveski, trefdl og fleira. Finnandi vin- samlegast hringi í s. 555 4104. Fundar- laun. Tilkyimingar Fjársöfnun handa börnum með krabbamein 26. september sl. var dregið úr potti þeim er myndaðist í fjársöfnun til handa börn- um með krabbamein sem tengdist Meist- arakeppni Körfuknattleikssambands ís- lands 23. september sl. Fulltrúi frá sýslu- mannsembættinu í Reykjavík var við- staddur er Jóhanna Valgeirsdóttir, skrif- stofustjóri SKB, dró nafn Sveins Magnús- sonar, Brekkustíg 35c í Njarðvík. Hlaut hann í vinning ferð til London og að- göngumiða á opna McDonaldsmótið í körfuknattleik þar í október. Safnaðarstarf Miðvikudagur 4. október Áskirkja: Samverustund fyrir foreldra ungra bama í dag kl. 13.30-15.30. Starf fyrir 10-12 ára böm kl. 17.00. Árbæjarkirkja: Opið hús í dag fyrir eldri borgara kl. 13.30-16.00. Handavinna og spil. Fyrirbænastund kl. 16.00. Bænarefn- um er hægt að koma tO presta safnaðar- ins. Fundur fyrir drengi og stúlkur 11-12 ára kl. 17-18. Leikhús ÞJÓDLEIKHÚSID Sími 551 1200 Litlasviðiðkl. 20.30. SANNURKARLMAÐUR ettir Tankred Dorst Frumsýning föstud. 6. okt. kt. 20.30, uppselt, 2. sýn. Id. 7/10,3. sýn. fid. 12/10,4. sýn. föd. 13/10,5. sýn. mvd. 18/10. Stóra sviðið kl. 20. ÞREK OG TÁR eftir Ólaf Hauk Simonarson 6. sýn. föd. 6/10, uppselt, 7. sýn. Id. 14/10, uppselt, 8. sýn. 15/10, uppselt, 9. sýn. fid. 19/10, uppselt, föd. 20/10, uppselt, Id. 28/10, uppselt. STAKKASKIPTI eftir Guðmund Steinsson Ld. 7/10, löd. 13/10. Smíðaverkstæðið kl. 20.00 TAKTU LAGIÐ, LÓA! eftir Jim Cartwright í kvöld 4/10, sd. 8/10, uppselt, mvd. 11/10, nokkur sæti laus, Id. 14/10, uppselt, sud. 15/10, nokkur sæti laus, fid. 19/10, föd. 20/10. Miöasalan er opin frá kl. 13-18 alla daga og fram aö sýningu sýningardaga. Einnig símaþjónusta frá kl. 10 virka daga. Greiöslukortaþjónusta. Fax: 561 1200 Sími miðasölu: 551 1200 Simi skrifstofu: 551 1204 VELKOMIN ÍÞJÓÐLEIKHÚSIÐ! Breiðholtskirkja: Kyrrðarstund í dag kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir. Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eftir stundina. Starf fyrir 13-14 ára ungl- inga hefst kl. 20.00. Bústaðakirkja: Félagsstarf aldraðra. Opið hús kl. 13.30-16.30. Fótsnyrting aldr- aðra miðvikudag. Tímapantanir í síma 553 77801. Dómkirkjan: Hádegisbænir kl. 12.10. Léttur hádegisverður á kirkjuloftinu á eftir. Lesmessa kl. 18. Sr. Jakob Á. Hjálm- arsson. Fella og Hólakirkja: Helgistund í Gerðu- bergi fimmtudaga kl. 10.30. Grafarvogskirkja: Fundur KFUK, stúlk- ur 9-12 ára, í dag kl. 17.30-18.30 Grensáskirkja: Starf fyrir 10-12 ára börn kl. 17.00. Hallgrímskirkja: Opið hús fyrir foreldra ungra barna kl. 10-12. Fræðsla: Brjósta- gjöf. Erna Ingólfsdóttir hjúkrunarfræð- ingur. Hjallakirkja: Fundur fyrir 10-12 ára (TTT) í dag kl. 17.00. Háteigskirkja: Foreldramorgnar kl. 10.00. Kvöldbænir og fyrirbænir í dag kl. 18. Kópavogskirkja: Kyrrðar-ogbænastund í dag kl. 17.30. Langholtskirkja: Foreldramorgunn kl. 10-12. Kirkjustarf aldraða: Samveru- stund kl. 13-17. Akstur fyrir þá sem þurfa. Föndur, spilað, léttar leikfimiæf- ingar. Dagblaðalestur, kórsöngur, ritn- ingarlestur, bæn. Kafíiveitingar. Aftan- söngur kl. 18.00. Laugarneskirkja: Miðvikudagskvöld- stund á vegum mömmumorgna í Sund- laug Loftleiða kl. 20.30. Neskirkja: Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 18.05. Kvenfélag Neskirkju hefur opiö hús í dag kl. 13-17 í safnaðarheimili kirkjunn- ar. Kínversk leikfimi, kaffi og spjall. Fótsnyrting og hárgreiðsla á sama tima. Litli kórinn æfir kl. 16.15. Umsjón Inga Backman og Revnir Jónasson. Seljakirkja: Fyrirbænir og íhugun í dag kl. 18.00. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjart- anlega velkomnir. Tekið á móti fyrirbæn- arefnum í kirkjunni, sími 5670110. Fund- ur Æskulýðsfélagins Sela kl. 20.00. Seltjarnarneskirkja: Kyrröarstund kl. 12.00. Söngur, altarisganga, fyrirbænir. Léttm- hádegisverður í safnaðarheimil- inu. LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR Stóra sviðið LÍNA LANGSOKKUR eftir Astrid Lindgren Sunnud. 8/10 kl. 14, uppselt, laud. 14/10 kl. 14, örfá sæti laus, sunnud. 15/10 kl. 14, örfá sætl laus. Stóra sviðið kl. 20.30. Rokkóperan Jesús Kristur SUPERSTAR eftir Tim Rice og Andrew Lloyd Webber Fimmtud. 5/10, föstud. 6/10, uppselt, fim. 12/10, laud. 14/10, miðnætursýning kl. 23.30, Ath: Aðeins átta sýningar eftir. Stóra sviðið kl. 20: TVÍSKINNUNGSÓPERAN Gamanleikrit með söngvum eftir Ágúst Guðmundsson. Frumsýning laugard. 7/10. Litla svið 20. HVAÐ DREYMDI ÞIG, VALENTÍNA? eftir Ljúdmilu Razumovskaju í kvöld 4/10, uppselt, sun. 8/10, uppselt, mvd. 11/10, föstud. 13/10, uppselt, laud. 14/10, uppselt. Tónleikaröð LR: hvert þriðjudagskvöld kl. 20.30. Þriðjud. 10/10,3-5 hópurlnn Kvintettar og trió. Miðav. 800,- Miðasalan er opin alla daga frá kl. 13-20 nema mánudaga frá kl. 13-17, auk þess er tekið á móti miðapöntun- um í síma 568-8000 alla virka daga. Greiðslukortaþjónusta. Gjafakortin okkar, frábær tækifærisgjöf. Leikfélag Reykjavikur- Borgarleikhús Faxnúmer 568-0383. Sími 551-1475 Frumsýning laugard. 7. október. Sýning föstud. 13/10, laugard. 14/10. Sýningar hefjast kl. 21.00. Miðasalan er opin kl. 15-19 daglega nema mánudaga, sýningardag til kl. 21. STYRKTARFÉLAGARI Munið forkaupsréttinn frá 25. til 30. september. Almenn miðasala hefst 30. september. SÍMI551-1475, bréfasimi 552-7384. GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA Innilegar þakkir til þeirra sem heiðruðu mig með góðum gjöfum, kveðjum og skeytum í tilefni 80 ára afmœlis míns 29. sept. sl. Sérstakar þakkir til þeirra sem heiðruðu mig með nærveru sinni í Perlunni að kvöldi afmœlisdagsins og þakklœti til starfsfólks Perlunnar fyrir sérstak- lega góða og hlýja þjónustu. Enn fremur sérstakar þakkir til smávaxna engilsins sem kom með óvœnta uppákomu í lok hinnar full- komnu kvöldmáltíðar. Megi góðir vœttir fylgja ykkur öllum. Davíð Þórðarson Allll 9 0 4 - 1 7 0 0 Verð aðeins 39,90 mín. Fótbolti 2 ■ Handbolti 3 [ Körfubolti 41 Enski boltinn 5.] ítalski boltinn 6 Þýski boltinn 7 j Önnur úrslit 8 NBA-deildin íj Vikutilboð stórmarkaðanna ' 2 Uppskriftir -lj Læknavaktin 2 [ Apótek 3 [ Gengi i: lj Dagskrá Sjónvarps 2 j Dagskrá Stöðvar 2 |3J Dagskrá rásar 1 Myndbandalisti vikunnar - topp 20 5 [ Myndbandagagnrýni 6 ísl. listinn -topp 40 i7-l Tónlistargagnrýni 8j Nýjustu myndböndin gj Leikhús IjJj Leikhúsgagnrýni .51 Bíó ; 6 j Kvikmyndagagnrýni ; 1\ LottÓ [2] Víkingalottó _3j Getraunir 904-1700 Verð aðeins 39,90 mín.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.